Skoðun: Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttamynd

Börn úr símum – inn í sam­fé­lagið

Það er ekkert leyndarmál að börn og ungmenni eyða sífellt meiri tíma í símanum. Skjánotkun hefur færst úr því að vera afþreying yfir í að verða aðalvettvangur samskipta, leikja og jafnvel sjálfsmyndar. Á sama tíma hefur dregið úr félagsstarfi og einfaldri útiveru. Þetta er þróun sem við þurfum að taka alvarlega.

Skoðun
Fréttamynd

Menning er skatt­stofn, ekki skraut

Ég hef staðið í þessu harki lengi. Ég hef rekið bari, haldið líklega þúsundir minni tónleika og tekið þátt í risaviðburðum. Þessu fylgja hljóðmenn, listamenn, verktakar og ýmiss konar tæknifólk sem mætir, vinnur og fær greitt.

Skoðun
Fréttamynd

Hundalífið í Kópa­vogi

Síðan ég fór í framboð, hreinlega síðan ég fór prófkjör í vetur, hefur fólk komið til mín og beðið mig um að gera eitthvað í málefnum hundaeigenda. Ég get sagt ykkur að þetta er heitt málefni í Kópavogi.

Skoðun
Fréttamynd

Styrkjum ís­lensku­kennslu fyrir börn og ung­menni

Í grunnstefnu Miðflokksins í menntamálum vill flokkurinn leggja ríka áherslu á að íslenska hafi forgang innan opinberra stofnana og að samfélagið sameinist um að efla og vernda tungumálið. Flokkurinn vill styrkja íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni og tryggja öllum nemendum vandaða menntun. Jafnframt er lögð áhersla á að kennarar, foreldrar og nemendur hafi aðgang að nauðsynlegri stoðþjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

Hestar í höfuð­borginni

Að stíga á bak er dásamleg tilfinning. Hestar eru fallegar skepnur og nálægðin við þá fyllir mann af einhvers konar náttúrukrafti.Við eigum að vera mjög stolt af því að Reykjavík sé ein fárra höfuðborga í heiminum þar sem hestamennska blómstrar í návígi við byggðina. Þessi einstaka menningararfleifð og íþróttastarfsemi stendur hins vegar frammi fyrir áskorunum sem kalla á skýra framtíðarsýn af hálfu borgaryfirvalda.

Skoðun
Fréttamynd

Okkar sam­eigin­legu verk

Á laugardag göngum við að kjörborðinu og veljum fólkið sem við treystum best fyrir okkar nánasta umhverfi. Kjarni stjórnmálanna er þjónusta við íbúa og þar gegna sveitarfélögin lykilhlutverki.Þess vegna er mikilvægt að til sveitarstjórna veljist fólk sem sýnir ráðdeild í rekstri. Ábyrg meðferð almannafjár er forsenda þess að við getum veitt þá þjónustu sem samfélagið krefst og við þurfum að leita allra leiða til þess að bæta hana.

Skoðun
Fréttamynd

Hvernig er að eldast í Reykja­vík?

Eldra fólk og hagsmunasamtök þeirra hafa stigið fram í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og kallað eftir umræðu um hvað stjórnmálaflokkar vilja gera fyrir sístækkandi hóp eldra fólks í borginni. Borgarlífið snýst ekki bara um skólastarf, snemmtæk inngrip og rekstur borgarinnar.Þriðjungur kjósenda er eldra fólk, hópur sem mætir á kjörstað og tekur afstöðu enda kjörsókn þessa hóps mun meiri og betri en þeirra sem yngri eru. Hvaða þjónusta er í borginni fyrir þennan mikilvæga hóp? Hvers vegna er hún svona ósýnileg? Er Reykjavíkurborg borg fyrir eldra fólk?

Skoðun
Fréttamynd

Ríða, drepa, giftast

Einu sinni gengu þrír blindir menn fram á fíl. Þeir höfðu aldrei áður komist í tæri við þá skepnu og voru því afar forvitnir. Þeir þreifuðu einn í einu á fílnum til að komast að raun um hvernig hann liti út. Sá fyrsti sagði: „Fíllinn er langur og mjór eins og reipi“. „Nei“, sagði annar, „hann er hár, hrjúfur og breiður eins og veggur“. „Ykkur skjátlast báðum hrapallega“, sagði sá þriðji, „fíllinn líkist mest feitri slöngu“.

Skoðun
Fréttamynd

Vel­megun ein­stak­lingsins - opin­ber auð­legð - mark­mið jafnaðar­manna

Hver er framtíðarsýn stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til borgarstjórnar 2026? Þar er sumt ljóst en margt dulið. Það var bandaríski hagfræðingurinn John Kenneth Galbraith sem á sjötta áratug síðustu aldar færði í orð hugmyndina „einkaauðlegð, opinber örbirgð“ (private affluence, public squalor) til að draga athyglinni að vaxandi auðsöfnun sumra meðan opinber þjónusta og innviðir væru sveltir og vanfjármagnaðir.

Skoðun
Fréttamynd

Hver ber á­byrgð á stöðu Hafnar­fjarðar?

Rekstur Hafnarfjarðarbæjar er ekki sjálfbær, og er undir vaxandi álagi. Skuldahlutföll hafa hækkað og svigrúm til fjárfestinga í grunnþjónustu hefur minnkað. Þetta hefur bein áhrif á getu bæjarins til að fjárfesta í viðhaldi, bæta innviði og þjónusta bæjarbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Gangbrautarvörður sem vill leysa málin

Síðan við fjölskyldan fluttum í Laugardalinn hef ég ítrekað séð eða heyrt af börnum sem hafa næstum orðið fyrir bíl á gangbrautinni við heimili mitt á Kirkjuteig.

Skoðun
Fréttamynd

Löng valdaseta bara vanda­mál fyrir suma

Nú heyrist víða fullyrt að „Samfylkingin þurfi frí“ frá stjórn Reykjavíkurborgar. Klárlega geta fylgt áskoranir langvarandi setu við völd og mikilvægt og vera meðvituð um þær. En þá þarf að ræða líka kostina við samfellu við stjórn.

Skoðun
Fréttamynd

Belonging

Most, if not all of us, want to belong to the community we live in. Regardless of our age, background, social class, origin, or gender. It is a universal human need to connect with other people. A lack of connection causes social isolation, loneliness, and sadness.¹

Skoðun
Fréttamynd

Nýtum kosninga­réttinn

Kosningaþátttaka ungs fólks á Íslandi hefur farið minnkandi með árunum, þ.m.t. í sveitarstjórnarkosningum. Við unga fólkið í framboði fyrir Samfylkinguna í Kópavogi lítum á þetta sem áhyggjuefni enda eiga sveitarstjórnarkosningar erindi við alla óháð aldri.

Skoðun
Fréttamynd

Sterk rödd eldri borgara

Flokkur fólksins hefur frá upphafi ljáð eldri borgurum og hagsmunum þeirra rödd á vettvangi stjórnmálanna. Stefna Flokks svarar vel kröfum Félags eldri borgara fyrir komandi kosningar, sem eru bæði skýrar og réttmætar.

Skoðun
Fréttamynd

For­tíðin er ekki auka­at­riði, hún er við­vörun

Það er auðvelt að tala fallega um velferð. Það sem skiptir máli er hvað flokkar gera þegar raunverulegar tillögur um fjárhagsaðstoð, húsnæðisstuðning, þjónustu við fatlað fólk og félagslegt húsnæði eru lagðar á borðið.

Skoðun
Fréttamynd

Hin heillandi fortíðarþrá

Stundum er bent á að kosningabarátta sé jafnan heldur leiðinleg og fátt sem framkallar bros eða hlátur. Nú hafa vinir mínir á L-listanum á Akureyri bætt úr þessu svo um munar. Ég vissi auðvitað að það góða fólk hefur húmorinn í lagi en að hann væri svona þróaður og stórfenglegur kom mér töluvert á óvart.

Skoðun
Fréttamynd

Út­borgun í í­búð eða leikskóla­pláss í Kópa­vogi?

Hvergi á Íslandi eru barnafjölskyldur rukkaðar eins heiftarlega fyrir leikskólaþjónustu og í Kópavogi. Það eru sláandi reynslusögur frá foreldrum af barnaskattinum í Kópavogsmódelinu. Einstæð móðir í Kópavogi lýsir því að þurfa að borga tæplega 60 þúsund krónur á mánuði fyrir 8 klukkustunda vistun fyrir eitt barn og kveðst ekki hafa tök á að vinna minna.

Skoðun
Fréttamynd

Hvers vegna fer mið­aldra kona í fram­boð?

Þegar ég tók skrefið og ákvað að bjóða mig fram til sveitastjórnarkosninga þá kom vissulega upp sú spurning hvað ég hefði fram að færa til samfélagsins. Við konur eigum það oft til að tala okkur niður. Hvað get ég svo sem haft til málanna að leggja?

Skoðun
Fréttamynd

Þegar við höfnuðum „Viljandi villt“

Borgin okkar er frábær og hún á það skilið að skarta sínu fegursta. Sumarborgin Reykjavík á alltaf að vera í sparidressinu, þannig að bæði íbúar og gestir geti notið hennar til hins ýtrasta. 

Skoðun
Fréttamynd

Unga fólkið heim aftur

Ég er uppalinn á Eskifirði og þar liggja mínar rætur. Þar gekk ég í skóla, stundaði íþróttir og eignaðist mína bestu vini. Eftir útskrift frá Verkmenntaskóla Austurlands lá leið mín og kærustu minnar suður, eins og hjá svo mörgum ungum Austfirðingum.

Skoðun