
Kjaraviðræður 2022-23

Tvíburar á sömu deild fá ekki að mæta á sama tíma í leikskólann
Tvíburar á sömu deild fá ekki að mæta á sama tíma í leikskólann þar sem deildinni er skipt upp eftir stafrófsröð. Foreldrar lýsa erfiðu ástandi og ringulreið vegna áhrifa af umfangsmiklum verkfallsaðgerðum félagsmanna BSRB.

Vilja senda mjög skýr skilaboð með lægri launahækkun
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina vilja senda skýr skilaboð til launafólks með því að draga úr launahækkun til æðstu stjórnenda. Einhugur sé um málið í ríkisstjórn.

36 sundlaugum lokað og fjöldi íþróttahúsa líka
Verkfallsaðgerðir um 2500 félagsmanna BSRB í 29 sveitarfélögum verða meðal annars til þess að íbúar munu ekki komast í sund í sveitarfélagi sínu á meðan verkfallsaðgerðum stendur. Viðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga eru í hnút og ekki hefur verið boðað til næsta fundar eftir að upp úr slitnaði í viðræðum í nótt.

Auglýst eftir forystuhæfileikum og „framúrskarandi samskiptahæfni“
Embætti ríkissáttasemjara hefur verið auglýst laust til umsóknar en meðal þeirra hæfniskrafa sem gerðar eru til umsækjenda eru forystuhæfileikar og „framúrskarandi samskiptahæfni“.

Segir reiði meðal félagsfólks stigmagnast með degi hverjum
Formaður BSRB segir reiði meðal félagsfólks stigmagnast með hverjum deginum. Ekki standi til að þiggja samning sem Samband íslenskra sveitarfélaga býður sem hljóðar upp á 50 til 60 þúsund hækkun lægstu launa.

Segja ábyrgðina alfarið hjá BSRB
Samband íslenskra sveitarfélaga segir BSRB alfarið um að kenna að verkfall sé skollið á. Tilboði um hækkun lægstu launa upp á 50-60 þúsund krónur hafi verið hafnað.

Katrín fundaði með formönnum um yfirvofandi launahækkanir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði í morgun með formönnum flokka á þingi þar sem yfirvofandi launahækkanir æðstu ráðamanna voru til umræðu.

Krafa um sömu laun fyrir sömu störf stendur enn út af borðinu
Formaður BSRB segir að krafa félagsins um sömu laun fyrir sömu störf standi enn út af borðinu í viðræðum þess við sveitarfélög. Víðtækar verkfallsaðgerðir félagsmanna BSRB hófust í dag sem formaðurinn segir að hafi mikil samfélagsleg áhrif.

Mikill þungi færist nú í aðgerðirnar segir formaður BSRB
Engin niðurstaða varð af löngum fundi í Karphúsinu í nótt á milli BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundi lauk á öðrum tímanum í nótt og stefnir í víðtækar verkfallsaðgerðir í dag.

Enn engin niðurstaða í sjónmáli
Enn er engin niðurstaða komin í karphúsinu í viðræðum stéttarfélagsins BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundur hefur staðið yfir í ellefu klukkustundir.

Foreldrar fegnir að leikskóli í Grindavík gleymdist
Forsvarsmenn BSRB gleymdu að nefna leikskólann Laut í Grindavík á lista yfir starfsstaði þar sem verkfall er boðað á morgun. Foreldrar eru fegnir en leikskólastjórinn segir um mannleg mistök að ræða.

Foreldrar skulu gera ráðstafanir
Freyja Steingrímsdóttir samskiptastjóri BSRB segir lítið hafi breyst í kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB. Enn er fundað í karphúsinu en allsherjarverkfall hefst að óbreyttu á morgun.

Mikið undir í samningaviðræðum dagsins
BSRB og Samband íslenskra sveitarfélaga funda hjá ríkissáttasemjara í dag. Ef samningar nást ekki skella á verkföll á morgun. Formaður BSRB segir erfitt að spá til um framvindu dagsins en að félagsfólk búi sig nú undir umfangsmiklar verkfallsaðgerðir.

Stefna Snæfellsbæ: „Verkfallsbrot af öllu tagi eru algerlega óþolandi“
BSRB hefur stefnt Snæfellsbæ fyrir Félagsdóm þar sem talið er að ítrekuð verkfallsbrot hafi verið framin á leikskólum. Varaformaður bandalagsins segir verkfallsbrot óþolandi en þau þétti fólk saman og styrki í baráttunni um betri kjör.

„Ef við förum af stað í þessi stóru verkföll þá fer allt á hvolf“
Varaformaður BSRB segir að samfélagið muni fara á hvolf, komi til allsherjarverkfalls sem boðað hefur verið til eftir helgi. Hann segir afar áhættusamt fyrir viðsemjendur að neyða þau út í slíkar aðgerðir.

Samningar við BSRB stranda á kröfum um afturvirkni
Formaður samninganefndar sveitarfélaganna í viðræðum við BSRB segir þær stranda á kröfu bandalagsins um launahækkun inn á samningstíma útrunninna samninga. Átta klukkustunda sáttafundi lauk í Karphúsinu upp úr klukkan sex án árangurs.

„Við höfum lagt fram tilboð eftir tilboð“
Fulltrúar samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga héldu að nýju til viðræðna í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan tíu í morgun. Formaður samninganefndar SÍS segir að deilan snúist aðallega um afturvirkni.

Heimaverkefni lagt fyrir og nýr fundur boðaður fyrir hádegi
Sáttafundur forystu samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga stóð til klukkan átta í gærkvöldi en fólk hafði þá setið á fundi frá klukkan eitt eftir hádegi í gær. Strax hefur verið boðað til annars fundar í karphúsinu klukkan tíu fyrir hádegi.

Hafa BHM, fjármálaráðuneytið og Seðlabankinn öll rangt fyrir sér?
Undanfarið hafa Samtök iðnaðarins (SI) farið mikinn í fjölmiðlum um meinta bága stöðu í byggingariðnaði. Er spjótunum helst beint að lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts til byggingaraðila í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.

„Klárlega verði að sýna samningsvilja á báða bóga“
Samninganefndir BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga funduðu fram á nótt í húsakynnum ríkissáttasemjara og nýr fundur hófst klukkan eitt. Formaður BSRB segir að samningsvilji sé fyrir hendi en að það sé tvennt sem bandalagið geti ekki hvikað frá.

Ákvörðunin skiljanleg en breyti ekki viðfangsefninu
Formaður VR telur að afsögn Aðalsteins Leifssonar, fyrrverandi ríkissáttasemjara, muni ekki hafa áhrif á komandi kjaraviðræður. Enginn þrýstingur hafi verið frá hans armi verkalýðshreyfingarinnar um afsögn.

„Það eru allir foreldrar eins og hauslausar hænur“
Tvær mæður sem eiga börn í Kópavogi segja verkföllin hafa raskað lífi þeirra og barnanna þeirra. Umræða um verkföllin hefur ekki verið nógu mikil að þeirra mati. Þær styðja félagsfólk BSRB í verkföllunum.

Fundi slitið um nótt en verður fram haldið klukkan eitt
Samningafundi forrystufólks BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara lauk laust fyrir klukkan tvö liðna nótt.

Segir ákvörðunina alfarið hans eigin
„Eftir að hafa verið vakinn og sofinn yfir á þessu verkefni langar mig einfaldlega að breyta til,“ segir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari sem lætur nú af embættinu. Tvö ár eru eftir af skipunartíma Aðalsteins en ákvörðunina segir hann alfarið hans eigin.

Aðalsteinn hættir tveimur árum á undan áætlun
Aðalsteinn Leifsson lætur af embætti ríkissáttasemjara frá og með morgundeginum, 1. júní. Embættið verður auglýst til umsóknar á næstu dögum. Hann segist hafa átt frumkvæðið að því að hætta sjálfur. Aðalsteinn var skipaður ríkissáttasemjari til fimm ára í febrúar árið 2020.

Deiluaðilar funda í Karphúsinu í kvöld
Forystumenn samningsaðila BSRB og Samtaka íslenskra sveitarfélaga koma saman í Karphúsinu í kvöld, að beiðni aðstoðarríkissáttasemjara, sem sér um deiluna.

Ruddust inn á bæjarskrifstofurnar þegar enginn kom til að ræða við þau
Mikill fjöldi fólks ruddist inn á bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar skömmu fyrir hádegi eftir að það hafði komið saman, staðið og mótmælt fyrir utan skrifstofur sveitarfélagsins klukkan 11 til að sýna leikskólastarfsmönnum stuðning.

Efling samdi við ríkið
Samninganefnd Eflingar skrifaði undir kjarasamning við ríkið seint í gærkvöldi. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, greindi frá þessu á samfélagsmiðlum á tólfta tímanum.

Útilokar ekki breytingar á fyrirhuguðum launahækkunum
Það kemur til greina að víkja frá fyrirhuguðum launahækkunum æðstu ráðamanna landsins með einhverjum hætti.

Segir launahækkun æðstu embættismanna vera raunlaunalækkun
Ráðherrar skilja gremju almennings vegna launahækkana æðstu embættismanna ríkisins en segja þær í samræmi við lög. Forseti Alþýðusambands Íslands segir engin lög yfir það hafin að ekki megi endurskoða þau. Nauðsynlegt sé að skoða ástandið í samfélaginu að hverju sinni.