Innlent 4000 nýir heimsforeldrar Heimsforeldrum UNICEF fjölgaði um fjögurþúsund í gær í söfnun á Stöð 2, og eru nú um ellefuþúsund og sexhundruð á landinu. Innlent 2.12.2006 13:01 Mannskæð umferðarslys á Indlandi Þrjátíu og þrír létu lífið og fimmtán slösuðust þegar 150 ára gömul brú sem verið var að rífa, hrundi ofan á járnbrautarlest sem keyrði fyrir neðan hana, á Indlandi í dag. Erlent 2.12.2006 12:58 Nóvember óvenju illviðrasamur Þrátt fyrir rysjótta tíð og kuldakast í nýliðnum nóvember mánuði mældist meðalhitinn í Reykjavík 0,1°C yfir meðaltali. Hins vegar var meðalhitinn á Akureyri 0,7°C undir meðalhita mánaðarins. Þetta eru niðurstöður sem fást við veðurfarslegt uppgjör nóvember mánaðar. Innlent 2.12.2006 12:45 250 hafa kosið í forvali VG Forval Vinstri grænna, í þremur kjördæmum höfuðborgarsvæðisins, fór vel af stað í morgun að sögn framkvæmdastjóra flokksins, en með utankjörfundaratkvæðum hafa um 250 manns kosið. Fyrstu tölur verða birtar upp úr klukkan tíu í kvöld. Innlent 2.12.2006 11:59 Stormur aftur kominn að bryggju Eikarbáturinn Stormur er nú aftur kominn að bryggju, í Kópavogi, en hann slitnaði þar frá og rak í strand í óveðri í fyrrinótt. Báturinn var í raun sokkinn og fullur af sjó, en Árna Kópssyni, kafara, tókst að dæla úr honum og koma honum á flot og að bryggju. Innlent 2.12.2006 11:47 Króaður af og handjárnaður eftir ofsaakstur Drukkinn ökumaður var færður í handjárn, nótt eftir að lögreglunni í Keflavík tókst loks að stöðva ofsaakstur hans á Reykjanesbraut. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og ók á yfir 140 kílómetra hraða á flóttanum. Innlent 2.12.2006 11:16 Eldsupptök í svefnherbergi Eldur kviknaði í íbúð á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi í nótt. Eldurinn kom upp í svefnherbergi íbúðarinnar og náði sá sem þar býr að koma sér út. Vel gekk að slökkva eldinn. Eldsupptök eru ókunn. Innlent 2.12.2006 09:48 Á gjörgæslu eftir hnífstungu í Kópavogi Sautján ára piltur sem stunginn var með hnífi, fyrir utan skemmtistað í Kópavogi í nótt, liggur á gjörgæsludeild Landsspítalans. Lögreglan í Kópavogi var kölluð til á skemmtistaðinn Shooters í Engihjalla vegna hópsagsmála fyrir utan húsið. Innlent 2.12.2006 09:41 Átta líkamsárásir í Reykjavík Innlent 2.12.2006 09:35
133 134 135 136 137 138 139 140 141 … 334 ›
4000 nýir heimsforeldrar Heimsforeldrum UNICEF fjölgaði um fjögurþúsund í gær í söfnun á Stöð 2, og eru nú um ellefuþúsund og sexhundruð á landinu. Innlent 2.12.2006 13:01
Mannskæð umferðarslys á Indlandi Þrjátíu og þrír létu lífið og fimmtán slösuðust þegar 150 ára gömul brú sem verið var að rífa, hrundi ofan á járnbrautarlest sem keyrði fyrir neðan hana, á Indlandi í dag. Erlent 2.12.2006 12:58
Nóvember óvenju illviðrasamur Þrátt fyrir rysjótta tíð og kuldakast í nýliðnum nóvember mánuði mældist meðalhitinn í Reykjavík 0,1°C yfir meðaltali. Hins vegar var meðalhitinn á Akureyri 0,7°C undir meðalhita mánaðarins. Þetta eru niðurstöður sem fást við veðurfarslegt uppgjör nóvember mánaðar. Innlent 2.12.2006 12:45
250 hafa kosið í forvali VG Forval Vinstri grænna, í þremur kjördæmum höfuðborgarsvæðisins, fór vel af stað í morgun að sögn framkvæmdastjóra flokksins, en með utankjörfundaratkvæðum hafa um 250 manns kosið. Fyrstu tölur verða birtar upp úr klukkan tíu í kvöld. Innlent 2.12.2006 11:59
Stormur aftur kominn að bryggju Eikarbáturinn Stormur er nú aftur kominn að bryggju, í Kópavogi, en hann slitnaði þar frá og rak í strand í óveðri í fyrrinótt. Báturinn var í raun sokkinn og fullur af sjó, en Árna Kópssyni, kafara, tókst að dæla úr honum og koma honum á flot og að bryggju. Innlent 2.12.2006 11:47
Króaður af og handjárnaður eftir ofsaakstur Drukkinn ökumaður var færður í handjárn, nótt eftir að lögreglunni í Keflavík tókst loks að stöðva ofsaakstur hans á Reykjanesbraut. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og ók á yfir 140 kílómetra hraða á flóttanum. Innlent 2.12.2006 11:16
Eldsupptök í svefnherbergi Eldur kviknaði í íbúð á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi í nótt. Eldurinn kom upp í svefnherbergi íbúðarinnar og náði sá sem þar býr að koma sér út. Vel gekk að slökkva eldinn. Eldsupptök eru ókunn. Innlent 2.12.2006 09:48
Á gjörgæslu eftir hnífstungu í Kópavogi Sautján ára piltur sem stunginn var með hnífi, fyrir utan skemmtistað í Kópavogi í nótt, liggur á gjörgæsludeild Landsspítalans. Lögreglan í Kópavogi var kölluð til á skemmtistaðinn Shooters í Engihjalla vegna hópsagsmála fyrir utan húsið. Innlent 2.12.2006 09:41
3.091 heimsforeldri á Íslandi Á meðan útsendingu stóð skráðu 3.901 manns sig sem heimsforeldri en um það snerist dagur Rauða nefsins. Er fjöldi heimsforeldra á Íslandi þá kominn í 11.601 úr 7650 en takmarkið var að ná 10.000 manns. Innlent 1.12.2006 23:40
3.067 nýjir heimsforeldrar Klukkan 22:45 í kvöld voru 3.607 manns búin að skrá sig sem heimsforeldri en um það snýst dagur Rauða nefsins. Er fjöldi heimsforeldra á Íslandi þá kominn í 11.257 úr 7650. Fólk er enn hvatt til þess að skrá sig en síminn er 562-6262 og er líka hægt að skrá sig á netinu á slóðinni www.rauttnef.is og stendur söfnunin til miðnættis. Innlent 1.12.2006 22:53
Ammóníakleki í Hafnarfirði Klukkan 17:13 í dag fékk slökkvilið Reykjavíkur tilkynningu um að 50 lítrar af ammóníum hefðu lekið úr frystitæki í fiskvinnslufyrirtæki í Hafnarfirði. Starfsmenn tóku eftir þess og létu vita og fóru síðan menn frá slökkviliðinu í eiturefnabúningum og lokuðu fyrir lekann. Engin hætta var á ferðum og engin slys urðu á fólki. Innlent 1.12.2006 22:15
687 nýjir heimsforeldrar Klukkan 21:20 í kvöld voru 687 manns búin að skrá sig sem heimsforeldri en um það snýst dagur Rauða nefsins. Er fjöldi heimsforeldra á Íslandi þá kominn í 8337 úr 7650 en takmarkið er að ná 10.000 manns. Fólk er hvatt til þess að skrá sig en síminn er 562-6262 og er líka hægt að skrá sig á netinu á slóðinni www.rauttnef.is og stendur söfnunin til miðnættis. Innlent 1.12.2006 21:26
Meirihluti sprakk í Árborg Slitnað hefur upp úr meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sveitarfélaginu Árborg. Báðir aðilar segja að trúnaðarbrestur hafi verið viðvarandi frá kosningunum í vor. Meðal annars steytti á kröfu framsóknarmanna um að hækka laun bæjarfulltrúa. Innlent 1.12.2006 18:54
Ólund í Frjálslyndum Margrét Sverrisdóttir fullyrðir að gagnrýni hennar á rasísk ummæli Jóns Magnússonar hafi ráðið því að hún var rekin úr starfi framkvæmdastjóra þingflokks Frjálslynda flokksins í gærkvöld. Þessu vísar Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins á bug. Bæði vísa frá sér spurningum um klofning í flokknum. Innlent 1.12.2006 18:48
Þrjátíu gefa kost á sér Þrjátíu manns eru í framboði í forvali Vinstri grænna í þremur kjördæmum höfuðborgarsvæðisins sem fram fer á morgun. Fyrstu tölur verða birtar upp úr klukkan tíu annað kvöld. Innlent 1.12.2006 18:35
Bein útsending á Vísir.is í kvöld Bein útsending verður á Vísi.is í kvöld frá skemmtidagskrá Stöðvar tvö vegna dags rauða nefsins. Verður útsendingin í alls þrjá tíma og mun landslið grínara kitla hláturtaugar landsmanna. Innlent 1.12.2006 18:03
Ekki hægt að rekja hækkun til Landsvirkjunar Landsvirkjun mótmælir því að rekja megi hækkun hjá Orkuveitu Reykjavíkur til hækkunar á raforkuverði Landsvirkjunar. Upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar hefur haldið því fram að hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins upp á 2,4% megi rekja til 10% hækkunar á raforku frá Landsvirkjun. Innlent 1.12.2006 16:47
Verulegir gallar á matarskattsfrumvarpi Samtök iðnaðarins segja verulega galla á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um matarskatt. Engin rök séu fyrir því að sætindi og sælgæti beri áfram vörugjöld. Innlent 1.12.2006 16:30
Enginn sérstakur viðbúnaður í dómnum vegna strokufanga Mál strokufangans Ívars Smára Guðmundssonar var tekið fyrir í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ívar afplánar nú tuttugu mánaða dóm á Litla Hrauni en síðast þegar farið var með hann í héraðsdóm náði hann að flýja frá fangavörðum. Innlent 1.12.2006 15:53
Valgerður á ráðherrafundi EFTA Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sat í dag ráðherrafund EFTA ríkjanna í Genf í Sviss. Á fundinum var rætt um fríverslunarsamning EFTA ríkjanna og aukin samskipti við önnur ríki. Ráðherrarnir funduðu einnig með Kamal Nath, viðskiptaráðherra Indlands, en undirritað var samkomulag um sameiginlega hagkvæmnikönnun vegna mögulegs fríverslunarsamnings milli ríkjanna. Innlent 1.12.2006 15:44
Hættir störfum þegar nýr mjólkurrisi tekur til starfa Forstjóri Norðurmjólkur hættir störfum þegar nýr mjólkurrisi, Mjólkursamsalan, tekur til starfa um áramót. Öll mjólkurvinnsla flyst frá Reykjavík. Félagið verður undanþegið samkeppnislögum. Innlent 1.12.2006 12:23
Kaup hindruðu ekki samkeppni Samkeppnisstofnun hefur úrskurðað að kaup skipaþjónustufyrirtækisins O.W. Bunker og Trading A/S í Danmörku á öllu hlutafé Grupo ABC Atlantic Bunker S.L. hindri ekki virka samkeppni og sér ekki ástæðu til að aðhafast vegna kaupa OW á ABC. Innlent 1.12.2006 10:40
Landsbankinn sölutryggir hlut 365 í Wyndeham Gengið hefur verið frá samkomulagi við Landsbanka Íslands um að sölutryggja 64% eignarhlut 365 hf. í Daybreak Acquisitions Ltd, sem á allan eignarhlut í bresku prentsmiðjunni Wyndeham Press Group. Félagið mun ráðstafa söluandvirði eignanna til lækkunar skulda. Viðskipti innlent 1.12.2006 09:39
Teymi semur um endurfjármögnun Teymi hf. hefur gengið frá samkomulagi um sölu á fasteignum fyrirtækisins fyrir tæpa 2 milljarða krónur. Andvirðinu verður varið til niðurgreiðslu skulda. Félagið hefur ennfremur samið við Landsbankann um endurfjármögnun og stefnir að hlutafjárútboði á fyrsta fjórðungi næsta árs þar sem hlutafé verður aukið um 6 milljarða krónur. Viðskipti innlent 1.12.2006 09:28
Harður árekstur á Reykjanesbraut Erilsamur dagur var hjá lögreglu Hafnarfjarðar í dag en þrjú umferðarslys urðu þar sem slys urðu á fólki. Klukkan sjö í kvöld varð harður árekstur á Reykjanesbraut en tveir bílar úr gagnstæðri átt skullu þá á hvor öðrum og teljast bílarnir mikið skemmdir og nær ónýtir. Báðir ökumenn voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en þeir eru ekki taldir alvarlega slasaðir samkvæmt vakthafandi lækni. Innlent 30.11.2006 21:37
Á sjöundu milljón króna í biðlaun Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri fær á sjöundu milljón króna í biðlaun þegar hann lætur sjálfviljugur af embætti um áramót. Oddviti L-listanns í bæjarstjórn sakar bæjarstjórann fráfarandi um fullkomið siðleysi. Innlent 30.11.2006 20:04
Eve Online heimurinn stækkar Framleiðendur tölvuleiksins Eve Online uppfærðu á þriðjudaginn síðastliðinn sýndarveruleikaheim tölvuleiksins. Eftir uppfærsluna verður auðveldara fyrir nýja spilara að koma sér inn í leikinn og geta þeir nú tekið þátt í allflestu mun fyrr en áður var mögulegt. Innlent 30.11.2006 17:26
Dagur rauða nefsins á morgun Dagur rauða nefsins verður á morgun en þá fer fram söfnunarátak UNICEF - barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna - á landsvísu sem miðar að því að safna heimsforeldrum. Nær söfnunin hámarki með beinni útsendingu á Stöð 2 í opinni dagskrá annað kvöld þar sem fram kemur landslið íslenskrar grínara. Í þættinum Í sjöunda himni með Hemma Gunn sem er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld kl. 20.05 verður fjallað um þessa útsendingu og fara þeir Sveppi og Hemmi Gunn á kostum eins og sjá má í myndbrotinu. Innlent 30.11.2006 17:16
60 daga fyrir líkamstjón af gáleysi Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms um 60 daga skilorðsbundið fangelsi vörubílstjóra sem ók í ágúst á síðasta ári gegn rauðu ljósi á gatnamótum Suðurlandsbrautar, Laugavegar og Kringlumýrarbrautar með þeim afleiðingum að hann lenti í harkalegum árekstri við strætisvagn. Bílstjóri strætisvagnsins kastaðist út úr honum og hlaut meiri háttar áverka á fótum svo að taka varð þá báða af neðan við hné. Hæstiréttur sýknaði hins vegar vörubílstjórann af broti gegn vátryggingarskyldu þar sem ekki var sannað að bílatrygging hans hafi ekki verið í gildi þegar slysið varð. Innlent 30.11.2006 17:02