Háskólar

Krafði Katrínu og Bjarna um skýr svör
Stúdentar við Háskóla Íslands mótmæltu fyrir utan Ráðherrabústaðinn í dag, vegna þess sem þeir telja vera vanfjármögnun hins opinbera háskólakerfis. Forseti Stúdendaráðs HÍ afhenti forsætis- og fjármálaráðherra áskorun stúdenta og lét ráðherra vinna fyrir kaupinu sínu með krefjandi spurningum.

Háskólann vantar milljarð, núna!
Þrátt fyrir ítrekuð áköll stúdenta og starfsfólks til yfirvalda um að bregðast við versnandi fjárhagsvanda opinberra háskóla, er ljóst að stjórnvöld hafa trekk í trekk látið háskólastigið sitja á hakanum og þar með brugðist skyldu sinni hvað varðar eina af grunnstoðum íslensks samfélags.

Ýmislegt annað í boði en viðskiptafræði
Háskóladagurinn verður haldinn með prompi og prakt á milli 12 og 15 í dag. Allir háskólar landsins kynna starfsemi sína fyrir gestum og gangandi. Verkefnastjóri segir tilganginn fyrst og fremst vera að láta fólk vita af því að mun meira sé í boði en flestir geri sér grein fyrir.

Lenya Rún segir Suðurlandið biblíubelti Íslands
Á fundi Orators um útlendingalögin var frumælandi meðal annarra aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, Ingvar Smári Birgisson. Lenya Taha Karim, varaþingmaður Pírata, var viðstödd og pundaði aðstoðarmanninn. Ferðalög hans um Suðurlandskjördæmi, biblíubelti Íslands, hefði lítið gildi.

Er VoN?
Kæra Áslaug Arna, ráðherra háskólamála. Við erum nemendur á Verkfræði- og náttúruvísindasviði við Háskóla Íslands og höfum fylgst með þér tala ítrekað um frelsi, nýsköpun og tækifæri.

HÍ býður upp á meistaranám í afbrotafræði
Háskóli Íslands býður upp á meistaranám í afbrotafræði frá og með haustmisseri 2023. Námið er ætlað fólki í störfum við ólíkar stofnanir sem fást við glæpi og refsingar.

Pólska orðin námsgrein við Háskóla Íslands
Pólska verður kennd í fyrsta skipti sem námsgrein við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands í haust. Áður hefur pólska verði kennd á námskeiðum við Tungumálamiðstöð HÍ en nú verður hún í boði sem 60 eininga aukagrein í pólskum fræðum.

Aldrei fleiri brautskráðir af háskólastigi
Alls útskrifuðust 5.214 nemendur með 5.248 próf á háskóla- og doktorsstigi skólaárið 2020-2021. Um er að ræða 15,5 prósent aukningu frá árinu áður. Brautskráningum á háskólastigi fjölgaði mest á sviði menntunar og líkt undanfarin ár voru konur um tveir þriðju nemenda sem luku háskólaprófi, eða 68 prósent.

Um fúsk, óráðsíu og ósannindi háskólaráðherra
Þann 11. febrúar sl. birtist grein eftir mig á Vísi, „Um fúsk og óráðsíu háskólaráðherra“, þar sem ég gagnrýndi Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðherra háskólamála, fyrir að fara illa með viðkvæma fjármuni háskólastigsins með stofnun sjóðs með það að markmiði að stuðla að auknu samstarfi íslenskra háskóla.

Sagði skilið við viðskiptafræðina og fékk hæstu einkunn í hjúkrunarfræði
Þrátt fyrir að vera kominn með B.S. og Master í viðskiptafræði og vinnu í faginu ákvað Kristófer Kristófersson að setjast aftur á skólabekk. Í þetta skiptið var það hjúkrunarfræðin sem heillaði hann.

Gjaldtaka hefjist ekki fyrr en með tilkomu samgöngukorts
Stúdentahreyfingin Röskva leggur megináherslu á að ekki verði farið í gjaldtöku á bílastæðum við Háskóla Íslands fyrr en stúdentar geta fengið samgöngukort á hóflegu verði. Athugasemdir frá hreyfingunni koma í kjölfar yfirlýsingar frá stúdentahreyfingunni Vöku frá því í gær.

Saka Röskvu um að verja ekki hagsmuni stúdenta
Ályktunartillaga Vöku um að leggjast gegn gjaldskyldu á bílastæðum við Háskóla Íslands var vísað frá á fundi Stúdentaráðs Háskóla Íslands í gær. Allir stúdentaráðsfulltrúar Röskvu kusu gegn ályktuninni. Vaka gagnrýnir Röskvu fyrir að verja ekki hagsmuni stúdenta.

Um fúsk og óráðsíu háskólaráðherra
Háskóla Íslands vantar milljarð til að ná endum saman á þessu ári vegna niðurskurðar háskólastigsins. Ljóst er að niðurskurðurinn muni draga úr getu háskólanna til að sækja fram – sem jafnframt mun hafa afleiðingar fyrir sóknarfæri lands og þjóðar til framtíðar. En hvernig bregðast stjórnmálamenn við þessari stöðu, t.d. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem ætti að bera hag háskólanna fyrir brjósti og ekki síst reyna að skilja hvar skóinn kreppir að?

Stefnt á gjaldtöku fyrir bílastæði við HÍ: „Úff, ég get ekki borgað meira“
Viðmælendur Íslands í dag voru á báðum áttum gagnvart hugmyndum um að gera bílastæði við Háskóla Íslands gjaldskyld fyrir ökumenn, sem stendur til að gera í auknum mæli í haust.

Er kynjafræði lykillinn að fjölbreyttara námsvali?
Í dag eru konur í meirihluta þeirra sem útskrifast úr námi á bæði framhalds- og háskólastigi. Ein skýring á lægra hlutfalli karla í háskólum snýr að brotthvarfi af framhaldsskólastiginu þar sem árlegt brotthvarf nýnema hefur verið meira meðal drengja en stúlkna sem má skýra með ólíkum einkunnum kynjanna við lok grunnskóla.

„Vísindamenn læra ekkert um business“
Íslendingar voru tuttugu árum eftir á í að grípa til markvissra aðgerða til að stuðla markvisst að því að vísindamenn kæmu niðurstöðum rannsókna sinna í arðbæran eða hagnýtan farveg, að sögn Einars Mäntylä framkvæmdastjóra Auðnu tæknitorgs, sem stofnað var 2018. Vísindamenn læra að hans sögn „ekkert um business“ - því þarf að kenna hann.

Hyggjast heilla Harvard um helgina: „Vonumst til að fá fleiri íslenska leikmenn“
Íslenska fyrirtækið Soccer & Education stendur að sérstökum sýningarleik um helgina þar sem íslenskt knattspyrnufólk fær tækifæri til að sýna listir sínar fyrir þjálfurum bandarískra háskólaliða. Þjálfarar frá Boston College og Harvard fara fögrum orðum um íslenska leikmenn.

Sannleikurinn um Vestfirði
Þegar landkrabbinn og Sunnlendingurinn ég réð sig til starfa til Háskólaseturs Vestfjarða á Ísafirði rak mörg af mínum ættmennum og vinum í rogastans. Þeim fannst sumum algjört glapræði að hafa vetursetu á þessum guðsvolaða Vestfjarðakjálka sem væri nær einangraður og myrkvaður níu mánuði á ári.

HÍ vantar milljarð til viðbótar á þessu ári til að ná endum saman
Háskóli Íslands hefur þurft að skera niður kennslu vegna fjárskorts en skólann vantar milljarð til viðbótar á þessu ári til að ná endum saman. Staðan er sérstaklega slæm hjá Heilbrigðisvísindasviði og Menntavísindasviði og enn meiri niðurskurður í vændum á næsta ári verði ekki gripið til aðgerða.

Næsta stopp er: Háskólastrætó
Það tekur fjörutíu mínútur að labba frá Háskólatorgi í Stakkahlíð. Það tekur síðan tuttugu mínútur að ganga þaðan í Læknagarð og aðrar tuttugu mínútur frá Læknagarði aftur á Háskólatorg. Það er langt á milli bygginga Háskóla Íslands og við í Vöku teljum okkur vera með lausnina við þessum vanda.

Endurráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Kolbrún Þ. Pálsdóttir hefur verið endurráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands til næstu fimm ára, eða til 1. júlí 2028.

Gríðarleg fjölgun meðal útskrifaðra kennara hér á landi
Á fimmta hundrað kennarar hafa útskrifast úr háskólum hér á landi undanfarin tvö ár. Það eru tæplega jafnmargir og árin fimm á undan. Menntamálaráðuneytið segir átaki stjórnvalda um fjölgun kennara að þakka.

Háskóli allra landsmanna... sem búa við strætóskýli
Háskóli Íslands er oft talinn háskóli allra landsmanna. Nú á dögunum hefur skotið upp kollinum umræða um gjaldskyldu á öllum bílastæðum háskólans. Samkvæmt viðtali Vísis við Kristinn Jóhannesson, sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs HÍ, stendur til að þessi breyting verði væntanlega tekin upp á fundi háskólaráðs á þessu ári.

Netþrjótar stálu upplýsingum um alla nemendur Háskólans á Akureyri
Netþrjótar hafa náð að komast yfir upplýsingar um alla nemendur, kennara og annað starfsfólk við Háskólann á Akureyri (HA), þar á meðal lykilorð, kennitölur og farsímanúmer. Verið er að rannsaka málið og búið er að auka öryggisstig á tölvukerfum skólans.

Fyrstu stúdentarnir flytja á Sögu eftir tvo mánuði
Þessa dagana standa yfir milljarða framkvæmdir við að breyta hótel Sögu í háskólahús og á þeim að vera lokið eftir eitt og hálft ár. Fyrstu stúdentarnir munu hins vegar flytja inn í nýjar einstaklingsíbúðir í marsmánuði.

Myndir af nýjum stúdentaíbúðum á Hótel Sögu líta dagsins ljós
Félagsstofnun stúdenta hefur nú birt fyrstu myndirnar af nýjum stúdentagörðum í húsnæðinu sem áður var Hótel Saga.

Skólagjöldin að sliga listnema
Nemendur við Listaháskóla Íslanda hafa sent frá bréf til skólastjórnar þar sem hækkun skólagjalda er mótmælt hástöfum.

Segir faraldurinn hafa breytt viðhorfi til fjarnáms
Faraldur kórónuveirunnar breytti viðhorfi til Háskólans á Bifröst að sögn rektors skólans sem segir fjölga í þeim hópi nemenda sem kjósa fjarnám. Hún segir fjarnám mikið jafnréttismál en nemendur skólans hafa aldrei verið fleiri.

Reynsla íslenskra karlmanna af slaufun: „Ég fékk morðhótanir og fólk var að segja mér að drepa mig“
„Að geta bara ekkert gert, geta ekki borið hönd fyrir höfuð mér, geta ekki sagt neitt og vera bara dæmdur og einhvern veginn ærulaus og ónýtur. Það var það erfiðasta,“ segir íslenskur karlmaður sem varð fyrir slaufun eftir að hafa verið ásakaður opinberlega um kynferðisofbeldi.

Nýsköpunarverkefni ráðherra skjóti skökku við þegar minnka þarf kennslu
Háskólaráðherra hefur úthlutað rúmum milljarði króna í 25 nýsköpunarverkefni hjá háskólum landsins. Stúdentar segja skjóta skökku við að miklum fjármunum sé varið í slík verkefni þegar háskólarnir ná ekki endum saman og geti ekki veitt stúdentum grunnþjónustu.