Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. október 2026 13:30 Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir sviðsstjóri netöryggissviðs Fjarskiptastofu. Anton Brink Íslendingar standa á tímamótum í netöryggismálum og þurfa að horfast í augu við breyttan veruleika og bregðast við að mati sviðsstjóra netöryggissviðs Fjarskiptastofu.
Netöryggisráðstefna Fjarskiptastofu fór fram í þriðja sinn á Hótel Hilton í morgun en þangað mættu meðal annars erlendir sérfræðingar, meðal annars fulltrúi Atlantshafsbandalagsins til að ræða netöryggi og þær stafrænu ógnir sem samfélagið stendur frammi fyrir. Rúm vika er síðan alvarlegir veikleikar fundust í forritunarmáli að nafni PHP sem notað er fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir sviðsstjóri netöryggissviðs Fjarskiptastofu segir Íslendinga komna mjög langt í stafrænni þjónustu og gert vel þegar kemur að því að byggja upp öflugt fjarskiptanet. „Hins vegar erum við ekki eins vel stödd þegar kemur að netöryggi og áfallaþoli þessara innviða og við verðum að horfast í augu við það að við þurfum að byggja upp bæði öflugra netöryggi hér hjá okkar krítísku innviðum og við þurfum líka að taka ákveðna ábyrgð á því að þrýsta þessum málum áfram á stjórnunarlevelinu.“ Alþjóðasamstarf hafi aldrei skipt meira máli þegar kemur að netöryggi. Mikilvægt sé að styrkja tengslin og efla upplýsingamiðlun svo hægt sé að átta sig á því hvað við vitum og vitum ekki að sögn Unnar. Breyttur veruleiki stafi fyrst og fremst af því hve auðvelt er hægt að nýta gervigreind til þess að finna flókna öryggisgalla líkt og þann sem kenndur er við PHP. Sá galli hafi fyrst fundist árið 2004. „Það eru tuttugu og tvö ár síðan að þessir undirliggjandi veikleikar voru fundnir. Þetta er náttúrulega auðvitað flókinn veikleiki en það var ekki fyrr en að sérfræðingar með aðstoð gervigreindar gátu misnotað hann og það tók þá tvo daga að finna út úr því. Þannig þannig þetta sýnir að gervigreindin getur aðstoðað sérfræðinga, góða sem slæma, við að nýta mjög flókna veikleika og það breytir áhættumyndinni mikið fyrir það hvernig íslensk stjórnvöld og íslenskir innviðir þurfa að bregðast við.“ Hraðinn sé orðinn gríðarlegur og tíminn frá því að veikleikar uppgötvast og eru nýttir hafi aldrei verið minni. Tíminn til varna hafi hinsvegar einnig styst en þá þurfi grunnþættir netöryggis og stjórnunaráhættu innan fyrirtækja og stofnana að vera í lagi. Mjög lítið þurfi til þess að almenningur finni fyrir því þegar slíkir veikleikar eru nýttir, um sé að ræða almannaheilla- og þjóðaröryggismál. Erum við að gera nóg eins og staðan er í dag? „Ég held að það sé alltaf hægt að gera betur, það er alltaf hægt að gera betur en það er líka alveg ljóst að það er innleiðingarhalli á Íslandi gagnvart reglugerðum og öðru sem er að koma frá Evrópu og það er gríðarlega mikilvægt að við förum að stíga inn í þetta af fullum krafti, sér í lagi með þeirri bæði ógnarmynd sem er að skapast bæði varðandi breytingar á alþjóðapólitíska sviðinu og þessa gervigreindarþróun og svo er bara stafræn þróun yfir höfuð alltaf að auka ákveðna áhættufleti,“ segir Unnur. „Þannig að já, við þurfum aðeins að stíga upp og herða skrúfurnar en það er mikilvægt að það sé gert í ákveðnu samtali og samvinnu við aðila. Stjórnvöld ein geta ekki aktað. Krítískir innviðir verða að vinna ákveðið saman og með stjórnvöldum. Við þurfum líka að nýta alla þá þekkingu og getu sem við eigum hér innanlands, innan háskólasamfélagsins, innan fræðasamfélagsins og vinna saman áfram til þess að efla netöryggissamfélagið.“
Netöryggi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Sjá meira