Arion banki
1 2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Framlengja frystingu lána Grindvíkinga Arion banki hefur ákveðið að bjóða Grindvíkingum að frysta íbúðalán sín hjá bankanum í þrjá mánuði til viðbótar og fella niður vexti og verðbætur lánanna til aprílloka. Viðskipti innlent 17.1.2024 13:44
Vænta óbreyttrar arðsemi nú þegar vöxtur í vaxtatekjum banka gefur eftir Útlit er fyrir að litlar breytingar verði á arðsemi stóru bankanna á markaði þegar þeir birta uppgjör sín fyrir síðasta fjórðung ársins 2023 sem mun litast af því að ekki er lengur fyrir að fara miklum vexti í vaxtatekjum – þær gætu dregist saman hjá Íslandsbanka í fyrsta sinn í þrjú ár – og áframhaldandi niðurfærslur lánasafna hafa áhrif á afkomuna. Tekjur af kjarnarekstri Arion banka ættu samt að aukast lítillega milli ára á meðan viðsnúningur í fjármunatekjum ýtir Íslandsbanka upp fyrir arðsemismarkmið sitt, gangi spár hlutabréfagreinenda eftir. Innherji 17.1.2024 13:31
Hætta að taka við 500 og 1.000 króna dönskum seðlum Arion banki hefur tilkynnt að ekki verði lengur tekið við 500 og 1.000 króna dönskum seðlum frá og með áramótum. Viðskipti innlent 19.12.2023 13:47
Fyrsti áfangi Blikastaðalands gerir ráð fyrir byggingu um 1.500 íbúða Skipulagslýsing að deiluskipulagi fyrir fyrsta áfanga Blikastaðalands, stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins og er í eigu Arion, hefur verið afgreidd en samkvæmt því er fyrirhugað að reisa þar allt að um 1.500 íbúðir. Framkvæmdir við verkefnið færast því núna nær í tíma en greinendur og fjárfestar hafa sagt að verðmæti landsins sé að líkindum verulega undirverðlagt í bókum bankans. Innherji 12.12.2023 11:45
Verðmat Arion lækkar um átta prósent en vaxtastigið bítur í bankana Verðmat Arion banka lækkar um átta prósent en gert er ráð fyrir lægri vaxtatekjum en áður og hærri ávöxtunarkrafa lækkar líka matið. Greinandi segir að vaxtastigið, en stýrivextir hafa hækkað umtalsvert í því skyni að sporna við verðbólgu, sé farið að „bíta bankana“. Innherji 11.12.2023 15:38
Landsbankafólk fær væna viðbótargreiðslu í desember Allir starfsmenn Landsbankans, sem starfa í nóvember og desember, fá 200 þúsund krónur greiddar til viðbótar við kjarasamningsbundna desemberuppbót. Sambærileg ákvörðun hefur ekki verið tekin af hinum stóru viðskiptabönkunum tveimur. Viðskipti innlent 5.12.2023 16:12
ChangeGroup leysir Arion banka af hólmi Alþjóðlega fyrirtækið ChangeGroup átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. Fyrirtækið verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum. Viðskipti innlent 28.11.2023 17:15
Telur norðurslóðir eiga eftir að verða eitt mikilvægasta efnahagssvæði veraldar Vegna landfræðilegrar legu og öflugra innviða er Ísland í kjörstöðu til að nýta sér þau tækifæri sem við blasa í þróun efnahagsuppbyggingar á norðurslóðum, útskýrði Ólafur Ragnar Grímsson á ráðstefnu í London fyrr í þessum mánuði, sem hann telur að sé óðum að verða eitt af mikilvægustu efnahagssvæðum heimsins. Forstjóri Stoða brýndi fyrir erlendum fjárfestum mikilvægi þess að finna „réttan samstarfsaðila“ þegar fjárfest væri á Íslandi og nefndi að vegna sterkrar stöðu íslenska þjóðarbúsins þá ætti gjaldmiðillinn ekki að vera vandamál. Innherji 27.11.2023 11:26
Konráð frá Arion banka til Þórdísar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ráðið Konráð S. Guðjónsson sem aðstoðarmann. Konráð hefur undanfarið hálft ár starfað sem aðalhagfræðingur Arion banka. Viðskipti innlent 24.11.2023 13:56
Embætti þitt hafði af mér 10,6 milljónir og afhenti Arion banka Opið bréf til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, Sigríðar Kristinsdóttur. Skoðun 24.11.2023 09:30
Vextir og verðbætur í Grindavík falla niður í þrjá mánuði Vegna náttúruhamfara og óvissuástands í Grindavík hafa Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, í samvinnu við Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), gert samkomulag um að fella niður vexti og verðbætur af íbúðalánum Grindvíkinga í þrjá mánuði. Samkomulag þessa efnis var undirritað í dag, 22. nóvember. Viðskipti innlent 22.11.2023 22:11
„Bankarnir eru að pissa í skóinn sinn“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Grindvíkingur, segist enn ekki búinn að meðtaka fyllilega aðstæðurnar sem upp eru komnar. Hann vill að því verði komið í kring að Grindvíkingar geti keypt nýbyggt húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og húsnæðislán þeirra í Grindavík verði fryst að fullu. Innlent 18.11.2023 13:01
Friðrik fyrsti forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka Friðrik Ársælsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka og er um nýja stöðu að ræða innan bankans. Lögfræðiráðgjöf heyrir undir nýjasta svið bankans, rekstur og menningu. Viðskipti innlent 17.11.2023 10:42
Krefja Grindvíkinga ekki um afborganir í bili Stóru viðskiptabankarnir þrír bjóða Grindvíkingum allir upp á frystingu húsnæðislána vegna þeirrar stöðu sem uppi er í bænum. Fryst húsnæðislán safna þó vöxtum og verðbótum. Viðskipti innlent 14.11.2023 12:26
Leysti líka til sín bréf Þórðar og fer með nærri tíu prósenta hlut í Eyri Invest Arion fer með nálægt tíu prósenta eignarhlut í Eyri Invest eftir að bankinn leysti sömuleiðis til sín hluta af bréfum í fjárfestingafélaginu sem höfðu verið í eigu Þórðar Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns til meira en tveggja áratuga, í tengslum við veðkall sem var gert á Árna Odd, son Þórðar og þáverandi forstjóra Marels. Feðgarnir fara nú saman með nokkuð minna en þriðjungshlut í Eyri en hluthafar félagsins, einkum bankar og lífeyrissjóðir, skoða nú að koma að stórri hlutafjáraukningu til að létta á þungri skuldastöðu. Innherji 11.11.2023 16:28
Hvað er greiðslustöðvun? Gríðarlega athygli vakti í gær þegar Árni Oddur Þórðarson, sem lengi hefur verið einn farsælasti viðskiptamaður landsins, tilkynnti að hann hafði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Greiðslustöðvun er alls ekki algengt fyrirbæri og því vaknar spurningin: Hvað er greiðslustöðvun? Viðskipti innlent 9.11.2023 14:21
Árni Oddur fær samþykkta greiðslustöðvun Hlutabréf í Marel hafa fallið um ríflega sextíu prósent á tveimur árum. Arion banki gerði því veðkall í hlutabréf forstjórans sem hætti í kjölfarið. Hann segir bankann ekki hafa farið að lögum því hann hafi lagt fram nægar tryggingar. Fráfarandi forstjóri hefur nú fengið samþykkta greiðslustöðvun. Viðskipti innlent 8.11.2023 18:38
Marel lækkaði um rúm sex prósent Gengi bréfa í Marel lækkaði um 6,42 prósent í Kauphöllinni í dag. Í gærkvöldi var greint frá því að forstjóri félagsins væri hættur eftir tíu ára starf. Viðskipti innlent 8.11.2023 17:59
Arion eignaðist 1,2 prósent í Marel með innlausninni Forstjóri Marel síðustu tíu ár er hættur eftir að Arion banki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest stærsta hluthafa í fyrirtækinu. Arion banki eignast næstum fimm prósent í fjárfestingarfélaginu eftir innlausnina. Viðskipti innlent 8.11.2023 13:01
Arion banki tjáir sig ekki um mál Árna Odds Engar skýringar fást á því frá Arion banka hvers vegna bankinn leysti til sín hlutabréf Árna Odds Þórðarsonar sem lét í gær af störfum sem forstjóri Marels. Þetta kemur fram í svörum frá bankanum. Viðskipti innlent 8.11.2023 10:09
Árni Oddur hættir hjá Marel vegna deilna við Arion Árni Oddur Þórðarson er hættur sem forstjóri Marel eftir tíu ára starf. Það gerði hann vegna réttaróvissu eftir að Arionbanki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest, stórum hluthafa í Marel. Viðskipti innlent 7.11.2023 19:10
Fjárfestar með „augun á baksýnisspeglinum“ og sjá ekki tækifæri Kviku Fjárfestar eru með „augun á baksýnisspeglinum“ gagnvart Kviku, þar sem þeir horfa framhjá tækifærum til sóknar á bankamarkaði eftir mikla fjárfestingu í fjártæknilausnum, og hratt lækkandi markaðsvirði bankans endurspeglar nú „engan veginn“ undirliggjandi virði í eignum félagsins, að mati vogunarsjóðsstjóra sem hefur byggt upp stöðu í bankanum. Þá segir hann Sýn vera „eitt undirverðlagðasta félagið“ á markaði um þessar mundir og metur mögulegt virði auglýsingamiðla fyrirtækisins á um eða yfir fimm milljarða. Innherji 6.11.2023 18:33
Verðlagning margra skráðra félaga „með því lægra sem sést hefur í langan tíma“ Verðlagning margra fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni eru með því lægra sem sést hefur í langan tíma, að sögn vogunarsjóðsstjóra, en frá ársbyrjun 2022 hefur ávöxtun hlutabréfamarkaðarins að teknu tilliti til verðbólgu verið neikvæð um meira en fimmtíu prósent. Verðkennitölur banka gefi til kynna að horfur í rekstri fari versnandi, sem standist illa skoðun, og þá séu horfur í smásölu bjartari eftir erfiða átján mánuði og „verðlagning þar farin að verða áhugaverð.“ Innherji 2.11.2023 18:20
Nýr forstöðumaður hjá Arion kemur frá Landsbankanum Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður fasteigna og innviða hjá fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka. Hún kemur til Arion frá Landsbankanum. Viðskipti innlent 2.11.2023 10:20
Annmarkar á vörnum allra stóru bankanna gegn peningaþvætti Fjármálaeftirlit Seðlabankans hefur talið vera annmarka á vörnum allra stóru viðskiptabankanna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eftir að það framkvæmdi vettvangsathugun hjá bönkunum á liðnu ári. Arion banki hefur nýlega óskað eftir því að ljúka málinu gagnvart fjármálaeftirlitinu með sátt. Innherji 31.10.2023 09:18
„Við erum ekki að taka meiri áhættu,“ er sagt um hraustlegan vöxt Varðar Iðgjöld Varðar, tryggingafélags Arion banka, jukust um 18,6 prósent á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Stjórnendur segja að vöxturinn stafi ekki af aukinni áhættutöku heldur sé verið að dreifa áhættu með því að stækka á meðal fyrirtækja. Áður hafi áherslan verið á einstaklinga. Innherji 27.10.2023 15:48
Arion banki skilaði 6,1 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi Arion banki hagnaðist um 6.131 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2023, í samanburði við 5.008 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Viðskipti innlent 26.10.2023 17:36
Stóru viðskiptabankarnir þrír lokaðir á morgun Landsbankinn og Íslandsbanki munu loka útibúum sínum um allt land vegna kvennaverkfallsins á morgun. Fyrr í dag var greint frá því að Arion banki myndi loka af sömu ástæðu. Þar af leiðandi verða útibú stóru viðskiptabankanna þriggja lokuð. Viðskipti innlent 23.10.2023 16:35
Arion banki lokar útibúum á morgun Útibú Arion banka verða lokuð á morgun, þriðjudag, vegna kvennaverkfalls. Viðskipti innlent 23.10.2023 11:07
Útlit fyrir stórbætta afkomu Arion þótt virði lánasafnsins verði fært niður Væntingar eru um að hagnaður Arion banka eigi eftir að aukast um nærri helming milli ára, einkum vegna meiri vaxtatekna og viðsnúnings í fjármunatekjum, enda þótt virðisbreyting útlána verði neikvæð um rúmlega hálfan milljarð samhliða versnandi efnahagshorfum. Þrátt fyrir að afkoma Íslandsbanka, hinn stóri bankinn sem er skráður á markað, muni versna nokkuð vegna meðal annars aukins rekstrarkostnaðar þá verður arðsemin í samræmi við markmið, gangi spár hlutabréfagreinenda eftir. Innherji 13.10.2023 11:25