Grænland
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 14 ›
Vill að Grænlendingar flytji fiskinn út í gegnum Ísland Ísland gæti leikið lykilhlutverk í fiskútflutningi Grænlendinga í framtíðinni. Þetta segir Verner Hammeken, forstjóri Royal Arctic Line, skipafélags landsstjórnar Grænlands. Viðskipti innlent 15.2.2023 13:44
Eldsvoði í Nuuk rannsakaður sem manndráp Lögreglan í Nuuk á Grænlandi hefur til rannsóknar andlát konu sem lét lífið í eldsvoða snemma í morgun. Grunur leikur á að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. Erlent 31.1.2023 22:34
Hvítabirnir á Suðaustur-Grænlandi koma vísindamönnum á óvart Lítill en einangraður stofn hvítabjarna, sem heldur til á Suðaustur-Grænlandi, hefur sýnt einstaka hæfni við að laga sig að breyttum lífsskilyrðum með hverfandi hafís og er auk þess erfðafræðilega frábrugðinn öðrum stofnum. Þetta er niðurstaða alþjóðlegs hóps vísindamanna, sem kallar eftir sérstakri verndun þessa undirstofns. Erlent 17.1.2023 22:50
Grænlensk skip landa loðnu meðan íslenski flotinn bíður Tveir grænlenskir togarar, Tasiilaq og Polar Ammasak, lönduðu loðnu í íslenskum höfnum í gær. Loðnan veiddist úti af Norðausturlandi úr kvóta Grænlendinga innan íslensku lögsögunnar. Viðskipti innlent 17.1.2023 12:00
Hún sagði „já, já“ við óvæntu bónorði íslenska flugstjórans Íslenskur flugstjóri í innanlandsflugi á Grænlandi kom farþegum sínum sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu þegar hann birtist úr stjórnklefanum og bað einn flugfarþegann um að giftast sér. Lífið 2.1.2023 21:42
Íslenski flugstjórinn birtist óvænt og bar fram bónorð Íslenskur flugstjóri Air Greenland í innanlandsflugi frá Kangerlussuaq til Nuuk kom grænlenskri kærustu sinni sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu. Hún hafði enga hugmynd um að hann væri um borð, hvað þá að hann væri að stýra flugvélinni, þegar hann birtist óvænt úr stjórnklefanum, fór í hátalarakerfið og bar fram bónorð. Lífið 2.1.2023 11:55
Risatekjur af Thule-herstöðinni færast til grænlensks fyrirtækis Gríðarlegar tekjur af Thule-herstöðinni á Grænlandi færast á ný í hendur grænlensks fyrirtækis með verktaka- og þjónustusamningi við bandaríska flugherinn. Samningurinn var kynntur um helgina og hljóðar upp á nærri fimmtíu milljarða íslenskra króna á ári. Viðskipti erlent 19.12.2022 21:33
Grænlendingar fagna nýrri Airbus-breiðþotu Grænlendingar fögnuðu í fyrradag komu nýrrar breiðþotu Air Greenland. Þotan tekur yfir þrjúhundruð farþega í sæti og er dýrasti farkostur sem þessi næsta nágrannaþjóð Íslendinga hefur eignast. Erlent 9.12.2022 22:50
Fyrsta flug dýrustu flugvélar Grænlands til heimalandsins Grænlendingar fögnuðu í gær nýrri breiðþotu af gerðinni Airbus A330-800neo. Hún er langstærsta fjárfesting þjóðarflugfélagsins Air Greenland, kostaði yfir 700 milljónir danskra króna, eða yfir fjórtán milljarða íslenskra, að sögn grænlenska ríkismiðilsins KNR. Viðskipti erlent 8.12.2022 18:30
Fjölgun hvala í hafíssleysinu bendi til að vendipunkti hafi verið náð Óvæntur fjöldi langreyða og hnúfubaka í hafinu við Suðaustur-Grænland sem var áður þakið hafís er sagður benda til þess að vendipunkti hafi verið náð í umhverfisskilyrðum og vistkerfum þar. Hafís er nánast horfinn af svæðinu yfir sumarmánuðina. Innlent 6.12.2022 11:41
Grænlendingar breyta klukkunni á næsta ári Klukkunni verður breytt á Grænlandi á næsta ári og verður tekið upp nýtt tímabelti sem kallast UTC-2. Erlent 25.11.2022 07:42
Sterkar vísbendingar um stóran koparfund Amaroq á Grænlandi Nýjar rannsóknir málmleitarfyrirtækisins Amaroq Minerals sviptu hulunni af málmbelti sem ber mjög svipuð einkenni og ein stærsta og verðmætasta koparnáma heims sem er staðsett í Ástralíu. Innherji 23.11.2022 16:51
Kona í fyrsta sinn ráðin forstjóri stærsta fyrirtækis Grænlands Stjórn sjávarútvegsrisans Royal Greenland hefur ráðið nýjan forstjóra. Fyrir valinu varð hin danska Susanne Arfelt Rajamand en hún hefur mikla alþjóðlega reynslu úr matvælageiranum. Viðskipti erlent 23.11.2022 13:18
Dvöldu í svartasta skammdeginu á Grænlandi Hjónin Rósa Sigrún Jónsdóttir og Páll Ásgeir Ásgeirsson opna sýninguna Rörsýn næstkomandi fimmtudag. Rósa Sigrún er myndlistarmaður og Páll Ásgeir rithöfundur og leiðsögumaður en þetta er í fyrsta sinn sem þau opna sýningu saman. Menning 8.11.2022 13:31
Grænlendingar opna fyrsta hluta nýs alþjóðaflugvallar Hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk var opnaður flugumferð í vikunni. Þetta er fyrsti stóri áfanginn sem næst í þeirri miklu flugvallagerð sem Grænlendingar hófu fyrir þremur árum en hún er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga. Erlent 6.11.2022 10:10
Þriðji fíkniefnasmyglarinn látinn á árinu á Grænlandi Karlmaður á sextugsaldri er látinn eftir að hafa reynt að smygla fíkniefnum innvortis til Grænlands. Hann er sá þriðji síðan í júní sem hefur látist af þeim völdum. Erlent 31.10.2022 18:30
Sækir yfir tvo milljarða til íslenskra fjárfesta fyrir skráningu á markað Málmleitarfyrirtækið Amaroq Minerals, sem hefur meðal annars uppi stórtæk áform um gullvinnslu á Grænlandi, hefur klárað hlutafjáraukningu frá breiðum hópi íslenskra fjárfesta og sjóða í lokuðu hlutafjárútboði sem hefur staðið yfir síðustu daga samtímis erfiðum aðstæðum á mörkuðum. Í kjölfarið verður félagið skráð á markað á núverandi ársfjórðungi í Kauphöllinni hér á landi. Innherji 19.10.2022 14:30
Auka samstarfið við Grænland á sjö sviðum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Múte B. Egede, formaður landsstjórnar Grænlands, undirrituðu í dag yfirlýsingu um aukið samstarf landanna tveggja. Í yfirlýsingunni árétta ráðherrarnir vilja sinn til að efla og útvíkka tvíhliða samvinnu. Innlent 13.10.2022 12:52
Vonast til að öryggis- og varnarsamstarf borgi rekstur Kangerlussuaq-flugvallar Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku. Erlent 2.10.2022 11:08
Íslenskir gullgrafarar hafa fundið tíu tonn af gulli Íslenskir gullgrafarar í Grænlandi hafa staðfest mun meira gullmagn í námu sinni en áður hafði fundist. Heildarsöluverðmæti gullsins er nú áttatíu milljarðar króna en forstjórinn er viss um að mun meira gull leynist í námunni. Viðskipti innlent 7.9.2022 11:53
Minnst 27 sentímetra hækkun sjávarmáls óumflýjanleg Búist er við 27 sentímetra hækkun á sjávarmáli að lágmarki vegna yfirvofandi bráðnunar jökulhetta á Grænlandi í kjölfar frekari hlýnunar jarðar. Þessi hækkun er sögð ekki taka til greina bráðnun annarsstaðar í heiminum en sú frá Grænlandi myndi ein valda fyrrnefndri hækkun enda um mikið magn íss að ræða eða 110 billjón tonn. Erlent 29.8.2022 20:08
Skapari grænlenska fánans fallinn frá Grænlenski listamaðurinn og þingmaðurinn fyrrverandi, Thue Christiansen, er látinn, 82 ára að aldri. Christiansen hannaði grænlenska fánann sem samþykktur var árið 1985. Erlent 27.6.2022 14:07
Fimm ára drengur lést af völdum voðaskots á Grænlandi Fimm ára drengur lést af völdum voðaskots í Paamiut á suðvesturströnd Grænlands síðdegis á mánudaginn. Lögregla segir að um hörmulegt slys hafi verið að ræða. Erlent 22.6.2022 07:31
Hans Enoksen lætur af formennsku Grænlenski stjórnmálamaðurinn Hans Enoksen hefur ákveðið að láta af formennsku í flokknum Naleraq. Erlent 21.6.2022 11:18
Drónar nýttir til að flytja lyf og sýni á Grænlandi Grænlensk heilbrigðisyfirvöld í samstarfi við danska sjúkraflutningafyrirtækið Falck hyggjast á næstu mánuðum prófa notkun dróna við að flytja lyf og greiningarsýni milli byggða á Grænlandi. Tilgangur verkefnisins er að kanna hvernig drónar geta styrkt heilbrigðiskerfið á stöðum þar sem innviðir eru áskorun og langt er í næsta sjúkrahús en landið er án vegakerfis. Erlent 19.6.2022 08:58
Binda enda á áratugalangt vinalegt „stríð“ Dönsk og kanadísk stjórnvöld hafa náð samkomulagi sem bindur enda á áratugalangar en góðlátlegar deilur ríkjanna um yfirráð yfir lítilli eyju fyrir norðan Grænland. Þau hafa nú ákveðið að skipta eyjunni til helminga á milli sín. Erlent 14.6.2022 23:52
Fimm milljarða fjárfesting til málmleitar á Grænlandi Nokkrir stærstu auðlinda- og vogunarsjóðir heims munu taka þátt í fimm milljarða króna fjárfestingu í leyfum AEX Gold á Suður-Grænlandi til að leita að og vinna efnahagslega mikilvæga málma, svo sem kopar, nikkel og aðra svokallaða tæknimálma. Viðskipti innlent 10.6.2022 11:51
Danir og Færeyingar semja um sjö milljarða ratsjárstöð NATO Jenis av Rana, utanríkisráðherra Færeyja, og Morten Bødskov, varnarmálaráðherra Danmerkur, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um uppsetningu nýrrar ratsjárstöðvar á Sornfelli í Færeyjum. Yfirlýsingin var undirrituð í Þórshöfn í tengslum við ríkisfund Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, með þeim Bárði á Steig Nielsen, lögmanni Færeyja, og Muté B. Egede, forsætisráðherra Grænlands, sem undirrituðu samstarfsyfirlýsingu þjóðanna um öryggis- og varnarmál. Erlent 9.6.2022 18:59
Segir lykkjumálið á Grænlandi glæpsamlegt Ritari grænlensks stjórnmálaflokks segir reiði og sorg hafa gripið um sig í samfélaginu eftir að í ljós kom að dönsk stjórnvöld hefðu komið lykkjunni fyrir í þúsundum ungra kvenna í landinu. Íslenskur læknir segir málið glæpsamlegt. Innlent 2.6.2022 22:00
Rostungsbein sem enduðu í Kænugarði fyrir þúsund árum fóru líklega um Ísland Ný rannsókn sýnir að rostungstennur, sem fundust í Kænugarði fyrir fimmtán árum, eru komnar úr norrænu byggðinni á Grænlandi og eru frá tímum víkinga. Fornleifafræðingur telur mjög líklegt að Íslendingar hafi komið að verslun með grænlensk rostungabein. Innlent 24.5.2022 22:40