Keflavíkurflugvöllur
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 43 ›
Tekinn með á annað hundruð Oxycontin-töflur Karlmaður var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins í gærkvöld þar sem í farangri hans fundust á annað hundrað Oxycontin-töflur. Innlent 28.9.2021 09:29
Dregur úr vilja til ferðalaga til Íslands Dregið hefur úr áhuga á ferðalögum til Íslands eftir að allir farþegar voru skyldaðir í lok júlí til að framvísa neikvæðu PCR eða hraðprófi á brottfararstað, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki. Mest munar um Bandaríkjamenn í fjölgun farþega í sumar sem leið. Innlent 16.9.2021 20:15
Sprengjuþoturnar flognar frá Íslandi Bandarísku sprengjuþoturnar þrjár, hinar torséðu B-2 Spirit, eru farnar frá Íslandi. Þetta var í fyrsta sinn sem Keflavíkurflugvöllur var nýttur sem bækistöð fyrir B-2 sprengjuþotur en áður hafði aðeins ein flugvél slíkrar gerðar komið til landsins til stuttrar eldsneytismillilendingar. Innlent 14.9.2021 23:27
Keflavíkurflugvöllur skilgreindur sem framvarðarstöð B-2 til sprengjuárása Tvær af þremur B-2 Spirit sprengjuþotum bandaríska flughersins, sem staðsettar eru á Keflavíkurflugvelli um þessar mundir, æfðu með norska flughernum yfir Norðursjó í vikunni. Samkvæmt frétt norska hersins fóru æfingarnar fram á mánudag og miðvikudag með þátttöku F-35 orustuþotna Norðmanna sem komu frá Evenes-flugvellinum í Norður Noregi. Innlent 12.9.2021 13:40
Teknir með Oxycontin við komuna til landsins Tollverðir á Keflavíkurflugvelli stóðu þrjá erlenda karlmenn að tilraun til smygls á hátt í þrjú þúsund Oxycontin-töflum við komu á Keflavíkurflugvöll í síðasta mánuði. Innlent 7.9.2021 15:24
Úr 80 þúsund í ríflega 264 þúsund Ríflega 264 þúsund farþegar flugu með Icelandair í ágúst, samanborið við tæplega 80 þúsund á sama tíma í fyrra. Þar af voru farþegar í millilandaflugi rúmlega 241 þúsund samanborið við um 67 þúsund í ágúst 2020 og 195 þúsund í júlí 2021. Viðskipti innlent 6.9.2021 16:29
Sérsveitin kölluð á Keflavíkurflugvöll Lögreglan á Suðurnesjum og sérsveit ríkislögreglustjóra voru kölluð á Keflavíkurflugvöll í dag eftir að tilkynning barst flugstöðvardeild lögreglunnar um torkennilegan hlut sem fannst í handfarangri farþega við vopnaleit. Munurinn reyndist að endingu hættulaus. Innlent 5.9.2021 16:56
Gripinn með kíló af kókaíni í ferðatöskunni Þýsk-rússneskur karlmaður hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi hér á landi fyrir innflutning á rétt tæpu kílói af kókaíni. Maðurinn játaði sök þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness. Innlent 30.8.2021 10:33
Skæðustu sprengjuþotur heims við æfingar á Íslandi næstu daga Þrjár bandarískar sprengjuþotur af gerðinni Northrop B-2 Spirit lentu í Keflavík í gærkvöldi og verða þær við æfingar hér við land næstu daga. Þoturnar eru þær dýrustu í flugsögunni og taldar einhver skæðustu árásarvopn sem mannkyn hefur smíðað. Innlent 24.8.2021 22:31
Félag íslenskra flugumferðastjóra boðar til verkfalls Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Isavia var slitið upp úr klukkan 23:30 í kvöld. Fundað hafði verið frá klukkan eitt í dag en samkomulag náðist ekki milli aðila og því hefur verið boðað til verkfalls. Innlent 24.8.2021 00:11
Bandaríski flugherinn æfir við Ísland næstu daga Þrjár bandarískar herflugvélar af gerðinni Northrop B-2 Spirit komu til landsins í kvöld og verða hér við æfingar næstu daga. Innlent 23.8.2021 23:16
Verkföll eru það síðasta sem ferðaþjónustan þarf á að halda Verkföll hjá flugumferðarstjórum væru það síðasta sem ferðaþjónusta og flugiðnaður landsins þarf á að halda að sögn Birgis Jónssonar, forstjóra PLAY. Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) ákveður í dag hvort ráðist verði í verkfallsaðgerðir á þriðjudaginn í næstu viku og skoða hvort greiða eigi atkvæði um frekari verkfallsaðgerðir á næstunni. Innlent 23.8.2021 12:02
Gætu boðað til verkfalls á mánudag Ekki náðist sátt um vinnutíma flugumferðarstjóra á sáttafundi félags þeirra og Isavia hjá ríkissáttasemjara í dag. Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur út mánudaginn til að boða til verkfalls sem félagsmenn hafa þegar samþykkt að fara í. Innlent 22.8.2021 22:52
Ákveðin uppgjöf að ætla að takmarka fjölda ferðamanna Ferðamálaráðherra segir það ákveðna uppgjöf að ætla takmarka fjölda ferðamanna til Íslands. Hún telur ekki tímabært að ræða samkomutakmarkanir til margra mánuða, líkt og sóttvarnalæknir hefur lagt til í minnisblaði sínu. Veiran sé komin til að vera og lífið þurfi að komast sem fyrst í eðlilegt horf. Innlent 19.8.2021 18:32
Ætla að herða eftirlit verulega í næstu viku Lögreglan á Suðurnesjan ætlar að herða verulega á eftirliti með því að flugfélög tryggi að farþegar komi ekki til landsins framvísi þeir ekki neikvæðu PCR-prófi við brottför. Forstjóri Play segir það mun betri lausn en að ætla að takmarka fjölda ferðamanna til landsins. Innlent 19.8.2021 18:32
Hefjast handa við að stækka flugvöllinn um tuttugu þúsund fermetra Um tuttugu þúsund fermetra stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hófst formlega í gær. Um er að ræða ríflega tuttugu milljarða króna framkvæmd, sem er sú stærsta sem Isavia hefur ráðist í. Innlent 17.8.2021 19:38
Wizz Air bætir við fjórtán flugleiðum til Íslands Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur að undanförnu bætt við sig fjórtán flugleiðum til Íslands og gerir ráð fyrir fleiri ferðum hingað en áður, samkvæmt frétt Túrista.is. Viðskipti erlent 16.8.2021 13:31
Bólusettir með tengsl við Ísland þurfa nú í sýnatöku eftir komu til landsins Bólusettir farþegar og þau sem hafa vottorð um fyrri sýkingu með tengsl við Ísland þurfa frá og með deginum í dag að fara í sýnatöku innan tveggja sólarhringa frá komu til landsins. Börn fædd 2005 og síðar eru undanskilin nýjum reglum. Innlent 16.8.2021 09:25
Jón Gnarr er kominn með Covid-19 Jón Gnarr er einn þeirra 130 sem greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær. Hann segist ekki vita hvar hann smitaðist en þó telur hann ekki ólíklegt að það hafi verið í Leifsstöð. Innlent 13.8.2021 16:34
Hætta að skoða öll bólusetningavottorð Bólusetningavottorð verða skoðuð með tilviljanakenndum hætti, í þeim tilgangi að leysa úr þeim flöskuhálsi sem hefur myndast og skapað mannmergð á Keflavíkurflugvelli undanfarnar vikur, segir ferðamálaráðherra. Farþegafjöldi á Keflavíkurflugvelli er nú um þriðjungur af því sem hann var fyrir tveimur árum. Innlent 12.8.2021 11:47
95 komur og brottfarir í dag Fimmtíu og ein brottför er á áætlun frá Keflavíkurflugvelli í dag. Þar ef eru þrjátíu brottfarir með flugvélum Icelandair og þrjár með Play. Innlent 12.8.2021 07:34
„Maður skynjar ósamstöðu milli ráðuneytis og almannavarna“ Fjöldi ferðamanna hefur leitað til flugfélagsins Play undanfarið með fyrirspurnir um reglur á landamærum. Forstjóri Play segir að mikil óvissa ríki um aðgerðirnar og gagnrýnir hann ósamræmi á landamærum. Innlent 11.8.2021 12:00
Furðar sig á því að hafa ekki þurft að sýna rándýrt vottorð á landamærunum Ómar Úlfur Eyþórsson, útvarpsmaður á X-977, borgaði 34 þúsund krónur fyrir hraðpróf á Gardermoen, flugvellinum í Osló, þar sem hann taldi sig munu þurfa að framvísa vottorði um neikvæða niðurstöðu Covid-19 sýnatöku. Þegar á hólminn var komið reyndust útgjöldin óþarfi. Innlent 9.8.2021 20:59
Play stundvísasta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli Flugfélagið Play flutti 9.899 farþega í júlí og var sætanýting 41,7 prósent. Nýtingin er sögð vera í takt við væntingar stjórnenda þennan fyrsta mánuð félagsins í fullum rekstri. Viðskipti innlent 9.8.2021 10:59
„Það verður ekki mikið meira gert þegar öll þjóðin er orðin fullbólusett“ Mikill fjöldi ferðamanna, íslenskra og erlendra, fer í gegnum Keflavíkurflugvöll á degi hverjum. Vegna landamæraaðgerða hefur oft myndast örtröð á vellinum, og forsvarsmenn lögreglu í flugstöðinni bent á að húsnæðið bjóði ekki upp á meiri skilvirkni við afgreiðslu vottorða og annars sem þarf að sinna í tengslum við aðgerðirnar. Innlent 8.8.2021 13:19
Myndband sýnir mikla örtröð í komusal Keflavíkurflugvallar Óhætt er að segja að mikil örtröð hafi myndast í komusal Keflavíkurflugvallar nú síðdegis, þegar tuttugu flugvélar skiluðu af sér farþegum á tveggja tíma tímabili. Innlent 7.8.2021 17:40
Lentu í Keflavík með veikan farþega Vél á leið frá New York í Bandaríkjunum til Mumbai á Indlandi var snúið við þegar hún var á leið sinni yfir Ísland og lenti á Keflavíkurflugvelli rétt upp úr klukkan 5 í morgun. Innlent 6.8.2021 09:48
Bæta þurfi aðstöðu á vellinum ef aðgerðir á landamærum eru til langs tíma Rauður litur Íslands á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu mun ekki hafa bein áhrif á stöðuna á Keflavíkurflugvelli, þó komufarþegum kunni að fækka á næstunni. Yfirlögregluþjónn segir stöðuna þunga og að breytinga sé þörf á vellinum, verði takmarkanir á landamærunum viðvarandi. Innlent 5.8.2021 12:56
„Við erum ekki landamæraeftirlit“ Þeir sem ekki geta framvísað neikvæðu kórónuveiruprófi við byrðingu í flug með flugfélaginu Play, verður ekki hleypt um borð á leið til Íslands. Forstjóri félagsins segir ákvörðunina innan lagalegs ramma enda sinni flugfélagið ekki landamæraeftirliti. Viðskipti innlent 28.7.2021 12:41
Dæmi að fólk missi af flugi vegna ófullnægjandi gagna Talsvert er um að fólk mæti ekki með fullnægjandi gögn á Keflavíkurflugvöll og dæmi eru um að það missi þar af leiðandi af flugi sínu út, segir Arngrímur Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum. Hann hvetur fólk til að fylgjast með þeim reglum sem séu í gildi hverju sinni, sem geti breyst frá degi til dags. Þá sé mikilvægt að ferðalangar mæti snemma í innritun því hún taki lengri tíma nú en áður. Innlent 27.7.2021 12:00