
NWSL

Gunnhildur Yrsa lék allan leikinn í stóru tapi Orlando Pride
Orlando Pride, með landsliðskonuna Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur innanborðs, heimsótti efsta lið NWSL deildarinnar Portland Thorns fyrr í kvöld. Portland Timbers sýndi afhverju þær eru efstar og lögðu Pride 6-0.

Hófu magnaða endurkomu eftir að Gunnhildur Yrsa fór af velli
Orlando Pride, lið landsliðskonunnar Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur, skoraði tvívegis þegar langt var komið fram yfir venjulegan leiktíma og bjargaði þar með stigi á heimavelli gegn Washington Spirit, lokatölur 2-2.

Gunnhildur Yrsa var í byrjunarliði Orlando Pride í NWSL bikarnum
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir var í byrjunarliði Orlando Pride í nótt og spilaði 77. mínútur í 1-0 tapi liðsins gegn North Carolina Courage í NWSL bikarnum í Bandaríkjunum.

Þriggja ára stelpa orðin ein af eigendum bandarísk fótboltaliðs
Kaavia James Union Wade er aðeins þriggja ára gömul en er þrátt fyrir að vera enn á leikskólaaldri orðin ein af eigendum bandaríska fótboltaliðsins Angel City FC í Los Angeles.

Rodman með fyrsta milljón dollara samninginn í kvennadeildinni
Hin nítján ára gamla Trinity Rodman sló í gegn á sínu fyrsta tímabili í bandarísku kvennadeildinni og nú hefur hún fengið metsamning að launum.

Hættu að spila og söfnuðust saman á miðjunni til að sýna þolendum stuðning
Leikmenn sex liða í bandarísku kvennadeildinni sýndu leikmönnum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi samstöðu með táknrænum hætti í gær.

Alex Morgan segir kynferðislega áreitni vandamál í bandarísku kvennadeildinni
Ein besta knattspyrnukona heims kallaði eftir því í gær að bandaríska kvennadeildin í fótbolta færi að vinna almennilega að því að enda viðverandi vandamál í deildinni sem er kynferðisleg áreitni gagnvart leikmönnum.

Ráku þjálfarann vegna ásakana um kynferðisbrot
North Carolina Courage hefur rekið þjálfara sinn vegna ásakana um kynferðisbrot. Hann er þriðji þjálfari NWSL-deildarinnar sem er rekinn vegna hegðunar sinnar síðan í ágúst. FIFA hefur hafið rannsókn á málinu.

Þjálfarar ásakaðir um kynferðisofbeldi og fimm leikjum frestað í bandarísku kvennadeildinni
Bandaríska kvennadeildin í knattspyrnu, NWSL, hefur ákveðið að fresta fimm leikjum sem áttu að fara fram um helgina eftir að nokkrir þjálfarar hafa verið ásakaðir um misferli, og í sumu tilvikum kynferðisofbeldi í garð leikmanna.

Gunnhildur Yrsa spilaði allan leikinn í naumum sigri
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn á miðju Orlando Pride er liðið vann nauman 1-0 sigur á NJ/NY Gotham í NWSL-deildinni í fótbolta í Bandaríkjunum.

Ein sú besta í sögunni leggur skóna á hilluna
Bandaríska fótboltakonan Carli Lloyd mun senn leika sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum. Lloyd tilkynnti í dag að hún myndi leggja skónna á hilluna í haust.

Gunnhildur Yrsa lék í jafnteflisleik
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og stöllur hennar í Orlando Pride gerðu í nótt jafntefli við topplið Portland Thorns í bandarísku atvinnumannadeildinni í knattspyrnu.

Yfirgáfu félagið þar sem þjálfarinn beitti leikmenn ítrekað andlegu ofbeldi
Á síðustu tveimur árum hafa fjórir leikmenn yfirgefið knattspyrnuliðið Washington Spirits sem leikur í NWSL-deildinni í Bandaríkjunum. Ástæðan er munnlegt og andlegt ofbeldi þjálfara liðsins.

Spilaði allan leikinn enn einu tapinu
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir spilaði allan leikinn fyrir Orlando Pride sem þurfti að þola 2-0 tap fyrir OL Reign á heimavelli í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta í nótt. Orlando hefur átt slæmu gengi að fagna að undanförnu.

Frá Man United til félags sem hefur ekki enn spilað sinn fyrsta leik
Casey Stoney, fyrrverandi þjálfari kvennaliðs Manchester United, mun stýra San Diego í NWSL-deildinni í Bandaríkjunum á næstu leiktíð. Félagið er sem stendur ekki í deildarkeppni.

Lið Gunnhildar Yrsu heldur toppsætinu
Orlandi Pride gerði 1-1 jafntefli við Washington Spirit á útivelli í NWSL-deildinni í knattspyrnu í Bandaríkjunum í kvöld. Orlando heldur þar með toppsæti deildarinnar en landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Sigurðardóttir leikur með liðinu.

Andrea Rán gengur í raðir Houston Dash
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, miðjumaður Íslandsmeistara Breiðabliks, hefur samið við Houston Dash sem leikur í bandarísku atvinnumannadeildinni í knattspyrnu. Gengur hún í raðir liðsins á næstu dögum.

Gunnhildur Yrsa til Orlando Pride
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin í raðir Orlando Pride frá Utah Royals í bandarísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Dagný trónir á toppnum
Dagný Brynjarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu og samherjar hennar hjá Portland Thorns komust á topp bandarísku NWSL-deildarinnar með 2-1 sigri á Houston Dash um helgina.

Dagný og Gunnhildur léku allan leikinn í sigurleikjum
Íslensku landsliðsstelpurnar okkar í sigurliðum.

Þurfa að stinga af frá sínum félagsliðum til að geta keppt á HM
Margir af bestu leikmönnum heims í kvennafótboltanum munu missa af fullt af leikjum með sínum liðum á meðan þeir taka þátt í heimsmeistarakeppninni í Frakklandi.

Nálgast sitt fyrra form
Dagný Brynjarsdóttir gekk á nýjan leik til liðs við bandaríska knattspyrnuliðið Portland Thorns í byrjun febrúar síðastliðins. Dagný hafði ekkert spilað í tæpt eitt og hálft ár þegar hún hélt til Bandaríkjanna en hún hafði glímt við meiðsli og þar á eftir eignast barn.

Portland staðfestir komu Dagnýjar
Dagný Brynjarsdóttir er orðinn leikmaður Portland Thorns á nýjan leik.

Salah hafði betur gegn Mane og Aubameyang
Mohamed Salah, framherji Liverpool og egypska landsliðsins, er besti knattspyrnumaðurinn í Afríku annað árið í röð.

Stefni enn þá á að vera komin út í atvinnumennsku á nýju ári
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir stefnir enn út í atvinnumennsku eftir áramót og er umboðsmaður hennar í viðræðum við lið erlendis.

Var alltaf með augastað á Ástralíu
Landsliðskonurnar Fanndís Friðriksdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir eru á leiðinni í afar spennandi verkefni en þær eru búnar að samþykkja að ganga til liðs við Adelaide United í áströlsku kvennadeildinni á láni fyrir komandi tímabil.