Sund

Snorri Dagur varamaður inn í undanúrslitin
Þrír íslenskir sundmenn syntu á fjórða deginum á Evrópumeistaramótinu í sundi í Belgrad. Engin þeirra komst áfram en það er enn smá von um að Snorri Dagur Einarsson fái að synda í undanúrslitunum.

Snæfríður fjórða á EM
Sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir hafnaði í fjórða sæti í 200 metra skriðsundi á Evrópumótinu í sundi í dag.

Anton fjórði á EM
Enton Sveinn McKee hafnaði í fjórða sæti í 200 metra bringusundi á Evrópumótinu í sundi í dag.

„Mér þykir alltaf vænt um hlutina mína“
Stílistinn, jógakennarinn og Swimslow eigandinn Erna Bergmann er mikil smekkskona sem er oft með marga bolta á lofti og tvær til þrjár töskur á sér hverju sinni. Uppáhalds taskan er einstakur erfðagripur frá látinni frænku og það má stundum finna orkusteina í renndum hólfum hjá Ernu. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Anton Sveinn með besta tímann í undanúrslitum
Anton Sveinn McKee synti sig örugglega inn í úrslit í 200 metra bringusundi á tímanum 2:10,14 á Evrópumeistaramótinu í Belgrad.

Snæfríður sló Íslandsmet á leið sinni í úrslit Evrópumeistaramótsins
Snæfríður Sól Jórunnardóttir sló eigið Íslandsmet í 200m skriðsundi þegar hún tryggði sig áfram í úrslit á Evrópumeistaramótinu í Belgrad.

Kínverjar senda umdeilda keppendur til leiks á ÓL
Sundfólk sem kom við sögu í umfangsmiklu lyfjamáli fyrir síðustu leika hefur verið valið í Ólympíulið Kínverja fyrir leikana í París í sumar.

Anton Sveinn náði besta tímanum í undanrásunum
Anton Sveinn Mckee synti sig örugglega inn í undanúrslitin í 200 metra bringusundi á Evrópumeistaramótið í sundi í Belgrad í morgun.

Snæfríður Sól komst í undanúrslit
Snæfríður Sól Jórunnardóttir varð í fjórða sæti í undanrásum í 200 metra skriðsundi á Evrópumeistaramótið í sundi í Belgrad í morgun.

EM í sundi: Birgitta skar sig mjög illa á fæti í upphitun
Þrír Íslendingar syntu á Evrópumeistaramótinu í sundi í morgun. Ein af þeim var Birgitta Ingólfsdóttir sem lenti í óhappi í upphitun.

Snorri Dagur og Einar Margeir unnu báðir sinn riðil á EM í morgun
Fjórir íslenskir keppendur syntu í morgun þegar Evrópumeistaramótið í sundi í 50 metra laug hófst í Belgrad í Serbíu.

Fyrsta trans konan til að vinna háskólatitil fær ekki að keppa á ÓL
Bandaríska sundkonan Lia Thomas, sem varð á sínum tíma fyrsta trans íþróttamanneskjan til að vinna NCAA háskólatitil, fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum í París eftir að hafa tapað dómsmáli gegn Alþjóðasundsambandinu, World Aquatics.

Féllu á lyfjaprófi skömmu áður en þau unnu til verðlauna á Ólympíuleikunum
23 sundkappar af 30 manna sundliði Kína féllu á lyfjaprófi sjö mánuðum fyrir Ólympíuleikana í Tókýó árið 2021. Lyfjaeftirlit Kína sagði ólöglega efnið hafa smitast til keppenda sem innbyrtu það óviljandi. Alþjóðalyfjaeftirlitið, WADA, samþykkti þá niðurstöðu eftir sjálfstæða rannsókn og aðhafðist ekki frekar.

Bætti fimm ára Íslandsmet og var sendur í lyfjapróf
Ólympíufarinn Anton Sveinn McKee sýndi að hann er í frábæru formi þegar hann tók þátt í Íslands- og unglingameistaramótinu í sundi um helgina.

Bætti unglingamet og tryggði sig inn á Evrópumeistaramót
Tvö unglingamet féllu í úrslitahluta Íslandsmótsins í sundi í fimmtíu metra laug sem fór fram í gær.

Tókst loks eftir fimm ár að bæta eigið met
Anton Sveinn McKee virðist á hárréttri leið í undirbúningi sínum fyrir Ólympíuleikana í París í sumar því hann sló fimm ára gamalt Íslandsmet sitt í 100 metra bringusundi, þegar hann varð Íslandsmeistari í gær.

Snæfríður önnur og Anton Sveinn þriðji í Svíþjóð
Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee syntu bæði til úrslita á opna sænska meistramótinu í sundi í Stokkhólmi í dag. Snæfríður endaði í 2.sæti í tvö hundruð metra skriðsundi og Anton Sveinn í þriðja sæti í tvö hundruð metra bringusundi.

Púað á tuttugu ára sundkonu á verðlaunapallinum
Ísraelska sundkonan Anastasia Gorbenko vann silfur á heimsmeistaramótinu í Doha um helgina en hún fékk ömurlegar viðtökur frá áhorfendum þegar hún steig upp á verðlaunapallinn.

Jóhanna Elín í 36. sæti á HM
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, keppti í morgun á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug sem fram fer í Doha.

Heimsmeistarinn hissa en samt ekki eftir afar óvænt fall úr keppni
Óvænt tíðindi urðu á heimsmeistaramótinu í sundi í morgun þegar litháenska sunddrottningin Ruta Meilutyte féll úr keppni í undanrásum 100 metra bringusunds, en hún er ríkjandi heimsmeistari í greininni.

HSÍ fær 35 milljónum meira en næsta samband
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2024 en styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema alls rúmlega 512 milljónum króna.

Svekkjandi að missa handboltastrákana
Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee setur stefnuna á að komast í úrslit á Ólympíuleikunum í París í sumar. Næstu mánuðir í hans lífi munu einkennast af stífum æfingum.

„Ég er á góðum stað“
Sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir kom heim til Íslands til að keppa á Reykjavikurleikunum um síðustu helgi en hún stundar nám og æfingar út í Danmörku.

Anton Sveinn vann sér inn þúsund evrur á Reykjavíkurleikunum
Anton Sveinn McKee náði besta afrekinu á Reykjavíkurleikunum í sundi en mótið fór fram um helgina og tókst framkvæmdin vel.

Snæfríður Sól setti mótsmet á Reykjavíkurleikunum
Sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir setti mótsmet á Reykjavíkurleikunum í gær.

Vel á annað hundrað erlendra sundkappa í Laugardalslaug
Reykjavíkurleikarnir í sundi hófust í gær, föstudag, í Laugardalslaug og árangurinn lét ekki á sér standa.

Sigrún Huld tekin inn í Heiðurshöll ÍSÍ
Sundkonan Sigrún Huld Hrafnsdóttir er 25. íþróttamaðurinn sem tekinn er inn í heiðurshöll ÍSÍ.

Sá besti á árinu bjó til jólalag með Ladda
Sundmaðurinn fjölhæfi Már Gunnarsson var í gær útnefndur íþróttamaður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Hann sinnir jafnframt tónlistinni og gaf nýverið út jólalag sem þeir Laddi syngja saman.

Már og Sonja sköruðu fram úr í ár
Sundfólkið Már Gunnarsson og Sonja Sigurðardóttir var í dag útnefnt íþróttamaður og íþróttakona Íþróttasambands fatlaðra árið 2023.

Draumur Antons rættist: „Ótrúlega hrærður og meyr“
Anton Sveinn McKee segist hræður og meyr í kjölfar þess að hafa unnið til silfurverðlauna á Evrópumeistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fór í Rúmeníu á dögunum. Hann fann fyrir þjóðarstolti er hann stóð á verðlaunapallinum og sá íslenska fánann birtast.