Innlent
184 185 186 187 188 189 190 191 192 … 334 ›
Fimmta fíkniefnamálið í Kópavogi á tveimur sólarhringum Lögreglumenn úr Hafnarfirði og Kópavogi lögðu hald á fíkniefni við húsleit í báðum bæjunum í nótt. Í Hafnarfirði fundust 40 grömm af hassi og fimm grömm af amfetamíni í fórum tveggja manna og eru þeir grunaðir um sölumennsku. Innlent 27.10.2006 07:56
Engar breytingar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili Engar breytingar verða gerðar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili, aðrar en að laga stöðu sjóðsins að ríkisstyrkjareglum EES-samningsins og hugsanlega til að fara eftir tillögum stýrihóps um málefni Íbúðalánasjóðs. Innlent 27.10.2006 07:32
Margir ökumenn lentu í vandræðum á Hellisheiði í gærkvöldi vegna ófærðar Margir ökumenn lentu í vandræðum á Hellisheiði í gærkvöldi vegna krapa og hálku og var bjrögunarsveitin í Hveragerði kölluð út til að aðstoða þá. Innlent 27.10.2006 07:27
Vill innflytjendur í íslensku lögregluna Lögreglan þarf að bregðast við auknum fjölda nýbúa á Íslandi með því að auðvelda þeim inngöngu í Lögregluskólann. Frumkvæðið þarf að koma frá Alþingi. Innlent 26.10.2006 21:54
Gögn Þjóðskjalasafns um hleranir birt á vefnum Þjóðskjalasafnið hefur birt á vef sínum þau gögn sem eru þar í vörslu og varða dómsmál um hleranir á kaldastríðsárunum. Innlent 26.10.2006 23:43
Starfsmenntasjóðir atvinnulífsins misnotaðir Það er mat Starfsgeinasambandsins að óeðlilegt sé að starfsmenntasjóðir atvinnulífsins, sem ætlaðir séu lægst launaða fólki landisins til menntunar, séu notaðir í jafn ríkum mæli og raun beri vitni, til styrktar íslenskukennslu útlendinga. Þetta kemur fram í pistli á vefsíðu sambandsins. Þar segir að slíkt eigi að vera á ábyrgð samfélagsins alls. Samtök atvinnulífsins og SGS muni sameiginlega óska eftir því við ríkisstjórnina að brugðist verði nú þegar við fyrirséðum vanda, vegna stöðugt vaxandi fjölda útlendinga á vinnumarkaði. Innlent 26.10.2006 22:23
Dæmdur fyrir áfengisauglýsingu Stjórnarformaður Karls K. Karlssonar var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag til að greiða 200 þúsund krónur í sekt vegna áfengisauglýsingar sem birt var í tímaritinu Gestgjafanum árið 2003. Innlent 26.10.2006 22:13
Engar breytingar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili Engar breytingar verða gerðar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili, aðrar en þær sem áður hefur verið lýst, þ.e. breytingar til að laga stöðu sjóðsins að ríkisstyrkjareglum EES-samningsins og hugsanlegar breytingar til að fara eftir tillögum stýrihóps um málefni Íbúðalánasjóðs. Þetta kom fram í ræðu Magnúsar Stefánssonar, félagsmálaráðherra, á ársfundi ASÍ í dag. Hann segir að samkvæmt tillögum stýrihópsins sé m.a. lagt til að Íbúðalánasjóði verði heimilað að fjármagna útlán sín með öðrum hætti en verið hafi og geti þannig lánað án ríkisábyrgðar. Innlent 26.10.2006 21:55
Félag vélstjóra og málmtæknimanna inn í ASÍ Nýtt sameinað félag, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, var samþykkt sem aðildarfélag Alþýðusambands Íslands á ársfundi ASÍ, sem var settur í morgun. Innlent 26.10.2006 21:37
ASÍ: Hagkerfið nær mjúkri lendingu Samkvæmt hagspá Hagdeildar ASÍ fyrir næstu tvo ár er gert ráð fyrir að við lok núverandi stóriðjuframkvæmda nái hagkerfið mjúkri lendingu sem feli í sér að ekki verði harkalegur samdráttur þó verulega hægi á. Í frétt á vefsíðu ASÍ segir að aðlögunin að jafnvægi verði þó alls ekki sársaukalaus því kaupmáttur margra dragist saman og gjaldþrotum fjölgi. Á næsta ári verði hagvöxtur lítill og atvinnuleysi muni aukast. Þá muni gengið veikjast, stýrivextir lækka samhliða lækkandi verðbólgu og draga úr viðskiptahallanum. Innlent 26.10.2006 21:29
Ekki til skoðunar að breyta opnunartíma skemmtistaða Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, segir hrottalegar nauðganir og önnur ofbeldisverk í borginni kalla á eflt samstarf lögreglu og borgaryfirvalda. Skoða verði hvort fjölga eigi lögreglumönnum og öryggismyndavélum í borginni. Hann segir hins vegar ekki á dagskrá að endurskoða opnunartíma vínveitingastaða í miðborginni. Innlent 26.10.2006 21:09
Krefjst 26 milljóna í skaðabætur Alcoa krefst 26 milljóna króna í bætur af 12 mótmælendum sem eru ákærðir fyrir að hafa farið í óleyfi inn á virkjanasvæðið við Kárahnjúka. Fólkið er ákært fyrir að hafa brotið hegningarlög með því að leggjast á vegi og stöðva umferð og vinnu á svæðinu. Aðalmeðferð hófst í málinu í dag. Innlent 26.10.2006 20:49
Gefur ekki upp hvorn hann styður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segist ekki gefa upp hvort hann styðji Björn Bjarnason eða Guðlaug Þór Þórðarson í annað sætið í Reykjavík. Vilhjálmur hefur lýst opinberlega yfir stuðningi við Guðlaug Þór en prýðir einnig forsíðu kosningabæklings Björns. Innlent 26.10.2006 20:37
Dæmdur fyrir nauðgun Karlmaður á þrítugsaldri var í héraðsdómi í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga tvítugri stúlku á göngustíg í Breiðholti í sumar. Innlent 26.10.2006 19:55
Malaví býður íslendingum þróunaraðstoð í fótboltanum Ísland er nú í 95. sæti á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, einu sæti fyrir neðan Malaví sem er þiggjandi stórs hluta þróunaraðstoðar Íslendinga. Yassín Osman, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Malaví, undrast stöðu Íslands á lista FIFA og telur að landsliðin ættu að leika vináttuleik svo Íslendingar geti séð hvernig fátæku litlu ríki tekst að færast ofar á styrkleikalistanum. Innlent 26.10.2006 19:29
Hvalveiðar skaða Icelandair Forstjóri Icelandair segir hvalveiðar vanhugsaðar og geti valdið félaginu miklum skaða. Fyrsta afbókun frá stórum ferðaheildsala barst fyrirtækinu nú síðdegis.Eigandi hvalaskoðunarfyrirtækis leggur til að farin verði eins konar millileið í hvalveiðimálinu og leggur til að afmörkuð verði stór hval-griðasvæði við landið. Innlent 26.10.2006 19:23
Óánægðir með að vera kallaðir "jeppagengi" Íslenskir starfsmenn friðargæslunnar í Afganistan eru afar óánægðir með tal utanríkisráðherra um að þeir hafi starfað í "jeppagengjum", en ráðherrann vill mýkja ásýnd friðargæslunnar. Íslensk hjúkrunarkona og ljósmóðir eru nú í Afganistan og hefja störf á laugardag. Þær verða ávallt í fylgd vopnaðra fylgdarmanna. Innlent 26.10.2006 19:17
Skjöl um símahleranir 1949 til 1968 verða birt Þjóðskjalasafnið hefur ákveðið að birta skjöl um símhleranir frá árunum 1949 til 1968. Safnið segir að ákvörðunin sé tekin í samræmi við þá skoðun Menntamálaráðuneytisins sem birtist í úrskurði vegna stjórnsýslukæru Kjartans Ólafssonar, að veita skuli aðgang að gögnunum meðal annars að teknu tilliti til 71. gr. stjórnarskrár um friðhelgi einkalífsins. Innlent 26.10.2006 18:19
Umhverfisslys yfirvofandi á Frakkastígsreit Umhverfisslys er yfirvofandi á horni Frakkastígs og Laugavegar, segir borgarfulltrúi frjálslyndra sem gagnrýnir það hvernig nýtt deiliskipulag er kynnt - kynningarferlið, segir hann, er alltof veikt. Innlent 26.10.2006 18:23
Fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni á sex ára tímabili, eða þegar hún var átta ára og þar til hún var fjórtán ára. Með þessu staðfesti rétturinn dóm hérðasdóms. Innlent 26.10.2006 16:57
Fimm sinnum tekinn fullur á tæpum tveimur mánuðum Hæstiréttur Íslands dæmi í dag karlmann á fimmtugsaldri í átján mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur. Maðurinn ók bifreið sinni undir áhrifum áfengis og var sviptur ökurétti fimm sinnum á tímabilinu frá 5. desember 2005 til 21. janúar 2006. Innlent 26.10.2006 16:37
HS samþykkir 10 milljóna dollara tilboð bandaríska hersins Stjórn Hitaveitu Suðurnesja hefur ákveðið að samþykkja tilboð frá bandaríska hernum um 10 milljóna dollara greiðslu, jafnvirði um 680 milljóna, til að jafna ágreining vegna uppsagnar hitaveitusamnings í kjölfar brotthvarfs varnarliðsins. Innlent 26.10.2006 16:08
Möguleikinn til náms mikilvægasti þáttur samstarfs Íslendingar telja að möguleikinn til náms og rannsókna í öðrum norrænum ríkjum sé mikilvægasti þáttur norræns samstarfs. Nærri 40 prósent þjóðarinnar eru þeirrar skoðunar en einungis á bilinu 6-11 prósent eru sammála þessu í hinum norrænu ríkjunum. Innlent 26.10.2006 15:47
Landsbankinn selur í Straumi-Burðarás og Gretti Landsbanki Íslands hefur selt 6,76 prósenta hlut sinn í Straumi-Burðarási Fjárfestingabanka hf til fjárfestingafélagsins Grettis hf. á genginu 17,3. Virði hlutanna nemur rétt rúmum 12 milljörðum króna. Þá keypti Landsbankinn 9,9 prósenta hlut í TM af Gretti hf. á genginu 41. Landsbankinn seldi sömuleiðis allan hlut sinn í Gretti ehf. eða alls 35,39 prósent. Viðskipti innlent 26.10.2006 15:25
Forstjóraskipti hjá Kögun Breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn Kögunar hf., dótturfélags Dagbrúnar. Gunnlaugur M. Sigmundsson hefur látið af störfum sem forstjóri Kögunar og hefur Bjarni Birgisson tekið við starfi hans. Þá hefur Jóhann Þór Jónsson verið ráðinn fjármálastjóri Kögunar hf. Viðskipti innlent 26.10.2006 15:15
Reglur um innihald og magn vökva í flugi breytast Flugmálastjórn hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að breyttar reglur um innihald og magn vökva sem farþegar mega hafa með sér í flug taki gildi innan Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna þann 6. nóvember. Reglur sem takmarka stærð handfarangurs sem farþegar mega taka með sér í flug taka gildi 6. maí 2007. Innlent 26.10.2006 15:05
Lífeyrisgreiðslur TR 44 milljarðar á næsta ári Búist er við að lífeyrisgreiðslur Tryggingastofnunar verði 44 milljarðar króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið. Fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins að miðað við þetta hafi útgjöld til lífeyristrygginga aukist um 84 prósent á árunum 1998 til 2007 að teknu tilliti til verðlagsbreytinga. Innlent 26.10.2006 14:59
Lést í slysi á Vopnafirði Fullorðin kona lést þegar bíll hennar fór fram af klettum við heilsugælsustöðina í Vopnafirði og hafnaði út í sjó um klukkan ellefu í morgun. 30-40 menn frá lögreglu, slökkviliði og björgunarsveitinni Vopna á Vopnafirði voru kallaðir á vettvang og notuðu þeir bæði slöngubáta og björgunaskip við leit að konunni. Innlent 26.10.2006 14:43
Óvenjulegur afli Það er ekki allt fiskur sem kemur í veiðarfæri skipa eins og þeir á Kleifaberginu komust að í gær á hinum frægu Halamiðum. Þegar verið var að vinna aflann úr einu holinu kom ökuskírteini rúllandi eftir færibandi í átt að hausara, frekar en ekkert. Lífið 26.10.2006 14:41
Skora á Sturlu að beita sér fyrir því að hvalveiðar verði stöðvaðar Hvalaskoðunarsamtök Íslands skora á Sturlu Böðvarsson, samgönguráðherra og ráðherra ferðamála, að hlutast til um að hvalveiðar verði stöðvaðar og málið tekið upp að nýju innan ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum í dag. Innlent 26.10.2006 14:24