Bretland
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 129 ›
Róstursamt á breska þinginu og þingmönnum hent út Róstursamt var á breska þinginu í dag og hart sótt að fráfarandi forsætisráðherra. Þingforseti lét henda tveimur þingmönnum skorska aðskilnaðarflokksins Alba út úr þingsalnum. Sex eru eftir í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins eftir fyrstu umferð í dag. Erlent 13.7.2022 19:21
Rishi Sunak vann í fyrstu umferðinni Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, sigraði í fyrstu umferð leiðtogakosninga breska Íhaldsflokksins í dag. Alls buðu átta manns sig fram og féllu tveir úr keppni. Erlent 13.7.2022 17:52
Leikmaðurinn sem ásakaður er um nauðgun fær áfram að æfa Félag leikmannsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem ásakaður er um þrjár nauðganir segir að leikmaðurinn muni áfram æfa með liðinu. Enski boltinn 13.7.2022 14:07
Átta í framboði í leiðtogakjörinu sem hefst í dag Leiðtogakjör breska íhaldsflokksins hefst um hádegisbil í dag en átta eru í framboði sem vilja taka við stjórnartaumunum í flokknum af Boris Johnson. Erlent 13.7.2022 06:43
Ísland heldur áfram að heilla ferðamenn upp úr skónum: „Þetta er yndislegur staður, alveg yndislegur“ Ferðamenn streyma nú til landsins eftir kórónuveirufaraldurinn. Fréttastofa náði tali af nokkrum þeirra en íslenska náttúran virtist heilla þá hvað mest. Allir voru sammála um að vilja koma aftur, sumir fyrr en aðrir. Innlent 12.7.2022 23:22
Kviknað í bar við Trafalgar-torg Eldur logar á barnum The Admiralty við Trafalgar-torg í London. Alls reyna 125 slökkviliðsmenn nú að slökkva eldinn. Erlent 12.7.2022 21:20
Heathrow-flugvöllur setur takmörk á fjölda farþega Heathrow-flugvöllur hefur sett hámark á þann fjölda farþega sem flýgur frá vellinum næstu þrjá mánuði. Af því tilefni hafa stjórnendur flugvallarins sagt flugfélögum að hætta að selja sumarmiða. Fari fjöldi daglegra farþega fram úr 100 þúsund gæti þurft að aflýsa einhverjum flugum. Erlent 12.7.2022 17:03
Útbreiðsla apabólu í Bretlandi tvöfaldist á tveggja vikna fresti Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi segja 1.735 tilfelli af apabólu nú hafa verið staðfest þar í landi. Þar af hafi 75 prósent tilfellanna greinst í Lundúnum. Vísindamenn segja engin merki þess að faraldur apabólu sé í hnignun á Bretlandi og telja þeir útbreiðslu faraldursins tvöfaldast á tveggja vikna fresti. Erlent 12.7.2022 15:22
Íkornum verði útrýmt með getnaðarvörnum Áætlun um að nota getnaðarvarnir til að ná stjórn á íbúafjölda gráíkorna á Stóra-Bretlandi miðar vel áfram og gæti hafist innan skamms. Markmið áætlunarinnar er að útrýma gráíkornum landsins án þess að drepa þá en gráíkornar eru mikil plága og hafa valdið miklum skaða á vistkerfum og stofni rauðíkorna þar í landi. Erlent 12.7.2022 11:25
Liðsmenn sérsveita breska hersins sakaðir um skipulögð morð á Afgönum Liðsmenn sérsveita breska hersins (SAS) drápu ítrekað óvopnaða menn sem þeir höfðu handsamað í aðgerðum í Afganistan, ef marka má niðurstöður rannsóknarvinnu BBC. Þá virðast yfirmenn í hernum hafa þaggað málið niður . Erlent 12.7.2022 11:01
Breyta kosningareglunum fyrir leiðtogakjörið Nýr leiðtogi breska Íhaldsflokksins verður kynntur til leiks þann 5. september næst komandi. Þetta var tilkynnt í gærkvöldi af 1922 nefndinni svo kölluðu sem sér um kjörið. Erlent 12.7.2022 07:01
Mo Farah var seldur í mansal sem barn Langhlauparinn Sir Mo Farah var seldur í mansal sem barn en hann kom til Bretlands frá Sómalíu þegar hann var einungis níu ára gamall. Hann var látinn gera húsverk hjá fjölskyldu í Bretlandi og fékk ekki að fara í skóla fyrstu þrjú árin. Erlent 11.7.2022 23:52
Nýr forsætisráðherra þann 5. september Nýr forsætisráðherra mun taka við í Bretlandi þann 5. september. Rétt í þessu var tilkynnt að leiðtogakjör Íhaldsflokksins fari fram þann dag en sigurvegarinn þar mun taka við af Boris Johnson sem sagði af sér sem leiðtogi í síðustu viku. Erlent 11.7.2022 20:07
Höfundur James Bond-stefsins er látinn Monty Norman, höfundur James Bond-stefsins, er látinn 94 ára að aldri. Hann lést í dag eftir skömm veikindi samkvæmt tilkynningu á vefsíðu hans. Lífið 11.7.2022 17:49
Johnson segist ekki vilja gera neinum það að lýsa yfir stuðningi við hann „Ég vil ekki eyðileggja fyrir neinum með því að veita honum stuðning minn,“ sagði Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þegar hann var spurður að því hvort hann hygðist lýsa yfir stuðningi við einhvern þeirra einstaklinga sem sækist eftir því að verða næsti leiðtogi Íhaldsflokksins. Erlent 11.7.2022 11:45
Kona lést í slysinu við EM-torgið Kona á sextugsaldri er látin eftir að strætisvagni var ekið á biðskýli við Piccadilly Gardens í Manchester á Englandi í gærkvöldi. Fyrr í gær var mikill fjöldi Íslendinga á svæðinu á svökölluðu EM-torgi vegna leiks íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu gegn því belgíska. Erlent 11.7.2022 08:44
Liz Truss staðfestir framboð sitt Liz Truss, utanríkisráðherra Bretlands, hefur staðfest að hún ætli að gefa kost á sér í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins sem fram fer á næstu mánuðum. Hún var einn stuðningsmanna Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þegar hann var kjörinn leiðtogi flokksins árið 2019. Erlent 10.7.2022 23:12
Mikill viðbúnaður við EM-torgið í Manchester eftir alvarlegt slys Nokkrir sjúkrabílar og lögreglubílar eru nú við EM-torgið nærri Piccadilly Gardens í Manchester. Samkvæmt vitnum keyrði strætisvagn á strætóskýli þar sem að minnsta kosti fjórir einstaklingar voru. Erlent 10.7.2022 22:13
Djokovic vann Wimbledon í sjöunda skipti á ferlinum Serbinn Novak Djokovic varð í dag Wimbledon-meistari í tennis karla en hann lagði Ástralan Nick Kyrgios að velli í úrsltaleik mótsins. Sport 10.7.2022 16:20
Mordaunt vill verða arftaki Boris Johnson Penny Mordaunt, viðskiptaráðherra Bretlands hefur tilkynnt framboð sitt til leiðtogasætis breska Íhaldsflokksins. Erlent 10.7.2022 09:39
Wallace ætlar ekki að bjóða sig fram Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, ætlar ekki að bjóða sig fram til leiðtogaembættis Íhaldsflokksins. Hann greinir sjálfur frá þessu á Twitter-síðu sinni. Erlent 9.7.2022 12:15
„Pútín mun ekki gráta það að hann sé farinn“ Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands lýsti því yfir í dag að hann sæktist eftir að verða næsti leiðtogi Íhaldsflokksins og þar með forsætisráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þekkir vel til innan Íhaldsflokksins, telur líklegt að annað hvort Sunak eða Liz Truss utanríkisráðherra hafi sigur í leiðtogakjöri. Innlent 8.7.2022 18:01
Rishi Sunak tilkynnir um framboð sitt með tilfinningaþrungnu myndbandi Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra í ríkisstjórn Borisar Johnson, tilkynnti á fjórða tímanum að hann hygðist bjóða sig fram sem næsti leiðtogi Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Fréttir 8.7.2022 16:33
Fullyrða að félagið hafi vitað af ásökunum um nauðgun síðasta haust Samkvæmt fréttamiðlinum The Guardian mun félag knattspyrnukappans sem var handtekinn vegna gruns um nauðgun hafa vitað af ásökunum síðasta haust. Félagið leyfði honum samt sem áður að spila með aðalliði þess á síðustu leiktíð. Enski boltinn 8.7.2022 11:58
Nýr leiðtogi Íhaldsflokksins í fyrsta lagi kjörinn eftir sex vikur Nýr leiðtogi breska Íhaldsflokksins verður í fyrsta lagi kjörinn eftir sex til sjö vikur en kjörið gæti dregist fram á haustið. Ben Wallace varnarmálaráðherra þykir líklegasti arftaki Borisar Johnson en fleiri þykja þó sigurstranglegir. Wallace segir Úkraínu ekki þurfa að óttast að Bretar láti af stuðningi sínum. Erlent 8.7.2022 11:42
Harry prins vann meiðyrðamál Harry Bretaprins lagði útgefanda Daily Mail í meiðyrðamáli sem hann höfðaði eftir að grein í The Mail on Sunday um meinta yfirhylmingu prinsins á deilum hans við krúnuna var birt. Erlent 8.7.2022 11:17
Leitin að nýjum leiðtoga hafin en Íhaldsflokkurinn áfram í sterkri stöðu Boris Johnson hefur ákveðið að segja af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins en mun gegna embætti forsætisráðherra þar til nýr leiðtogi hefur verið valinn. Prófessor í stjórnmálafræði segir ekki augljóst á þessari stundu hver muni taka við. Þrátt fyrir mótmæli Verkamannaflokksins virðist ekkert benda til að flokkurinn komi illa út, sem sýni fram á styrk hans. Erlent 7.7.2022 19:44
Líklegustu arftakar Johnson Fjöldi fólks vill verða næsti leiðtogi Íhaldflokksins í Bretlandi en leiðtogi þeirra, Boris Johnson, sagði af sér í dag. Nýr leiðtogi mun taka við sem forsætisráðherra í október á þessu ári. Erlent 7.7.2022 15:27
Leiðtogi Verkamannaflokksins vill Johnson burt strax Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands sagði af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins nú skömmu fyrir hádegi en ætlar að gegna embætti forsætisráðherra fram á haust. Leiðtogi Verkamannaflokksins segir óásættanlegt að Johnson hverfi ekki úr embætti forsætisráðherra nú þegar. Verkamannaflokkurinn muni leggja fram vantrauststillögu losi Íhaldsflokkurinn sig ekki við Johnson. Erlent 7.7.2022 12:45
Boris Johnson segir af sér Boris Johnson hefur sagt af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins í Bretlandi. Boris mun þó starfa áfram sem forsætisráðherra Bretlands þar til í október þegar nýr leiðtogi verður kjörinn á landsfundi. Erlent 7.7.2022 11:32