Erlent
79 80 81 82 83 84 85 86 87 … 334 ›
Ný undur veraldar valin Þau eru tignarleg nýju undrin sjö sem valin voru þau mikifenglegustu í veröldinni gjörvallri í netkosningu sem lauk í gær. Úrslitin voru kunngjörð í gærkvöldi. Erlent 8.7.2007 12:25
130 manns hið minnsta féllu Að minnst kosti 130 manns féllu og 240 særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Amirli í Norður-Írak í gær. Árásin eru sú mannskæðasta í Írak í 3 mánuði. Erlent 8.7.2007 12:19
Íslendingar hiti hugsanlega Ólympíuþorpið Svo gæti farið að íslenskum orkufyrirtækjum yrði falið að sjá um að hita Ólympíuþorpið sem byggt verður fyrir vetrarólympíuleikanna í Sochi í Rússlandi 2014. Möguleikinn var ræddur á fundi í Moskvu fyrir helgi. Erlent 7.7.2007 19:23
Vináttusamningur undirritaður Loftferðasamningur milli Íslands og Moskvuborgar var meðal þess sem borgarstjórinn í Reykjavík ræddi á fundi sínum með borgarstjóra í Moskvu í vikunni. Vináttusamningur milli borganna var undirritaður við það tækifæri. Erlent 7.7.2007 19:15
Stórstjörnur stigu á stokk Stórstjörnur hafa stigið á stokk í öllum álfum í dag til að vekja athygli á þeirri hættu sem steðjar að heiminum vegna loftslagsbreytinga. Live Earth tónleikar vour haldnir í níu stórborgum til styrktar umhverfinu. Erlent 7.7.2007 19:05
Live Earth í dag Þekktir tónlistarmenn rokka víða um heim í dag og vilja með tónlist sinni vekja athygli á loftslagsmálum. Tónleikar þar sem hver stórstjarnan kemur fram á fætur annarri eru haldnir í níu borgum í öllum álfum heims og voru það Ástralir og Kínverjar sem hófu leikinn í nótt. Erlent 7.7.2007 12:36
Brotið gegn trú- og samviskufrelsi í Noregi Norska ríkið braut á rétti barna til að fá tilhlýðilega menntun með kennslu í kristinfræði, trúfræði og lífsskoðunum. Þetta var niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasborg á dögunum. Siðmennt á Íslandi segir að dómurinn renni stoðum undir gagnrýni félagsins hér á landi. Erlent 7.7.2007 12:32
Krefst þess að bresk stúlka verði látin laus Umaru Yar'Adua, forseti Nígeru, hefur krafið mannræningja þar í landi um að láta þriggja ára breska stúlku lausa án tafar en henni var rænt í vikunni. Hann hefur skipað öryggissveitum að tryggja að henni verið skilað heilu og höldnu til foreldra sinna. Móðir stúlkunnar segir mannræningjana hafa hótað að myrða hana ef þeir fái ekki föður hennar í skiptum fyrir hana. Erlent 7.7.2007 12:27
Læknir leiddur fyrir dómara Íraski læknirinn Bilal Abdullah var í morgun leiddur fyrir dómara í Lundúnum og ákærður fyrir aðild að hryðjuverkaárás á Glasgow-flugvelli fyrir viku. Hann var einnig ákærður fyrir að hafa átt þátt í að skipuleggja sprengjutilræði í Lundúnum degi áður. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. júlí. Erlent 7.7.2007 12:14
Hús sprakk í Svíþjóð Kröftug sprenging varð í húsi í Södersvik austan við Norrtälje í Svíþjóð í nótt og er það gjörónýtt. Enginn var í húsinu sem er til útleigu en næstu leigjendur áttu að taka við á morgun. Samkvæmt lögreglu hafði enginn haft í hótunum við þá sem tengjast húsinu og urðu eigendurnir fyrir miklu áfalli. Erlent 6.7.2007 14:24
Hætta á að fólk geti drukknað á Hróaskeldu Rauði krossinn í Danmörku varar við því að hætta sé á að fólk geti drukknað á Hróaskelduhátíðinni. Þar hefur úrkoma verið mikil undanfarið og stór svæði eru þakin vatni. Talsmenn Rauða krossins á svæðinu segja að hætta á því að fólk geti drukknað sé raunveruleg, sérstaklega ef það er mjög ölvað og getur ekki komið sér upp úr vatninu af sjálfsdáðum. Erlent 6.7.2007 13:19
Nektarhlaupið í Pamplona Hundruð dýraverndunarsinna hlupu nærri naktir á götum borgarinnar Pamplona á Spáni í gær til þess að mótmæla hinu árlega nautahlaupi í borginni. Erlent 6.7.2007 11:40
Málverk seldist á 2,2 milljarða Málverk eftir endurreisnarlistamanninn Raphael seldist á uppboði í gær fyrir meira en 2,2 milljarða íslenskra króna. Verkið er af ítalska greifanum Lorenzo d'Medici, forföður þess sem nú er á skjánum í Bachelor þáttunum á Skjá einum. Verkið hafði ekki sést opinberlega síðan árið 1968. Erlent 6.7.2007 07:58
Mótmæltu mannránum og ofbeldi Hundruð þúsunda manna í Kólumbíu mótmæltu í gær mannránum FARC, samtökum vinstri sinnaðra uppreisnarmanna. Talið er að um þrjú þúsund Kólumbíumenn séu nú í haldi mannræningja. Erlent 6.7.2007 11:33
Fyrsta dauðsfallið í tengslum við flóðin í Suður-Svíþjóð Eldri kona fannst látin í bíl sínum rétt utan við Helsingborg í Suður-Svíþjóð í morgun. Bíllinn fannst umlukinn vatni í skurði við vegarkant og er talið að konan hafi drukknað. Mikil úrkoma og flóð hafa verið í Suður-Svíþjóð undanfarið. Erlent 6.7.2007 11:04
Olíuverð ekki hærra á árinu Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði á helstu fjármálamörkuðum í dag vegna óeirða við olíuvinnslustöðvar í Nígeríu í vikunni. Olíuverðið stendur í rúmum 75 dölum á tunnu og hefur ekki verið hærra síðan í ágúst í fyrra en þá var það nýkomið úr methæðum. Greinendur gera ráð fyrir frekari hækkunum. Viðskipti erlent 6.7.2007 10:20
Japanar bjóða í Barneys Japanska fatakeðjan Fast Retailing hefur boðið 900 milljónir bandaríkjadala, tæpa 56 milljarða króna, í bandarísku verslanakeðjuna Barneys. Þetta er annað yfirtökutilboðið sem berst í verslanakeðjuna sem rekur verslanir víða um Bandaríkin. Hitt kom frá arabíska fjárfestingasjóðnum Istithmar upp á 825 milljónir dala, rétt rúman 51 milljarð, fyrir um hálfum mánuði. Viðskipti erlent 6.7.2007 09:24
Tvær til þrjár milljónir HIV/AIDS smitaðir í Indlandi Á bilinu 2 til 3,1 milljón manna í Indlandi eru með HIV/AIDS samkvæmt nýrri rannsókn sem Sameinuðu þjóðirnar og stjórnvöld í Indlandi stóðu að. Áður var talið að allt að tvisvar sinnum fleiri væru smitaðir í Indlandi og hefði það því verið fjölmennasti hópur smitaðra í einu landi. Erlent 6.7.2007 08:48
Fjórir læknar til viðbótar yfirheyrðir í Ástralíu Lögreglan í Ástralíu hefur fundið ný sönnunargögn og yfirheyrt að minnsta kosti fjóra lækna til viðbótar vegna sprengjutilræðanna í Bretlandi. Erlent 6.7.2007 07:40
Hundruð þúsunda mótmæla í Kólumbíu Hundruð þúsunda mótmæltu mannránum FARC, vinstri sinnaðra uppreisnarmanna, í Kólumbíu í gær. Talið er að um þrjú þúsund kólumbíumenn séu í haldi mannræningja. Mótmælin, sem voru þau stærstu síðan árið 1999, voru skipulögð eftir að FARC myrti 11 stjórnmálamenn sem þau höfðu í haft í haldi síðastliðin fimm ár. Erlent 6.7.2007 07:19
Konur tala ekki meira en karlar Vísindamenn hafa afsannað þá goðsögn að konur tali meira en karlar. Þeir settu hljóðnema á 400 háskólanema í Bandaríkjunum og fylgdust með þeim í ákveðinn tíma. Í ljós kom að á meðaltali sagði hver kona rúmlega 16.200 orð á dag en karlmenn tæplega 15.700. Þeir karlmenn sem mest töluðu fóru upp í 45 þúsund orð en sumir sögðu rétt 500 orð á dag. Erlent 6.7.2007 07:12
Mannræningjar hóta að myrða stúlkuna Hópurinn sem rændi þriggja ára breskri stúlku í Nígeríu hefur hótað að myrða hana ef faðir hennar samþykkir ekki að koma í stað hennar. Móðir hennar skýrði frá þessu í nótt. Stúlkunni var rænt þegar verið var að fara með hana í skólann. Stærsti uppreisnarhópurinn í Nígeríu, MEND, fordæmdi ránið á stúlkunni. Erlent 6.7.2007 07:10
Umsátursástand er enn við Rauðu moskuna í Islamabad Umsátursástand er enn í Islamabad, höfuðborg Pakistan, en öryggissveitir stjórnvalda hafa enn ekki gert áhlaup á Rauðu moskuna. Erlent 6.7.2007 06:59
Segir Ísland eiga fullt erindi í öryggisráðið Brian Atwood, einn helsti sérfræðingur á sviði þróunarmála í heiminum vill endurskipuleggja öryggisráð Sameinuðu þjóðanna en segir þó Ísland eiga þar fullt erindi. Atwood hélt opin fund í utanríkisráðuneytinu í morgun. Erlent 5.7.2007 17:15
Segir björgunarfólk hafa valdið dauða sonar síns Faðir manns sem lést í flóðunum í Bretlandi í síðustu viku segir klúður björgunarfólks hafa valdið dauða sonar hans. Hjálparsveitum tókst ekki að losa manninn úr holræsi og hann lést eftir þriggja klukkustunda baráttu. Sláandi myndir af vettvangi voru birtar í dag. Erlent 5.7.2007 18:22
Um 100 börn lentu í sjónum við strendur Dublinar Meira en 100 börnum hefur verið bjargað eftir að siglingarkeppni við strendur Dublinar breyttist í martröð í dag. Öflug vindhviða varð til þess að 91 bát hvolfdi. Um 100 börn sem tóku þátt í keppninni lentu við það í sjónum. Erlent 5.7.2007 16:43
45 múslímskir læknar ætluðu að ráðast á Bandaríkin Lögregla hefur fundið internetsamræður á heimasíðu, sem haldið er úti af múslímskum net-hryðjuverkamönnum, þar sem fram kemur að 45 múslímskir læknar hafi ætlað sér að ráðast á Bandaríkin með bílsprengjum og eldflaugum. Þetta kemur fram í vefútgáfu The Telegraph. Erlent 5.7.2007 15:17
Mannræningjar Margaret Hill segja hana heila á húfi Mannræningjar Margaret Hill, stúlkunnar sem rænt var í borginni Port Harcourt í Suður- Nígeríu í morgun, hafa haft samband við föður hennar og sagt að hún sé heil á húfi. Faðir hinnar þriggja ára gömlu Margrétar starfar hjá olíufyrirtæki í borginni en stúlkunni var rænt úr bíl, af vopnuðum byssumönnum. Erlent 5.7.2007 14:07
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum. Þetta er í samræmi við það sem greinendur höfðu gert ráð fyrir. Stýrivextir hafa farið síhækkandi á svæðinu síðastliðið eitt og hálft ár og hafa þeir ekki verið hærri í sex ár. Viðskipti erlent 5.7.2007 12:47
Mikil fjölgun HIV-sýkinga í Svíþjóð Fjörtíu prósent aukning hefur orðið á HIV-sýkingum á milli ára í Svíþjóð. Fleiri en nokkru sinni frá því skráning hófst fyrir 20 árum hafa smitast á fyrstu sex mánuðum ársins 2007. 153 karlmenn og 99 konur hafa greinst með smit á þessu tímabili. Erlent 5.7.2007 12:06