Hampiðjan
Gengi Hampiðjunnar rýkur upp vegna uppfærslu í vísitölum FTSE Tvö íslensk félög í Kauphöllinni munu bætast við vísitölur FTSE Russell fyrir nýmarkaðsríki upp úr miðjum næsta mánuði. Hlutabréfaverð Hampiðjunnar, annað af félögunum sem verður tekið inn í vísitölurnar, hefur rokið upp á markaði í dag en búast má við talsverðu innflæði fjármagns frá erlendum vísitölusjóðum við uppfærsluna. Innherji 19.2.2024 15:28
Ólöf tekur við kynningarmálum hjá Hampiðjunni Hampiðjan hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf samskipta- og kynningarfulltrúa. Ólöf var ein 63 umsækjenda um starfið og hefur hún hafið störf. Viðskipti innlent 11.1.2024 09:35
Telur norðurslóðir eiga eftir að verða eitt mikilvægasta efnahagssvæði veraldar Vegna landfræðilegrar legu og öflugra innviða er Ísland í kjörstöðu til að nýta sér þau tækifæri sem við blasa í þróun efnahagsuppbyggingar á norðurslóðum, útskýrði Ólafur Ragnar Grímsson á ráðstefnu í London fyrr í þessum mánuði, sem hann telur að sé óðum að verða eitt af mikilvægustu efnahagssvæðum heimsins. Forstjóri Stoða brýndi fyrir erlendum fjárfestum mikilvægi þess að finna „réttan samstarfsaðila“ þegar fjárfest væri á Íslandi og nefndi að vegna sterkrar stöðu íslenska þjóðarbúsins þá ætti gjaldmiðillinn ekki að vera vandamál. Innherji 27.11.2023 11:26
Seldi í Hampiðjunni á níu prósenta „afslætti“ skömmu eftir að sölubann rann út Aðeins rétt ríflega tveimur mánuðum eftir að sölubann á liðlega sjö prósenta hlut FSN Capital í Hampiðjunni rann út, sem það fékk sem greiðslu fyrir sölu á Mørenot fyrr á árinu, hefur norski fjárfestingasjóðurinn selt um tvo þriðju af stöðu sinni til hóps íslenskra fjárfesta fyrir vel á fjórða milljarð. Væntingar um að sjóðurinn sé enn með talsvert framboð af bréfum til sölu gæti haldi niðri gengi bréfa Hampiðjunnar. Innherji 23.10.2023 12:37
Samþætting Mørenot „mun vinnast hraðar en við bjuggumst við“ Það „mun vinnast hraðar en við bjuggumst við“ að samþætta rekstur Hampiðjunnar við norska félagið Mørenot, segir forstjóri Hampiðjunnar. Innherji 4.9.2023 13:39
Lífeyrissjóðir sækjast eftir að stækka við hlut sinn eftir útboð Hampiðjunnar Ríflega einum mánuði eftir að hlutafjárútboði Hampiðjunnar lauk hefur mikill meirihluti íslenskra lífeyrissjóða, einkum Festa og LSR, haldið áfram að stækka við eignarhlut sinn í félaginu. Kaup lífeyrissjóðanna hafa meðal annars átt sinn þátt í að drífa áfram mikla hækkun á gengi bréfa Hampiðjunnar á eftirmarkaði að undanförnu en hlutabréfaverð félagsins er upp um nærri 23 prósent frá því gengi sem almennum fjárfestum bauðst að kaupa í útboðinu. Innherji 23.7.2023 12:22
Fimm sjóðir keyptu nær helming seldra bréfa í útboði Hampiðjunnar Íslenskir lífeyrissjóðir voru fyrirferðamestir í hlutafjárútboði Hampiðjunnar sem lauk í byrjun þessa mánaðar og keyptu stóran hluta þeirra bréfa sem var úthlutað til stærri fjárfesta. Þar munaði mestu um LSR sem er kominn í hóp allra stærstu hluthafa veiðarfæraframleiðandans eftir kaup sjóðsins. Innherji 15.6.2023 10:14
Hampiðjan komin á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi Hlutabréf í Hampiðjunni voru í dag tekin til við skipta á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi. Félagið hefur verið skráð félag á Íslandi síðan 1993, þar af síðastliðin sautján ár á Nasdaq First North vaxtarmarkaðnum. Viðskipti innlent 9.6.2023 13:21
Hvalur keypti fimm prósent af heildarstærð útboðs Hampiðjunnar Fjárfestingafélagið Hvalur, langsamlega stærsti hluthafi Hampiðjunnar, keypti nærri því fimm prósent af heildarstærð hlutafjárútboðs félagsins sem lauk síðastliðinn föstudag í tengslum við skráningu á Aðalmarkað í Kauphöllinni. Þannig fékk Hvalur úthlutað rúmlega 4,2 milljónum hluta að nafnvirði í útboðinu og nemur kaupverð bréfanna samtals nærri 550 milljónum króna. Innherji 5.6.2023 10:52
Bein útsending: Kynningarfundur vegna hlutafjárútboðs Hampiðjunnar Opinn kynningarfundur vegna hlutafjárútboðs Hampiðjunnar fer fram í dag þar sem stjórnendur munu kynna félagið og sögu þess ásamt því að farið verður yfir fyrirkomulag hlutafjárútboðsins. Viðskipti innlent 30.5.2023 09:31
Hampiðjan fer í vísitöluna First North 25 við upphaf nýs árs Hampiðjan mun fara í vísitöluna First North 25 við upphaf nýs árs. Um er að ræða vísitölu þeirra fyrirtækja sem eru stærst og mest viðskipti er með á Nasdaq First North og First North Premier mörkuðunum á Norðurlöndunum. Þau lönd sem tilheyra þessum mörkuðum eru Danmörk, Finnland, Ísland og Svíþjóð. Innherji 23.12.2022 10:10
„Mikil samlegðartækifæri “ í kaupum Hampiðjunnar á Mørenot Ljóst er að „mikil samlegðartækifæri eru til staðar“ samhliða kaupum Hampiðjunnar á Mørenot. Skráning Hampiðjunnar á Aðalmarkað á næsta ári mun fjölga tækifærum til ytri vaxtar enn frekar og bæta verðmyndun. Þetta segir forstöðumaður fjárfestinga hjá VÍS. VÍS er níundi stærsti hluthafi Hampiðjunnar. Innherji 17.11.2022 15:05
Hampiðjan stefnir á aðalmarkað eftir kaup á norsku félagi Hampiðjan hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í norska félaginu Mørenot sem er sagt leiðandi framleiðandi á lausnum fyrir sjávarútveg, fiskeldi og olíuiðnað. Stefnt er að því að hlutabréf í Hampiðjunni verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi á næsta ári, en bréfin eru nú skráð á First North-markaðnum. Viðskipti innlent 17.11.2022 09:22
Hagnaður Hvals sjöfaldast og nemur 3,5 milljörðum eftir sölu í Origo Hagnaður Hvals, sem er stýrt af Kristjáni Loftssyni, jókst um meira en sjöfalt á síðasta fjárhagsári fjárfestingafélagsins og nam tæplega 3,5 milljörðum króna borið saman við 490 milljónir á árinu áður. Þar munar mikið um sölu Hvals á öllum 13 prósenta hlut félagsins í Origo sumarið 2021 en bókfærður hagnaður vegna hennar var yfir 2,2 milljarðar. Innherji 19.5.2022 16:39
Enginn annar kostur en að slíta viðskiptum í ljósi aðgerða Rússa Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda gagnrýnir að íslensk fyrirtæki stundi enn viðskipti við Rússland tveimur mánuðum eftir að innrásin í Úkraínu hófst. Hann segir að Ísland beri siðferðislega ábyrgð til að bregðast við hryllingnum í Úkraínu og að einangra þurfi Rússa eins mikið og hægt er. Viðskipti innlent 25.4.2022 13:01
Netagerðarmeistari lifir á loðnuvertíð fram eftir ári Nýafstaðin loðnuvertíð færir netaverkstæðum kærkomna búbót sem endist þeim langt fram eftir ári. Dæmi um slíkt fundum við austur í Neskaupstað. Viðskipti innlent 3.4.2021 23:14
Hampiðjan kaupir skosk félög fyrir 1,3 milljarða Hampiðjan undirritaði í dag samkomulag um kaup á 80 prósenta hlut í tveimur skoskum félögum. Viðskipti innlent 20.2.2020 12:31
Hampiðjan teygir anga sína til 14 landa Um 87 prósent veltu Hampiðjunnar voru erlendis árið 2017. Hampiðjan keypti færeyskan keppinaut árið 2016 og veltan tvöfaldaðist. Viðskipti innlent 19.12.2018 08:30
Hampiðjan valin í First North 25 vísitöluna Hampiðjan er eina íslenska félagið sem valið hefur verið inn í nýju First North 25 vísitöluna. Viðskipti innlent 14.10.2015 11:16