
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Akureyringar boða einnig skipulagsdag
Skipulagsdagur verður í leik- og grunnskólum á Akureyri sem og í tónlistarskólum og frístundastarfi á morgun.

Sendir aðstandendum hinna látnu samúðarkveðjur
Forsetinn hvetur jafnframt landsmenn til að kynna sér tilmæli og leiðbeiningar eftir að nýjar reglur tóku gildi fyrir helgi.

„Þetta er ekki tíminn til að leita að undanþágum“
Víðir Reynisson segir að túlka skuli undanþáguheimildir þröngt og gefa sem fæstar undanþágur frá þeim sóttvarnareglum sem tóku gildi fyrir helgi. Hann segist ekki viss um að allir átti sig á því hve mikið álag er á heilbrigðiskerfinu.

Vongóð um að börn geti mætt í skólann alla virka daga vikunnar
Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra segist vongóð um að grunnskólabörn geti mæt í skólann alla virka daga vikunnar.

Yngstu nemendurnir í sóttkví vegna smits hjá kennara
Nemendur í 1. bekk í Lundarskóla á Akureyri auk nokkurra starfsmanna þurfa að fara í sóttkví fram á föstudag eftir að kennari við skólann greinst með covid-19.

Viðbrögð veiðimanna komu Víði á óvart
„Þetta er auðvitað fólk sem er þá að fara á milli landshluta. Við erum búin að tala um það í margar vikur, að hvetja fólk til að ferðast ekki á milli landshluta,“ segir Víðir.

Allir í skimun í Slóvakíu
Nærri því helmingur slóvakísku þjóðarinnar fór í skimun fyrir Covid-19 í gær. Alls fóru um 2,6 milljónir manna í skimun og á hinn helmingurinn að fara í skimun í dag.

„Skuldavandi getur orðið að skuldafaraldri“
Skuldavandi í kjölfar kórónuveirufaraldursins gæti orðið að skuldafaraldri að sögn hagfræðings.

Grímuskylda á eldri stigum grunnskóla
Börnum á yngri stigum grunnskóla landsins verður skipt niður í 50 barna hólf. Það á við um 1. bekk og til og með 5. bekk. Eldri börnum verður skipt upp í 25 barna hópa.

Tveir létust vegna Covid í nótt
Tveir létust af völdum Covid-19 á Landspítalanum í nótt.

24 innanlandssmit greindust í gær
Alls greindust 24 með kórónuveiruna innanlands í gær. 17 af þessum 24 voru í sóttkví. Helmingi færri sýni voru tekin í gær en í fyrradag þegar 54 innanlandssmit greindust.

Ekkert innanlandssmit í Ástralíu í fyrsta sinn í fimm mánuði
Ekkert innanlandssmit Covid-19 greindist í Ástralíu í gær og er það í fyrsta sinn í nærri því fimm mánuði sem það gerist. Í Viktoríu, fylki þar sem rúmlega 90 allra dauðsfalla vegna veirunnar hafa orðið, hefur enginn dáið né greinst smitaður í tvo daga.

Loka þarf öllum golfvöllum landsins
Eftir að hertar ráðstafanir voru gerðar til að ná að hemja kórónuveiruna hér á landi er ljóst að loka þarf öllum golfvöllum landsins. Þetta staðfestu þeir Þórólfur Guðnason og Víðir Reynisson.

Reyna að afstýra stórslysi í heilbrigðiskerfinu með fjögurra vikna útgöngubanni
Útgöngubann tekur gildi í Bretlandi á fimmtudag og stendur til að minnsta kosti 2. desember næstkomandi.

Covid börnin
Níu ára stúlkan vaknar og lítur út um gluggann. Hún finnur haustsólina gæla við andlitið. Eitt augnablik líður henni vel.

Rjúpnaveiði ekki í anda núverandi sóttvarnareglna
Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa sent frá sér ábendingu vegna rjúpnaveiða.

Fjöldi tilkynninga hefur borist um heimilisofbeldi og brot á sóttvarnalögum
Ellefu tilkynningar hafa borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi vegna gruns um brot á sóttvarnareglum sem tóku gildi á miðnætti í nótt. 56 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær.

Skipulagsdagur í öllum skólum höfuðborgarsvæðisins á mánudag
Sveitarfélögin og almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hafa skipulagsdag í leik- og grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi næstkomandi mánudag.

Umfangsmiklar stuðningsaðgerðir í bígerð
Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í gær tillögu þess efnis að ráðist verði í aðgerðir til að koma til móts við íþrótta- og æskulýðsfélögum landsins vegna þeirrar röskunar sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á starf þeirra.

Fjórar tilkynningar um heimilisofbeldi - einn á sjúkrahúsi
Flytja þurfti einn á sjúkrahús í nótt vegna heimilisofbeldis. Fjórar tilkynningar hafa borist um heimilisofbeldi síðasta sólarhringinn. Yfirlögregluþjónn segir málin á frumstigi rannsóknar.

Boris boðar til blaðamannafundar
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur boðað til blaðamannafundar nú síðdegis þar sem líklegt þykir að hann boði hertari aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins

Smituðum fjölgaði um milljón á fjórtán dögum
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sakar lækna um að ýkja um faraldurinn til að hagnast.

Formaðurinn vill ekki tjá sig um fögnuð Leiknismanna
Leiknir Reykjavík er komið upp í Pepsi Max deildina 2021 eftir að KSÍ tók ákvörðun um að blása Íslandsmótið í knattspyrnu af í gær, þar sem Leiknir var í öðru sæti þegar einungis tvær umferðir voru eftir af mótinu.

Íþróttir óheimilar en Golfsambandið greinir stöðuna
Viðbragðshópur Golfsambands Íslands vinnur nú að því að „greina stöðuna“ í kjölfar strangari sóttvarnaaðgerða sem stjórnvöld kynntu í gær og tóku gildi á miðnætti. Samkvæmt hertum reglum er allt íþróttastarf óheimilt.

„Þetta eru ákveðin varnarviðbrögð við stöðunni“
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins fagnar áformum stjórnvalda um frekari efnahagsaðgerðir.

200 smit rakin beint eða óbeint til Landakots
Rekja má 200 smit beint eða óbeint til Landakots. Hertar sóttvarnareglur hafa tekið gildi. 56 greindust með kórónuveiruna innanlands síðasta sólarhringinn.

Þórólfur um fögnuð Valsmanna: Hópsýkingar geti komið upp við slíkar aðstæður
„Mér finnst leitt að heyra að menn séu ekki að vanda sig meira,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, í um Íslandsmeistarafögnuð Valsmanna í gærkvöldi.

56 innanlandssmit greindust í gær
Alls greindust 56 með kórónuveiruna innanlands í gær. 39 af þessum 56 voru í sóttkví, eða 70 prósent.

Umdeildur fögnuður Valsmanna ekki með blessun formanns
Leikmenn og starfsmenn meistaraflokks Vals í knattspyrnu fögnuðu Íslandsmeistaratitli sínum í Fjósinu, félagsheimili félagsins, í gærkvöldi. Svo virðist sem reglur um samkomubann hafi gleymst í fögnuði Valsmanna þar sem staðið var á stólum og sungið. Formaður Vals vissi ekki af hittingnum og segir hann ekki í anda félagsins.

Ákall gjörgæslulæknis til Íslendinga
Theódór Skúli Sigurðsson, svæfingarlæknir á gjörgæsludeild Landspítalans, biður rjúpnaskyttur og aðra sem finna fyrir yfirgnæfandi ferðaþörf og ævintýramennsku nú um helgina til þess að fara varlega.