Íþróttir
142 143 144 145 146 147 148 149 150 … 334 ›
Arsenal komið yfir gegn Hamburg Nú er aðeins liðinn um stundarfjórðungur af leikjum kvöldsins í meistaradeild Evrópu, en þar er strax farið að draga til tíðinda. Arsenal hefur yfir 1-0 gegn Hamburg í Þýskalandi, þar sem markverði þýska liðsins var vikið af leikvelli eftir brot á Robin Van Persie og Gilberto skoraði mark Arsenal úr víti í kjölfarið. Fred hefur komið Lyon yfir gegn Real Madrid og Inzaghi hefur komið AC Milan yfir gegn AEK. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni hér neðar á síðunni. Fótbolti 13.9.2006 19:01
Byrjunarlið Arsenal gegn Hamburg Leikur Hamburg og Arsenal í meistaradeild Evrópu er nú hafinn á Sýn Extra 2 og byrjunarlið Arsenal má sjá hér fyrir neðan. Fyrirliði enska liðsins, Thierry Henry, er ekki með liðinu í Þýskalandi í kvöld vegna meiðsla. Fótbolti 13.9.2006 18:44
Man Utd - Celtic að hefjast "Baráttan um Bretland" eins og leikur Manchester United og Celtic hefur verið kallaður, er nú senn að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Byrjunarliðin eru klár og þar ber hæst að þeir Paul Scholes og Wayne Rooney koma inn í lið Manchester United eftir leikbann. Fótbolti 13.9.2006 18:20
Park frá í þrjá mánuði Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United fékk þau leiðinlegu tíðindi í dag að Suður-Kóreumaðurinn Park Ji-sung verði frá kepppni næstu þrjá mánuðina eftir að hafa meiðst á ökkla í leiknum við Tottenham um síðustu helgi. Þetta er mikið áfall fyrir United, sem eins og kunnugt er hafði hægt um sig á leikmannamarkaðnum í sumar. Sport 13.9.2006 18:04
Ferrari hafði ekkert með ákvörðun mína að gera Michael Schumacher blæs á sögusagnir sem hafa verið í gangi í dag um að forráðamenn Ferrari hafi þröngvað honum út í að hætta keppni í lok tímabils. Schumacher segir þvert á móti að Ferrari hafi veitt sér góðan stuðning alla tíð. Formúla 1 13.9.2006 16:56
Finnar lögðu Georgíu Finnar eru komnir í efsta sætið í C-riðli okkar Íslendingar í B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik eftir góðan 91-81 sigur á Georgíumönnum á heimavelli nú síðdegis. Petri Virtanen skoraði 27 stig fyrir Finna og Teemu Rannikko 20, en Zaza Pachulia fór hamförum hjá Georgíu og skoraði 36 stig og hirti 13 fráköst. Finnar hafa því unnið sigur í öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, en Georgía hefur unnið þrjá af fjórum leikjum. Körfubolti 13.9.2006 17:08
Ísland - Lúxemburg í Keflavík í kvöld Íslenska landsliðið í körfuknattleik tekur á móti Lúxemburg í þriðja leik sínum í riðlakeppni B-deildar Evrópumótsins í körfuknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu í Keflavík og hefst klukkan 20. Rétt er að skora á alla sem vettlingi geta valdið að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu, sem verður að vinna leikinn ef það ætlar að eiga möguleika á að komast í A-deildina. Körfubolti 13.9.2006 16:39
Veislan heldur áfram í kvöld Knattspyrnuveislan sem fylgir meistaradeild Evrópu heldur áfram á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld, þegar áskrifendur geta valið um þrjá stórleiki til að fylgjast með í beinni útsendingu. "Baráttan um Bretland" - leikur Manchester United og Celtic, verður sýndur beint á Sýn. Leikur Lyon og Real Madrid er sýndur beint á Sýn Extra og þá verður slagur Hamburg og Arsenal í beinni á Sýn Extra 2. Útsending frá öllum leikjunum hefst klukkan 18:30. Fótbolti 13.9.2006 15:55
Líkir Gravesen við Kaka Gordon Strachan, stjóri Glasgow Celtic, gat ekki farið leynt með hrifningu sína á danska landsliðsmanninum Thomas Gravesen eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik með skoska liðinu um helgina. Fótbolti 13.9.2006 14:46
Sigurður Jónsson hættur hjá Grindavík Sigurður Jónsson, þjálfari Grindvíkinga í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, hefur sagt starfi sínu lausu og er hættur að þjálfa liðið. Grindvíkingar eru í bullandi fallbaráttu í deildinni og því er ekki hægt að segja að þessi tíðindi komi á heppilegum tíma. Formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur staðfesti þetta í samtali við NFS í dag. Sport 13.9.2006 14:56
Tony Kukoc íhugar að hætta Króatíski framherjinn Tony Kukoc sem leikið hefur með Milwaukee Bucks undanfarin fjögur ár, segir að hann muni líklega leggja skóna á hilluna á næstu dögum eða vikum. Kukoc er 38 ára gamall og er líklega þekktastur fyrir að leika með gullaldarliði Chicago Bulls sem vann titilinn á árunum 1996-98. Körfubolti 13.9.2006 14:29
Leikmenn Arsenal voru latir Ashley Cole lætur fyrrum félaga sína í Arsenal hafa það óþvegið í ævisögu sinni sem fljótlega kemur út, en kaflar úr henni hafa verið birtir í dagblaðinu The Times. Þar segir Cole að aðalástæða þess að Arsenal gekk illa í deildinni á síðustu leiktíð hafi verið leti og aumingjaskapur leikmanna. Sport 13.9.2006 14:08
Verðum að vera þolinmóðir í kvöld Arsene Wenger segir að þolinmæði verði lykillinn að góðum úrslitum í kvöld þegar hans menn fá það erfiða verkefni að sækja þýska liðið Hamburg heim í meistaradeild Evrópu, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. Fótbolti 13.9.2006 13:56
Síðbúnu tilboði í Senna var hafnað Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur viðurkennt að félagið hafi gert endurbætt tilboð í miðjumanninn Marcos Senna hjá Villarreal á síðustu stundu fyrir lokun félagaskiptagluggans, en því hafi verið hafnað. Ferguson var lengi á eftir Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen, en gerði eina lokatilraun við Senna eftir að Þjóðverjarnir neituðu alfarið að selja Hargreaves. Sport 13.9.2006 13:50
Denilson til reynslu hjá Portsmouth Brasilíumaðurinn Denilson er nú til reynslu hjá enska úrvalsdeildarliðinu Portsmouth og svo gæti farið að hann geri samning við félagið ef allt gengur að óskum. Denilson varð heimsmeistari með landsliði Brasilíu árið 2002, en hefur verið samningslaus eftir að hafa verið látinn fara frá franska liðinu Bordeaux. Talið er að Middlesbrough hafi einnig augastað á Denilson, sem árið 1998 varð dýrasti knattspyrnumaður í heimi þegar Real Betis keypti hann á 22 milljónir punda. Sport 13.9.2006 13:45
Risastökk hjá Íslenska landsliðinu Íslenska landsliðið í knattspyrnu tekur mikið stökk á FIFA-listanum sem birtur var í dag, en liðið hefur hækkað um 19 sæti síðan listinn var birtur síðast. Ísland var í 106. sæti síðast en er nú komið í 87. sætið. Englendingar eru komnir í 4. sætið, upp fyrir heimsmeistara Ítalíu og er þetta besti árangur Englendinga á listanum í sögunni, en liðið náði í 4. sætið árið 1997. Sport 13.9.2006 13:34
Talar frjálslega um peningamál leikmanna Valsliðsins Á heimasíðu Vals má enn finna nokkur bréf skrifuð af Rieg og Fréttablaðið hefur einnig undir höndum spjallþráð sem hefur verið eytt af síðunni en í honum fer Rieg mikinn. Við skulum byrja á að draga út nokkur ummæli í þræðinum sem var eytt en Rieg stofnaði hann 23. maí 2006, skömmu eftir að Ernir Hrafn Arnarsson hafði gengið í raðir Vals. Fram var eitt þeirra liða sem vildi fá Ernir í sínar raðir. Handbolti 12.9.2006 21:27
Þetta er ekki málefni Fram Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur Geir Sveinsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, sakað Hjálmar Vilhjálmsson, varaformann handknattleiksdeildar Fram, um að fara huldu höfði á spjallborði Valsmanna þar sem hann hafi reynt að skapa óróa með ummælum sínum og hafi einnig haldið því fram að hann væri gallharður Valsari. Sumt af því sem Hjálmar er ásakaður um að hafa skrifað á síðunni er það gróft að Valsmenn urðu að fjarlægja það af síðunni. Handbolti 12.9.2006 21:28
Ánægður með markalaust jafntefli Rafa Benitez var mjög ánægður með að ná markalausu jafntefli á útivelli gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í meistaradeildinni í kvöld og varði ákvörðun sína um að hafa marga af lykilmönnum sína á varamannabekknum með því að segja að þeir hefðu einfaldlega ekki úthald í að spila alla þá leiki sem á dagskránni væru. Fótbolti 12.9.2006 22:21
Ánægður með sigur á sterku liði Bremen Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var mjög ánægður með sigur sinna manna á Werder Bremen í meistaradeildinni í kvöld, en viðurkenndi að þýska liðið hefði verið betri aðilinn á köflum. Fótbolti 12.9.2006 22:05
Fabregas samþykkir nýjan átta ára samning Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur gefið það upp að spænski landsliðsmaðurinn Cesc Fabregas sé í þann mund að undirrita nýjan átta ára samning við félagið. Fabregas hefur verið hjá Arsenal síðan hann var 16 ára og er talinn einn efnilegasti miðjumaður heimsins í dag. Hann hefur verið eftirsóttur af liðum eins og Real Madrid um nokkurt skeið. Sport 12.9.2006 20:55
Meistararnir byrja með tilþrifum Evrópumeistarar Barcelona hófu titilvörn sína með tilþrifum í kvöld þegar liðið valtaði yfir Levski Sofia 5-0 á Nou Camp. Börsungar létu úrhellisregn ekki hafa áhrif á sig á heimavelli sínum og var sigur liðsins aldrei í hættu eftir að það náði forystu strax í upphafi. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta hálftímann með Barcelona en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Fótbolti 12.9.2006 20:36
Eiður kominn inn í lið Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er kominn inn í lið Barcelona sem varamaður eftir um klukkustundar leik á Nou Camp, en Börsungar eru að valta yfir Levski Sofia 4-0. Úrhellisrigning hefur sett svip sinn á leikinn, en þeir Puyol og Eto´o skoruðu þriðja og fjórða mark liðsins í síðari hálfleik eftir að staðan var 2-0 í leikhléi. Fótbolti 12.9.2006 20:08
Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hjálmar Jónsson var í liði IFK frá Gautaborg sem vann góðan 4-1 útisigur á Häcken og Emil Hallfreðsson spilaði síðasta hálftímann þegar lið hans Malmö tapaði 3-1 á útivelli fyrir Helsingborg. IFK Gautaborg er í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig, en Malmö er í því fjórða með 28 stig. Fótbolti 12.9.2006 20:00
Barcelona yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í meistaradeild Evrópu. Barcelona er að eiga náðugt kvöld í rigningunni á Nou Camp og hefur yfir 2-0 gegn Levski Sofia, Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Werder Bremen og markalaust er hjá PSV og Liverpool í Hollandi. Fótbolti 12.9.2006 19:33
Frábær sigur hjá Blikum Kvennalið Breiðabliks vann í kvöld frækinn 2-1 sigur á finnsku meisturunum HJK Helsinki í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Kópavogsliðsins gegn heimamönnum rétt fyrir leikslok, en áður hafði Ólína Viðarsdóttir skorað fyrir Blika. Sport 12.9.2006 19:18
Benayoun ætlar að framlengja við West Ham Ísraelski landsliðsmaðurinn Yossi Benayoun segist ætla að skrifa undir nýjan fimm ára samning við West Ham í vikunni, en þessi 26 ára gamli miðjumaður var nokkuð eftirsóttur í sumar og var meðal annars orðaður við Arsenal og Liverpool. Benayoun segist hæst ánægður í herbúðum liðsins og segir ekkert því til fyrirstöðu að það verði með í baráttunni um titla á næstu árum. Sport 12.9.2006 19:10
Lennon farinn að æfa á ný Hnémeiðsli enska landsliðsmannsins Aaron Lennon hjá Tottenham virðast ekki hafa verið eins alvarleg og talið var í fyrstu, því breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að vængmaðurinn ungi hafi mætt á æfingu liðsins í dag. Lennon var ekki með Tottenham um helgina, en því er haldið fram að hann verði jafnvel í hópnum fyrir Evrópuleikinn við Slavia Prag á fimmtudagskvöldið. Sport 12.9.2006 18:57
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti búlgörsku meisturunum Levski Sofia á Nou Camp í meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra, PSV - Liverpool er sýndur beint á Sýn og viðureign Chelsea og Werder Bremen er sýndur beint á Sýn Extra 2. Fótbolti 12.9.2006 18:34
Sættast Zidane og Materazzi? Alþjóða Knattspyrnusambandið, FIFA, vinnur nú í því að fá franska snillinginn Zinedine Zidane og ítalska varnarmanninn Marco Materazzi til þess að hittast opinberlega og sættast. Eins og frægt er orðið lenti þeim saman í úrslitaleik HM í sumar þar sem Zidane skallaði Materazzi í bringuna. Sport 12.9.2006 16:04