HM 2015 í Katar

Svona hafa leikir Katars verið dæmdir
Færri brottvísanir, fleiri víti og dómarar frá fyrrum ríkjum Júgóslavíu hafa dæmt fimm af átta leikjum Katars.

Alfreð og Dagur í sama gæðaflokki
Bob Hanning er maðurinn á bak við uppgang Füchse Berlin og var aðalhvatamaðurinn að því að Dagur Sigurðsson var ráðinn þjálfari þýska landsliðsins. Hann segist aldrei hafa velt því tvisvar fyrir sér hvort Dagur væri rétti maðurinn í starfið.

Katar er prúðasta liðið á HM
Ekkert lið fengi færri brottvísanir á HM í handbolta.

Jurecki: Hefur ekkert með íþróttir að gera
Pólverjar segja að Katar hafi komist í úrslitaleikinn með aðstoð dómaranna.

Búið að ákveða úrslitin fyrir leik
Pólverjar voru æfir yfir dómgæslunni í leik sínum gegn Katar í dag og klöppuðu hæðnislega fyrir dómurunum eftir leik.

Nöddesbo: Heimskulegt ef Gummi hefði tekið Lasse út af
Jesper Nöddesbo hæstánægður með félaga sinn í danska landsliðinu, Lasse Svan Hansen.

Zvizej: Erfiðar áherslur dómara
Tveir Slóvenar fuku af velli í leiknum við Dani, línutröllið Matej Gaber í byrjun seinni hálfleiks fyrir að setja olnbogann þéttingsfast í Mads Christiansen og 5 mínútum síðar fauk annar línumaður af velli, Miha Zvizej sem sagði þetta í samtali við Vísi eftir leikinn.

Omeyer sá til þess að Frakkar komust í úrslit
Markvörðurinn ótrúlegi, Thierry Omeyer, lokaði marka Frakka í kvöld og sá til þess að þeir komust í úrslitaleik HM. Frakkland lagði þá Spán, 26-22, í svakalegum handboltaleik. Spánverjar verja því ekki titil sinn í Katar.

Gummi: Var aldrei rólegur í seinni hálfleik
Guðmundur Guðmundsson segir að sigur Dana á Slóvenum hafi verið gríðarlega þýðingarmikill. Danir eru öruggir með að spila um sæti á Ólympíuleikunum í Brasilíu á næsta ári. Danir mæta Króötum á morgun um 5. sætið á HM.

Skoraði 13 mörk úr 13 skotum
Lasse Svan Hansen var frábær í kvöld þegar Danir unnu Slóvena 36-33. Hann skoraði mörk í öllum regnbogans litum og þegar alls 13 úr jafnmörgum skotum.

Katar komið í úrslit á HM
Ævintýri fjölþjóðalandsliðs Katar í handbolta hélt áfram í dag er liðið tryggði sér farseðilinn í úrslitaleik HM. Það sá enginn fyrir að gæti gerst.

Heinevetter: Okkar versti leikur
Markvörðurinn var magnaður í kvöld en það dugði Þjóðverjum ekki til gegn Króötum.

„Allir í Katar vita hvernig þetta virkar“
Mimi Kraus sagði frá samskiptum sínum við leigubílsstjóra í Katar.

Kraus: Segi ekkert um dómgæsluna fyrir framan myndavélarnar
Viðbrögð þýsku leikmannanna eftir tapið gegn Króatíu á HM í handbolta.

Dagur: Hallaði á okkur í dómgæslunni
Segir að sínir menn hafi verið bensínlausir í kvöld eftir erfiða riðlakeppni.

Hermönnum úthlutað sætum eiginkvenna leikmanna
Konunum var smyglað inn í gegnum VIP-svæði fyrir leik Þýskalands og Katars á HM í handbolta.

Gríðarlegur tekjumunur þýsku landsliðsmannanna
Þýska blaðið Bild segir að knattspyrnumenn fái hundraðfalt hærri bónus en handboltamenn fyrir heimsmeistaratitil í sinni grein.

Umfjöllun: Danmörk - Slóvenía 36-33 | Danir leika um 5. sætið
Hornamaðurinn Lasse Svan Hansen skoraði 13 mörk úr jafn mörgum skotum þegar Danmörk bar sigurorð af Slóveníu, 36-33, í leik um réttinn til að leika um 5. sætið á HM í Katar.

Umfjöllun: Króatía - Þýskaland 28-23 | Erfitt tap hjá Degi
Þjóðverjar spiluðu illa gegn Króatíu á HM í dag og töpuðu.

Kraus: Getum unnið Króatíu
Mimi Kraus segir að heimaliðið njóti stundum heimadómgæslu á HM í handbolta.

Stojanovic um ofurlaunin: Handbolti er okkar vinna
Hver leikmaður Katar fær 15 milljónir króna fyrir hvern sigurleik á HM.

HM er eins og bikarkeppni
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins, gagnrýnir mótafyrirkomulagið á HM í handbolta eftir að Danir duttu út í 8-liða úrslitum eftir tap gegn Spáni. Danir hefja baráttuna um fimmta sætið í dag.

Grötzki: Dagur er ótrúlega fær þjálfari
"Hver einasta stund er þaulhugsuð hjá Degi,“ segir hornamaðurinn Patrick Grötzki.

Þess vegna er fimmta sætið svona mikilvægt fyrir Dag og Guðmund
Ulrik Wilbek, yfirmaður landsliðsmála hjá danska handboltasambandinu, hefur reiknað það út að það sé mjög mikilvægt að ná fimmta sætinu á HM í Katar. Danskir fjölmiðlar fjalla um þetta í dag.

Nöddesbo: Ég vil frekar tapa með einu marki og spila vel
Jesper Nöddesbo og félagar hans í danska landsliðinu þurftu að sætta sig við eins marks tap á móti Spánverjum í átta liða úrslitum á HM í Katar.

Green um sigurmark Spánar: Tilfinningin hræðileg
Jannick Green fór í rétt horn þegar Joan Canellas tryggði Spáni sigur í gær en það dugði ekki til.

Dagur: Við erum betri en Katar
Dagur Sigurðsson vildi ekkert ræða dómgæsluna og sagði Þjóðverja hafa klúðrað þessu sjálfir í gær.

Guðmundur: Ég kvaldist í alla nótt
Danskir blaðamenn voru grimmir á blaðamannafundi með Guðmundi Guðmundssyni í dag eftir tapið gegn Spáni í gær.

HM-Handvarpið: Ekki hægt að halda með ekki-landsliði Katar
Hlustaðu á fjórða þátt HM-Handvarpsins, hlaðvarp Vísis um heimsmeistarakeppnina í handbolta.

Dagur: Erfiðari leið inn á Ólympíuleika
Neitaði að tjá sig um dómgæsluna eins og hann hefur áður gert.