Íþróttir
75 76 77 78 79 80 81 82 83 … 334 ›
Dallas vann stórleik næturinnar Dallas hafði betur gegn Pheonix í uppgjöri tveggja heitustu liða NBA-deildarinnar í nótt, 101-99, í æsispennandi og skemmtilegum leik. Dirk Nowitzki skoraði sigurkörfuna rúmri sekúndu fyrir leikslok en Dallas hefur nú unnið átta leiki í röð. Körfubolti 29.12.2006 17:34
Ming hefur fengið flest atkvæði Yao Ming hjá Houston og LeBron James hjá Cleveland hafa fengið langflest atkvæði fyrir hinn árlega stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fram fer í febrúar. Það eru áhorfendur og áhugamenn um NBA út um alla veröld sem sjá um að velja byrjunarliðin í leiknum með því að senda sitt atkvæði með einföldu sms-skilaboði. Körfubolti 28.12.2006 23:39
Alonso á sér nafna í Bretlandi Breskur íþróttaáhugamaður borgaði í síðustu viku 200 dollara til að breyta nafni sínu í Fernando Alonso, samkvæmt enska dagblaðinu Mirror. Maðurinn, sem áður hét David Fuller, heitir nú Fernando Alonso Rodney Trotter Ronaldinho. Formúla 1 28.12.2006 23:37
Wade ómeiddur en Riley æfur Dwayne Wade, stjörnuleikmaður Miami í NBA-deildinni í körfubolta, er ekki alvarlega meiddur á hendi eftir að hafa lent í samstuði við Kirk Hinrich hjá Chicago í viðureign liðanna í fyrradag. Þetta leiddu niðurstöður röngtenmyndatöku í ljós. Pat Reily, þjálfari Miami, er þó allt annað en sáttur við framkomu Hinrich. Körfubolti 28.12.2006 23:35
Lehmann: Ég á nóg eftir Þýski markvörðurinn Jens Lehmann hjá Arsenal vill meina að hann eigi nóg eftir í boltanum og hann sé ekki einu sinni byrjaður að velta því fyrir sér að leggja hanskana á hilluna. Lehmann verður 38 ára gamall á næsta ári. Enski boltinn 28.12.2006 23:32
Suður- og Norður-Kórea saman á ÓL? Íþróttayfirvöld í Suður- og Norður-Kóreu segjast ekki hafa náð samkomulagi um að senda sameiginlegt keppnislið til leiks á Ólympíuleikana í Peking sumarið 2008. Þau vilja þó ekki neita að verið sé að skoða þann möguleika. Sport 28.12.2006 23:31
Milan staðfestir áhuga á Cassano AC Milan á Ítalíu hefur boðist til þess að fá ítalska sóknarmanninn Antonio Cassano að láni frá Real Madrid fram á vor, með hugsanleg kaup í huga eftir tímabilið. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum eru forráðamenn Real jákvæðir fyrir slíkum samningi. Fótbolti 28.12.2006 23:28
Hughes hæstaánægður með Tugay Tyrkneski miðjumaðurinn Tugay hjá Blackburn er í miklum metum hjá stjóra sínum Mark Hughes, ef eitthvað er að marka ummæli framherjans fyrrverandi í dag. Hughes segir Tugay nægilega góðan til að vera hjá Barcelona. Enski boltinn 28.12.2006 20:42
Guðjón Valur: Kemur mér á óvart “Þetta er búið að ganga ágætlega í ár en ég get ekki sagt annað en að þetta komi mér á óvart,” sagði Guðjón Valur Sigurðsson, nýkrýndur Íþróttamaður ársins, í sjónvarpsviðtali eftir kjörið. Guðjón Valur ráðleggur ungum íþróttaiðkendum að hlusta á þjálfara sinn til að ná árangri. Sport 28.12.2006 20:39
Guðjón Valur íþróttamaður ársins Handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson var nú rétt í þessu valinn íþróttamaður ársins. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðjón Valur verður þessa heiðurs aðnjótandi. Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen, sigurvegari síðustu tveggja ára, varð í öðru sæti og handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson þriðji. Sport 28.12.2006 20:27
Terry fór í aðgerð John Terry, fyrirliði Englandsmeistara Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, gekk síðdegis í dag undir aðgerð á baki. Samkvæmt tilkynningu frá Chelsea segir að aðgerðin hafi gengið að óskum. Enski boltinn 28.12.2006 20:16
Button: Ég er sami ökumaður og áður Ökuþórinn Jenson Button hjá Honda í formúlu 1 segir að fyrsti sigur hans á ferlinum, sem hann náði í Ungverjalandi á síðasta tímabili, hafi ekki breytt stíl hans sem ökumanni. Á þeim sjö mótum sem eftir voru af tímabilinu hafnaði Button ávallt í efstu fimm sætunum. Formúla 1 28.12.2006 19:53
Lescott einbeitir sér að Everton Joleon Lescott, varnarmaður Everton, er með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir að vera sterklega orðaður við enska landsliðið eftir frábæra frammistöðu með liði sínu í vetur. Lescott kom til Everton frá Wolves í sumar og hefur slegið í gegn á Goodison Park. Enski boltinn 28.12.2006 15:00
Mascherano til Liverpool? Rafael Benitez er sagður sjá leik á borði í málum Javier Mascherano hjá West Ham og er jafnvel talið að spænski stjórinn hjá Liverpool muni bjóða í Argentínumanninn þegar leikmannaglugginn opnast að nýju í janúar. Enski boltinn 28.12.2006 14:59
Totti vill hvergi annarstaðar vera Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, er svo ánægður í herbúðum félagsins að hann vill helst enda ferilinn hjá því. Þetta sagði Totti í samtali við ítalska fjölmiðla í morgun. Fótbolti 28.12.2006 14:56
Platini vill breytingar í Meistaradeildinni Michael Platini, fyrrum landsliðsfyrirliði Frakka og núverandi stjórnarmaður UEFA, hefur gefið í skyn að hann muni breyta fyrirkomulaginu í Meistaradeild Evrópu fari svo að hann vinni forsetakosningar UEFA í næsta mánuði. Þar etur Platini kappi gegn Lennart Johansson, núverandi formanni. Fótbolti 28.12.2006 14:54
Myndi láta Drogba í vörnina ef ég gæti Didier Drogba yrði settur í öftustu varnarlínu Chelsea ef það væru til fleiri heilir sóknarmenn hjá liðinu, að sögn stjórans Jose Mourinho. Drogba lék framan af sínum ferli sem bakvörður og hefur líkamlega burði til að vera miðvörður í ensku úrvalsdeildinni. Hann fær hins vegar ekki tækifæri til þess. Enski boltinn 28.12.2006 14:51
New York sigraði í maraþon leik New York sigraði Detroit í þríframlengdum maraþon leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lokatölur urðu 151-145 og dugðu 51 stig frá Richard Hamilton ekki til fyrir Detroit. Hjá New York skoraði Stephan Marbury 41 stig. Körfubolti 28.12.2006 15:27
Chelsea hefur ekki spurt um Richards Stuart Pearce, stjóri Manchester City, segir að Chelsea hafi ekki verið í neinu sambandi við sig varðandi varnarmanninn unga Micah Richards. Hinn ungi enski landsliðsmaður hefur vakið mikla athygli í vetur og Chelsea er sagt vera að undirbúa risatilboð í leikmanninn. Enski boltinn 28.12.2006 14:48
Mourinho: Varnarleikurinn veldur áhyggjum Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að hann hafi áhyggjur af varnarleik Chelsea sem hefur fengið á sig sex mörk í síðustu þremur deildarleikjum. Hann segir að fjarvera Petr Cech markvarðar og fyrirliðans John Terry sé liðinu dýrkeypt. Enski boltinn 27.12.2006 17:56
Mourinho býst við konunlegum móttökum Jose Mourinho skortir ekki sjálfstraustið frekar en fyrri daginn. Nú hefur hann lýst því yfir að hann búist við konunglegum móttökum þegar hann heimsækir Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í febrúar. Mourinho gerði Porto að Evrópumeisturum fyrir rúmum tveimur árum. Fótbolti 27.12.2006 21:12
Góður sigur hjá Gummersbach Guðjón Valur Sigurðsson lét fara óvenju lítið fyrir sér þegar Gummerbach bar sigurorð af Dusseldorf í þýska handboltanum á útivelli í kvöld, 28-27. Guðjón Valur skoraði þrjú mörk og Sverre Jacobsen eitt. Róbert Gunnarsson og Guðlaugur Arnarson skoruðu ekki. Fjölmargir leikir fóru fram í Þýskalandi í kvöld. Handbolti 27.12.2006 21:20
Ferguson fylgist með markatölunni Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, telur að einvígið við Chelsea um enska meistaratitilinn kunni að ráðast á markatölu. Þess vegna leggur Skotinn mikið upp úr því að lærisveinar hans skori nóg af mörkum. Enski boltinn 27.12.2006 21:06
Eiður Smári og Margrét Lára best Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir voru valin knattspyrnumaður og knattspyrnukona ársins á hófi sem fram fór á Nordica nú í kvöld. Þetta er annað árið í röð sem Eiður Smári hreppir titilinn en Margrét Lára er að vinna hann í fyrsta sinn. Fótbolti 27.12.2006 20:06
Atletico Madrid er stórhuga Samkvæmt fréttum frá Spáni ætlar Atletico Madrid að freista þess að fá Xabi Alonso frá Liverpool í janúar. Afar ólíklegt verður að teljast að Rafa Benitez, stjóri Liverpool, láti Alonso af hendi, enda Spánverjinn í lykilhlutverki á miðju liðsins. Enski boltinn 27.12.2006 16:01
Tottenham vill fá Upson Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, mun hafa beint spjótum sínum að Matthew Upson, varnarmanni Birmingham, eftir að ljóst væri að hann fengi ekki Curtis Davies frá WBA þegar leikmannaglugginn opnast að nýju í janúar. Enski boltinn 27.12.2006 16:00
Terry fer til sérfræðings í Frakklandi John Terry, fyrirliði Chelsea, er á leið til Frakklands þar sem hann mun hitta sérfræðing í bakmeiðslum. Terry hefur misst af síðustu fjórum leikjum ensku meistaranna vegna meiðslanna og hefur vörn liðsins verið sem hriplekt gatasigti í þeim leikjum. Enski boltinn 27.12.2006 15:58
Curbishley segir falldrauginn viðvarandi Alan Curbishley, sem Eggert Magnússon fékk til að stýra skútu West Ham fyrir skemmstu, segir að það verði erfitt fyrir félagið að losna úr greipum botnbaráttunnar í ensku úrvalsdeildinni miðað við frammistöðuna sem liðið sýndi gegn Portsmouth í gær. West Ham er í 18. sæti deildarinnar og í fallsæti. Enski boltinn 27.12.2006 15:55
Forráðamenn Real bíða ekki lengur David Beckham hefur frest fram á gamlárskvöld til að svara nýju samningstilboði frá Real Madrid, ellegar verði hann seldur frá félaginu í janúar. Þessu er haldið fram í spænskum fjölmiðlum í morgun. Fótbolti 27.12.2006 15:51
Samuel Eto´o: Ekkert mun stöðva mig Nú styttist óðum í endurkomu Samuel Eto'o hjá Barcelona og eins og áður er ekkert skort á sjálfstrausti hjá framherjanum. Hann segir í nýlegu viðtali að hann að ekkert muni stoppa sig eftir að hann hefur leik að nýju og að markakóngstitilinn á Spáni sé ekki ómögulegt markmið fyrir sig. Fótbolti 27.12.2006 10:03