Björgunarsveitir
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 45 ›
250 manna flugslysaæfing á Akureyri Fjölmargir tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Akureyrarflugvelli í gær. Líkt var eftir því að farþegaflugvél hafi bilað og rekist á aðra vél á flugbrautinni. Innlent 16.10.2022 10:24
Ung hetja kom í veg fyrir að fleiri létust í harmleiknum á Ólafsfirði Telja má líklegt að rúmlega tvítugur karlmaður hafi komið í veg fyrir að karlmanni á fertugsaldri blæddi út af sárum sem hann hlaut í heimahúsi á Ólafsfirði fyrir viku. Karlmaðurinn ungi var fyrir tilviljun á rúntinum með vinkonu sinni umrædda nótt þegar óskað var eftir aðstoð hans. Innlent 10.10.2022 14:01
Minna álag sé samvinnufúsum almenningi og góðum undirbúningi að þakka Verkefnastjóri aðgerðamála hjá Landsbjörg segir góðan undirbúning almannavarna og samvinnufúsan almenning hafa stuðlað að því að verkefni björgunarsveita voru færri en ráð hafði verið gert fyrir vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gær og í nótt en þau voru þrjátíu talsins. Veðurfræðingur segir veðurspár hafa ræst að mestu. Innlent 10.10.2022 11:53
Komu í veg fyrir tjón á Djúpavogi Lögreglan á Austurlandi og björgunarsveitir fóru í útkall á Djúpavogi í gær þar sem stefndi í skemmdir á íbúðarhúsnæði sökum foks. Málið var afgreitt hratt og vel og náðist að koma í veg fyrir tjón. Innlent 10.10.2022 09:59
Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu vegna hættustigs Björgunarsveitir um allt land eru í viðbragðsstöðu vegna óveðurs sem búist er við að verði á morgun. Rauð viðvörun tekur gildi á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi á morgun og standa fram á næstu nótt. Innlent 8.10.2022 16:33
Komu ökumanni sem sat fastur í Krossá til bjargar Skálaverðir og björgunarsveitarmenn komu ökumanni til bjargar í morgun þegar bíll hans festist í Krossá í Þórsmörk. Þyrla Landhelgisgæslunnar var í æfingarflugi á svæðinu en ekki reyndist þörf á aðstoð þeirra. Innlent 7.10.2022 12:04
Grettir Sterki mættur til Stykkishólms Dráttarbáturinn Grettir Sterki er kominn til Stykkishólms. Báturinn er í leigu hjá Vegagerðinni, Sæferðum og Stykkishólmsbæ en Sæferðir sjá um að manna bátinn. Innlent 4.10.2022 12:23
Segir útgerðina hafa verið trega til að styrkja björgunarskipakaupin Guðni Grímsson, formaður björgunarbátasjóðas Vestmannaeyja, segir að erfitt hafi reynst að fá fjármagn frá útgerðinni til að styrkja kaup á nýjum björgunarskipum, jafnvel þótt hún eigi mikið undir. Innlent 3.10.2022 07:11
Eyjamenn tóku vel á móti Þór Nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar var afhent Vestmannaeyingum við hátíðlega athöfn í dag. Innlent 1.10.2022 21:04
Ískyggilegar aðstæður á slysaæfingu Mörgum brá ef til vill í brún vegna elds og mikils viðbúnaðar á Reykjavíkurflugvelli í morgun. Þar var verið að halda stórslysaæfingu á vegum Isavia og almannavarna þar sem æfð voru viðbrögð við umfangsmiklu flugslysi. Hér í innslaginu að ofan má virða fyrir sér aðstæður á „slysstað.“ Innlent 1.10.2022 19:36
Nýtt björgunarskip styttir viðbragðshraða um helming Nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar kom til hafnar í Reykjavík í morgun. Um er að ræða fyrsta skipið af þremur sem Landsbjörg hefur fest kaup á en með komu þeirra styttist viðbragðstími björgunarsveita á sjó um helming. Innlent 29.9.2022 13:07
Leit að stúlku í Vesturbæ Fjölmargir björgunarsveitarmenn hafa í samstarfi við lögreglu leitað að unglingsstúlku í Vesturbæ frá því klukkan ellefu í kvöld. Innlent 27.9.2022 00:45
Röð óheppilegra atvika leiddi til rafmagnsleysis á hálfu landinu Gríðarlegt eignatjón varð í fyrstu haustlægð þessa árs sérstaklega austanlands þar sem veðrið var verst. Tré rifnuðu upp með rótum, rúður sprungu og heilu þökin fuku af. Þá varð rafmagnslaust á hálfu landinu eftir röð óheppilegra atvika. Innlent 26.9.2022 11:54
Róleg nótt hjá björgunarsveitunum miðað við nóttina þar á undan Björgunarsveitir sinntu einhverjum minniháttar verkefnum í nótt en þó ekkert í samanburði við aðfaranótt sunnudags. Björgun ferðamanna í Möðrudalsöræfum, vatnstjón á Akureyri og foktjón á Austfjörðum voru meðal helstu verkefna. Innlent 26.9.2022 08:33
„Þetta var eins og það gerist verst“ Búið er að koma öllum þeim ferðamönnum sem fastir voru á Möðrudalsöræfum í öruggt skjól. Rúmlega sjötíu erlendir ferðamenn leituðu skjóls í Fjalladýrð í Möðrudal. Staðarhaldarinn þar segir að veðrið á svæðinu hafi verið mun verra en veðurspár sögðu til um. Innlent 25.9.2022 21:33
Fyrsta haustlægðin skall með krafti á landið Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast í dag við að bjarga ferðamönnum sem sátu fastir í bílum sínum í veðurofsanum. Rúður hafa brotnað í bílum og tré rifnað upp frá rótum. Það flæddi yfir götur og inn í hús á Akureyri og á stórum hluta landsins varð rafmagnslaust í dag. Innlent 25.9.2022 19:28
Fjölmargir ferðamenn fastir í Mývatnsöræfum Fjöldi ferðamanna situr fastur í bílum sínum í Mývatnsöræfum. Talið er að bílarnir séu 20 til 30 talsins og björgunarsveitir vinna að því að ferja fólkið í öruggt skjól. Um 30 metrar á sekúndu eru á svæðinu og slydda - og skyggni slæmt. Innlent 25.9.2022 16:05
„Veðurspáin lítur ekki vel út“ Rauð viðvörun vegna veðurs hefur nú tekið gildi á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir ofsaveðri með vindhviðum allt að 45 metrum á sekúndu. Hættustig almannavarna hefur verið virkjað og björgunarsveitir fyrir austan eru í viðbragðsstöðu. Almannavarnir hafa biðlað til almennings um að hjálpa þeim að koma skilaboðum um hið slæma veður til ferðamanna. Veður 25.9.2022 13:27
Mikið hvassviðri og alls konar foktjón Mikið hvassviðri var á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að sögn lögreglu fuku hlutir í öllum hverfum, þar á meðal þakplötur, girðingar og fellihýsi. Veður versnar með deginum á austfjörðum þar sem rauð viðvörun er í gildi. Innlent 25.9.2022 08:25
Létu eins og flugvél með 29 innanborðs hefði farist Um 200 manns tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Ísafjarðarflugvelli laugardaginn 24. september. Þar voru æfð viðbrögð við flugslysi á eða við flugvöllinn. Innlent 24.9.2022 22:09
Trampólínin á leiðinni inn og vetrardekkin á leið undir björgunarsveitarjeppana Björgunarsveitir á Austurlandi eru byrjaðir á að undirbúa sig undir ofsaveður sem von er á á morgun. Trampólínum í görðum hefur snarfækkað í dag, að minnsta kosti í Neskaupstað. Innlent 24.9.2022 19:59
Sóttu slasaðan göngumann á Esjuna Óskað var eftir aðstoð Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu vegna slasaðs göngumanns á Esjunni á áttunda tímanum í kvöld. Talið er að göngumaðurinn hafi ökklabrotnað. Innlent 11.9.2022 20:44
Landverðir taki við af björgunarsveitum Lítil virkni er á Reykjanesskaga og gosórói mælist ekki lengur en samkvæmt almannavörnum hætta björgunarsveitir nú gæslustörfum á svæðinu. Innlent 1.9.2022 22:32
Kölluð út vegna örmagna hjólareiðamanns á Kili Björgunarsveit á Blönduósi var í morgun kölluð út vegna örmagna reiðhjólamanns sem hafði leitað skjóls í hesthúsi við skálann Áfanga sem er við Kjalveg. Innlent 26.8.2022 10:46
Brugðust skjótt við neyðarkalli frá fiskibát við Reykjanesbæ Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra lítils fiskibáts sem sendi út neyðarkall laust eftir klukkan níu í morgun. Báturinn var þá vélarvana rétt utan við Keflavík og var við það að reka upp í bergið í norður af smábátahöfninni í Reykjanesbæ, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Innlent 26.8.2022 09:56
Vélarvana skemmtibát rak að landi Björgunarsveitir á suðvesturhorni landsins voru með mikinn viðbúnað fyrr í kvöld vegna vélarvana skemmtibáts sem rak að landi. Báturinn var á reki austan við Atlagerðistanga við Voga á Vatnsleysuströnd. Innlent 23.8.2022 22:48
Þyrlan kölluð út þegar eldur kom upp í togbáti úti fyrir Patreksfirði Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum voru kallaðar út í kvöld þegar eldur kom upp í vélarrúmi togbáts sem var staddur úti fyrir Patreksfirði. Innlent 22.8.2022 22:47
Erilsöm helgi hjá björgunarsveitum: Koma örmagna göngukonu við Kattarhryggi til bjargar Töluverður erill hefur verið hjá björgunarsveitum um helgina. Björgunarsveitarfólk veitir nú örmagna göngukonu hjálp á Kattarhryggjum í Þórsmörk. Innlent 21.8.2022 22:45
Tæplega hundrað fluttir af gossvæðinu vegna meiðsla eftir að eldgos hófst Gosórói mælist minni en áður við Meradali og hraunrennsli sömuleiðis. Það nemur nú um fjórum rúmmetrum á sekúndu. Nýtt hraun hefur haldist innan Meradala en gæti með tímanum farið yfir slóða sem viðbragðsaðilar hafa notað til að komast á gosstöðvarnar. Innlent 20.8.2022 08:21
Gossvæðið opið í dag Opið verður fyrir ferðamenn að ganga í átt að eldgosinu í Meradölum í dag. Gossvæðinu var lokað í gær en lokunaraðgerðir gengu vel samkvæmt viðbragðsaðilum. Innlent 18.8.2022 10:17