

Kenna íslenskum bílstjórum sparnað í akstri. Námskeiðið er blanda af akstri þar sem nemendur aka hópferðabíl í umferð við hefðbundnar aðstæður. Síðan taka þeir bóklegan hluta í kennslustofu þar sem farið er yfir hugmyndafræði vistakstursins.
Bókstafnum z var rutt út úr íslenska stafrófinu nánast með einu pennastriki á Alþingi fyrir 45 árum. Þó eru enn nokkrir Íslendingar sem ávallt nota zetuna þegar þeir rita mál sitt. Einn af þeim er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Að undanförnu hefur verið fjallað nokkuð um fjármálaumhverfi heilbrigðisþjónustunnar, ekki síst í kjölfar útkomu skýrslu Ríkisendurskoðunar um starfsemi Sjúkratrygginga Íslands.
Í dag stendur Reykjavíkurborg fyrir ráðstefnu um snjallborgina Reykjavík í Hörpu.
Fátt í veröldinni virðist vera „annaðhvort eða“ heldur fremur „bæði og“ ellegar „hvorki né“. Þetta á einnig við um læsi og lesskilning.
Porsche hefur bætt við sig 3.000.000 nýjrra „starfsmanna“ fyrir utan verksmiðjur sínar í Leipzig, en þessir starfsmenn eru hvorki doktorar í verkfræði né lærðir vélfræðingar, heldur býflugur.
Videntifier var stofnað 2008 til að hagnýta byltingarkennda tækni sem þróuð var í Háskólanum í Reykjavík.
Listahátíðin List án landamæra verður sett í fimmtánda sinn í dag. Að vanda er dagskráin hlaðin af spennandi listviðburðum og sýningum sem enginn þarf að missa af því að aðgangur er ókeypis.
Björn Leví Gunnarsson segir að svör stjórnvalda um ríkisábyrgð fyrir Vaðlaheiðargöng hafi alltaf verið misvísandi og hefur því óskað eftir öllum frumgögnum úr ráðuneytinu. Hann telur ríkisábyrgðina fara í bága við EES-samninginn.
Undanfarin fjögur ár hafa innfluttar vörur dregið niður verðlag hérlendis. Nú er gengi krónu hætt að styrkjast, olíuverð hefur hækkað um 43% á einu ári og verðbólga færist nær eðlilegu horfi í viðskiptalöndunum.
Tugir þúsunda hafa mótmælt ríkisstjórn Armeníu í tæpar þrjár vikur. Hröktu forsætisráðherrann í burtu en fengu sinn mann ekki inn í staðinn. Mótmælin í gær, eftir að þingið hafnaði því að gera Níkol Pasjinjan, leiðtoga mótmælenda, að forseta.
Dómari í máli gegn Reuters-blaðamönnunum Wa Lone og Kyaw Soe Oo í Mjanmar sagðist í gær meta framburð lögreglustjórans Moe Yan Naing sem áreiðanlegan.
Reiði er meðal starfsmanna Hörpu vegna launahækkunar forstjóra í fyrra. Þjónustufulltrúar þurftu að taka á sig verulega launalækkun í lok síðasta árs vegna slæmrar stöðu félagsins. Leituðu til lögfræðinga VR vegna þessa. Þjónustufulltrúinn Örvar Blær Guðmundsson sagði upp í gær eftir að hafa lesið frétt Fréttablaðsins.
„Miðasalan fór af stað með hvelli,“ segir Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Solstice Production, sem stendur fyrir tónleikum Guns N' Roses á Laugardalsvelli í sumar.
Breska fyrirtækið Advanced Marine Services hefur óskað eftir því að fá framlengingu á leyfi sem fyrirtækið hafði frá Umhverfisstofnun á Íslandi til að rjúfa gat á þýska flutningsaskipinu SS Minden á hafsbotni djúpt undan landinu.
Fjórir tyrkneskir stjórnarandstöðuflokkar komust í gær að samkomulagi um að mynda kosningabandalag og bjóða saman fram í þingkosningunum sem fara fram 24. júní næstkomandi.
Í velferðarmálum ræðum við oft um hvernig eigi að bregðast við vanda sem þegar er til staðar. En getur samfélagið gripið fyrr inn með aðstoð?
Ríkið fellur tímabundið frá forkaupsrétti sínum að ákveðnum hluta Kaupþings í Arion við hlutafjárútboð. Einnig til skoðunar að Kaupþing ábyrgist greiðslu til ríkisins miðað við lágsmarksgengið 0,8. Útboð og skráning bankans í júní.
Arctic Green Energy, íslenskt félag sem var stofnað til þess að þróa og reka umhverfisvænar jarðhitaveitur í Asíu, hefur samið við kínversku fjárfestingafélögin CITIC Capital og China Everbright og Þróunarbanka Asíu um fjármögnun upp á 150 milljónir dala eða sem jafngildir ríflega 15,1 milljarði króna.
Stjórnin veitti nýráðnum forstjóra Hörpu launahækkun upp á rúm 20 pró- sent síðasta sumar. Stjórnin var nýkomin með ákvörðunarvald yfir launum forstjórans sem áður heyrði undir kjararáð. Ráðið hafði ákvarðað forstjóranum 1,3 milljónir í mánaðarlaun nokkrum mánuðum fyrr, í febrúar 2017.
EBITDA-hagnaður Valitors Holding var neikvæður um 650 milljónir króna í fyrra. Forsvarsmenn kortafyrirtækisins gera ráð fyrir að reksturinn verði arðbær innan fimm ára. Viðskiptum félagsins við stærsta samstarfsaðila sinn, bandaríska fyrirtækið Stripe, verður hætt á þessu ári. Miklar fjárfestingar eru í pípunum.
Netanjahú birti gögn sem hann sagði sýna fram á leynilega kjarnorkuvopnaáætlun Írana. Sagði þá ljúga að alþjóðasamfélaginu. Íranar svöruðu, kölluðu Netanjahú lygara og ríkisstjórn hans barnamorðingja.
Níkol Pasjinjan, leiðtogi armensku stjórnarandstöðunar, náði ekki að tryggja sér nógu mörg atkvæði á þinginu í gær til þess að tryggja sér forsætisráðuneytið.
Verkalýðsforingjar um land allt vígreifir í ræðum sínum á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. Formaður VR boðar baráttu sem ekki hefur sést í áratugi og verkföll minni hópa í stað allsherjarverkfalla.
Jarðböðin við Mývatn voru um síðustu áramót metin á 4,5 milljarða króna og jókst virði þeirra um 1,3 milljarða eða ríflega 40 prósent í fyrra.
iPhone X er einkar laglegur sími, en Apple virðist vera í vandræðum með að koma honum í hendur neytenda.
Nýr tollasamningur Íslands og Evrópusambandsins(ESB), sem gerður var haustið 2015, tók gildi í gær.
Disney-samsteypan tilkynnti í gær að fyrirtækið myndi setja í loftið nýja og gjaldfrjálsa myndbandaveitu í sumar.
Launakostnaður Icelandair Group nam 113 milljónum dala, sem jafngildir um 11,4 milljörðum króna, á fyrsta fjórðungi ársins og hækkaði um 31 prósent á milli ára.
Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, fór í gær fram á að Sameinuðu þjóðirnar tækju þátt í því að tryggja að Norður-Kórea stæði við loforð um að afkjarnorkuvæðast, líkt og Moon og Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, lofuðu í yfirlýsingu sem þeir undirrituðu í Panmunjom á dögunum.