Erlent
154 155 156 157 158 159 160 161 162 … 334 ›
Raunveruleikaþáttur um Davíð og Viktoríu Vel verður fylgst með vistaskiptum Beckham-hjónanna sem flytja innan tíðar frá Spáni til Bandaríkjanna þegar knattspyrnukappinn David Beckham gengur til liðs við lið Los Angeles Galaxy frá Real Madríd. Spáð er fjölmiðlafári og hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC samið um að fá að mynda flutninginn og sýna í raunveruleikaþáttaröð. Erlent 1.3.2007 12:11
Umsátur á Norðurbrú Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup á Ungdomshuset á Norðurbrú í morgun og rýmdi það á svipstundu. Til harðra átaka hefur komið. Óeirðir eru einnig að brjótast út í Kristjaníu þar sem ungmenni hafa reist vegatálma og fleygt bensínsprengjum. Erlent 1.3.2007 12:04
Hagnaður Mörthu Stewart sexfaldast Fyrirtæki bandarísku sjónvarps- og lífsstílskonunnar Mörthu Stewart skilaði 16,2 milljóna dala hagnaði á síðasta ársfjórðungi í fyrra. Þetta jafngildir tæplega 1,1 milljarði íslenskra króna sem er tæplega sex sinnum meira en fyrirtækið skilaði á sama fjórðungi árið 2005. Viðskipti erlent 1.3.2007 10:58
Pólár Sameinuðu þjóðanna hefst á morgun Fleiri en 60 þjóðir taka þátt í umfangsmestu vísindarannsókn á heimsskautasvæðunum en hún hefst á morgun. Hún á meðal annars að kortleggja svæðin sem að eru í hættu að bráðni vegna loftslagsbreytinga. 3.000 börn í Osló munu búa til snjókarla, virtir vísindamenn munu funda í París og hópur rannsóknarmanna leggur af stað frá Höfðaborg í Suður-Afríku áleiðis til Suður-Heimsskautsins. Erlent 28.2.2007 23:42
Vínið lengir lífið Að drekka lítið magn af víni á hverjum degi - minna en eitt glas á dag - eykur lífslíkur karlmanna um nokkur ár. Þetta kom fram í rannsókn hollenskra rannsóknarmanna sem var kunngjörð í hófi bandarískra hjartalækna í Flórídaríki í Bandaríkjunum í kvöld. Erlent 28.2.2007 23:20
Reykingar bannaðar á opinberum stöðum í Þýskalandi Þýska ríkisstjórnin samþykkti í dag frumvarp sem á að banna reykingar í almenningssamgöngum og opinberum byggingum. Þó verður hægt að segja upp sérstök reykherbergi á stöðum þar sem bannað verður að reykja. Erlent 28.2.2007 22:49
Evrópusambandið dregur úr herafla í Bosníu-Hersegóviníu Evrópusambandið ætlar að draga úr herafla sínum í Bosníu-Hersegóviníu. Herafli sambandsins var um 6.500 hermenn en mun fækka niður í 2.500 á næstu mánuðum. Erlent 28.2.2007 22:23
Anna Nicole verður jörðuð á Bahamas-eyjum Áfrýjunardómstóll í Flórídaríki í Bandaríkjunum hefur hafnað því að móðir Önnu Nicole Smith fái lík hennar afhent. Því er nú ljóst að Anna Nicole verður brátt lögð til hinstu hvílu á Bahamas-eyjunum. Fylkisdómstóll hafði áður hafnað kröfu móður Önnu, Virgie Arthur, en hún var að reyna að fá að grafa dóttur sína í Texasríki þar sem hún var fædd. Sérstakur umsjónarmaður var skipaður til þess að sjá um útför Önnu Nicole og hefur hann þegar hafið undirbúning að jarðarför hennar. Erlent 28.2.2007 21:54
Íranar ætla að taka þátt í ráðstefnunni í Írak Íranar hafa sagt að þeir ætli sér að taka þátt í ráðstefnu í Írak þann 10. mars næstkomandi. Ali Larijani, æðsti samningamaður Írana í kjarnorkumálum, sagði að Íranar séu tilbúnir til þess að beita hvaða ráðum sem er til þess að leysa vandamál Íraks. Erlent 28.2.2007 21:30
Prodi fær stuðning þingsins Forsætisráðherra Ítalíu, Romano Prodi, vann stuðningsyfirlýsingu í öldungadeild ítalska þingsins í kvöld. Yfirlýsingin bindur endi á þá krísu sem hefur verið í ítölskum stjórnmálum undanfarna viku. Prodi bauðst þá til þess að segja af sér eftir að frumvarp sem hann hafði lagt fram varðandi utanríkisstefnu Ítalíu var fellt. Erlent 28.2.2007 20:46
Myrti börnin sín fimm Belgísk kona myrti fimm börn sín og reyndi svo að taka eigið líf. Lögregla í bænum Nivelles, sem er um 30 kílómetra fyrir sunnan Brussel, skýrði frá þessu í dag. Lögreglan sagði að hún hefði fundið lík barnanna fimm sem voru á aldrinum þriggja til 14 ára. Erlent 28.2.2007 19:42
Enginn snjór féll í Tókíó í vetur Engin snjór féll á þessum vetri í japönsku borginni Tókíó og er það í fyrsta sinn síðan árið 1876 sem það gerist. Veðurstofan í Japan skilgreinir tímabilið frá desember út febrúar sem vetur. Erlent 28.2.2007 18:03
Bandaríkin ætla að sitja ráðstefnu Íraka Bandaríkin hafa staðfest að þau muni sækja ráðstefnu sem stjórnvöld í Írak ætla sér að halda í Apríl. Á henni verða meðal annars fulltrúar frá Íran og Sýrlandi ásamt fulltrúum átta ríkustu þjóða heims. Erlent 28.2.2007 07:26
Hlutabréf falla enn í Evrópu og Asíu Hlutabréf héldu áfram að falla á heimsmörkuðum í dag eftir opnun kauphallanna í Asíu í nótt og Evrópu snemma í morgun. Í Bretlandi féll FTSE vísitalan um nærri tvö prósent við upphaf viðskipta og í Frakklandi féll Cac vísitalan um tvö prósent. Viðskipti erlent 28.2.2007 08:53
Kastró kom fram í útvarpi Forseti Kúbú, Fídel Kastró, talaði í útvarpsávarpi til þjóðar sinnar í gær. Hann kom fram í daglegum útvarpsþætti Hugo Chavezar, forseta Venesúela. Fídel sagðist aðspurður vera að ná sér og sagðist finna styrk sinn aukast daglega. Erlent 28.2.2007 07:23
Ætla ekki að framselja Stjórnvöld í Súdan ætla sér ekki að framselja þá tvo einstaklinga sem saksóknarar alþjóðaglæpadómstólsins í Haag nefndu í ákærum sínum vegna rannsókna á stríðsglæpum í Darfur. Súdan sagði að dómstóllinn hefði enga lögsögu í landinu og að þeirra eigin dómstólar væru fyllilega hæfir til þess að sjá um málsóknir af þessu tagi. Erlent 28.2.2007 07:17
Bandarískum háskóla lokað vegna sprengjuhótunar Loka þurfti háskóla í Kansas borg í Missouri ríki í Bandaríkjunum í dag eftir að nemandi þarf sagðist hafa sprengju og miltisbrand meðferðis. Lögregla þar skýrði frá þessu í dag. Erlent 27.2.2007 23:31
Þrír franskir hjálparstarfsmenn myrtir í Brasilíu Þrír franskir hjálparstarfsmenn voru stungnir til bana á hótelherbergi sínu í Rio de Janeiro, höfuðborg Brasilíu, í dag. Lögreglan sagði að brasilískur samstarfsmaður þeirra, Tarsio Wilson Ramires, hefði játað að eiga þátt í morðunum. Erlent 27.2.2007 23:03
Versti dagur á Wall Street síðan 11. september 2001 Hlutabréf hríðféllu í verði á Wall Street í dag og var dagurinn sá versti síðan hlutabréfamarkaðurinn opnaði eftir 11. september 2001. Á þeim degi lækkaði Dow Jones vísitalan um 684,81 stig en í dag lækkaði hún um 415 stig. Erlent 27.2.2007 22:23
Bandaríkin munu sitja ráðstefnu í Írak Bandaríkin hafa staðfest að þau muni sækja ráðstefnu sem stjórnvöld í Írak ætla sér að halda í Apríl. Á henni verða meðal annars fulltrúar frá Íran og Sýrlandi. Erlent 27.2.2007 21:33
För Atlantis frestað Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, skýrði frá því í kvöld að hún yrði að fresta skoti geimskutlunnar Atlantis. Henni átti að skjóta upp þann 15. mars næstkomandi. Ástæðan fyrir þessu eru skemmdir á ytra byrði hennar. Erlent 27.2.2007 21:13
Súdan framselur ekki grunaða stríðsglæpamenn Stjórnvöld í Súdan ætla sér ekki að framselja þá tvo einstaklinga sem saksóknarar alþjóðaglæpadómstólsins í Haag nefndu í ákærum sínum vegna rannsókna á stríðsglæpum í Darfur. Súdan sagði að dómstóllinn hefði enga lögsögu í landinu og að þeirra eigin dómstólar væru fyllilega hæfir til þess að sjá um málsóknir af þessu tagi. Erlent 27.2.2007 20:50
Dow Jones hríðfellur Dow Jones vísitalan bandaríska lækkaði mest um 537 stig í dag eða rúmlega 4 prósent. Hún hefur þó eitthvað tekið við sér og er lækkunin nú rúmlega 370 stig eða tæp þrjú prósent. Ástæður fyrir þessu eru taldar vera líkur á því að bandarískt efnahagslíf gæti farið að hægja á sér. Viðskipti erlent 27.2.2007 20:28
Hinsti hvílustaður frelsarans sagður fundinn Jesús átti í ástarsambandi við Maríu Magdalenu og þau áttu son. Þetta er staðhæft í nýrri heimildarmynd bandaríska leikstjórans James Cameron þar sem segir að hinsti hvílustaður frelsarans sé fundinn. Erlent 27.2.2007 17:48
Átta ára og tæp 100 kíló Bresk yfirvöld íhuguðu það að taka átta ára dreng frá móður sinni og setja í öryggisgæslu vegna offitu. Drengurinn er rétt tæp 100 kíló, rúmlega þrefalt þyngri en jafnaldrar hans. Erlent 27.2.2007 17:18
Írakar ætla að funda með G8 Stjórnvöld í Írak ætla sér að koma á fundi háttsettra ráðamanna nágrannaríkja sinna ásamt fulltrúum G8 hópsins svokallaða. Þau ætla að reyna að halda fundinn strax í byrjun Apríl og á tilgangur hans að vera að koma á ró í landinu. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá þessu í kvöld. Erlent 27.2.2007 18:54
Íbúar í Uppsölum slegnir Sex létust þegar tveir strætisvagnar á leið í gagnstæða átt rákust saman rétt utan við borgina Uppsali í Svíþjóð í morgun. Á fimmta tug til viðbótar slösuðust, þar af nokkrir lífshættulega. Ekki er vitað til þess að nokkrir Íslendingar hafi verið í vögnunum þegar slysið varð. Erlent 27.2.2007 17:09
Bandaríkjamenn sprengja og slasa 30 Íraka Talsmenn bandaríska hersins í Írak sögðu að þeir hefðu sprengt upp sprengju í námunda við fótboltavöll í borginni Ramadi og að 30 hefðu slasast. Þar á meðal voru níu börn. Enginn hefði þó látið lífið. Írösk lögregla og ættbálkaleiðtogar sögðu frá því í dag að sprengjuárás nálægt knattspyrnuvelli hefði banað 18 manns og að meirihluti þeirra hefðu verið börn. Erlent 27.2.2007 18:35
Grafhvelfing Krists sögð fundin Jesús átti í ástarsambandi við Maríu Magdalenu og þau áttu son. Þetta er staðhæft í nýrri heimildarmynd bandaríska leikstjórans James Cameron. Fræðimenn eru ekki á einu máli um það sem fram kemur í myndinni og kirkjunnar menn eru æfir. Erlent 27.2.2007 11:56
Ekki vitað til þess að Íslendingar hafi verið í strætisvögnum Að minnsta kosti sex létust þegar tveir strætisvagnar á leið í gagnstæða átt rákust saman rétt utan við borgina Uppsali í Svíþjóð í morgun. Á fimmta tug til viðbótar slösuðust, þar af nokkrir alvarlega. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi verið á ferð með strætisvögnunum. Erlent 27.2.2007 11:52