Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 31. janúar 2026 10:41 Sara hefur nýtt sér stuðning Krafts og segir það hafa skipt sköpum. Samsett „Lífið fór allt saman á hliðina í smá stund. Það var augljóslega ekki planið að fá bæði þessi risastóru verkefni í hendurnar á sama tíma,” segir Sara Ísabella Guðmundsdóttir en hún greindist með Hodgins-eitilfrumukrabbamein síðasta sumar, einungis fimm vikum eftir að frumburður hennar kom í heiminn. Hún þurfti þar af leiðandi að ganga í gegnum stífa lyfjameðferð á sama tíma og hún var að stíga sín fyrstu skref í móðurhlutverkinu.
Sara er ein þeirra sem segja sögu sína í tengslum við árlega vitundarvakningu Krafts „Lífið er núna.“ Í ár er átakið helgað „Lífið er núna“-armbandinu en á heimasíðu átaksins segir: Sýnum Kraft í verki, kaupum armbandið og berum það með stolti, stuðningurinn skiptir máli. Þú getur líka gerst Kraftsvinur með mánaðarlegu framlagi eða stökum styrk. Perlað af krafti er eitt stærsta samfélagslega verkefni landsins. Það er mikilvægt að halda merkjum félagsins á lofti og á sama tíma er þetta ein helsta fjáröflun félagsins. Armbandið segir meira en þúsund orð. Það sýnir samstöðu í verki að bæði perla og bera armbandið og er vettvangur fyrir öll að taka þátt. Um 90 ungir einstaklingar á aldrinum 18-40 ára greinast á ári hverju og hefur það bæði áhrif á þau greindu sem og fjölskyldu og ástvini þeirra. Kraftur styður við bakið á þeim með þinni hjálp. Sara hefur nýtt sér stuðning Krafts og segir það hafa skipt sköpum. Hún nefnir til að mynda fjárhagslegan stuðning, en þökk sé svokölluðu lyfjakorti á vegum Krafts þá eru öll lyf niðurgreidd meðan á krabbameinsmeðferð stendur. Sara segir að móðurhlutverkið hafi gefið henni óvæntan styrk.Aðsend „Og það skiptir bara ótrúlega miklu máli, vegna þess að það er svakalega mikill falinn kostnaður. Jafningjastuðningurinn innan Krafts er líka magnaður, af því að það er svo ómetanlegt að vita af öðrum sem hafa gengið í gegnum það sama og maður sjálfur. Að geta hitt aðra sem eru kannski búnir að ganga í gegnum krabbameinsmeðferð og eru hraustir og sterkir, og fá mann til að trúa því að allt verði í lagi og að lífið sé ekki búið þó að maður fái þessa greiningu. Það er líka svo dýrmætt að geta farið á þennan stað þar sem það er ekkert mál að tala bara um þetta, tala um krabbamein og allt sem fylgir því; það er ekki talað um það eins og það sé eitthvað „big deal“ eða einhver dauðadómur.” Þann 23. janúar síðastliðinn var stórum áfanga náð. Þá fór Sara í seinustu lyfjagjöfina og var með „útskrifuð.“ Og það var nokkuð táknrænt að akkúrat sama dag fór herferð Krafts í gang. „Þetta var mjög sérstakur og góður dagur segir Sara; nánasta fólkið mitt kom hingað heim, við vorum með brauð og bakkelsi og opnuðum svo eina kampavínsflösku. Það var búið að vera planið síðan ég fékk greininguna, að opna kampavín þegar meðferðin væri búin.“ Sara lítur björtum augum fram á veginn í dag. Hún getur nú loksins leyft sér að njóta lífsins, njóta móðurhlutverksins og gera plön. Sara lauk lyfjameðferð fyrir rúmri viku og er bjartsýn á framhaldið.Aðsend Líkt og fyrr segir þá er átak Krafts í ár helgað Lífið er núna armbandinu. Og það vill svo til að Edda Björgvinsdóttir leikkona, og amma Söru, er verndari armbandsins. Amma Söru, Edda Björgvinsdóttir er vernandi Lífið er núna armbandsins - og ber það nafn með rentu.Aðsend „Mér finnst það svo geggjað og yndislegt. Enda er amma sannkallaður verndari, hún er verndari minn, og verndari allra í fjölskyldunni. Fyrir utan það að hún er besta amma og langamma sem til er í heiminum! Hún og litla mín eiga einstök tengsl.”
Krabbamein Helgarviðtal Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Fleiri fréttir Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Sjá meira