Bandaríkin
79 80 81 82 83 84 85 86 87 … 334 ›
Trommarinn sem myrti móður sína látinn Bandaríski trommarinn Jim Gordon er látinn, 77 ára að aldri. Gordon átti farsælan feril sem trommari og lék með mörgum af skærustu stjörnum heims. Síðar fóru geðræn vandamál að gera vart við sig. Hann lét lífið í fangelsi þar sem hann afplánaði dóm fyrir að myrða móður sína. Lífið 16.3.2023 15:04
Tekist á um dánarbú Leonards Cohen Einkaerfingjar kanadíska ljóðskáldsins og tónlistarmannsins Leonards Cohen saka umboðsmann söngvarans um að reyna að ræna dánarbúinu innan frá. Dánarbúið er metið á tæpar 50 milljónir dala og þessa dagana er tekist á um það fyrir dómstólum í Los Angeles. Erlent 16.3.2023 14:01
Fyrsti fundur ráðamanna Japans og Suður-Kóreu í tólf ár Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, og Yoon Suk Yeol, forseti Suður-Kóreu, hittust í morgun og er það í fyrsta sinn sem leiðtogar ríkjanna gera það í tólf ár. Í aðdraganda fundarins samþykktu ráðamenn í báðum ríkjum að taka skref til að binda enda á langvarandi deilur þeirra. Erlent 16.3.2023 12:30
Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist. Erlent 16.3.2023 10:08
Rússar sagðir komnir á staðinn þar sem dróninn brotlenti Rússar eru mættir á staðinn þar sem flygyldi Bandaríkjamanna brotlenti á Svartahafi. Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segir drónann líklega á töluverðu dýpi og að erfitt verði að ná honum upp. Erlent 16.3.2023 07:51
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hóta að banna TikTok Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hótað því að banna samfélagsmiðilinn TikTok ef kínverskir fjárfestar selja ekki hlut sinn í fyrirtæknu. Áhyggjur eru uppi um að gögn fyrirtækisins endi í höndum yfirvalda í Kína. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:28
Rússar ætla að sækja drónann í Svartahaf Rússar ætla að reyna að sækja brak bandaríska drónans sem brotlenti í Svartahafi í gær. Bandaríkjamenn segja drónann hafa lent í hafinu eftir að rússneskri herþotu hafi verið flogið utan í hann. Erlent 15.3.2023 15:00
Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. Erlent 15.3.2023 14:20
Bein útsending: Opinbera nýja búninga fyrir tunglferðir komandi ára Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og fyrirtækisins Axiom Space ætla að kynna nýja geimbúninga sem notaðir verða í Artemis áætluninni í dag. Um er að ræða búninga sem geimfarar munu væntanlega klæðast yfirborði tunglsins á komandi árum. Erlent 15.3.2023 14:00
Deilt um markaðsleyfi þungunarrofslyfja í Bandaríkjunum Alríkisdómari í Amarillo í Texas mun í dag hlýða á málflutning í máli sem samtök andstæðinga þungunarrofs hafa höfðað gegn Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna til að fá þungunarrofslyfið mifepristone bannað. Erlent 15.3.2023 10:29
„Hvert einasta kyssti á mér rassinn“ Ný bók sem inniheldur bréf sem þjóðhöfðingjar og aðrir þekktir einstaklingar sendu Donald Trump áður eða eftir að hann varð forseti, mun sýna fram á að allir „kysstu á honum rassinn“, eins og hann komst að orði í samtali við Breitbart News í gær. Erlent 15.3.2023 07:49
Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum kallar uppákomuna „ögrun“ Anatoly Antonov, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, sagði í samtali við ríkisfréttastofuna RIA í gær að atvik sem átti sér stað í gær þegar rússneskar herþotur höfðu afskipti af bandarískum dróna hefði falið í sér ögrun. Erlent 15.3.2023 06:40
Rændi þrettán ára stelpu og læsti í skúr í tvær vikur Karlmaður í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum var á föstudaginn handtekinn grunaður um að hafa rænt þrettán ára stelpu, brotið gegn henni kynferðislega og læst hana inni í skúr í tvær vikur. Maðurinn á yfir höfði sér fjölda ákæra fyrir brot sín. Erlent 14.3.2023 23:33
„Þetta er svona skjálfti sem ég held að gangi yfir“ Fjármálaráðherra segir eftirlit með bönkunum hafa verið eflt verulega á síðasta rúma áratug en hrun bandaríska bankans Silicon Valley sýni fram á mikilvægi þess að regluverkið um bankastarfsemi og fjármálafyrirtæki sér sterkt. Innlent 14.3.2023 21:01
Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu. Erlent 14.3.2023 19:58
Rannsaka fall Kísildalsbankans Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 14.3.2023 18:47
Rússar þvinguðu bandarískan dróna til nauðlendingar Bandaríski flugherinn sakar Rússa um glannaskap þegar rússnesk herþota þvingaði bandarískan eftirlitsdróna til þess að nauðlenda í Svartahafi í dag. Atvikið er það fyrsta á milli ríkjanna tveggja frá því að stríðið í Úkraínu hófst. Erlent 14.3.2023 17:33
Segir aftur upp þúsundum manna Mark Zuckerberg, forstjóri Meta (áður Facebook) tilkynnti í dag að aftur væri verið segja upp fjölmörgum starfsmönnum fyrirtækisins. Að þessu sinni eru það tíu þúsund manns verið er að segja upp og á ekki að ráða í fimm þúsund lausar stöður. Viðskipti erlent 14.3.2023 15:25
Sérfræðingar uggandi og Kínverjar æfir vegna AUKUS Stjórnvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í gær formlega um samkomulag Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu um þróun og framleiðslu kjarnorkuknúinna herkafbáta. Erlent 14.3.2023 10:21
Bréf í bönkum taka dýfu Hlutabréf í bönkum hafa fallið talsvert í Asíu og í Evrópu þrátt fyrir staðhæfingar Bandaríkjaforseta um að bandaríska fjármálakerfið sé öruggt þrátt fyrir fall tveggja banka á örfáum dögum. Viðskipti erlent 14.3.2023 07:16
Trump skellir skuldinni á Pence fyrir árásina á þinghúsið Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, heldur því fram að Mike Pence, þáverandi varaforseti sinn, hefði getað komið í veg fyrir ofbeldi stuðningsmanna Trumps við þinghúsið fyrir tveimur árum með því að hjálpa honum að snúa við úrslitum forsetakosninganna. Erlent 13.3.2023 23:39
Traust á fjármálakerfinu ekki komið aftur eftir hrun Íslenskur hagfræðiprófessor segir að óróleiki vegna falls tveggja bandaríska banka bendi til þess að traust fólks á fjármálakerfinu sé ekki komið aftur þrátt fyrir að fimmtán ár séu liðin frá bankahruninu. Fátt bendi þó til þess að bankarnir hafi fallið vegna kerfislægs vanda. Viðskipti erlent 13.3.2023 23:14
Hjartnæmt myndskeið sýnir mæðgur sameinaðar á ný eftir 29 ár Meðfylgjandi myndskeið hefur fangað hug og hjörtu netverja eftir að hin bandaríska Allie Murphy Seabock birti það á TikTok nú á dögunum. Þar má sjá augnablikið þegar móðir Allie og dóttirin sem hún gaf til ættleiðingar nær þremur áratugum áður eru sameinaðar á ný, og eins og vænta má eru endurfundirnir afar tilfinningaþrungnir. Lífið 13.3.2023 20:01
Biden segir bankakerfið standa traustum fótum Joe Biden Bandaríkjaforseti fullyrti að bankakerfið væri traust þrátt fyrir fall tveggja banka á skömmum tíma. Landsmenn þyrftu ekki að hafa áhyggjur af innistæðum sínum og skattgreiðendur yrðu ekki látnir borga reikninginn. Viðskipti erlent 13.3.2023 18:57
Mörg ríki Bandaríkjanna hyggjast banna dragsýningar Stjórnvöld í Tennesse í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög sem banna dragsýningar. 10 ríki til viðbótar hafa lagt fram lagafrumvarp í svipuðum anda. Erlent 13.3.2023 14:30
Gæti reynst erfitt að lögsækja Trump Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trumps um árabil, mun bera vini fyrir sérstökum ákærudómstól í New York í dag. Trump sjálfum hefur einnig verið boðið að bera vitni fyrir þessum sama dómi vegna greiðslu hans til fyrrverandi klámmyndaleikkonu í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 13.3.2023 13:44
Xi vill stærra hlutverk á alþjóðasviðinu Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því að ríkið spilaði stærri rullu í alþjóðamálum. Forsetinn sagði í morgun að Kína ætti að taka virkan þátt í því að gera endurbætur á og að endurbyggja alþjóðakerfið. Það sagði Xi að myndi veita heimsfriði og framþróun „jákvæða orku“. Erlent 13.3.2023 11:09
Biden sagður munu leggja blessun sína yfir umfangsmikla olíuborun New York Times hefur eftir embættismönnum innan stjórnkerfis Bandaríkjanna að stjórnvöld muni í dag samþykkja umfangsmiklar olíuboranir í Alaska, sem munu mögulega gefa af sér 600 milljón tunnur af hráolíu á 30 ára tímabili. Erlent 13.3.2023 10:23
Öðrum banka lokað en innistæður að fullu tryggðar Etirlitsaðilar í New York ríki Bandaríkjanna hafa tekið yfir bankann Signature Bank, sem kominn var í sambærileg vandræði og SVB-bankinn sem lokað var fyrir helgi. Innistæður allra innistæðueiganda verða að fullu tryggðar svo tryggja megi trú á bandaríska bankakerfið. Bankarnir voru umsvifamiklir á rafmyntamarkaði. Viðskipti erlent 13.3.2023 08:49
Þetta eru sigurvegarar Óskarsins 2023 Kvikmyndin Everything, Everywhere All At Once er ótvíræður sigurvegari Óskarsverðlaunahátíðarinnar 2023. Myndin hreppti sjö verðlaun, meðal annars fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki, leikstjórn og sem besta mynd. Þýska stríðsmyndin All Quiet on the Western Front kom næst á eftir með fern verðlaun. Lífið 13.3.2023 04:08