Eldgos og jarðhræringar
115 116 117 118 119 120 121 122 123 … 132 ›
Engin eldsumbrot í Eyjafjallajökli Allt virðist hafa verið með kyrrum kjörum í Eyjafjallajökli í nótt eftir að nokkrir smáskjálftar mældust í jöklinum, suðvestur af Básum í Þórsmörk í gærkvöldi. Síðan hefur allt verði rólegt í jöklinum, en kraftur er að færast í hreinsunarstarf. Innlent 25.5.2010 07:01
Engin aska í loftinu og heiðskýrt og fallegt veður Enginn gosmökkur er nú frá Eyjafjallajökli og sjást aðeins litlar gufubólstrar á toppnum. Innlent 24.5.2010 09:55
Aðalatvinnugreinarnar í uppnámi Ferðaþjónusta og landbúnaður tvær aðalatvinnugreinarnar á Suðurlandi eru í uppnámi, vegna eldgossins undanfarnar fimm vikur. Sumstaðar hafa bókanir ferðamanna í sumar hrunið. Innlent 23.5.2010 18:49
Gosinu lokið í bili „Það er engin kvika að koma upp og gosið er dottið niður. Tíminn verður að leiða í ljós hvort þetta sé endir gossins eða hlé. Við vitum það ekki,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Hann og Ómar Ragnarsson flugu yfir Eyjafjallajökul á fjórða tímanum í dag. Innlent 23.5.2010 16:28
Enn skilgreint sem hættusvæði Verulega hefur dregið úr gosvirkni í Eyjafjallajökli en sérfræðingar segja ótímabært að segja að gosinu sé lokið. Ómar Ragnarsson flaug yfir gosstöðvarnar í morgun og varð ekki var við neinar eldhræringar. Innlent 23.5.2010 15:08
Hætta flugi milli Akureyrar og London vegna eldgossins Iceland Express hefur ákveðið að hætta við reglubundið flug milli Akureyrar og London, sem vera átti í sumar, þar til næsta ár. Ástæða þess er sú, að dregið hefur úr eftirspurn eftir ferðum, bæði hér heima og í öðrum löndum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Innlent 23.5.2010 13:43
Ómar Ragnarsson: Engin aska kemur úr Eyjafjallajökli Margt bendir til að eldgosinu í Eyjafjallajökli sé að ljúka, en virknin í eldstöðinni hefur snarminnkað síðastliðinn sólahring. Ómar Ragnarsson flaug yfir eldstöðina í morgun og sá enga ösku. Innlent 23.5.2010 12:16
Ryanair fer fram á skaðabætur vegna eldgossins Ryanair mun fara fram á skaðabætur vegna truflana sem félagið varð fyrir vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Erlent 23.5.2010 12:05
Litlar hræringar í eldstöðinni í Eyjafjallajökli Mikil rólegheit virðast nú vera við Eyjafjallajökul. Að sögn lögreglumanns á Hvolsvelli gætti þar lítilsháttar öskufalls í gær en ekkert sést nú til gossins. Sérfræðingar á Veðurstofu Íslands segir að smá skot hafi verið í gosinu um hádegisbil í gær en síðan þá hafi dregið úr gosóróa á svæðinu. Þeir segja að ekki sé hægt að slá því föstu að gosinu sé að ljúka en lítið sem ekkert sést til þess ef vefmyndavélar Mílu eru skoðaðar um þessar mundir. Innlent 23.5.2010 09:50
Engar tilkynningar um öskufall Engar tilkynningar hafa borist af öskufalli í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Gosmökkurinn er í um 4 kílómetra hæð samkvæmt athugun könnunarflugs sem farið var eftir hádegi. Hæg austlæg vindátt ber mökkinn til vesturs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í stöðuskýrslu Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Innlent 22.5.2010 15:31
Enn dregur úr gosinu Enn dregur úr gosinu í Eyjafjallajökli að sögn Sigþrúðar Árnadóttur starfsmanns Veðurstofu Íslands. Nokkrir litlir skjálftar mældust í nótt, flestir voru þeir grunnir en verið er að afla frekari upplýsinga um gosóróan á Veðurstofunni. Innlent 22.5.2010 10:14
Fá vinnu við gosstöðvarnar Um fjörutíu störf verða til við aðstoð við búskap í sveitum við Eyjafjallajökul á næstunni. Samkomulag náðist um þetta í gær. Innlent 21.5.2010 21:42
Vörðu mannvirki fyrir eðjuflóði Stórvirkar vinnuvélar voru notaðar í gær til að verja mannvirki fyrir flóðinu í Svaðbælisá undir Eyjafjöllum. Fyrir hádegi tók að rigna og óx í ánni að sama skapi, að sögn Ólafs Eggertssonar bónda á Þorvaldseyri. Innlent 20.5.2010 22:18
Íbúafundur á Hvolsvelli vegna eldgossins Íbúafundur verður haldinn í íþróttahúsinu á Hvolsvelli í kvöld klukkan 20:30. Farið verður yfir þróun eldgossins í Eyjafjallajökli, afleiðingar þess og stöðuna í dag. Innlent 20.5.2010 09:31
Ekki flogið til Eyja og Egilsstaða vegna þoku Innanlandsflug hófst samkvæmt áætlun i morgun nema hvað ekki hefur enn verið flogið til Egilsstaða og Vestmannaeyja vegna þoku á þeim stöðum, en ekki vegna eldfjallaösku í lofti. Innlent 20.5.2010 08:13
Gosið bætir gráu í svört ský yfir Evrópu Íslendingar hafa tíma 11. júní til að sannfæra heiminn um að landið sé öruggt og að hingað sé yfirhöfuð hægt að ferðast, að sögn fjölmiðlamannsins Simons Calder. Nýta þurfi gluggann fram að HM í fótbolta. Gos í Eyjafjallajökli var til umræðu á fundi Icelandair í gær. Formaður Evrópusambands flugfélaga segir heildartap vegna þess, dagana 15. til 23. apríl, hafa numið 733 milljónum evra, eða 117,7 milljörðum króna. Innlent 19.5.2010 22:11
Flóðið olli ekki skemmdum á vegamannvirkjum Eðjuflóðið sem kom niður Svaðbælisá og fór yfir varnargarða við Þorvaldseyri hefur ekki valdið skemmdum á vegamannvirkjum. Flóðið er að sjatna en vatn hefur farið yfir varnargarða á 150 metra kafla, að því er fram kemur í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Mikil eðja er í vatninu og framburður. Innlent 19.5.2010 10:45
Eyjafjallajökull: Eðjuflóð í Svaðbælisá Mikið eðjuflóð hófst í Svaðbælisá undir Eyjafjöllum upp úr klukkan níu í morgun og vatnar yfir varnargarðana á svæðinu. Að sögn Ólafs Eggertssonar bónda á Þorvaldseyri, sem var staddur á brúnni yfir ánna fyrir stundu, sýnist þetta vera eðja frekar en vatn og að hún komi frá Eyjafjallajökli, eins og síðasta flóð þarna nýverið. Innlent 19.5.2010 09:56
Innanlandsflug hafið Biðstaða var í innanlandsfluginu í morgun og var öll áætlun Flugfélags Íslands og Ernis í nánari athugun. Nú er hinsvegar búið að opna Reykjavíkurflugvöll og hófst innanlandsflug upp úr klukkan átta. Ekki er þó víst hvort hægt verður að fljúga til Ísafjarðar, en búið er að opna Akureyrarflugvöll. Innlent 19.5.2010 08:12
Innanlandsflug í nánari athugun Biðstaða er í innanlandsfluginu þessa stundina og öll áætlun Flugfélags Íslands og Ernis er í nánari athugun. Aska er víða í háloftunum og er verið að kortleggja hana nánar. Keflavíkurflugvöllur er hinsvegar opinn og hefur millilandaumferð verið með eðlilegum hætti í morgun. Innlent 19.5.2010 06:53
Heimsækja ferðaþjónustuaðila á gossvæðinu Samráðshópur stjórnvalda og ferðaþjónustu hefur verið starfandi frá upphafi goss í Eyjafjallajökli undir forystu iðnaðarráðherra. Viðbragðsteymið heimsækir í dag ferðaþjónustuaðila, forsvarsmenn sveitarfélaga og almannavarna á Hvolsvelli, í Vík og á Moldnúpi undir Eyjafjöllum. Innlent 18.5.2010 10:03
Flogið frá Reykjavík Fyrstu vélar Flugfélags Íslands og Ernis leggja upp frá Reykjavík klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í lofti. Hvorki verður þó flogið til Akureyrar eða Egilsstaða þar sem vellirnir þar eru enn lokaðir. Egilsstaðaflugvöllur gæti opnast fljótlega, en Akureyrarflugvöllur verður hugsanlega lokaður í allan dag. Innlent 18.5.2010 09:58
Ekki flogið frá Reykjavík Fyrstu vélar Flugfélags Íslands og Ernis hafa ekki lagt upp frá Reykjavík samkvæmt áætlun núna í morgunsárið, þar sem völlurinn hefur verið lokaður. Horfur eru á að hann opnist innan tíðar en hinsvegar eru vellirnir á Akureyri og Egilsstöðum lokaðir vegna öskufalls, en Egilsstaðaflugvöllur gæti opnast fljótlega. Hinsvegar er núna útlit fyrir að Akureyrarflugvöllur verði lokaður í dag, en það getur breyst þegar líður á daginn. Keflavíkurflugvöllur er opinn og er millilandaflug um hann í fullum gangi. Innlent 18.5.2010 07:17
Mikil eldvirkni á Íslandi um þessar mundir Hrina eldgosa í Vatnajökli sem hófst árið 1996 er í samræmi við rannsóknir sem íslenskir vísindamenn gerðu og voru birtar fyrst fyrir rúmum áratug. Innlent 17.5.2010 22:31
Íbúafundur vegna eldgossins Þjónustumiðstöðin að Heimalandi minnir á áður auglýstan fund í kvöld klukkan 20:30 fyrir íbúa í Rangárþingi eystra á vegum sveitarfélagsins í félagsheimilinu Heimalandi. Á fundinum verður fjallað um stöðu mála vegna eldgossins í Eyjafjallajökili og úrræði rædd, að því er fram kemur í tilkynningu. Innlent 17.5.2010 12:44
Millilandaflugvellirnir gætu allir lokast Horfur eru á að allir millilandaflugvellir hér á landi lokist í kvöld og verður það í fyrsta sinn frá því að eldgosið í Eyjafjallajökli hófst. Innlent 17.5.2010 11:42
Icelandair fellir niður flug Töluverð röskun verður á flugi Icelandair í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar, en flug var með eðlilegum hætti í morgun. Félagið hefur fellt niður flug til Kaupmannahafnar, London, New York, Boston og Seattle síðdegis. Innlent 17.5.2010 09:20
Innanlandsflugi aflýst fram eftir degi Bæði Icelandair og Iceland Express flýttu brottförum margra Evrópuvéla í morgun vegna óvissu um flugskilyrði hér og þar yfir meginlandinu. Sumir flugvellir í Bretlandi, Skotlandi, Írlandi og í Hollandi voru lokaðir í morgun, en búið er að opna einhverja þeirra. Flugfélag Íslands hefur aflýst öllu innanlandsflugi fram eftir degi. Innlent 17.5.2010 07:16
Dýralæknar fylgjast með lambadauða Farið er að bera á lambadauða í fjárhúsum á öskufallssvæðunum og fylgjast dýralæknar grannt með framvindu mála. Ekkert bendir til að flúoreitrun sé ástæða lambadauðans, heldur sé miklum og vaxandi þrengslum í fjárhúsum um að kenna, því ekki er hægt að hleypa ám og lömbum út úr húsunum, eins og venja er. Innlent 14.5.2010 12:26
Tólf þotur fastar á Keflavíkurflugvelli Icelandair hefur fellt niður allt flug síðdegis í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar, en ekkert var flogið í morgun vegna þess að vellinum var lokað í nótt. Ekkert innanlandsflug er heldur um Reykjavíkurflugvöll og tólf farþegaþotur eru innilokaðar á Keflavíkurflugvelli. Innlent 14.5.2010 11:47