Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar 15. maí 2026 07:12 Borgarstjórnarkosningar eru á laugardaginn. Þær geta valdið straumhvörfum í borginni, raunveruleg hætta er á að til valda komist hægri stjórn með Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Framsóknarflokki eða Miðflokki sem fórni samgöngusáttmálanum, uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði fyrir ungt fólk og fólk með lágar tekjur, innleiði tvöfalt kerfi í leikskólamálum sem hyglir starfsfólki stórfyrirtækja og einkavæði verðmæta hluti úr Orkuveitunni. Eignir almennings seldar Við höfum skelfilega reynslu af samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þegar kemur að sölu eigna almennings. Þessir flokkar báru ábyrgð á einkavæðingu ríkisbankanna sem endaði með bankahruninu, þeir seldu Símann og hluti í Íslandsbanka til vildarvina og seldu á spottprís hlut borgarinnar í Landsvirkjun með tug milljarða tapi fyrir borgina sem hefði getað nýst í t.d. að bæta viðhald mannvirkja borgarinnar eftir hrun. Nú boðar Sjálfstæðisflokkurinn sölu verðmætra dótturfyrirtækja Orkuveitunnar, eins og Ljósleiðarans sem er mikilvægt innviðafyrirtæki sem hefur öryggishlutverki að gegna og stuðlar að heilbrigðri samkeppni á fjarskiptamarkaði. Hann vill líka selja Carbfix sem hefur sparað Orkuveitunni 15 milljarða undanfarin 10 ár með því að Carbfix tæknin hefur verið nýtt til að hreinsa brennisteinsvetni frá jarðvarmavirkjunum Orkuveitunnar og draga þannig verulega úr losun út í andrúmsloftið með tilheyrandi mengun. Framsóknarflokkurinn hefur líka lagt fram tillögu um að selja hlut borgarinnar í Landsneti sem Sjálfstæðisflokkurinn á Alþingi vill einkavæða ásamt RARIK. Samfylkingin hafnar einkavæðingu Orkuveitunnar og dótturfélaga hennar! Samgöngusáttmála ógnað Samgöngusáttmálinn er besti samningur sem borgin og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa náð við ríkið í samgöngumálum í marga áratugi ef ekki frá upphafi. Með honum var tryggt fjármagn frá ríkinu í mikilvægar framkvæmdir sem munu bæta til mikilla muna umferðarmenninguna í Reykjavík. Þar best hæst Miklubraut í göng, Sæbraut í stokk, Borgarlínuna og tímamóta samkomulag um verulega hlutdeild ríkisins í fjármögnun Strætó. Sá þriðjungshlutur er þegar kominn til framkvæmda og gerði að verkum að hægt var að fjölga ferðum, stytta biðtíma niður í 10 mínútur á mörgum fjölförnustu leiðum og þar með bæta þjónustuna. Það hefur skilað sér strax í fjölgun farþega. Nú vill Sjálfstæðisflokkurinn taka upp sáttmálann og fresta þar með löngu tímabærum framkvæmdum til að bæta umferðina í borginni án þess að bjóða neinar alvöru lausnir í staðinn. Hagkvæm húsnæðisuppbygging í uppnámi Samfylkingin hefur leitt eitt lengsta samfellda uppbyggingarskeið í húsnæðismálum borgarinnar frá upphafi. Þar hefur leiðarljósið verið skýrt alla tíð, að tryggja markvissa uppbyggingu félagslegs húsnæðis fyrir þá sem minnst hafa milli handanna en líka örugga uppbyggingu stúdentaíbúða og almennra íbúða fyrir ungt fólk og fólk með lægri meðaltekjur. Það hefur borgin gert með samningum við óhagnaðardrifin uppbyggingarfélög. Þessi uppbygging er í uppnámi ef hægri flokkar komast til valda en Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað að markaðurinn eigi að ráða í húsnæðisuppbyggingu og ekki verði lögð áhersla á samstarf við óhagnaðardrifin félög. Sporin hræða frá þeim tíma þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsókn lögðu niður félagslega íbúðakerfið. Atlaga að jöfnu aðgengi barna að leikskólum Samfylkingin hefur leitt leikskólauppbygginguna í borginni með 8 nýjum leikskólum og 1300 nýjum leikskólaplássum frá 2018. Frá sama tíma hafa starfsaðstæður batnað með nýju fjármagni sem nemur ríflega 5 milljörðum. Við jafnaðarmenn höfum sett í undirbúning opnun a.m.k. 8 nýrra leikskóla til viðbótar og 1500 nýjum plássum til að taka við börnum frá fæðingarorlofi. Samhliða þarf að bæta mönnun og starfsumhverfi sem Samfylkingin vill gera með tryggu fjármagni, 2,4 milljörðum á tímabilinu. Hægri flokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn vilja fórna jafnræði í leikskólakerfinu með því að innleiða fyrirtækjaleikskóla, þar sem börn starfsmanna ákveðinna stórfyrirtækja munu fá forgang umfram jafnaldra sína sem ekki eru jafn „heppin“ með foreldra. Samfylkingin hafnar slíkri mismunun og sömuleiðis heimgreiðslu hugmyndum sömu flokka sem grafa undan jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Samfylkingin er besta vörnin fyrir almannahagsmuni Við stöndum vörð um almannahagsmuni og erum flokkurinn sem hefur reynslu af því að stýra farsællega meirihlutasamstarfi flokka frá miðju til vinstri. Við kunnum að koma hlutum í verk. Það þurfa öll að hafa í huga sem bera hag almennings í borginni fyrir brjósti í kosningunum á morgun. Kjósum Samfylkinguna – XS! Höfundur er borgarfulltrúi í 4. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skúli Helgason Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar