Grindavík
62 63 64 65 66 67 68 69 70 … 74 ›
Kristján Már fór yfir eldgos síðustu þriggja áratuga í beinni „Ég heyrði að Páll Einarsson nefndi Kröfluelda, það var einmitt fyrsta gosið sem ég dekkaði sem fréttamaður,“ sagði Kristján Már Unnarsson, fréttamaður okkar, í beinni útsendingu frá Grindavík í kvöld þar sem hann fylgdist með eldgosinu í Geldingadal. Innlent 20.3.2021 03:15
Krýsuvíkurskóli rýmdur og fjöldahjálparstöð opnuð Meðferðarheimilið Krýsuvíkurskóli var rýmt í kvöld vegna gasmengunarhættu. Þau sem þar dvöldu voru flutt í Hópsskóla í Grindavík, þar sem opnuð hefur verið fjöldahjálparstöð. Innlent 20.3.2021 01:49
Sóttu þrjá illa búna í grennd við gosið Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík sótti í kvöld illa búið fólk í grennd við eldgosið í Geldingadal við Fagradalsfjall. Önnur verkefni sveitarinnar hafa meðal annars snúið að því að fylgja vísindamönnum um svæðið og loka vegum. Innlent 20.3.2021 01:26
„Þetta er einhver heppilegasti staður á Reykjanesskaga fyrir hraungos“ Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur, segir að eldgosið sem hófst fyrr í kvöld í Geldingadal við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga sé að koma upp á heppilegasta stað á skaganum. Svo virðist sem gosið sé lítið og að því fylgi lítill órói. Innlent 19.3.2021 23:27
Fyrsta myndin af gosinu: Sprungan virðist 200 metra löng Syðri endi hrauntungunnar sem rennur úr gosinu er um 2,6 km frá Suðurstrandarvegi, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Meðfylgjandi er fyrsta myndin sem birt er af gosinu. Innlent 19.3.2021 23:09
„Það var eiginlega talið að þetta væri í rénun“ Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík segir að eldgosið sem nú er hafið við Fagradalsfjall hafi komið honum – og líklega öðrum bæjarbúum – á óvart. Í morgun hafi litið út fyrir að virknin væri í rénun. Hann segir að staðsetning gossins virðist jafnframt góð gagnvart Grindavík. Innlent 19.3.2021 22:58
Sjá mikinn og fallegan rauðan bjarma úr Grindavík „Maður sér bara mikinn og fallegan rauðan bjarma fyrir austan bæinn,“ segir Vilhjálmur Árnason þingmaður um gosið sem hafið er við Fagradalsfjall. Innlent 19.3.2021 22:39
Gos hafið í Geldingadal Eldgos er hafið í Geldingadal við Fagradalsfjall. Tilkynning þess efnis barst frá Veðurstofu Íslands til fjölmiðla klukkan 21:55 og í framhaldinu að það hefði að líkindum hafist klukkan 20:45. Lítill órói hefur sést á jarðskjálftamælum. Almannavarnir brýna fyrir fólki að vera ekki að fara ekki á staðinn. Innlent 19.3.2021 21:45
Suðurstandarvegur lokaður fram yfir helgi Ástand Suðurstrandarvegar við Festarfjall er svipað og var í gær en hefur heldur þróast til verri vegar. Í ljósi jarðskjálftavirkninnar og spár um rigningu á svæðinu næsta daga hefur verið tekin sú ákvörðun að halda veginum lokuðum að minnsta kosti fram yfir helgi. Innlent 19.3.2021 12:05
Loka fyrir umferð á Suðurstrandarvegi í kvöld og í nótt Suðurstrandarvegi verður lokað klukkan 18 á eftir og fram á morgun hið minnsta. Er það gert vegna ástands vegarins í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Innlent 18.3.2021 16:21
Suðurstrandarvegur þrengdur á kafla vegna frekari skemmda Frekari skemmdir urðu á Suðurstrandarvegi í gær nálægt Festarfjalli, en sprungur hafa myndast við axlir og í fyllingu þannig að vegrið hefur ekki allsstaðar fullan stuðning. Innlent 16.3.2021 14:41
Landsmenn hafa boðið Grindvíkingum sumarbústaði til jarðskjálftahvíldar Bæjarstjóri Grindavíkur segir að fjöldi Grindvíkinga hafi flúið bæinn til þess að hvíla sig á jarðskjálftunum. Margir hafi ekki fengið nætursvefn svo dögum skipti og biðlar hann til hóteleigenda að bjóða Grindvíkingum hagstæð tilboð svo þeir komist burt. Innlent 15.3.2021 20:01
Upptökur úr Nettó sýna þegar stóri skjálftinn reið yfir Allt lék á reiðiskjálfi í verslun Nettó í Grindavík í gær þegar stór jarðskjálfti, 5,4 að stærð, reið yfir. Líkt og sést á upptökum úr öryggismyndavélum, sem horfa má á hér fyrir neðan, hrundu vörur úr hillum og viðskiptavinum var brugðið. Innlent 15.3.2021 13:40
Íbúar orðnir langþreyttir á skjálftunum: „Maður vaknar bara á hverri einustu nóttu“ Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins í dag er sá næst öflugasti í skjálftahrinunni sem staðið hefur yfir í rúmar tvær vikur. Hann fannst vel á öllum Reykjanesskaganum og alla leið á Sauðárkrók en einnig í Vestmannaeyjum. Hann mældist 5,4 að stærð og var um 2,5 kílómetra vestur af Nátthaga. Innlent 14.3.2021 19:35
Bílasalur Björgunarsveitarinnar Þorbjörns lék á reiðiskjálfi Það lék allt á reiðiskjálfi í bílasal Björgunarsveitarinnar Þorbjörns á þriðja tímanum í dag þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,4 reið yfir suðvesturhorn landsins. Innlent 14.3.2021 18:05
Vörur hrundu úr hillum þegar jarðskjálftinn reið yfir Vörur hrundu úr hillum verslunar Nettó í Grindavík þegar heldur kröftugur skjálfti, sem var 5,4 að stærð, reið yfir klukkan 14:15 í dag. Skjálftinn átti upptök sín um fimm kílómetra suðvestur af Fagradalsfjalli. Innlent 14.3.2021 16:11
„Það venst ekkert að upplifa þessa stóru skjálfta“ Fannar Jónasson, bæjastjóri í Grindavíkurbæ, segir skjálftann sem reið yfir Reykjanesskaga klukkan 14:15 í dag og var 5,4 að stærð hafa fundist einkar vel í bænum. Mikil skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga í yfir tvær vikur. Mannlífið gangi þó svo til sinn vanagang, þó mörgum íbúum verði ekki um sel þegar stærri skjálftarnir ríða yfir. Innlent 14.3.2021 15:32
Ekki hægt að opna gamla Suðurstrandarveg að fullu vegna grjóthrunshættu Bæjaryfirvöldum í Grindavík hafa borist ábendingar um að gamli Suðurstrandarvegurinn sé lokaður. Það geti skapað hættu ef það gjósi vestan við Grindavík og komi til rýmingar um Suðurstrandarveg. Atli Geir Júlusson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs hjá bænum segir ekki hægt að opna allan veginn að svo stöddu vegna hættu á grjóthruni. Innlent 13.3.2021 13:09
Líkur á að hraun renni yfir Suðurstrandarveg Jarðskjálfti af stærðinni 4,6 í Eldvörpum skömmu fyrir klukkan níu í morgun er merki um spennubreytingar á Reykjanesskaga. Smáskjálftavirkni á svæðinu er en talinn fyrirboði eldgoss en talið er að kvikugangurinn við Fagradalsfjall hafi færst til suðurs. Innlent 11.3.2021 11:47
Kvikan smám saman að brjóta sér leið til suðurs Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, telur um helmingslíkur á eldgosi eins og staðan er núna. Þá sagði hún stóran jarðskjálfta við Eldvörp í morgun ekki til marks um að kvika brjótist upp við upptök hans. Kvikugangurinn undir Fagradalsfjalli sé jafnframt að færast til suðurs. Innlent 11.3.2021 10:21
Stór skjálfti vestan af Grindavík Jarðskjálfti að stærðinni 4,6 varð við Eldvörp um tvo kílómetra suður af Sandfellshæð á Reykjanesskaga klukkan 8:53. Innlent 11.3.2021 09:20
Bein útsending: Íbúafundur í Grindavík túlkaður á pólsku Opið hús verður í Kvikunni í dag á milli klukkan 13 og 17 þar sem áhersla er lögð á að koma upplýsingum til pólska samfélagsins vegna jarðhræringanna á Reykjanesi að sögn bæjarstjóra í Grindavík. Fundurinn sjálfur hefst klukkan 14:30 og verður túlkaður á pólsku. Hægt er að horfa á fundinn á Youtube síðu Grindavíkurbæjar og á Vísi í spilaranum hér að neðan. Innlent 7.3.2021 14:19
Svona hljómaði stóri skjálftinn í Grindavík í nótt Stór jarðskjálfti reið yfir við Fagradalsfjall um klukkan tvö í nótt. Skjálftinn mældist 5 að stærð, sá stærsti í nokkra daga. Hann fannst vel á suðvesturhorninu, einkum í Grindavík, og varði í nokkrar sekúndur, ef marka má meðfylgjandi hljóðupptöku af skjálftanum. Innlent 7.3.2021 13:06
Dæmi um að íbúar hafi leigt hótelherbergi yfir helgina til að frá frí frá skjálftahrinunni Íbúar Grindavíkur leigðu sér hótelherbergi og sumarbústaði yfir helgina til að frá frí frá skjálftahrinunni sem ekkert lát virðist á að sögn bæjarstjóra í Grindavík. Skjálftavirknin færðist í átt að Grindavík í nótt og fundu íbúar vel fyrir snörpum skjálftum. Innlent 7.3.2021 12:53
Um tvö þúsund skjálftar frá miðnætti Enn er mikil virkni á skjálftasvæðinu á Reykjanesi og ekki sér fyrir endann á henni. Minna er um stóra skjálfta en þó hafa stærri skjálftar mælst í kvöld en mældust í dag. Innlent 6.3.2021 22:02
Gætum séð fram á virknitímabil sem spannar árhundruð Enn er full ástæða til að hafa gætur á vegna jarðhræringanna á Reykjanesi að sögn jarðeðlisfræðings. Skjálftavirkni sé enn mikil þrátt fyrir að fólk finn ef til vill minna fyrir skjálftum eins og staðan er núna. Það kunni að vera að framundan sé ákveðið virknitímabil á Reykjanesskaganum sem gæti spannað nokkur hundruð ára tímabil. Innlent 6.3.2021 16:03
Bein útsending: Sérfræðingar fara yfir stöðuna á Reykjanesskaga Náttúruvársérfræðingar Veðurstofu Íslands, Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna og fulltrúar Grindavíkurbæjar munu fara yfir stöðuna á Reykjanesskaga á íbúafundi í Grindavík klukkan 14:30. Innlent 6.3.2021 14:38
Ekki útilokað að hraun næði niður á Suðurstrandarveg Ekki er talið að hraun muni renna yfir Reykjanesbraut, komi til eldgoss miðað við stöðuna nú á Reykjanesskaga, en ekki er útilokað að hraun næði niður á Suðurstrandarveg. Innlent 6.3.2021 12:47
Segir rafmagnsleysið óviðunandi á viðkvæmum tímum fyrir íbúa Grindavíkur Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir rafmagnsleysið í gærkvöldi óviðunandi á viðkvæmum tímum fyrir íbúa Grindavíkur. Bæjarstjórnin mun funda með HS Veitum á mánudag. Innlent 6.3.2021 12:10
Hefði ekki átt að vera rafmagnslaust svona lengi Egill Þorsteinn Sigmundsson, Sviðsstjóri rafmagnssviðs hjá HS Veitum, segir ólíklegt að rafmagnsleysið í Grindavík megi rekja til jarðhræringa á Reykjanesi. Það sé fyrst og fremst óheppni að rafmagni hafi slegið út í Grindavík á þessum tímapunkti. Töluvert langan tíma tók að finna bilunina sem olli rafmagnsleysinu. Rafmagnslaust var í um átta til tíu klukkustundir í gær. Innlent 6.3.2021 11:32