Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 14. maí 2026 14:45 Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa ítrekað lagt til á kjörtímabilinu að bæjarstjórn hefji formlegar viðræður við Vegagerðina og Betri Samgöngur til þess að ræða brýnar úrbætur í samgöngumálum Hafnfirðinga. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur jafnharðan fellt þær með þeim rökum að samtal og viðræður séu í gangi. Það er því holur hljómur í stefnuskrám þessara flokka þegar þeir segja að stefna eigi að endurskoðun Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með það að leiðarljósi að flýta framkvæmdum í Hafnarfirði. Þessir flokkar skrifuðu undir samgöngusáttmálann og uppfærslu hans - og geta því ekki vikið sér undan ábyrgð á því að framkvæmdir í Hafnarfirði séu aftarlega í röðinni. N1 hringtorgið og Suðurhöfn - þörf á úrbótum Samfylkingin setur nauðsynlegar úrbætur í samgöngumálum í forgang. Íbúar eiga að komast greiðlega um bæinn og þeir eiga að geta nýtt sér fjölbreytta ferðamáta. Samfylkingin ætlar að tryggja nauðsynlegar samgönguframkvæmdir á Reykjanesbraut frá N1 hringtorgi í átt að Kaplakrika þar sem bílaumferð hefur tvöfaldast á síðustu 25 árum og yfir 1000 bílar bætast við á ári hverju. Ekkert hefur verið hreyft við þessari stöðu á vakt Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Við ætlum einnig að tryggja úrbætur við Suðurhöfn í ljósi komu nýs Tækniskóla á svæðið og uppbyggingar nýrrar íbúðabyggðar og að farið verði í löngu tímabærar endurbætur á Flóttamannavegi. Hafnfirðingar þekkja umferðarhnútana vel á þessum stöðum og þá verður að leysa strax. Aðgerða- og stefnuleysi dugar ekki lengur Það er þörf á breytingum við stjórn Hafnarfjarðar. Það sýnir staðan í samgöngu- og umferðarmálum bæjarins. Aðgerða- og stefnuleysi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur ekki skilað neinum árangri og það skynja bæjabúar. Tryggjum breytingar með Samfylkingunni Samfylkingin er tilbúin til að taka við stjórn bæjarins að loknum kosningum á laugardaginn kemur. Við ætlum strax að knýja á um úrbætur í samgöngu- og umferðarmálum Hafnfirðinga. Leiðin til þess að tryggja breytingar við stjórn Hafnarfjarðar er að kjósa Samfylkinguna því sterk Samfylking getur knúið fram nauðsynlegar breytingar! XS - Sterkari saman! Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Árni Rúnar Þorvaldsson Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Sjá meira
Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa ítrekað lagt til á kjörtímabilinu að bæjarstjórn hefji formlegar viðræður við Vegagerðina og Betri Samgöngur til þess að ræða brýnar úrbætur í samgöngumálum Hafnfirðinga. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur jafnharðan fellt þær með þeim rökum að samtal og viðræður séu í gangi. Það er því holur hljómur í stefnuskrám þessara flokka þegar þeir segja að stefna eigi að endurskoðun Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með það að leiðarljósi að flýta framkvæmdum í Hafnarfirði. Þessir flokkar skrifuðu undir samgöngusáttmálann og uppfærslu hans - og geta því ekki vikið sér undan ábyrgð á því að framkvæmdir í Hafnarfirði séu aftarlega í röðinni. N1 hringtorgið og Suðurhöfn - þörf á úrbótum Samfylkingin setur nauðsynlegar úrbætur í samgöngumálum í forgang. Íbúar eiga að komast greiðlega um bæinn og þeir eiga að geta nýtt sér fjölbreytta ferðamáta. Samfylkingin ætlar að tryggja nauðsynlegar samgönguframkvæmdir á Reykjanesbraut frá N1 hringtorgi í átt að Kaplakrika þar sem bílaumferð hefur tvöfaldast á síðustu 25 árum og yfir 1000 bílar bætast við á ári hverju. Ekkert hefur verið hreyft við þessari stöðu á vakt Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Við ætlum einnig að tryggja úrbætur við Suðurhöfn í ljósi komu nýs Tækniskóla á svæðið og uppbyggingar nýrrar íbúðabyggðar og að farið verði í löngu tímabærar endurbætur á Flóttamannavegi. Hafnfirðingar þekkja umferðarhnútana vel á þessum stöðum og þá verður að leysa strax. Aðgerða- og stefnuleysi dugar ekki lengur Það er þörf á breytingum við stjórn Hafnarfjarðar. Það sýnir staðan í samgöngu- og umferðarmálum bæjarins. Aðgerða- og stefnuleysi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur ekki skilað neinum árangri og það skynja bæjabúar. Tryggjum breytingar með Samfylkingunni Samfylkingin er tilbúin til að taka við stjórn bæjarins að loknum kosningum á laugardaginn kemur. Við ætlum strax að knýja á um úrbætur í samgöngu- og umferðarmálum Hafnfirðinga. Leiðin til þess að tryggja breytingar við stjórn Hafnarfjarðar er að kjósa Samfylkinguna því sterk Samfylking getur knúið fram nauðsynlegar breytingar! XS - Sterkari saman! Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði