Japan

Vill að Japanir hætti nýtingu kjarnorku
Nýr umhverfisráðherra Japans vill að kjarnaofnum landsins verði lokað til að koma megi í veg fyrir að stórslys á borð við það sem varð í Fukushima árið 2011 endurtaki sig.

Munu þurfa að losa geislavirkt vatn frá Fukushima út í Kyrrahafið
Yoshiaki Harada, umhverfisráðherra Japans, segir að umsjónaraðili kjarnorkuversins í Fukushima, sem eyðilagðist í kjölfar jarðskjálfta og flóðbylgju árið 2011, muni innan þriggja ára þurfa að losa geislavirkt vatn út í Kyrrahafið.

Mikil röskun á samgöngum í Tókýó vegna fellibylsins Faxai
Rúmlega 900 þúsund heimili í Japan eru nú án rafmagns eftir að fellibylurinn Faxai skall á Japan í grennd við stórborgina Tókýó.

Stór samningur Japans og Bandaríkjanna
Bandaríkjamenn og Japanir hafa náð samkomulagi um stóran viðskiptasamning um landbúnaðarafurðir. Leysir þetta bæði efnahagsleg vandamál beggja ríkja og styrkir samstöðu ríkjanna í viðskiptastríðinu gegn Kína.

Notaðar snyrtivörur seljast vel í Japan
Það er vöxtur í sölu á notuðum snyrtivörum í Japan. Þeim getur fylgt óþrifnaður, en margir ungir Japanir eru tilbúnir að sætta sig við það til að spara pening og fá aðgang að fínustu merkjunum.

Einn látinn í óveðri í Japan
Einn er látinn eftir að stormurinn Krosa náði landi í Japan í gær. Þá hafa 49 til viðbótar slasast vegna áhrifa óveðursins.

Dæmdar úr keppni fyrir að leiða hvora aðra í mark
Jessica Learmonth og Georgia Taylor-Brown komu fyrstar í mark í þríþrautarmóti í Tókýó í Japan en þær fengu þó ekki fyrstu verðlaun heldur voru þær báðar dæmdar úr keppni.

Brosandi Öskubuskan vann óvæntan sigur á Opna breska
Hinako Shibuno vann sigur á Opna breska meistaramótinu sem var fyrsta mótið sem hún keppir á utan Japans.

Suður-Kórea ekki lengur á „hvítum lista“ Japans
Japan hefur ákveðið að fjarlægja Suður-Kóreu af lista sínum yfir viðskiptafélaga sem er treystandi.

Fagna ósættinu
Einræðisstjórn Norður-Kóreu sem á afleitt samband við bæði Suður-Kóreu og Japan virðist ánægð með deilur ríkjanna tveggja.

Störfum líklega fækkað um 12.500 í niðurskurði Nissan
Mikils niðurskurðar er að vænta hjá bílaframleiðandanum Nissan en talið er að störf um 12.500 manns séu í hættu. Uppgjör eftir fyrsta ársfjórðung leit illa út og ekki er útlit fyrir að hagur Nissan vænkist nokkuð á næstunni

Eitt ár í Ólympíuleikana í Tókýó: Svona líta endurunnu verðlaunapeningarnir út
Sumarólympíuleikarnir 2020 eða 32. Ólympíuleikarnir frá upphafi munu fara fram í Tókýó í Japan frá 24. júlí til 9. ágúst á næsta ári. Í dag er því nákvæmlega eitt ár þar til að leikarnir hefjast.

Rússar harma að hafa rofið lofthelgi Suður-Kóreu
Suður-kóresk stjórnvöld segja að rússneski herinn hafi sagt tæknilegan galla hafa valdið því að herflugvél rauf lofthelgina í gær.

Róbert Wessman í stjórn japansks lyfjafyrirtækis
Róbert Wessman, forstjóri Alvogen og stjórnarformaður Alvotech, var í vikunni kjörinn í stjórn japanska lyfjafyrirtækisins Fuji Pharma en japanska fyrirtækið á 4,2% hlut í Alvotech. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alvogen.

Shinzo Abe markar spor sín í söguna eftir annan kosningasigur
Markmið flokksins var að ná samtals 85 sæta meirihluta í efri deildinni, þar sem slíkur meirihluti myndi gera Abe betur kleift að ná fram tillögum sínum um stjórnarskrárúrbætur. Allt bendir til þess að það markmið muni ekki nást.

Kastast í kekki á milli Japans og Suður-Kóreu
Mikið ósætti er á milli Japans og Suður-Kóreu vegna úrskurðar um bætur fyrir nauðungarvinnu síðustu aldar. Utanríkisráðherra Japans skammaði suðurkóreska sendiherrann. Karlmaður stytti sér aldur í mótmælaskyni.

Brennuvargurinn taldi að myndasögu sinni hefði verið stolið
Þrjátíu og þrír eru látnir og tíu liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi eftir að maður kveikti í myndveri í í Kýótó í gærmorgun.

Rúmlega þrjátíu nú taldir af eftir íkveikju í myndveri
Rúmlega fertugur karlmaður sem talinn er hafa kveikt í myndverinu er sagður hafa hrópað „deyið“ þegar hann úðaði bensíni á bygginguna.

Bað hana um að giftast sér eftir að hafa hlaupið í meira en 21 klukkutíma
Japanski ofurhlauparinn Yoshihiko Ishikawa valdi heldur betur sérstakan tíma á dögunum til að biðja kærustuna sína um að giftast sér.

Kveikt í japönsku myndveri
Hið minnsta 23 eru látin og tugir slasaðir eftir íkveikju í japönsku teiknimyndamyndveri í Kyoto í Japan í nótt.

Segir leiðbeiningar Vinnumálastofnunar óskýrar og misvísandi
Vinnuveitandi Momo Hayashi, japönsku konunnar sem synjað var um áframhaldandi dvalarleyfi og atvinnuleyfi hér á landi, segir að leiðbeiningar Vinnumálastofnunar hafi verið misvísandi og óskýrt hvaða gögn þyrftu að liggja að baki umsóknar um atvinnuleyfi. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríka leiðbeiningarskyldu hvíla á Vinnumálastofnun.

Mótmæla harðlega brottvísun Momo Hayashi
Stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan, sem hefur aðsetur í Tókýó, mótmælir harðlega brottvísun verslunareigandans Momo Hayashi og hvetur íslensk stjórnvöld til þess að veita henni dvalarleyfi.

Gagnrýnisvert að japanska konan fái ekki atvinnuleyfi
Rökin fyrir því að hún fái ekki atvinnuleyfi séu þau að vinnuveitandinn hennar hafi ekki auglýst starfið innan Evrópska efnahagssvæðisins og því mat stofnunarinnar að hægt væri að manna starfið með einstaklingi innan þess svæðis.

Japönsk kona fær ekki að búa á Íslandi
Japanskri konu sem hefur búið hér undanfarin fjögur ár hefur verið synjað um áframhaldandi dvalarleyfi hér á landi. Vinnumálastofnun hafnaði umsókn hennar um atvinnuleyfi í lok júní og síðastliðinn mánudag var henni synjað um dvalarleyfi frá útlendingastofnun og var gert að yfirgefa landið innan þrjátíu daga.

41 árs gamall og er samt ekki elsti leikmaður liðsins
Reynslan er greinilega mikilvæg fyrir japanska knattspyrnuliðið Yokohama FC og liðið ætti auðveldlega að geta teflt fram elsta liði sögunnar á næstunni.

Atvinnuhvalveiðar Japana hafnar
Kvóti upp á 227 hvali hefur verið gefinn út fyrir þetta tímabil. Veiðarnar fara fram í efnahagslögsögu Japans.

Einmana snigill olli lestatruflunum í Japan
Straumrof sem olli truflunum í lestasamgöngum í Japan í síðasta mánuði var valdið af snigli segja yfirvöld á Kyushu eyju.

Sjóherinn hafnaði beiðni Hvíta hússins að fela skip sem nefnt var eftir John McCain
Trump sagði í samtali við fréttamenn að hann hefði ekki vitað af beiðninni.

Tólf ára stúlka ein tveggja sem stungin voru til bana í Japan
Tólf ára gömul stúlka er meðal tveggja sem létust eftir hnífaárás í japönsku borginni Kawasaki, suður af Tókíó rétt fyrir klukkan átta um morgun á japönskum tíma.

Lést eftir að hafa innbyrt 246 poka af kókaíni
Flugvél á leið frá Mexíkóborg til Narita í Japan þurfti að nauðlenda í borginni Hermosillo í Sonora-fylki í Mexíkó eftir að farþegi byrjaði að fá flogaköst.