Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar 14. maí 2026 18:02 Miðjusett Borgarlína vinstri manna og oddvita Sjálfstæðisflokksins kostar skattgreiðendur margfalda þá upphæð sem Strætókerfi myndi kosta með hægri settar sérakreinar. Slíkt kerfi gæti veitt jafngóða þjónustu og yrði mun auðveldara í hönnun og þróun. Það er því óskiljanlegt hvers vegna vinstri meirihlutarnir hafa reynt að þegja slíkt kerfi í hel. Stofnbrautir á tæpasta vaði Áformin um Borgarlínu snúast um það að færa henni fjölda núverandi akreina á kostnað almennrar umferðar. Auk þess mun uppsetning á miðjusettri Borgarlínu hafa í för með sér gríðarlegt rask á stofnbrautarkerfi höfuðborgarsvæðisins og draga miklu meira úr umferðarflæði en við höfum hingað til fengið að kynnast. Nóg er þó samt. Álagið á stofnbrautarkerfið, sem hefur verið vanrækt í fjögur kjörtímabil, er nú þegar orðið samfélaginu mjög kostnaðarsamt. Mun meira álag á stofnbrautirnar, með framkvæmdum af þessu tagi, hefði ekki einungis í för með sér sóun á almannafé og fjárhagslega áhættu. Þar yrði líklega teflt á tæpasta vað með skilvirkni og gangverk samfélagsins, neyðarþjónustu og almenna öryggishagsmuni. Samgöngukerfi eru æðakerfi samfélagsins Þetta er kannski dramatísk viðvörun. En samgöngumannvirki eru æðakerfi hvers samfélags. Það er ekki alltaf fyrirséð hversu alvarlegar afleiðingar það hefur í för með sér, að leika sér með slíka innviði. Það er því ábyrgðarhlutur að taka slíka áhættu með raunverulegt samfélag, lifandi einstaklinga. Við þessar aðstæður er mjög mikilvægt að sem flestir kjósendur átti sig á því að þessar borgarstjórnarkosningar verða líkast til síðasta tækifæri Reykvíkinga til að stöðva glæfralegt Borgralínuævintýrið. Verði það ekki gert, siglum við inn í tilraun sem vel gæti endað á neyðarástandi. Miðflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn í þessum borgarstjórnarkosningum sem hafnar Borgarlínu. Það gerir hann skýrt og greinilega með slagorðinu; Borgarlína burt! Nú er tækifærið: X-M næsta laugardag! Höfuundur er grunnskólakennari og á framboðslista Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Sjá meira
Miðjusett Borgarlína vinstri manna og oddvita Sjálfstæðisflokksins kostar skattgreiðendur margfalda þá upphæð sem Strætókerfi myndi kosta með hægri settar sérakreinar. Slíkt kerfi gæti veitt jafngóða þjónustu og yrði mun auðveldara í hönnun og þróun. Það er því óskiljanlegt hvers vegna vinstri meirihlutarnir hafa reynt að þegja slíkt kerfi í hel. Stofnbrautir á tæpasta vaði Áformin um Borgarlínu snúast um það að færa henni fjölda núverandi akreina á kostnað almennrar umferðar. Auk þess mun uppsetning á miðjusettri Borgarlínu hafa í för með sér gríðarlegt rask á stofnbrautarkerfi höfuðborgarsvæðisins og draga miklu meira úr umferðarflæði en við höfum hingað til fengið að kynnast. Nóg er þó samt. Álagið á stofnbrautarkerfið, sem hefur verið vanrækt í fjögur kjörtímabil, er nú þegar orðið samfélaginu mjög kostnaðarsamt. Mun meira álag á stofnbrautirnar, með framkvæmdum af þessu tagi, hefði ekki einungis í för með sér sóun á almannafé og fjárhagslega áhættu. Þar yrði líklega teflt á tæpasta vað með skilvirkni og gangverk samfélagsins, neyðarþjónustu og almenna öryggishagsmuni. Samgöngukerfi eru æðakerfi samfélagsins Þetta er kannski dramatísk viðvörun. En samgöngumannvirki eru æðakerfi hvers samfélags. Það er ekki alltaf fyrirséð hversu alvarlegar afleiðingar það hefur í för með sér, að leika sér með slíka innviði. Það er því ábyrgðarhlutur að taka slíka áhættu með raunverulegt samfélag, lifandi einstaklinga. Við þessar aðstæður er mjög mikilvægt að sem flestir kjósendur átti sig á því að þessar borgarstjórnarkosningar verða líkast til síðasta tækifæri Reykvíkinga til að stöðva glæfralegt Borgralínuævintýrið. Verði það ekki gert, siglum við inn í tilraun sem vel gæti endað á neyðarástandi. Miðflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn í þessum borgarstjórnarkosningum sem hafnar Borgarlínu. Það gerir hann skýrt og greinilega með slagorðinu; Borgarlína burt! Nú er tækifærið: X-M næsta laugardag! Höfuundur er grunnskólakennari og á framboðslista Miðflokksins í Reykjavík.
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar