Ítalski boltinn
Albert skoraði beint úr aukaspyrnu í jafntefli
Albert Guðmundsson var hetja Genoa í kvöld þegar hann tryggði liðinu jafntefli gegn Bologna en hann skoraði gullfallegt mark beint úr aukaspyrnu snemma leiks.
Juventus flaug í átta liða úrslit
Juventus tryggði sér sæti í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í knattspyrnu með öruggum 6-1 sigri gegn Salernitana í kvöld.
Góð endurkoma tryggði Roma í næstu umferð
Roma er komið áfram í ítalska bikarnum í knattspyrnu eftir endurkomu sigur á Cremonese í kvöld.
AC Milan örugglega í átta liða úrslit
AC Milan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar, Coppa Italia, með öruggum 4-1 sigri gegn Cagliari í kvöld.
Rabiot hélt Juventus á lífi í toppbaráttunni
Juventus mátti ekki við því að misstíga sig þegar Róma kom í heimsókn í stórleik umferðarinnar í ítölsku úrvalsdeildinni. Aðeins eitt mark leit dagsins ljós en það dugði Juventus til sigurs.
Albert lagði upp er Genoa stal stigi af toppliðinu
Albert Guðmundsson og félagar í Genoa gerðu 1-1 jafntefli er liðið tók á móti Inter, toppliði ítölsku úrvalsdeildarinnar, í kvöld.
Meistararnir töpuðu enn einu sinni stigum
Ítalíumeistarar Napoli þurftu að sætta sig við markalaust jafntefli er liðið tók á móti Monza í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Hent út úr ítölsku deildinni ef þau velja Ofurdeildina
Ítalska knattspyrnusambandið hefur samþykkt að ákveði eitthvert ítalskt félag að taka þátt í svokallaðri Ofurdeild þá fái það ekki lengur að spila í ítölsku A-deildinni.
Útilokar að Osimhen sé á förum þrátt fyrir klásúlu í samningi
Roberto Calenda, umboðsmaður nígeríska framherjans Victors Osimhen, hefur blásið á þær sögusagnir að leikmaðurinn sé opinn fyrir því að yfirgefa Napoli í sumar.
Pellegrini skaut Rómverjum upp fyrir meistarana
Ítalíumeistarar Napoli máttu þola 2-0 tap er liðið heimsótti Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Toppliðið með fjögurra stiga forskot yfir jólin
Inter Milan, topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar, fer með fjögurra stiga forskot inn í jólahátíðina eftir öruggan 2-0 sigur gegn Lecce í kvöld.
Tap og fjórði markalausi leikurinn í röð hjá United
West Ham vann góðan 2-0 heimasigur á Manchester United í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar. United hefur nú spilað fjóra leiki án þess að skora mark.
Vlahovic tryggði Juventus mikilvægan sigur
Juventus minnkaði forskot Inter á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í eitt stig eftir sigur á Frosinone á útiveli. Sigurmarkið kom undir lok leiksins.
Vegleg hátíðardagskrá á Stöð 2 Sport
Það verður nægt framboð af úrvalsíþróttaefni á Stöð 2 Sport um hátíðarnar, bæði af innlendum og erlendum vettvangi.
Mark og stoðsending Alberts tryggði sigur
Albert Guðmundsson tryggði Genoa 2-1 sigur á útivelli gegn Sassuolo með marki og stoðsendingu. AC Milan gerði svo óvænt jafntefli gegn botnliði Salernitana.
Fabregas verður að hætta af því að leyfið hans rann út
Cesc Fabregas hefur unnið fjóra af fimm leikjum sínum síðan hann tók við ítalska liðinu Como en Spánverjinn er samt að missa starfið sitt.
Árni Vilhjálmsson búinn að finna sér lið á Ítalíu
Knattspyrnumaðurinn Árni Vilhjálmsson hefur gert samning við ítalska C-deildarliðið Novara. Hann gengur formlega í raðir félagsins eftir áramót.
Ítölsku meistararnir fengu skell og eru úr leik
Ítalíumeistarar Napoli eru úr leik í ítölsku bikarkeppninnni Coppa Italia eftir óvænt 0-4 tap gegn Frosinone í kvöld.
Sjáðu Albert klobba tvo leikmenn Juventus liðsins í röð
Albert Guðmundsson átti flottan leik þegar Genoa náði í stig á móti stórliði Juventus í ítalska boltanum um helgina.
Inter getur ekki tapað og er áfram á toppnum
Inter er áfram á toppi Serie A á Ítalíu eftir góðan útisigur í Rómarborg í kvöld. Inter hefur ekki tapað leik síðan í september.
AC Milan aftur á sigurbraut
AC Milan heldur pressunni á liðin fyrir ofan sig í Seríu A en liðið lagði Monza nokkuð auðveldlega, 3-0, í hádegisleiknum á Ítalíu.
Victor Osimhen töfraði fram sannkallaðar sirkuskúnstir
Victor Osimhen, framherji Napólí, lagði upp mark í gær með hreint ótrúlegum hætti þegar lið hans lagði Cagliari 2-1.
Albert kom í veg fyrir að Juventus kæmist á toppinn
Albert Guðmundsson skoraði mark Genoa er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Umboðsmennirnir græddu á tá og fingri á árinu
Fótboltafélög á Englandi og í Sádí-Arabíu sáu til þess að umboðsmenn fótboltamanna hafa aldrei áður haft eins mikið upp úr krafsinu og á þessu ári.
Chiellini leggur skóna á hilluna
Ítalski knattspyrnumaðurinn Giorgio Chiellini hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir 23 ára langan feril.
Capello skilur ekkert í ráðningu Zlatans: Hvað á hann að gera?
Zlatan Ibrahimovic er kominn aftur í vinnu hjá AC Milan en ekki sem leikmaður heldur sem sérstakur ráðgjafi eiganda félagsins.
Mourinho lét boltastrákinn færa markverði Roma miða
José Mourinho er engum líkur og sýndi það enn og aftur í leik Roma og Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.
Zlatan óvænt orðaður við sitt fyrsta þjálfarastarf
AC Milan er í vandræðum í ítalska fótboltanum og tapaði enn einum leiknum um helgina. Ítalskir fjölmiðlar eru farnir að velta því fyrir sér hvort breytingar séu í farvatninu í Mílanó.
Rómverjar sáu rautt í jafntefli gegn Fiorentina
Roma fékk Fiorentina í heimsókn í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Bæði lið eru í harðri baráttu um Evrópusæti og lauk leiknum með 1-1 jafntefli þar sem Roma nældi sér í tvö rauð spjöld.
Guðný og stöllur lágu gegn toppliðinu
Guðný Árnadóttir og stöllur hennar í AC Milan þurftu að sætta sig við 2-1 tap er liðið heimsótti topplið Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.