
Tryggingar

Lögreglan stefnir Sjóvá vegna tjóns sem varð vegna ofsaaksturs
Ríkislögreglustjóri hefur stefnt tryggingafélaginu Sjóvá vegna tjóns sem varð á lögreglubíl þegar lögregla veitti ökumanni eftirför sem ók á ofsahraða á Miklubraut árið 2018.

Mun fá háar bætur eftir mistök hjá Krabbameinsfélaginu
Tryggingafélag Krabbameinsfélags Íslands hefur viðurkennt bótaskyldu að öllu leyti í máli konu sem fékk ranga niðurstöðu eftir krabbameinsskoðun hjá félaginu. Konan er með ólækandi krabbamein.

Fær fullar bætur sex árum eftir alvarlegt bílslys á Gullinbrú
Karlmaður sem slasaðist alvarlega í bílslysi á Gullinbrú fyrir sex árum fær fullar bætur úr slysatryggingu frá tryggingafélagi sínu samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Tryggingafélagið vildi skerða eða fella niður bæturnar vegna þess að maðurinn ók of hratt þegar slysið varð.

Segir íslensk tryggingafélög okra á bíleigendum því þau komist upp með það
Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir bílatryggingar hér á landi helmingi eða tvöfalt dýrari en á hinum Norðurlöndunum.

Maður sem slasaðist alvarlega í hjólaslysi fær bætur frá Verði eftir fimm ára bið
Karlmaður sem slasaðist alvarlega á hjóli á leið heim úr vinnu fær tæpar fjórtán milljónir króna í bætur frá Verði eftir að Landsréttur dæmdi honum í vil í dag. Héraðsdómur Reykjavíkur hafi áður dæmt Verði í vil.

„Fötluðustu börnin fá ekki að njóta sín eins og önnur börn“
„Sárt og sorglegt“ að fá neitun frá Sjúkratryggingum, segir móðir langveiks drengs sem óskaði eftir styrk fyrir hjólastólahjóli. Hún segir sorglegt að hópur barna fái ekki tækifæri til að hjóla, líkt og heilbrigð börn gera. Hún skorar á Sjúkratryggingar Íslands að endurskoða reglugerðina.

Ráðinn til Sjóvár
Þórir Óskarsson, tryggingastærðfræðingur hefur verið ráðinn til trygginga- og tölfræðigreiningar Sjóvá.

Segir Sjúkratryggingar Íslands ekki komnar inn í þessa öld
Sigurður Hólmar Jóhannesson gagnrýnir að ekki fáist niðurgreiðsla frá Sjúkratryggingum Íslands fyrir mörgum hjálpartækjum sem gætu bætt lífsgæði langveikra og fatlaðra barna til muna.

Landsréttur telur Geymslur ekki skaðabótaskyldar vegna stórbrunans í Garðabæ
Landsréttur hefur sýknað fyrirtækið Geymslur af þremur kröfum um að það bæri skaðabótaábyrgð vegna stórbrunans sem varð í húsnæði fyrirtækisins við Miðhraun í Garðabæ í apríl 2018.

Útilokar að húsið verði rifið á þessu ári
Lögmaður eiganda hússins að Bræðraborgarstíg 1, sem brann í lok júní, segir útilokað að hægt verði að rífa húsið á þessu ári. Ágreiningur sé uppi á milli eiganda og tryggingarfélagsins, sem tryggði húsið, sem þurfi fyrst að leysa úr og það geti tekið ár.

Niðurstöður úttektar á Tryggingastofnun öllum áfall
Úrbóta er þörf til að byggja upp traust á Tryggingastofnun ríkisins eftir niðurstöður nýrrar stjórnsýsluúttektar. Formaður Landssambands eldri borgara segir niðurstöðurnar áfall fyrir alla en athugasemdir sem gerðar voru við störf stofnunarinnar séu í anda gagnrýni sambandsins.

90 prósent lífeyrisþega fengu rangar greiðslur
Ríkisendurskoðun telur að ýmislegt megi betur fara í starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins (TR).

Fær ekki bætur eftir óhapp við brauðbakstur
Tryggingafélagið TM þarf ekki að greiða starfsmanni mötuneyti hjá ótilgreindu félagi á höfuðborgarsvæðinu bætur vegna slyss sem varð þegar starfsmaðurinn var að hnoða deig í stóran brauðhleif.

Vonbrigði að ekki sé gert ráð fyrir niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu
Ekki er gert ráð fyrir niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Vilborg nýr formaður Sjúkratrygginga
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Vilborgu Þ. Hauksdóttur formann Sjúkratrygginga Íslands.

Tryggingagjald lækkað tímabundið
Full endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna átaksins Allir vinna verður framlengd út árið 2021. Þá verður tryggingagjald lækkað tímabundið til loka árs 2021.

Kvika og TM hefja sameiningarviðræður
Stjórnir Kviku Banka og TM hafa samþykkt að hefja formlegar viðræður um sameiningu félaganna.

Ráðinn markaðsstjóri Sjóvár
Jóhann Þórsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri hjá Sjóvá.

Ráðin framkvæmdastjóri hjá Tryggingastofnun
Sigrún Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri á skrifstofu forstjóra Tryggingastofnunar og gegnir hún jafnframt stöðu staðgengils forstjóra.

Framkvæmdastjóri Novis hristir höfuðið yfir tilkynningu Seðlabankans
Framkvæmdastjóri slóvakíska tryggingafélagsins Novis segir alrangt að Seðlabanki Slóvakíu hafi gefið út bann við nýsölu vátrygginga eins og haldið er fram á heimasíðu Seðlabanka Íslands.

Óvissa um stöðu Novis sem tryggir fimm þúsund manns hér á landi
Rúmlega fimm þúsund manns hér á landi ættu að velta fyrir sér tryggingamálum sínum eftir að Seðlabanki Slóvakíu lagði tímabundið bann við nýsölu vátryggingaafurða tryggingafélagsins Novis.

15 milljónir í bætur eftir furðulegt slys á tannlæknastofu
Tryggingafélagið TM mun þurfa að greiða konu 14,8 milljónir í bætur vegna slyss á vinnustað hennar í september árið 2014.

Ráðinn tryggingastærðfræðingur VÍS
Poul Christoffer Thomassen hefur verið ráðinn tryggingastærðfræðingur hjá Vátryggingafélagi Íslands (VÍS).

Tryggingafélög taka Covid inn í áhættumat sitt
Tryggingafélög hafa tekið Covid inn í áhættumat sitt vegna óvissuþátta um hugsanleg langtímaáhrif sjúkdómsins.

Vonast til að VÍS hafi unnið heimavinnuna vel
Forstjóri Persónuverndar kveðst vona að tryggingafélagið VÍS sé vel undirbúið vegna svokallaðs Ökuvísis sem fylgist með aksturslagi viðskiptavina.

Mun friðhelgi einkalífs kosta meira í framtíðinni?
Síðasta föstudag birtist frétt á Vísi um nýjung sem tryggingafélagið VÍS hyggst setja á markað um næstu áramót. Nýjungin er kubbur sem settur er í bíla og er þeim eiginleikum búinn að geta fylgst með akstri bílstjóra, meðal annars hvort þeir keyri of hratt eða séu í símanum undir stýri.

Setur kubb í bílinn, hagar þér vel í umferðinni og færð afslátt af tryggingum
VÍS hyggst bjóða viðskiptavinum fyrirtækisins áhugavert tilboð. Leyfðu okkur að fylgjast með akstrinum, keyrðu sómasamlega og þá lækkum við iðgjöldin þín.

Fær 2,3 milljónir í bætur fyrir „augnabliks aðgæsluleysi“ við gúmmípressu
Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að Gúmmísteypa Þ. Lárussonar ehf. bæri ábyrgð á vinnuslysi starfsmanns sem varð 3. september 2012 og því bæri TM að greiða manninum 2.307.405 krónur í bætur vegna slyssins sem varð til varanlegrar örorku mannsins.

TM hafnar með öllu forsíðufrétt Fréttablaðsins um viðræður um sameiningu
Tryggingamiðstöðin hefur hafnað því að viðræður séu hafnar um mögulega sameiningu TM og Kviku banka líkt og greint er frá í forsíðufrétt Fréttablaðsins í morgun.

Bótakröfu manns sem slasaðist við björgun á slysstað hafnað
Vátryggingafélag Íslands þarf ekki að greiða karlmanni sem slasaðist við að draga við að draga ökumann sem lenti í bílslysi frá bifreiðinni bætur úr ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær.