Kínverskur fangi tekinn af lífi í Japan Sylvía Hall skrifar 26. desember 2019 13:46 Masako Mori, dómsmálaráðherra Japans, greindi frá aftökunni á blaðamannafundi í dag. Vísir/getty
Wei Wei, fertugur kínverskur maður sem myrti fjölskyldu í borginni Fukuoka árið 2003, hefur verið tekinn af lífi. Tíu ár eru liðin frá því að erlendur fangi var síðast tekinn af lífi í Japan. Masako Mori, dómsmálaráðherra Japans, sagðist hafa samþykkt aftökuna eftir vandlega íhugun. Um væri að ræða sérstaklega hrottalegt og grimmt mál. Wei Wei hafði ætlað að ræna viðskiptamanninn Shinjiro Matsumoto og braust inn á heimili hans ásamt tveimur öðrum. Matsumoto var kyrktur og konunni hans drekkt í baði. Tvö börn þeirra, ellefu og átta ára gömul, voru einnig á heimilinu og voru þau kæfð til dauða. Mennirnir tveir flúðu til Kína þar sem annar þeirra var tekinn af lífi árið 2005 en hinn dæmdur í lífstíðarfangelsi. Wei Wei varð eftir í Japan og játaði á sig morðin en sagðist ekki hafa verið forsprakki hópsins. Farið var að birta nöfn þeirra sem teknir eru af lífi í Japan árið 2007. Síðan þá hefur aðeins einn erlendur fangi verið tekinn af lífi samkvæmt opinberum upplýsingum og var það kínverskur maður sem var hengdur árið 2009.
Japan Kína Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira