Háskólar

Rússneskir hakkarar taldir bera ábyrgð á tölvuárás á HR
Netöryggissérfræðingar og starfsmenn Háskólans í Reykjavík hafa unnið frá því í gærmorgun við að koma kerfum háskólans af stað og endurheimta gögn í kjölfar tölvuárásar sem gerð var á skólann. Talið er að rússneski tölvuárásarhópurinn Akira beri ábyrgð á árásinni.

Fyrstu vísbendingar benda til gagnagíslatöku
Fyrstu vísbendingar um tölvuárásina sem gerð var á Háskólanum í Reykjavík um klukkan 1:30 í nótt benda til þess að um sé að ræða gagnagíslatöku

Hver ber kostnaðinn af því að viðhalda læknastéttinni?
Íslenskir læknanemar erlendis sem sækja í dýrt nám vegna fárra plássa í Háskóla Íslands hafa fengið afar takmarkaðan stuðning frá Landspítala og Menntasjóði. Á sama tíma og nemarnir eru að fást við þessar stóru áskoranir er talað um læknaskort í íslensku heilbrigðiskerfi.

Tölvuárás gerð á HR
Tölvuárás var gerð á Háskólann í Reykjavík í nótt. Persónuvernd og CERT-IS hafa verið upplýst.

Gagnrýndu viðmót Veðurstofunnar og sögðu sparkað í þá sem kvörtuðu
Haraldur Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir ríkið verja töluverðum fjármunum til veðurmála en þeir fari nánast allir til Veðurstofu Íslands. Við þær aðstæður sé eðlilegt að gera ríkar kröfur til stofnunarinnar, um að hún sinni því sem hún á að sinna.

Mikilvægt að skólar og stofnanir setji reglur um brjóstagjöf
Stjórn félags brjóstagjafaráðgjafa segir mikilvægt að skólar og stofnanir setji reglur um brjóstagjöf.

Pallborðið: Veðurstofan sökuð um að brjóta lög og deila ekki gögnum
Veðurstofa Íslands safnar gríðarlegu magni gagna um veðurfar, jarðhræringar, vatnafar og loftslag, svo eitthvað sé nefnt. Sérfræðingar segja stofnunina hins vegar trega til að deila umræddum gögnum.

Styrkja 35 verkefni um 1590 milljónir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag niðurstöður og úthlutanir úr Samstarfi háskóla 2023. Alls bárust 55 umsóknir fyrir tæpa 4 milljarða króna. Áslaug Arna kynnir í dag þau 35 verkefni sem styrkt eru að þessu sinni en heildarfjárhæð styrkja nemur 1590 milljónum króna.

Bein útsending: Kynning á niðurstöðum og úthlutun úr Samstarfi háskóla
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, stendur fyrir fundi í dag þar sem hún kynnir niðurstöður og úthlutanir úr Samstarfi háskóla 2023.

LHÍ hafnar með öllu að kyn hafi skipt máli við ráðninguna
Listaháskóli Íslands hafnar því með öllu að kyn umsækjenda hafi haft nokkuð með það að gera þegar kona var ráðin lektor í sviðslistafræðum við sviðslistadeild skólans árið 2022. Þá hafi kærunefnd jafnréttismála ekki leitað eftir upplýsingum um aðkomu rektors í málinu sem skipti sköpum í úrskurði nefndarinnar.

Brutu jafnréttislög við ráðningu konu
Listaháskóli Íslands braut gegn jafnréttislögum við ráðningu lektors í sviðslistafræðum í sviðslistadeild skólans árið 2022. Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þessari niðurstöðu.

Meirihluti fundarmanna vill falla frá sameiningu
Talsverður meirihluti fundarmanna á svokölluðum háskólafundi í Háskólanum á Akureyri greiddi atkvæði með ályktun um að fallið yrði frá fyrirhugaðri sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst.

HR fær 200 milljónir í rannsóknarhús
Háskólanum í Reykjavík hefur verið úthlutað 200 milljónum króna í stuðning til fjármögnunar undirbúnings að uppbyggingu á allt að 6000 fermetra rannsókna- og nýsköpunarhúsi við skólann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu.

Segir sameiningar háskóla efla háskólastarf um land allt
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, ræddi sameiningu háskóla í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagðist skilja ótta við breytingar og að það væri eðlilegt að margar spurningar vöknuðu við stórar sameiningar.

Kafa betur ofan í áföll kvenna og úrvinnslu þeirra
Ríflega 30 þúsund konum, sem tóku þátt í rannsókninni Áfallasaga kvenna á árunum 2018-2019, býðst nú að taka þátt í eftirfylgdarrannsókn með því að svara nýjum spurningalista um áföll, lífsstíl og heilsufar.

Myndaveisla: Dagur B fékk viðstadda til að sperra upp eyrun
Um sjö hundruð háskólanemar mættu í eina stærstu vísindaferð landsins til að kynna sér frumkvöðlakeppnina Gulleggið í Grósku á dögunum. KLAK - Icelandic Startups stóð fyrir viðburðinum sem hefur fest sig í sessi meðal eftirsóttustu viðburða hjá nemendum háskóla landsins.

Háskólarnir sameinist í háskólasamstæðu
Lagt verður til við háskólaráð Háskólans a Hólum og Háskóla Íslands að skólarnir sameinist og að rekstrarform sameinaðs skóla verði það sem kallað er háskólasamstæða. Um er að ræða nýnæmi hér á landi en þekkist víða erlendis þar sem hugtakið „kampus“ er notað.

Patrekur og Ásgeir spáðu í EM-spilin og nýtt spálíkan opinberað
Háskólinn í Reykjavík bauð til HR stofu í tengslum við EM í handbolta. Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild HR, hefur gert nýtt spálíkan fyrir mótið sem tekur tillit til úrslita í riðlunum. Hann fór yfir spálíkanið og skoðaði einnig möguleika íslenska landsliðsins á að komast í forkeppni Ólympíuleikanna.

Setti Pamelu á forsíðu Stúdentablaðsins og gerði boli fyrir afmæli í Keiluhöllinni
Magnea Hrönn Örvarsdóttir var viðfangsefni fyrsta þáttar heimildaþáttaraðarinnar Fólk eins og við sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi. Magnea lést áður en tökur á hennar þætti kláruðust.

Ekkert barnabann í Háskóla Íslands
Ekki hafa komið upp nein vandamál hvað varðar viðveru barna í tímum við Háskóla Íslands eða brjóstagjöf. Það segir Kristinn Andersen sviðsstjóri kennslumála hjá Háskóla Íslands í samtali við fréttastofu.

Á að banna notkun gervigreindar í háskólum?
Um allan heim eru háskólar að takast á við spurninguna um notkun gervigreindar í akademísku umhverfi. Spurningin um notkun gervigreindar í háskólum vekur upp mikilvæga umræðu um framtíð menntunar. Háskóli Íslands hefur tekið skrefið í að setja fram leiðbeiningar um notkun gervigreindar, en spurningin er hvort frekari aðgerðir þurfi til að tryggja samræmi og siðferðislega notkun.

Hefði frestað barneign hefði hún vitað af barnabanni
Einstæð móðir með barn á brjósti þarf að velja á milli þess að segja sig úr áfanga í fjarnámi í leikskólafræði við Háskólann á Akureyri eða sætta sig við lægri einkunn. Ástæðan er sú að ekki er leyfilegt að vera með barn í kúrsinum. Forsvarsmenn HA segja reynt að koma til móts við foreldra en gæta þurfi hagsmuna annarra nemenda um leið.

Patrekur og Ásgeir spáðu í EM-spilin
Háskólinn í Reykjavík hitaði upp fyrir EM í handbolta sem hefst í dag í HR stofunni.

Enn tveimur skrefum frá sameiningu skólanna
Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri segir að enn eigi eftir að klára samtalið um samruna áður en verði af honum. Tilkynnt var í dag Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafi samþykkt að hefja sameiningarviðræður.

Næststærsti háskóli landsins í pípunum
Háskólaráð Háskólans á Akureyri og Bifrastar hafa samþykkt að hefja sameiningarviðræður. Frá þessu greindi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, að loknum ríkisstjórnarfundi.

Tekur við sem forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífs í HR
Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífstengsla hjá Háskólanum í Reykjavík.

Ekkjan krefst skaðabóta ella verði Tómas kærður til lögreglu
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður hefur sent Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítalans bréf þar sem hann fer fram á skaðabætur fyrir hönd Merhawit Baryamikael Tesfaslase, sem er eftirlifandi eiginkona fyrsta plastbarkaþegans í heiminum, Andemariam Beyene.

Engin aukagreiðsla upp á 400 þúsund kall í HR í ár
Starfsmenn Háskólans í Reykjavík fá ekki sérstaka árslokagreiðslu í ár, líkt og síðustu ár. Rektor segir greiðsluna hafa verið tilfallandi launaauka vegna heimsfaraldurs.

Fjármögnun háskóla og samkeppnissjóða – af hvötum og áhrifum þeirra
Nýleg drög að reglum um fjárframlög til háskóla hafa að skýru leiðarljósi árangurstengingar. Sem dæmi munu háskólar fá fjármögnun sem fer að mestu eftir fjölda nema sem eru útskrifaðir. Fjármögnun vegna kennslu skiptist í misháa reikniflokka er miðast við áætlaðan kostnað við námið.

Glimmermálið komið á borð héraðssaksóknara
Atvik þar sem rauðu glimmeri var hellt yfir Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra í síðustu viku, er komið á borð héraðssaksóknara. Brot af þessu tagi varðar allt að sex ára fangelsisvist.