Háskólar

„Ef eina staðan er að hafa fjarnám þá verðum við bara að vinna með það“
Nýnemadagur Háskólans í Reykjavík fór fram með öðru sniði en venjulega í dag. Í stað þess að hittast og blanda geði á göngum skólans var nemendum raðað niður í stofur eftir deildum, vegna sóttvarnaráðstafana. Nýnemar eru þó flestir spenntir að hefja nám við skólann.

Hafa gefið út leiðbeiningar um sóttvarnir í skólastarfi í haust
Stjórnvöld hafa gefið út nánari leiðbeiningar til skóla um áhrif gildandi sóttvarnaráðstöfunum á mismunandi skólastigum.

Stefnt á staðnám þó félagslífið muni líklega litast af sóttvarnareglum
Lagt verður upp með staðnám að öllu leyti í framhaldsskólum í haust þrátt fyrir samkomutakmarkanir. Formaður Skólameistarafélags Íslands óttast þó að félagslíf nemenda muni líða fyrir sóttvarnareglur.

Starfsemi Listaháskólans á einum stað í Tollhúsinu
Listaháskóli Íslands fær Tollhúsið í Reykjavík undir starfsemi sína sem hefur verið dreifð í nokkrar byggingar vítt og breitt um borgina til þessa. Aðgerðin er hluti af áætlun sem ríkisstjórnin kynnti til að efla skapandi greinar í gær.

Stefna að takmarkalausu skólahaldi á öllum stigum í haust
Stefnt er að því að skólahald geti hafist takmarkalaust á öllum skólastigum í haust. Forsætisráðherra segir að verið sé að meta hvort áhættuþætti við bólusetningar barna og ungmenna og fylgst sé náið með stöðunni.

Gosið hrekkjótt og lætur vísindamenn hafa fyrir sér
Eftir að verulega hafði sljákkað í gosinu á Reykjanesi og margir farnir að sjá fyrir sér að það væri við að lognast út af hefur það tekið verulega við sér síðasta sólarhringinn.

Kennarar sem fengu Janssen fá örvunarskammt
Að tillögu sóttvarnalæknis er öllum kennurum og starfsmönnum skóla sem fengu Janssen bólusetningu í vor boðinn örvunarskammtur með bóluefni frá Pfizer í næstu viku og vikunni þar á eftir.

„Ekki sá duglegasti að læra í Versló“ en lauk meistaragráðu í geimvísindum á dögunum
Íslendingur sem lauk meistaragráðu í geimvísindum á dögunum segir að það hafi komið vinum og fjölskyldu sinni á óvart að hann hafi valið eðlisfræðinám þar sem hann var að eigin sögn ekkert sérstaklega duglegur að læra í menntaskóla. Hann myndi gjarnan vilja stunda geimrannsóknir við tunglið og stefnir á doktorsnám í faginu.

Vonar að stjórnvöld endurtaki ekki leikinn
Styrkir sem stjórnvöld veittu háskólum til að bjóða upp á sumarnámskeið á síðasta ári fólu ekki í sér ólögmæta ríkisaðstoð að sögn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Félag atvinnurekenda (FA) er ósammála niðurstöðunni og segir hana vera vonbrigði.

Heldur læknastéttin íslensku heilbrigðiskerfi í gíslingu?
Læknar vilja nú ólmir einkavæða heilbrigðiskerfið og gera það eins og í Bandaríkjunum þar sem fjöldi fólks hefur mjög takmarkaðan aðgang að læknisþjónustu.

Fasteignafélag stofnað utan um húsnæði Háskóla Íslands
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, gengu í gær formlega frá stofnun sérstaks fasteignafélags um eignarhald og umsjá fasteigna sem nýttar eru í starfsemi skólans.

Háskólinn tekur að sér kennslu fyrir Neyðarlínuna
Háskóli Íslands (HÍ) mun halda námskeið í svokallaðri neyðarsvörun á vormisserum 2022 og 2023. Það er hugsað til að undirbúa fólk fyrir störf hjá Neyðarlínunni.

Til skoðunar að auka framboð náms fyrir fatlaða í HÍ
Rektor Háskóla Íslands segir til skoðunar að auka námsframboð í skólanum fyrir fólk með fötlun. Einhverf kona segir ósanngjarnt að henni standi bara starfstengt diplómanám til boða.

Þjáningarþríburar fylgdust að á öllum skólastigum
Þríburarnir Jón Friðrik, Kristján og Þór Guðjónssynir útskrifuðust um helgina með BS-gráðu í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Bræðurnir hafa fylgst að í gegn um öll skólastig en Jón Friðrik segir þá bræður aldrei hafa ákveðið það saman hvaða skóli eða nám yrði fyrir valinu.

Útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í lögfræðinni
Guðrún Sólveig Pöpperl gerði sér lítið fyrir og útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á BA-prófi í lögfræði sögu Háskóla Íslands.

Bein útsending: Metfjöldi útskrifast úr HÍ og HR í dag
Aldrei hafa fleiri kandídatar útskrifast úr Háskóla Íslands en í dag. Meira en 2.500 munu taka við grunn- eða framhaldsprófsskírteinum sínum í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag. Eins er metfjöldi kandídata að útskrifast úr Háskólanum í Reykjavík, eða 700 manns.

Partýsprengja um helgina
Telja má líklegt að laugardagurinn 19. júní verði mikill veisludagur. Brautskráning kandídata við Háskóla Íslands fer fram í Laugardalshöll og kandídatar við Háskólann í Reykjavík fá sínar viðurkenningar við athöfn í Hörpu.

Sverði Vigdísar ætlað að verja vísindi og þekkingu
Sýning helguð forsetatíð og störfum Vigdísar Finnbogadóttir, fyrrum forseta Íslands, verður sett upp í Loftskeytastöðinni. Persónulegir munir Vigdísar verða til sýnis, en hún afhenti Háskóla Íslands munina við hátíðlega athöfn í morgun. Þeirra á meðal er sverð sem hún fékk gefins í Finnlandi.

Vigdís í aðalhlutverki á hátíðarsamkomu Háskóla Íslands
Háskóli Íslands efnir til hátíðarsamkomu í Hátíðarsal Aðalbyggingar klukkan níu. Í dag eru 110 ár liðin frá stofnun skólans. Vegna samkomutakmarka er viðburðurinn lokaður en hægt er að horfa á beina útsendingu hér á Vísi.

Ósanngjarnt að þetta sé eina námið sem stendur fötluðum til boða
Lára Þorsteinsdóttir, 22 ára kona með einhverfu, gagnrýnir framboð á námi við Háskóla Íslands fyrir fatlað fólk og segir það mjög takmarkað. Fatlaðir eigi rétt á menntun eins og aðrir og því þurfi að bæta úr þessu.

Var einstæð móðir í fullu námi og vinnu: „Ég las fyrir hana dómareifanir fyrir svefninn“
Arna Björg Jónasdóttir, lögfræðingur, hefur nýlokið laganámi sínu eftir ellefu ára vegferð og mun útskrifast frá Háskólanum í Reykjavík um næstu helgi. Hún fjallaði um nálgunarbann og brottvísun af heimili í meistararitgerð sinni eftir að hafa upplifað ofbeldi í nánu sambandi á eigin skinni.

Brautskráning úr Háskólagrunni HR
Sextíu nemendur brautskráðust úr Háskólagrunni Háskólans í Reykjavík við hátíðlega athöfn í gær.

Hátt í tíu þúsund umsóknir bárust Háskóla Íslands
Tæplega tíu þúsund umsóknir bárust Háskóla Íslands í grunn- og framhaldsnám fyrir komandi skólaár. Umsóknir um nám við skólann hafa aldrei verið fleiri, ef frá er talið síðasta skólaár.

Afsökunarbeiðni á leikskólaplani
Samherji baðst afsökunar í vikunni. Þeirri afsökunarbeiðni hefur verið tekið fálega ef ekki beinlínis illa. Og reyndar á það við um þær afsökunarbeiðnir sem fallið hafa á árinu.

Hyggjast kveikja neistann í Vestmannaeyjum
Háskóli Íslands og Samtök atvinnulífsins undirrituðu nýverið samning um stofnun Rannsóknarseturs um menntun og hugarfar sem hefur aðsetur við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og við starfsstöð Stofnunar rannsóknarsetra Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum.

Bein útsending: Fimmtíu verkefni keppa um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ
Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands verða afhent í dag klukkan 12 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans. Viðburðurinn er liður í Nýsköpunarvikunni og verður hægt að fylgjast með verðlaununum í spilaranum hér fyrir neðan.

Af tengslum Hæstaréttar og lagadeildar Háskóla Íslands
Tengsl Hæstaréttar Íslands og lagadeildar Háskóla Íslands eru rótgróin. Þessu kynntist ég þegar ég starfaði fyrir lagadeildina um margra ára skeið. Tengsl af þessu tagi geta verið tvíeggjað sverð.

Bein útsending: Yfirstandandi tæknibylting
Ari Kristinn Jónsson, rektor, heldur síðasta þriðjudagsfyrirlestur vorsins þann 1. júní klukkan 12:00 og mun þar ræða yfirstandandi tæknibyltingu.

Forseti Hæstaréttar dregur úr kennslu við HÍ á næsta skólaári
Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar og prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, mun draga úr starfsframlagi sínu við lagadeildina frá og með næsta kennsluári. Hann segir það þó vera óháð nýlegri umræðu um aukastörf dómara.

Kennsla og dómarastörf í beggja þágu
Undanfarið hefur í fjölmiðlum verið fjallað nokkuð um aukastörf dómara og hefur sú umræða meðal annars tekið til kennslustarfa þeirra.