
Jarðhræringar á Reykjanesi

Þrjátíu skjálftar frá miðnætti
Áfram hafa mælst skjálftar í grennd við Grindavík og einkenndist nóttin af smáskjálftavirkni.

Nýtt myndband sýnir greinilega hvernig skjálftavirknin jókst
Nýtt myndband frá Veðurstofu Íslands sýnir greinilega hvernig skjálftavirknin nærri Grindavík jókst tímabundið síðastliðið föstudagskvöld.

Líkir jarðhræringunum við Grindavík við það að troða bók í miðjan bókastafla
Töluverð jarðskjálftavirkni hefur verið við Grindavík síðustu daga og er kvikuinnskot talin líklegasta skýringin á jarðhræringunum. Jarðeðlisfræðingur líkir innskotinu og áhrifum af því við það að troða bók í miðjan bókastafla.

Um fjörutíu skjálftar frá miðnætti
Jarðskjálftavirkni hefur áfram mælst í grennd við Grindavík, frá miðnætti hafa mælst um fjörutíu skjálftar á svæðinu, flestir undir 2 að stærð.

Fremur rólegt á skjálftasvæðunum við Grindavík í nótt
Frá miðnætti mældust um sex skjálftar á svæðinu.

Annar jarðskjálfti að stærð 3,3 mældist við Grindavík
Skjálftinn er hluti af um 150 jarðskjálftum sem mælst hafa á svæðinu í dag.

Wuhan-veiran og áhrif eldsumbrota á alþjóðaflug í Víglínunni
Fréttir af jarðhræringum á Reykjanesi og Wuhan veirunni í Kína hafa gnæft yfir öðrum fréttum vikunnar sem leið.

Telur innskot kviku líklegra en eldgos á Reykjanesskaga
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, einn kunnasti jarðvísindamaður Íslendinga, bendir á háa eðlisþyngd kvikunnar og að kvikuinnskot séu algengari en eldgos.

Um 80 skjálftar í nágrenni Grindavíkur frá miðnætti
Búast má við áframhaldandi skjálftavirkni.

„Það var eins og trukkur hefði keyrt á húsið okkar“
Íbúum í Grindavík var verulega brugðið þegar stórir skjálftar riðu yfir í gærkvöldi. Síðasta sólarhring hafa meira en 700 jarðskjálftar mælst í grennd við bæinn, sá öflugasti 4,3 að stærð. Talið er að skjálftarnir séu afleiðingar landriss en ekki merki um gosóróa.

Björgunarsveitaræfing með þyrlu í Grindavík í kvöld
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík mun í kvöld halda æfingu með þyrlu Landhelgisgæslunnar í nágrenni Grindavíkur. Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá sveitinni.

Náðu óvart myndbandi af skjálftanum í Grindavík: „Það var pínu power í þessu“
Facebook-síðan Live Darts Iceland birti í gærkvöldi myndband sem er klippt út úr beinu streymi síðunnar og sýnir þegar jarðskjálfti af stærðinni 4,3 skók Grindavík stuttlega í gær.

Grindvíkingar fundu vel fyrir skjálftunum: „Ég held að enginn hafi sofið hann af sér“
Jarðskjálftavirkni norðnorðaustur af Grindavík var mikil í gærkvöld og nótt eins og greint hefur verið frá og mældust yfir 500 skjálftar síðasta sólarhring. Bæjarstjóri Grindavíkur segir íbúum hafa brugðið í skjálftahrinunni.

Enginn gosórói en yfir 500 jarðskjálftar mælst við Grindavík
Yfir 500 jarðskjálftar hafa mæst í grennd við Grindavík síðasta sólarhring, stærstur var skjálftinn sem hófst 22:24 í gærkvöldi, 4,3 að stærð.

Almannavarnir hvetja Grindvíkinga til að gæta að lausamunum vegna jarðskjálftahrinu
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra leggur áherslu á að íbúar Grindavíkur fari yfir heimili og vinnustaði hvað varðar hættu á óstöðugum hlutum.

Öflug skjálftahrina nærri Grindavík
Þrír snarpir jarðskjálftar hafa mælst síðasta klukkutímann nærri Grindavík, sá stærsti 4,3 að stærð klukkan 22:24 í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Skjálftinn fannst vel á Reykjanesskaga og fannst hann einnig í Reykjavík. Einnig hafa fundist fjölmargir eftirskjálftar.

Landrisið við Grindavík komið í fjóra sentímetra á tíu dögum
Land hefur haldið áfram að rísa við Grindavík í dag og mælist landrisið nú fjórir sentímetrar frá því umbrotahrinan í Eldvörpum og Svartsengi hófst fyrir tíu dögum.

Allir skjálftar frá miðnætti undir 2,0 að stærð
Lítil jarðskjálftavirkni hefur verið síðan um miðnætti við Grindavík og hafa þeir allir verið undir 2,0 að stærð. Enn mælist landris vestan við Þorbjörn.

„Mitt mat er að það verði alls ekki óbyggilegt á Reykjanesskaganum“
Vísindaráð almannavarna kom saman til fundar í dag vegna nýjustu gagna úr mælingum við Þorbjörn og Svartsengi.

Fylgist með reykspúandi Etnu út um hótelgluggann og hugsar heim til Þorbjarnar
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir jarðhræringar á Reykjanesskaga síðustu daga ekki hafa komið sér á óvart. Þorvaldur lýsti því í viðtali við Vísi fyrir rúmu ári, þegar hann vann við rannsóknir á eldgosavá á Reykjanesi, að svæðið væri "komið á tíma“.

Telja kvikuna vera á fjögurra til níu kílómetra dýpi
Vestan við fjallið Þorbjörn hefur verið óvenju hratt landris í um átta daga eða um þrír til fjórir millimetrar á dag. Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna jarðhræringanna.

Lítil skjálftavirkni í grennd við Grindavík í nótt
Lítil skjálftavirkni var í grennd við Grindavík í nótt samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Engar vísbendingar um að kvika sé komin nálægt yfirborði
Mælingar sérfræðinga á Veðurstofu Íslands á svæðinu umhverfis fjallið Þorbjörn nærri Grindavík gefa engar vísbendingar um að kvika sé komin nálægt yfirborði.

Grindvíkingar þurfa að þola þreyttasta brandara landsins
Söluskálastarfsmenn í Grindavík hafa vart undan við að svara sprelligosum sem spyrjast fyrir um gos og Hraun í skugga jarðhræinganna í sveitarfélaginu.

Líklegt að fyrirvari á eldgosi verði nokkrar klukkustundir
Kvikan sem er að valda landrisinu í Eldvörpum og Svartsengi er núna talin vera á þriggja til fjögurra kílómetra dýpi. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur líklegt að hægt verði að vara við eldgosi með nokkurra klukkustunda fyrirvara.

Hefðu sent öll neyðarboðin samtímis ef um neyðartilfelli væri að ræða
Aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að breytingar á váboðakerfi geti að einhverju leyti skýrt tímamismun á neyðarboðum sem send voru við prófanir á kerfinu í nágrenni Grindavíkur á mánudag.

Landris nánast ekkert í gær
Sérfræðingar hafa ekki áhyggjur eins og er.

Ekki til viðbragðsáætlun vegna heita vatnsins á Suðurnesjum
Ekki eru til neinar áætlanir um það hvernig bregðast skuli við því ef framboð á heitu vatni stöðvast til sveitarfélaga á Suðurnesjum vegna jarðhræringa eða eldsumbrota.

Tveir skjálftar yfir þremur nærri Grindavík
Tveir skjálftar yfir þremur að stærð mældust nærri Grindavík í morgun. Samkvæmt töflu Veðurstofu Íslands yfir jarðskjálfta mældist annar klukkan 04:31 og var hann 3,5 að stærð.

Hér telur jarðeðlisfræðingurinn líklegast að gossprungan opnist
Komi til eldgoss þykir líklegast að það verði á sprungu norðvestan Þorbjarnar. Þá myndi fjallið virka eins og varnargarður fyrir Grindvíkinga.