Spænski boltinn

Barcelona í hvítum búningum í fyrsta sinn síðan 1979
Útivallabúningur Barcelona verður hvítur á komandi tímabili, en þetta er í fyrsta sinn í 44 ár sem félagið leikur í hvítum búningum, lit sem flestir tengja við erkifjendurna í Real Madrid.

Arsenal skoraði fimm gegn Barcelona
Leandro Trossard skoraði tvö mörk þegar Arsenal sigraði Barcelona í æfingaleik í Los Angeles, 5-3.

Bellingham skoraði þegar Real Madrid vann United
Jude Bellingham skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid þegar liðið sigraði Manchester United í æfingaleik í Houston, Texas í nótt. Lokatölur 2-0, Real Madrid í vil.

Isco kominn í Real Betis eftir að hafa verið án félags í sjö mánuði
Isco er genginn í raðir spænska knattspyrnuliðsins Real Betis. Isco kemur á frjálsri sölu en hann hefur verið án félags frá því Sevilla rifti samningi hans undir lok síðast árs.

Sky Sports: Chelsea, Man Utd, Tottenham, Inter og Barcelona hafa áhuga á Mbappé
Sky Sports heldur því fram að Chelsea, Manchester United, Tottenham Hotspur, Inter Milan og Barcelona hafi öll áhuga á að fá Kylian Mbappé í sínar raðir. Þá hefur verið greint frá því að Al Ahli í Sádi-Arabíu vilji gera Mbappé að dýrasta leikmanni í heimi.

Barcelona frestar vináttuleik þar sem leikmenn liðsins eru með „upp og niður“
Barcelona neyddist til þess að fresta vináttuleik gegn Juventus vegna veikinda. Fjöldi leikmanna og starfsmanna er með flensuna sem felur í sér niðurgang og ælu.

Arftaki Busquets uppalinn í La Masia
Spánarmeistarar Barcelona hafa fengið Spánverjann Oriel Romeu í sínar raðir frá Girona. Sá á að leysa Sergio Busquets af hólmi en samningur þess síðarnefnda rann út í sumar og hann er nú kominn í faðm Lionel Messi í Miami.

Áfrýjun Santi Mina hafnað og dómurinn fyrir kynferðisbrot stendur
Spánverjinn Santi Mina sér fram á fjögur ár í fangelsi þar í landi eftir að áfrýjun hans á dómi vegna kynferðisbrots var vísað frá í dag.

Skoraði þrennu á móti Ronaldo og fékk mynd af sér með honum í leikslok
Norski framherjinn Jörgen Strand Larsen var stærsta stjarnan í fyrsta undirbúningsleiknum hjá liði Cristiano Ronaldo.

Manchester United og Barcelona sektuð vegna brota á fjárhagsreglum UEFA
Manchester United og Barcelona fengu í morgun sekt frá evrópska knattspyrnusambandinu. Félögin brutu gegn hinum margfrægu fjárhagsreglum sambandsins á síðasta ári.

Barcelona kaupir efnilegasta framherja Brasilíu síðan Ronaldo skaust fram á sjónarsviðið
Spánarmeistarar Barcelona tilkynntu í dag kaup félagsins á brasilíska framherjanum Vitor Hugo Roque Ferreira. Hann kemur frá Athletico Paranaense í heimalandinu.

Aston Villa fær landsliðsmann Spánar í vörnina
Enska úrvalsdeildarfélagið hefur tilkynnt spænska miðvörðinn Pau Torres sem nýjasta leikmann liðsins. Sá kemur frá Villareal á Spáni.

Barcelona grípur til örþrifaráða til að fjármagna endurnýjun Camp Nou
Niðurrif á Nou Camp, heimavelli Barcelona, er hafið en endurnýja á leikvanginn nánast frá grunni. Félagið hefur ákveðið að fara heldur óvenjulega leið til að fjármagna byggingu nýs leikvangs.

„Geta unnið Meistaradeildina án Mbappe“
Fyrrum framkvæmdastjóri PSG segir að það sé kominn tími til að Kylian Mbappe yfirgefi félagið. Félagið telur að franska stórstjarnan sé búinn að ákveða að yfirgefa félagið frítt næsta sumar.

Spænska goðsögnin Luis Suárez látin
Spænska knattspyrnugoðsögnin Luis Suárez er látin. Hann var 88 ára gamall.

Blind sá nýja möguleika á Spáni
Hollendingurinn Daley Blind er genginn til liðs við spænska úrvalsdeildarliðið Girona en hann kemur til félagsins frá þýsku risunum Bayern Munchen.

„Tyrkneski Messi“ genginn í raðir Real Madrid
Hinn 18 ára gamli Arda Güler, sem stundum hefur verið nefndur „tyrkneski Messi,“ er genginn í raðir spænska stórveldisins Real Madrid frá Fenerbache.

Mbappé ætlar ekki framlengja samning sinn við PSG
Kylian Mbappé mun ekki að spila áfram með Paris Saint-Germain þegar samningur hans rennur út næsta sumar. Það bendir því allt til þess að hann verði seldur í sumar.

Ný lög gegn kynþáttaníði nefnd í höfuðið á Vinícius Júnior
Yfirvöld í brasilísku stórborginni Rio de Janiero hafa ákveðið að nefna ný lög gegn kynþáttaníði í höfuðið á framherja Real Madrid og brasilíska landsliðsins, Vinícius Júnior.

Fyrirliðinn yfirgefur Chelsea eftir ellefu ára samband
Cesar Azpilicueta, fyrirliði enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, hefur yfirgefið félagið eftir ellefu ára veru hjá liðinu og skrifað undir eins árs samning við Atlético Madrid.

PSG-markvörðurinn útskrifaður af gjörgæsludeildinni
Sergio Rico, markvörður Paris Saint-Germain, er kominn af gjörgæsludeildinni, þar sem hann hefur dvalið síðan að hann varð fyrir slysi í lok maí.

Ancelotti tekur við brasilíska landsliðinu næsta sumar
Carlo Ancelotti verður þjálfari brasilíska fótboltalandsliðinu á næsta ári en þetta staðfesti forseti brasilíska knattspyrnusambandsins.

Cesc Fabregas hefur lagt skóna á hilluna
Hinn 36 ára gamli Cesc Fabregas, lék á ferli sínum fyrir Arsenal og Chelsea á Englandi en á Spáni lék hann fyrir uppeldisfélag sitt Barcelona. Einnig spilaði hann fyrir Monaco í Frakklandi. Hann var hluti af einu besta landsliði allra tíma er hann lék fyrir spænska landsliðið. Nú er ferli þessa snillings lokið því skórnir eru komnir á hilluna góðu.

Azpilicueta valdi Atletico Madrid
Spánverjinn Cesar Azpilicueta verður leikmaður Atletico Madrid á næstu leiktíð. Hann kemur á frjálsri sölu frá enska félaginu Chelsea.

Modric tekur í það minnsta eitt ár í viðbót með Madrídingum
Króatíski knattspyrnumaðurinn Luka Modric hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við spænska stórveldið Real Madrid.

Man City staðfestir að Gundogan fari til Barcelona
Ilkay Gundogan, fyrirliði Manchester City, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir ensku meistarana.

Chelsea nælir í framherja Villareal
Framherjinn Nicolas Jackson hefur staðist læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea og styttist í að hann verði kynntur til leiks sem nýjasti leikmaður liðsins. Talið er að samningur hans gildi til ársins 2031.

Osasuna fær ekki að keppa í Sambandsdeild Evrópu
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið að spænska félagið Osasuna fái ekki að taka þátt í Sambandsdeild Evrópu á komandi leiktíð þrátt fyrir að hafa unnið sér inn sæti í keppninni á nýafstöðnu tímabili.

Benítez tekur við Celta Vigo
Rafael Benítez, fyrrverandi þjálfari Liverpool, Newcastle United, Real Madríd og fleiri liða, er tekinn við liði Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni. Hann mun því ekki taka við Ítalíumeisturum Napoli eins og umræða var um.

Kostar vel yfir sjötíu milljarða að losa 33 ára Gundogan undan nýja samningnum
Ilkay Gundogan, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, gengur í raðir spænska stórveldisins Barcelona þegar núverandi samningur hans við City rennur út.