Alls greindust 29 með kórónuveiruna innanlands í gær Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2020 10:51 Um fimm þúsund manns hafa nú smitast af kórónuveirunni á Íslandi frá upphafi faraldursins. 72 prósent þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví. Vísir/Vilhelm
Alls greindust 29 með kórónuveiruna innanlands í gær. 21 af þeim sem greindist í gær voru í sóttkví, eða 72 prósent. Átta þeirra sem greindust í gær voru utan sóttkvíar, eða 28 prósent. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls er 71 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Í gær voru 74 á sjúkrahúsi og fjórir á gjörgæslu. Alls greinust níu á landamærum í gær. Var um eitt virkt smit að ræða og svo er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilfellum átta. 798 manns eru nú í einangrun, samanborið við 859 í gær. Þá eru 1.851 í sóttkví í dag, samanborið við 2.083 í gær. Af þeim 29 sem greindust innanlands í gær greindust 27 eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni. Tveir greindust í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Þriðja bylgjan. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 183,5 en var 188,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 21,8, en var 21,5 í gær. Nú hafa 4.989 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir ennfremur að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru sautján nú látnir. Alls voru tekin 1.315 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 560 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 303 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun og nítján í skimun á vegum Íslenskrar erfðagreiningar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira