Ítalski baróninn á ekki vatnið Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Vestfjarða um að vatnsnýtingarréttindi á landi Engjaness í Eyvindarfirði á Ströndum séu í eigu ríkisins. Baróninn hafði samið við orkufyrirtæki um afnot réttindanna vegna fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar. Innlent 22.10.2026 19:18
Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, gengst við slúðurpistli um að hún hafi keypt þungunarpróf. Hún var sjálf ólétt en festi kaup á prófinu til að stríða íbúum Árneshrepps. Lífið 21.10.2026 16:37
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Stór skriða féll í Kaldbaksvík á Ströndum og hefur lokað veginum í Árneshrepp. Vegurinn er lokaður og segir sveitarfélagið að hann verði í besta falli jeppafær þegar Vegagerðin hefur opnað hann á ný. Innlent 25.9.2026 17:22
Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þann 16. maí verða sögulegar kosningar í Árneshreppi á Ströndum, listakosning í fyrsta skipti síðan 1958. Tveir listar eru í framboði og því ljóst að framtíðin er björt þegar 20 manns í svona fámennu sveitarfélagi eru tilbúnir að gefa hjarta sitt og sál til að tryggja framtíð á svæðinu. Það er mikið fagnaðarefni. Skoðun 14. maí 2026 09:22
Hleðslustöðin Árneshreppur Þeir sem hafa komið alla leið norður í Árneshrepp í Strandasýslu vita hversu einstakur staður hreppurinn er. Fegurðin er allt umlykjandi og öldur Húnaflóa sverfa fjörusteinana. Í Árneshreppi læðist kyrrðin að þér, fjöllin umvefja þig og hlýja samfélagsins finnur leið inn að þínum innsta kjarna. Skoðun 28. apríl 2026 09:02
Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Árneshreppur og Kaldrananeshreppur á Vestfjörðum munu sameinast eftir að meirihluti íbúa í báðum sveitarfélögum samþykktu tillöguna í íbúakosningu sem lauk í gær. Oddviti Kaldrananeshrepps trúir að sameinað sveitarfélag fái kröftuga innspýtingu frá ríkinu enda sé mikill áhugi á svæðinu og skortur á íbúðarhúsnæði eftir því. Innlent 29. mars 2026 11:11
Sameining hreppanna tveggja samþykkt Árneshreppur og Kaldrananeshreppur munu sameinast en íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu sameiningu í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. Innlent 28. mars 2026 21:13
Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi leyfisveitingu hreppsnefndar Árneshrepps fyrir framkvæmdum við fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði á Ströndum. Innlent 28. mars 2026 14:55
Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Í hádeginu hófust íbúakosningar um tillögu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps. Kosningar standa yfir til 28. þessa mánaðar íbúar sveitarfélaganna sem náð hafa sextán ára aldri fyrir lok tímabilsins mega greiða atkvæði. Innlent 14. mars 2026 16:51
Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Framboðslistinn Framtíð Árneshrepps mun bjóða fram í hreppnum í komandi sveitarstjórnarkosningum en framboðið vill höfða til þeirra sem eru mótfallnir mögulegri sameiningu við Kaldrananeshrepp. Íbúar kjósa um sameininguna í mars en sveitarstjórnarkosningar eru í maí. Innlent 13. mars 2026 17:46
Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Kosið verður um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps í mars. Talið er að sameiningin geti styrkt samfélagið. Innlent 21. febrúar 2026 10:47
Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. Innlent 11. desember 2025 21:51
Áforma vinnuvélar í Hvalárvirkjun í vor Vesturverk stefnir að því að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Hvalárvirkjunar á Ströndum næsta vor eftir að Hæstiréttur hafnaði kröfu virkjunarandstæðinga um að jörðin Drangavík ætti hluta af vatnasviði virkjunarinnar. Fleiri kærumál eru hins vegar í gangi. Innlent 25. nóvember 2025 21:10
Ítalski baróninn lagði landeigendur Hæstiréttur staðfesti í gær landamerki jarðarinnar Drangavíkur í Árneshreppi gagnvart jörðunum Engjanesi, Ófeigsfirði og Laugalandi í máli eigenda Drangavíkur á hendur ítalska baróninum Felix von Longo-Liebenstein, eiganda Engjaness, og fleirum, sem fóru með sigur af hólmi á öllum dómstigum. Tveir af fimm dómurum í málinu skiluðu sératkvæði og töldu að fallast hefði átt á kröfur eigenda Drangavíkur í öllu verulegu. Innlent 25. nóvember 2025 11:31
Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Innviðaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi með tillögum að víðtækum breytingum á sveitastjórnarlögum. Meðal tillaga er lögfesting á 250 íbúa lágmarki sveitarfélaga og er stefnt að sameiningu fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Átta sveitarfélög eru undir lágmarkinu. Innlent 23. september 2025 09:43
Sameiningarhugur á Vestfjörðum Nokkur sveitarfélög og hreppir á Vestfjörðum hyggjast efna til óformlegra sameiningarviðræðna. Fulltrúar tveggja sveitarfélaga segja að í framtíðarsýn Vestfjarða séu færri sveitarfélög. Þeir telja að málið verði mikið rætt í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 25. júní 2025 14:27
Ítalski baróninn á ekki vatnið sem hann seldi Íslenska ríkið er eigandi vatnsréttinda jarðarinnar Engjaness í Árneshreppi, sem er í eigu ítalska barónsins Felix von Longo-Liebenstein. Baróninn hefur samið við orkufyrirtæki um sölu afnota vatnsréttindanna vegna fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar. Umtalsverðir fjármunir voru undir í málinu og ríkið hefur lýst því yfir að það muni ganga inn í samninginn. Innlent 25. apríl 2025 13:28
Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp undir forystu Vegagerðarinnar til að kanna kosti þess og galla að skilgreina vegina sem mynda hringleið um Vestfirði sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Þetta er í samræmi við tillögu nefndar forsætisráðherra um eflingu byggðar á Ströndum. Innlent 20. apríl 2025 10:10
Sex verslanir fá sautján milljónir í ríkisstyrk Sex verslanir í dreifbýli fá úthlutað samtals sautján milljónum í verkefnastyrk frá hinu opinbera sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022 til 2036. Innlent 10. desember 2024 10:08
Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Eftir úrhellisrigningu í nótt hafa fallið aurskriður á nokkrum stöðum á veginum norður í Árneshrepp. Vegagerðin vinnur að viðgerð á veginum í Veiðileysi þar sem hann grófst í sundur. Innlent 2. ágúst 2024 14:05
Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Bíll sem var staðsettur á bílastæði við Krossneslaug við Norðurfjörð á Ströndum rann af bílastæðinu og fram af kletti um hádegisleytið síðastliðinn laugardag. Talsvert sér á bílnum en engin slys urðu á fólki. Innlent 30. júlí 2024 14:31
Hrikalega spennandi grillkeppni á Kótilettunni Einar Bárðarson, tíðindamaður Vísis, fylgdist grannt með helstu grillkeppni landsins sem fram fór á Kótilettunni, nema hvar, um helgina. Lífið 15. júlí 2024 16:04
Sæmdur gullmerki í síðustu opinberu heimsókninni Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var sæmdur gullmerki Ferðafélags Íslands á tindi Glissu í heimsókn sinni Árneshreppi í dag. Heimsóknin er síðasta opinbera heimsókn Guðna i embætti. Innlent 13. júlí 2024 18:47
Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Hin umdeilda Hvalárvirkjun á Ströndum er aftur komin á fullt í undirbúningi. Samningur sem Vesturverk, dótturfélag HS Orku, og Landsnet gerðu á dögunum miðar við að virkjunarframkvæmdir geti hafist eftir tvö ár. Viðskipti innlent 12. júní 2024 21:12