Bretland

Helgi hlúði að slösuðum í nótt
Helgi Jóhannsson, svæfingarlæknir á St. Mary's-sjúkrahúsinu, var ræstur út í nótt til að hlúa að íbúum Grenfell Tower sem brann í nótt.

Bruninn í London: Maður greip ungabarn sem sleppt var frá tíundu hæð
Ótrúlegar sögur berast nú frá Norður-Kensington í London þar sem mikill bruni kom upp í Grenfell Tower í nótt.

Hjúkrunarfræðingur á vettvangi: „Ég vona að ég muni aldrei sjá neitt þessu líkt aftur“
Hjúkrunarfræðingurinn Simone Williams var á göngu nærri Grenfell Tower þegar hún heyrði sírenuvæl.

Iceland sendir sendinefnd til Íslands til að leysa nafnadeiluna
Vilja finna sameiginlega lausn á deilunni.

Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Jo Cox
Dómstóll í Bretlandi hefur dæmt hinn 53 ára Thomas Mair fyrir morðið á þingkonu breska Verkamannaflokksins í júní síðastliðinn.

Forfaðir Donalds Trump hét Þormóður Ljótsson
Móðir Trump var fædd og uppalin á bænum Tungu í Ljóðhúsum á Suðureyjum.

Bretar ganga að kjörborðinu í dag
Kosið verður um úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu í dag. Hart var barist á lokametrum kosningabaráttunnar og hamrað var á málstaðnum. Afar lítill munur mælist í skoðanakönnunum en skoðanakannanir í Bretlandi hafa ekki reynst áreiðanlegar.

Samnefnarinn er hatur
Breska þingkonan Jo Cox var myrt í hroðalegri árás 16. júní síðastliðinn og nokkrum dögum fyrr féll fjöldi fólks í skelfilegri skotárás í Orlando. Við hrökkvum við, fellum jafnvel tár, og hristum hausinn yfir grimmd og ósanngirni.

Þúsundir komu saman á Trafalgar-torgi til að minnast Jo Cox
Þúsundir Breta tóku þátt í minningarathöfn um þingkonuna Jo Cox á Trafalgar-torgi í Lundúnum í dag sem hefði verið afmælisdagur hennar.

Að fara eða vera
Efasemdir um Evrópusamvinnu hafa lengi verið uppi í bresku samfélagi og hafa magnast síðustu misseri með vandræðum sambandsins og evrusvæðisins, en ekki síst í kjölfar flóttamannastraumsins til Evrópu.

Fyrrverandi ráðherra skiptir um lið
Fyrsti músliminn sem varð ráðherra í Bretlandi segir aðskilnaðarsinna þagga niður í hófsemisröddum. Sagði sig úr útgöngusamtökunum Vote Leave. Nigel Farage segir Remain nýta morðið á þingmanni í pólitískum tilgangi.

Með verri vitund
Umheimurinn fylgist skelkaður með framgangi Donalds Trump í bandarísku forsetakosningunum. Það er ein af ráðgátum seinni tíma hversu vel honum hefur vegnað og gefur ekki ástæðu til bjartsýni um stjórnmálaþróun næstu ára.

Baráttan um Brexit hafin á ný í Bretlandi
Slagnum ver frestað eftir að Jo Cox var myrt. Fylkingarnar virðast jafnstórar sem vilja úr og vera í ESB.

Morðingi Cox mætti fyrir dóm: „Dauði til föðurlandssvikara, frelsi fyrir Bretland“
Breskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir morðið á þingkonuninni Jo Cox, sem vakið hefur mikinn óhug innan sem utan Bretlands í vikunni.

Morðingi Cox sagður tengjast bandarískum nýnasistum
Lögregluþjónar sem sérhæfi sig í rannsóknum hryðjuverka aðstoða við rannsókn málsins, en morðið er talið vera einangrað atvik.

Þingkona skotin á Englandi
Jo Cox, þingkona Verkamannaflokksins, er látin eftir árás manns á götum Birstall.

Dalglish um Hillsborough: Stuðningsmennirnir fengu algjöra uppreisn æru
Þeir 96 sem fórust í Hillsborough-slysinu létust af völdum vanrækslu lögreglunnar.

Ábyrgðin var ekki hjá fótboltaaðdáendunum
Harmleikurinn á Hillsborough-leikvanginum í Sheffield árið 1989, þegar 96 manns tróðust undir og hundruð urðu fyrir meiðslum, var ekki brjáluðum fótboltabullum að kenna. Niðurstöður rannsóknar á slysinu voru birtar í gær.

Loksins réttlæti fyrir hina 96: Stuðningsmenn Liverpool sýknaðir
South Yorkshire ber ábyrgð á ólögmætum dauðsföllum 96 stuðningsmanna Liverpool í Hillsborough-slysinu í apríl 1989.

Liverpool minnist 96 fórnarlamba Hillsborough-harmleiksins í dag
Fyrir 27 árum, 15. apríl 1989, gerðist hryllilegur atburður á Hillsborough-leikvanginum í Sheffield í Englandi þegar Liverpool og Nottingham Forrest léku þar í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar.

Keltnesk áhrif vanmetin í menningu Íslendinga
Keltnesk áhrif í íslenskri menningu eru mun meiri en menn hafa séð eða viljað vera láta, eins og í örnefnum og tungumálinu.

Hinna 96 verður minnst í síðasta sinn á Anfield í apríl
Fórnarlamba Hillsborough hefur verið minnst nánast árlega frá slysinu hræðilega fyrir 27 árum.

Lögreglumaður viðurkennir sök sína í Hillsborough-málinu
Segir að aðgerðir sínar hafi valdið dauða þeirra 96 sem létust í Hillsborough-slysinu árið 1989.

Bretadrottning nú elsti núlifandi þjóðhöfðinginn
Abdullah, konungur Sádi-Arabíu, lést í gær.

Morðingi James Bulger laus í annað sinn
Jon Venables hefur setið inni síðan árið 2010 eftir að barnaklám fannst í tölvunni hans.

Kallar Thatcher gamla norn
Óhætt er að segja að Margrétar Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sé minnst með ólíkum hætti. Íþróttastjörnur Breta hafa tjáð sig og eru skiptar skoðanir um Thatcher sem lést í gær 87 ára gömul.

Morðingi Bulger „enn hættulegur"
Móðir James Bulger telur þá sem fremja alvarlega glæpi þurfa þyngri refsingar. Tuttugu ár eru liðin frá því tveggja ára sonur hennar var myrtur í Liverpool á Englandi.

Ekki stuðningsmönnum Liverpool að kenna
Það urðu vatnaskil í Hillsborough-málinu svokallaða í dag þegar David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, bað aðstandendur þeirra 96 fórnarlamba Hillsborough-slyssins opinberlega afsökunar fyrir hönd ríkisins.

Konur mótmæla í Bretlandi vegna brjóstapúða
Sextíu konur mótmæltu fyrir utan lýtalækningafyrirtækið, The Harley Medical Group, í Lundúnum í dag vegna þess að fyrirtækið neitar að skipta um brjóstapúða kvennanna.

Scotland Yard rannsakar tengsl Breivik við erlenda öfgahópa
Sérsveit innan Scotland Yard sem sérhæfir sig í baráttu við hryðjuverkamenn rannsakar nú möguleg tengsl norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik við erlenda öfgahópa.