Sveitarstjórnarmál
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 40 ›
Forstjóri Icelandair krafinn skýringa á fundi í dag Sveitarstjórnarfulltrúar á Norðurlandi eystra munu fjölmenna á fund með forstjóra Icelandair á Akureyri síðar í dag, þar sem hann verður krafinn skýringa á tíðum frestunum og aflýsingum á innanlandsflugi flugfélagsins. Innlent 19.9.2022 11:07
Tónlistarnám í Reykjavík allt að tvöfalt dýrara Skólagjöld tónlistarskóla í Reykjavík eru þau dýrustu á landinu en borgin, ólíkt flestum öðrum sveitarfélögum, rekur ekki tónlistarskóla á eigin vegum. Veturinn í tónlistarskóla getur kostað rúmlega tvö hundruð þúsund krónur. Innlent 17.9.2022 07:39
Allir töldu Þröst vanhæfan nema Þröstur sjálfur sem ákallaði drottinn guð sinn Tíu af ellefu sveitarstjórnarmönnum Múlaþings samþykktu tillögu um vanhæfi Þrastar Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúa Miðflokksins, sem sneri að því að hann myndi víkja af fundi sveitarstjórnar í umræðum um breytingu á aðalskipulagi varðandi leiðarval Fjarðaheiðarganga. Þröstur segir hart að sér vegið og sakar aðra fulltrúa um pólitískt ofbeldi. Innlent 16.9.2022 13:24
Forsætisráðherra segir réttlætismál að greitt sé útsvar af fjármagnstekjum Forsætisráðherra segir réttlætismál að þeir sem einungis hafi fjármagnstekjur greiði útsvar til sveitarfélaga. Á næsta ári verði helsta verkefnið að draga úr verðbólgu og styrkja um leið og verja almannaþjónustuna, almannatryggingakerfið og húsnæðismarkaðinn. Innlent 16.9.2022 12:17
Upplýsingum af lokuðum fundi lekið í opinn hóp á Facebook Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi lagði fram fyrirspurn á fundi bæjarráðs Kópavogs um heimildir nefndarmanna til þess að fara með upplýsingar sem fram koma á lokuðum fundum nefnda og ráða. Hún segir orð hennar hafa orðið að umfjöllunarefni á Facebook og að þau hafi verið algjörlega slitin úr samhengi. Innlent 15.9.2022 14:56
Fólki fjölgar í Skagafirði, lóðir rjúka út og tugir íbúða í smíðum Gróska er í húsbyggingum í Skagafirði og eru yfir fimmtíu íbúðir í smíðum um þessar mundir víðsvegar um sveitarfélagið. Hitaveita, ljósleiðari og leikskólapláss eru galdurinn, að sögn sveitarstjórans. Innlent 13.9.2022 23:13
Stefna á tuttugu þúsund íbúðir á næstu fimm árum Flýta þarf uppbyggingu íbúða eigi rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð húsnæðis á næstu árum að ganga eftir. Þetta kom fram á fyrsta fundi um framkvæmd samningsins í dag. Innlent 13.9.2022 16:19
Ráðuneytið spyrst fyrir um aðkomu Jóns Björns að ráðningu á sjálfum sér Innviðaráðuneytið sendi sveitarstjórn Fjarðabyggðar erindi í upphafi mánaðar þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna ráðningar Jóns Björn Hákonarsonar í embætti sveitarstjóra í sumar. Ráðuneytið segir það vera álitamál hvort að kjörnum fulltrúum, í þessu tilviki Jóni Birni, sé heimilt að taka til máls á bæjarstjórnarfundi og greiða atkvæði með ráðningarsamningi sem viðkomandi á sjálfur aðild að. Innlent 12.9.2022 15:06
Grípa til mjög sérstakrar aðgerðar vegna fækkunar í íþróttafélaginu Vogar á Vatnsleysuströnd voru heimsóttir í Íslandi í dag, þar sem menn hafa hleypt af stokk átaki sem hefur vakið nokkra athygli. Í „ástarmánuði“ Þróttar í Vogum eru íbúar hvattir til að leggja sitt af mörkum svo börnum fjölgi á ný í bæjarfélaginu. Allt um málið í innslaginu hér að ofan. Innlent 9.9.2022 08:01
Borgin sýpur seyðið af lausatökum Reykjavíkurborg var í fararbroddi sveitarfélaga þegar kom að því að skapa störf í heimsfaraldrinum. Á milli áranna 2019 og 2021 fjölgaði stöðugildum hjá borginni um tæplega eitt þúsund að meðaltali – hlutfallsleg aukning var um 13,5 prósent – sem var mun meiri fjölgun en greina mátti í rekstri annarra sveitarfélaga. Umræðan 6.9.2022 07:01
Bein útsending: Aðlögun að breyttum heimi – hefjum samtalið Fræðslufundur um áhrif loftslagsbreytinga á byggðir landsins og íslenskt samfélag fer fram milli klukkan 9 og 12 í dag þar sem einblínt verður á þá vinnu sem framundan er til þess að aðlaga innviði, atvinnuvegi og samfélög að þeim breytingum sem vænta megi. Innlent 5.9.2022 08:35
Kallar eftir því að ríkið stigi inn í og taki við keflinu af sveitarfélögunum Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar kallar eftir því að ríkið taki við þjónustu við fólk á flótta og fólk í leit að alþjóðlegri vernd, í stað þess að sveitarfélögin veiti hana. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ályktaði í gær um að bærinn gæti ekki veitt þá þjónustu sem ætlast væri til af honum. Bæjarstjórinn segir lausnina ekki felast í því að fleiri sveitarfélög taki á móti fólki. Innlent 1.9.2022 15:01
Ákall til alþingismanna Staðreynd: Rekstur leikskóla er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga. En það ætti að vera það. Það er undir Alþingi að lögfesta slíkt og tryggja fjármögnun fyrsta skólastigsins. Skoðun 1.9.2022 09:31
Flóttafólki komið fyrir í Hafnarfirði án samráðs Bæjarstjórn Hafnarfjarðar segir bæinn ekki getað tekið við fleira flóttafólki í bili. Innviðir sveitarfélagsins séu fyrir allnokkru komnir að þolmörkum, þá sérstaklega hvað varðar skólaþjónustu og stuðning til barna varðar. Innlent 31.8.2022 18:32
Vill auka samtal milli sveitarfélaganna Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi var í dag kjörin nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Heiða mun taka við starfinu af Aldísi Hafsteinsdóttur á landsþingi SÍS í lok septembermánaðar. Hún segist spennt að taka við starfinu en mörg verkefni blasi við. Innlent 29.8.2022 14:18
Heiða Björg marði sigur á Rósu í formannsslag Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og borgarfulltrúi, verður næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kosning fór fram undanfarnar tvær vikur en aðeins munaði þremur atkvæðum á formannsefnunum. Innlent 29.8.2022 12:18
Örugg búseta? Samfélag manna hefur tekið miklum breytingum í tímans rás. Margir guðir, einn guð, enginn guð. Ættbálkasamfélög, borgríki, lýðveldi. Hestvagnar, bifreiðar, geimflaugar. Breytingar eru óumflýjanlegar. Þær eru hluti af lífinu og við erum sífellt minnt á að ekkert varir að eilífu. Skoðun 26.8.2022 10:00
Tveggja ára tilraun um sveigjanleg starfslok vegna aldurs Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að grípa til aðgerða svo auka megi sveigjanleika starfsfólks borgarinnar við starfslok vegna aldurs. Ráðast á í tveggja ára tilraunaverkefni. Borgarstjóri segir ástand fólks um sjötugt allt annað en fyrir mörgum áratugum. Innlent 25.8.2022 11:00
Tuttugu sveitarstjórnarmenn með yfir tvær milljónir á mánuði Borgarstjóri, bæjarstjórar og forsetar bæjarstjórna höfðu það gott árið 2021. Tuttugu sveitarstjórnarmenn voru með yfir tvær milljónir í launatekjur á mánuði í fyrra. Viðskipti innlent 18.8.2022 14:01
Lýsandi hegðun: Leikskólalaust barn olli verulegum örðugleikum í fréttasetti Leikskólamálin í Reykjavíkurborg hafa verið í brennidepli frá því að foreldrar hófu að mótmæla úrræðaleysinu í sjálfu Ráðhúsinu í síðustu viku. Á morgun er boðuð stofnun hústökuleikskóla í Ráðhúsinu meðan á borgarráðsfundi stendur. Innlent 17.8.2022 23:35
Nýtt fólk og nýir siðir í Kópavogi? Nýr meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs tók fram að nú væri nýtt fólk að taka við og að með þeim kæmu nýir siðir, þrátt fyrir að sömu flokkar væru áfram við stjórn. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri sagði að áhersla yrði lögð á að auka samráð, bæta upplýsingaflæði og að hlusta á sjónarmið bæjarbúa. Skoðun 15.8.2022 18:00
Reiknað með leikskóla og neðansjávarveitingastað við Gufunesbryggju Borgarráð hefur samþykkt að hefja viðræður við Þorpið-Vistfélag á grundvelli verðlaunatillögu um uppbyggingu við Gufunesbryggju, sem felur meðal annars í sér byggingu leikskóla og veitingastað sem verði að hluta til neðansjávar. Kanna á hvort raunhæft sé að staðsetja leikskóla á umræddu svæði. Innlent 12.8.2022 12:16
Bæjaryfirvöldum getur verið treystandi Vinir Kópavogs töldu bæinn þurfa að vanda verk sín og sýna fólki og viðfangsefnum meiri virðingu. Meðal annars þess vegna var boðið fram til bæjarstjórnar. Önnur framboð tóku öll undir áherslu Vina Kópavogs á íbúalýðræði og samráð við íbúa um þéttingu byggðar. Skoðun 10.8.2022 11:00
„Maður grætur á kvöldin þegar maður fer að sofa“ Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur ákveðið að hjólhýsabyggðin við Laugarvatn fái ekki að vera áfram. Eigendur hýsanna eru þegar byrjaðir að pakka saman og rífa niður og tilfinningarnar eru miklar. Innlent 22.7.2022 22:36
Sérstakt hve áköf umræðan um laun sveitarstjóra sé orðin Aldís Hafsteinsdóttir, nýr sveitarstjóri Hrunamannahrepps, segir það hverrar sveitarstjórnar fyrir sig að ákveða hvort biðlaun sveitarstjóra falli niður séu þeir ráðnir í nýtt starf. Sjálf fékk hún tæpar 17 milljónir greiddar frá Hveragerði við starfslok sín í byrjun sumars vegna biðlauna og launatengdra gjalda og þiggur nú laun frá Hrunamannahreppi. Innlent 22.7.2022 13:00
Rúmar tvær milljónir króna á mánuði fyrir að stýra Mosfellsbæ Bæjarráð Mosfellsbæjar gerði ráðningarsamning við Regínu Ásvaldsdóttur, nýjan bæjarstjóra Mosfellsbæjar, í gær. Samkvæmt ráðningarsamningi fær Regína rúmlega tvær milljónir króna í mánaðarlaun, ökutækjastyrk að andvirði 150 þúsund króna auk greidds síma og nets. Innlent 15.7.2022 10:01
Hætt við fund því boðun kom einni mínútu of seint Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar sleit fundi sínum í gær eftir að bókun barst frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins þess efnis að fundarboð hafi borist of seint og fundurinn því ólögmætur. Allt sem hefði verið samþykkt á fundinum hefði því ekki verið gilt. Innlent 15.7.2022 07:01
Heiða Björg býður sig fram til formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga Heiða Björg Hilmisdóttir hefur tilkynnt framboð sitt til formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hún hefur verið varaformaður sambandsins síðastliðin fjögur ár. Innlent 13.7.2022 15:35
Rósa Guðbjarts býður sig fram í formann Sambands íslenskra sveitarfélaga Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnafjarðar, hefur gefið kost á sér til formennsku í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nýr formaður sambandsins verður kjörinn í ágúst næstkomandi. Innlent 13.7.2022 13:18
Hægt verði með samstilltu átaki að lyfta grettistaki í að gera húsnæði öruggara Innviðaráðherra segir ríki og sveitarfélög geta lyft grettistaki á húsnæðismarkaði með nýjum rammasamningi. Í fyrsta sinn hafi samkomulag verið gert milli ríkis og sveitarfélaga þar sem hægt sé að leita sameiginlegra lausna en byggja þurfi tugþúsundir íbúða næsta áratuginn. Innlent 12.7.2022 21:40