
Höfundar- og hugverkaréttur

Segir Menntamálastofnun hafa notað Óróa í óleyfi í fleiri ár
Leikstjórinn Baldvin Z segir Menntamálastofnun hafa stolið efni frá sér og nýtt það sem námsefni í grunnskólum án þess að hafa fengið leyfi til. Efnið hafi verið notað um árabil og hvorki Baldvin né aðrir sem áttu efnið hafi fengið krónu fyrir.

Siðanefnd fjallar um meintan ritstuld seðlabankastjóra
Siðanefnd Háskóla Íslands mun taka fyrir meintan ritstuld Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra, sem Bergsveinn Birgisson hefur sakað hann um.

Finnbogi segir Bergsvein ljúga
Finnbogi Hermannsson sakar Bergsvein Birgisson um lygar þegar hann segir að Finnbogi hafi gefið út bókina Einræður Steinólfs án þess að útgáfuréttur væri virtur.

Svar við bréfi Bergsveins
Mér er innanbrjósts eins og Jóni þjófi. Eftir að stolið var frá Jóni aumingjanum, var hann aldrei kallaður annað en Jón þjófur.

Finnbogi kasti steinum úr glerhúsi og hafi stundað hinn eina sanna stuld
Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðimaður, vísar því alfarið á bug að hann hafi gerst sekur um ritstuld þegar hann skrifaði skáldsöguna Svar við bréfi Helgu.

Stutt leiðrétting og áminning til Finnboga Hermanssonar
Ekki linnir því ómálefnalega hvað varðar mínar ásakanir á hendur Ásgeiri Jónssyni, sem voru rökstuddar með greinargerð af minni hendi hér á Vísi.

Sakaði seðlabankastjóra um ritstuld en fær nú sjálfur ásakanir af sama meiði
Rithöfundurinn Bergsveinn Birgisson, sem í vikunni sakaði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra um ritstuld, hefur nú sjálfur fengið á sig ásakanir af sama meiði.

Bergsveinn segir svör dr. Ásgeirs og dr. Sverris hryggileg
Bergsveinn Birgisson rithöfundur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann svarar Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra og dr. Sverri Jakobssyni.

„Ég hef aldrei áður verið vændur um stuld“
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur brugðist við fréttaflutningi af meintum hugverkastuldi og ásökunum Bergsveins Birgissonar, segist hafa lesið Leitina að svarta víkingnum en hún sé ekki hefðbundin sagnfræði.

Útilokar ekki málsókn vegna meints ritstuldar
Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðamaður, segist munu bíða niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands áður en hann tekur ákvörðun um mögulega málshöfðun á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, sem hann hefur sakað um ritstuld.

Fyrirlestri seðlabankastjóra um landnámsöldina frestað
Til stóð að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri myndi halda fyrirlestur um efnahagsmál á landnámsöld. Honum hefur nú verið slegið á frest.

Seðlabankastjóri vísar ásökunum um ritstuld á bug
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sendi nýverið frá sér bók þar sem hann fjallar um landnám Íslands. Eyjan hans Ingólfs heitir bókin sú en Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður segir Ásgeir fara ránshendi um bók sína Leitin að svarta víkingnum án þess að geta heimilda.

Listamaður lagði Reykjavíkurborg í deilu um myndband sem ekki var greitt fyrir
Listamaðurinn Hulda Rós Guðnadóttir lagði Reykjavíkurborg í Héraðsdómi Reykjavíkur í deilu um myndefni í eigu Huldu sem notað hafði verið af borginni á sýningu á Sjóminjasfaninu. Borgin hafði ekki greitt fyrir afnot af myndefninu.

Sakar seðlabankastjóra um ritstuld
Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðimaður, telur engan vafa á leika að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, hafi í veigamiklum atriðum stuðst við bók hans Leitina að svarta víkingnum í bók sinni Eyjan hans Ingólfs. Án þess að geta heimilda. Það heitir rit- og hugmyndastuldur.

Stolið og rangfært – um Eyjuna hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson
Út er komin bókin Eyjan hans Ingólfs (héreftir EHI) eftir Ásgeir Jónsson. Útgefandi er Almenna bókafélagið (2021). Höfundur er með doktorsgráðu í hagfræði og var deildarforseti hagfræðideildar Háskóla Íslands. Höfundur starfar nú sem seðlabankastjóri Íslands.

North West klæddist bol frá Virgil Abloh með stolinni mynd af Bryndísi Ingu
„Mér finnst þetta mjög klikkað, mig langar bara í eintak af þessum bol. Þetta er ótrúlega skemmtilegt og skrítið," segir Bryndís Inga Reynis, en North West klæddist í gær bol með andlitinu hennar framan á.

Jóhann beið lægri hlut en sleppur við lögfræðikostnað í Saknaðarmáli
Tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason beið lægri hlut í höfundarréttarmáli sínu gegn norska tónlistarmanninum Rolf Løvland og bandarísku tónlistarrisunum Universal, Warner og Peer Music. Hann mun þó ekki þurfa að standa straum af lögfræðikostnaði stefnda vegna málsóknarinnar.

Telja ekkert gefa grænt ljós á að ríkjaheiti njóti verndar frá vörumerkjaskráningu
Breska verslunarkeðjan Iceland Foods telur að markmið íslenskra stjórnvalda í deilunni um yfirráð yfir vörumerkinu Iceland sé að koma á fót reglu þess efnis að undir engum kringumstæðum verði hægt að skrá ríkjaheiti sem vörumerki. Iceland Foods telur að þetta eigi sér enga stoð í reglugerðum eða alþjóðasáttmálum.

Enn glímir Jóhann við tónlistarrisana í dómsal
Munnlegur málflutningur í máli Jóhanns Helgasonar gegn tónlistarrisunum Warner og Universal hófst í Los Angeles í dag. Jóhann er vongóður um að í þetta skiptið hafi hann betur.

Taylor Swift heldur áfram að toppa sig
Taylor Swift heldur sífellt áfram að gleðja aðdáendur sína með nýjum gullmolum. Í nótt gaf hún aftur út plötu sína Red, sem kom fyrst út árið 2012. Platan heitir núna RED (Taylor’s Version) og er hún enn betri en upprunalega útgáfan.

Sýnum verðmætasköpun í (hug)verki!
Fyrirtæki sem vernda hugverk sín eru verðmætari og borga hærri laun og þau eru betur í stakk búin til að ná árangri í nýsköpun. Hugverk eru í dag helstu og mikilvægustu verðmæti fyrirtækja og eru forsenda þess að þau nái árangri. Hvað þýðir það fyrir nýsköpun og verðmætasköpun á Íslandi?

Ekki tilefni til aðgerða vegna deilu um auðkennið Norðurhús
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu í deilu tveggja félaga um notkun á auðkenninu Norðurhús á vefsíðunni nordurhus.is og á Facebook-síðunni facebook.com/nordurhus.

Arnarlax freistar þess að fá blágrænan lit skráðan sem vörumerki
Hugverkastofu hefur borist ein umsókn um skráningu litamerkis en umsækjandinn er fiskeldisfyrirtækið Arnarlax hf. Ný lög sem tóku gildi í fyrra opna á að á Íslandi sé hægt að skrá ýmis konar óhefðbundin vörumerki, á borð við liti, hljóð og umbúðir.

„Ég hefði ekki getað ímyndað mér að þetta væri svona vont“
Kristín Eiríksdóttir skáld segist hafa lært mikið um höfundarrétt á síðustu mánuðum, eftir að hún upplifði að hugverki sínu hefði verið stolið þegar þáttaröðin Systrabönd kom út. Hún segir það hafa komið sér á óvart hve sár sú lífsreynsla hafi í raun og veru reynst henni.

Havarti heitir nú Hávarður
Mjólkursamsalan hefur ákveðið að breyta nafni ostanna Havarti og Havarti krydd í Hávarð og Hávarð krydd. Ástæðan er samningur Íslands og Evrópusambandsins um vernd á afurðaheitum.

Kampavín verður að ómerkilegu freyðivíni í Rússlandi
Franskir freyðivínsframleiðendur úr héraðinu Champagne eru æfir eftir að ný löggjöf var innleidd í Rússlandi, sem má kalla ákveðna tímamótalöggjöf í vínheiminum. Þar er kveðið á um að rússneska freyðivínið Shampanskoye (sem er rússneska orðið yfir kampavín) megi eitt bera heitið, sem hefur hingað til aðeins tilheyrt vínframleiðendum Champagne-héraðsins.

Ágreiningurinn leystur og fagnað með tónleikaferðalagi
Aðdáendur Hipsumhaps geta tekið gleði sína á ný því platan, Lög síns tíma, er orðin aðgengileg á streymisveitunni Spotify á nýjan leik eftir að hafa verið fjarlægð í síðustu viku. Það vakti mikla athygli þegar nýjasta plata hljómsveitarinnar var fjarlægð sökum ágreinings á milli Fannars Inga Friðþjófssonar, forsprakka hljómsveitarinnar og plötuútgáfunnar Record Records.

Record Records vísar ásökunum um vanefndir á bug
Plötuútgáfan Record Records hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að útgáfuréttur nýjustu plötu Hipsumhaps sé ennþá í þeirra höndum. Riftun einkaleyfissamnings af hálfu hljómsveitarinnar hafi verið ólögmæt.

Nýjasta plata Hipsumhaps fjarlægð af Spotify vegna ágreinings
Það hefur vakið athygli aðdáenda hljómsveitarinnar Hipsumhaps að nýjasta plata þeirra, Lög síns tíma, hefur verið fjarlægð af streymisveitunni Spotify. Platan kom út í síðasta mánuði.

Heimir segist aldrei hafa krafist kredits fyrir Kötlu
Heimir Sverrisson leikmyndagerðarmaður hefur skrifað pistil sem hann vonar að verði til að lægja öldur í kvikmyndageiranum.