Íslendingar erlendis

Einhleyp og ævintýragjörn í Montréal
Bergþóra Jónsdóttir er 33 ára grafískur hönnuður búsett í Montréal í Kanada. Hún er ekki óvön því að búa erlendis en áður hefur hún verið búsett í Bretlandi, Sviss, Austurríki og Danmörku. Makamál fengu að heyra aðeins í Bergþóru og spjalla við hana um lífið og hvernig það er að vera einhleyp, íslensk kona í stórborginni Montréal.

Íslensk list blómstrar í Helsinki
Á hverju ári kynnir fjöldi íslenskra listamanna verk sín erlendis og í mörgum tilvikum taka sendiráð Íslands beinan þátt í undirbúningi sýninga eða kynningu á íslenskri list. Sú starfsemi sendiráðanna er ef til vill ekki vel sýnileg á Íslandi og mætti vel gefa meiri gaum.

Bríet gerir það gott í Hollywood
Bríet Kristjánsdóttir, eða Brie Kristiansen eins hún er kölluð á erlendri grundu, starfar sem leikkona í Hollywood og hefur gert það gott í sjónvarpsþáttum á borð við Life as a Mermaid, It Takes a Killer og Corrupt Crimes.

Hitti oft Harvey Weinstein og þekktur leikari reyndi að fá Anítu á einkafund upp á hótelherbergi
Leikkonan Aníta Briem hefur verið búsett í Los Angeles í nokkru ár og verið að gera fína hluti í leiklistarsenunni í Hollywood.

Stærsta og mikilvægasta námið mitt eigið líf
Linda Pétursdóttir hefur verið með annan fótinn í Kaliforníu undanfarin þrjú ár en flutti alfarið fyrir einu og hálfu ári. Segja má að flutningurinn hafi upphaflega ekki komið til að góðu.

Gríðarleg fækkun Íslendinga á Kjammanum í Lundi
Fyrir fimm árum var vart þverfótað fyrir Íslendingum í stúdentahverfinu við Kämnärsvägen í háskólabænum Lundi í Svíþjóð. En eftir að barnaforgangur í stúdentaíbúðir var afnuminn heyrir nú til undantekninga að rekast á Íslending í hverfinu.

Landaði frétt á forsíðu New York Times
„Einstakt tækifæri,“ segir Tryggvi Aðalbjörnsson blaðamaður sem starfar í sumar hjá einum virtasta fjölmiðli heims, New York Times.

Sennilegast illa mætt til vinnu í París í dag
Parísarbúar fögnuðu sigri á HM fram eftir nóttu. Friðrika Benónýsdóttir rithöfundur hreifst með í gleðinni og spáir lélegri mætingu á vinnustaði borgarinnar í dag. Hún segir dásamlegt að fá að upplifa gleðina með Frökkum í sigurvímu.

Shoplifter fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2019
Listakonan Hrafnhildur Arnardóttir, sem er betur þekkt undir listamannsnafni sínu Shoplifter, verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist á næsta ári.

Leiðin til Afrin
Vinir og samferðamenn Hauks Hilmarssonar minnast vinar síns og segja frá hversdeginum í stríðinu lífinu með Kúrdum í Rojava og hugsjónum sínum.

Íslendingur sagður hafa fallið í stríðsátökum í Sýrlandi
Haukur Hilmarsson barðist með her sýrlenskra Kúrda í Afrin-héraði.

Grét stanslaust í fangelsi í Brasilíu
„Svo kemur hann inn á hótelherbergi með tvær stórar ferðatöskur og ég horfi á hann og spyr hvað þetta sé.“

Þeim var boðið ásamt forsetahjónunum í hátíðarkvöldverð Svíakonungs
Mikið var um dýrðir þegar fólk fjölmenni mætti í hátíðarkvöldverð Karls Gústafs Svíakonungs til heiðurs forsetahjónunum íslensku, Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid, í sænsku konungshöllinni í kvöld.

Hneykslismálum Jóns Baldvins slegið upp í litháísku pressunni
Ítarlega er fjallað um sendibréf Jóns Baldvins til ungrar frænku konu sinnar í litháísku pressunni í dag.

Bergsveinn sleginn til riddara í Noregi
Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og doktor í norrænum fræðum, var heiðraður af Noregskonungi á dögunum.

Varð alveg hoppandi og skoppandi glaður
Egill Sæbjörnsson listamaður hefur verið valinn fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2017. Hann segir kynni sín af nokkrum tröllum hafa aukið sér ásmegin og orðið sá innblástur sem til þurfti.

Fimm ára fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl: Gáfu upp nöfn meintra íslenskra höfuðpaura við réttarhöldin
Íslenskt par sem hlaut fangelsisdóm í Brasilíu fyrr i vikunni nafngreindi fyrir dómi nokkra Íslendinga sem þau segja hafa skipulagt ferð þeirra til Brasilíu.

Íslandsmeistari sakar forseta um háreisti og drykkjulæti á hóteli
Skákheimurinn nötrar en Héðinn Steingrímsson sem sakar félaga sína um háreisti fyrir framan hótelherbergi sitt daginn fyrir mikilvæga skák.

Sólmyrkva-Sævar eltir sólmyrkva yfir hálfan hnöttinn
Sævar Helgi Bragason heldur til Indónesíu ásamt tveimur félögum sínum til að verða vitni af almyrkva á sólu þann 9. mars.

„Moskan“ fékk ekki flýtimeðferð og því fallið frá áfrýjun
Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar (KÍM) hefur fallið frá dómsmáli sínu á hendur borgaryfirvöldum í Fenyjum vegna lokunar á íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum í maí.

Fara fram á tugi milljóna króna vegna Feneyjatvíæringsins
Feneyjum stefnt vegna lokunar á íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum.

Fara fram á 53,4 milljónir vegna lokunar moskunnar
Mál Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar gegn yfirvöldum í Feneyjum verður tekið fyrir á miðvikudaginn.

Vill höfða mál útaf Feneyjatvíæringnum
Jóna Hlíf Halldórsdóttir formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna vill að Christoph Büchel höfði mál á hendur borgaryfirvöldum í Feneyjum vegna ákvörðunar þeirra um að loka íslenska sýningarskálanum á Feneyjatvíæringnum.

Lögregla í Feneyjum lokar íslensku moskunni
Framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins lokað almenningi í dag.

Þrasið hluti af verkinu
Moska Christoph Büchel sem er íslenska verkið á tvíæringnum í ár hefur valdið miklu fjaðrafoki í Feneyjum frá opnunardegi.

Hundruð múslima báðu í moskunni í gær
Allt gekk vel fyrir sig í moskunni sem er framlag Íslendinga á Feneyjatvíæringnum í ár:

„Framsóknaröfl“ í Feneyjum vilja notfæra sér íslenska verkið sér til framdráttar
Sverrir Agnarsson segir framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum flottustu mosku í Evrópu.

Heimilið undirlagt eftir tíu daga bakstur á piparkökum
Vigdís Sigurðardóttir býr á Ítalíu og vinkonu hennar, sem rekur eigið fyrirtæki í bænum, langaði að gefa viðskiptavinum sínum íslenskar piparkökur fyrir jólin. Kökurnar áttu að vera ætar og fallegar. Vigdís tók að sér verkið en segir að við undirbúninginn hafi nánast allt farið úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis.

Grímur hittir Pussy Riot í Tallinn
Rússnesku pönksveitinni hafa verið boðnir gull og grænir skógar fyrir tónleikahald en hafa hafnað því.

Segist vera saklaus dópisti og að fjölmiðlar beri ábyrgð á þungum dómi
Sverrir Þór Gunnarsson, eða Sveddi tönn eins og hann er að jafnaði kallaður, sakar fjölmiðla um að hafa haft áhrif á réttarkerfið i Brasilíu, en hann var dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir skömmu vegna innflutnings á 50 þúsund e-pillum til landsins.