

Ég hef um árabil hitt ágætan sálfræðing reglulega. Margsinnis hef ég staðið á erfiðum krossgötum og ekki vitað mitt rjúkandi ráð.
Ágúst Þór Árnason, aðjunkt við Háskólann á Akureyri, lést á heimili sínu á miðvikudag eftir skamma baráttu við krabbamein.
Hjúkrunarráð Landspítala sendi í gær frá sér áskorun þar sem skorað er á samningsaðila í komandi kjaraviðræðum hjúkrunarfræðinga að hafa skort á hjúkrunarfræðingum á spítalanum að leiðarljósi.
Almennir borgarar munu skipa næstu ríkisstjórn Súdans en ekki hermenn.
Þótt lag Þursaflokksins, Nútíminn, hafi fyrst heyrst á öldum ljósvakans fyrir fjórum áratugum hefur nútíminn lítið breyst.
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Rosengård hefja leik á ný í sænsku deildinni um helgina eftir að hafa horft á eftir meistaratitlinum til Piteå í lokaumferðinni í fyrra. Stefnan er sett á meistaratitilinn í ár.
Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum halda áfram að lengjast á milli ára.
Fyrsta plata hins sjóndapra Suðurnesjamanns Más Gunnarssonar kemur út í dag. Hún heitir Söngur fuglsins. Veglegir útgáfutónleikar verða haldnir í kvöld í Hljómahöllinni.
Tveir Íslendingar eru meðal lækna og vísindamanna sem kalla í nýrri vísindagrein eftir breyttri nálgun að sjúkdómsgreiningum.
Hæstiréttur synjaði í gær þremur beiðnum um áfrýjunarleyfi sem byggðu á dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Vísað til þess að lokaniðurstaða liggi enn ekki fyrir.
Erpur Eyvindarson flytur fagnaðarendi rommsins í árlegri málstofu í dag þar sem hann fer yfir ýmis grundvallaratriði eins og muninn á bragðefnasulli og meistarablöndum.
Auðlegð þjóða er misjöfn á marga vegu. Hún getur falist í ótal ólíkum hlutum og verið háð ýmsu. Þó er hægt að fullyrða að mannauður hverrar þjóðar sé mikilvægasti auður hennar
Stofnandi WikiLeaks handtekinn í ekvadorska sendiráðinu. Bandaríkin fara fram á framsal og vilja rétta yfir honum vegna samráðs við Chelsea Manning.
Veikindi tengd kulnun og streitu hafa aukist verulega á undanförnum árum með tilheyrandi kostnaði fyrir einstaklinga og samfélagið allt.
Opið bréf til Svandísar Svavarsdóttur.
Eftir á að hyggja hefði verið mjög auðvelt að spá fyrir um ýmsa sögulega viðburði sem komu flestum í opna skjöldu þegar þeir gerðust. Og eftir á að hyggja hefði mjög auðveldlega mátt koma í veg þá.
Alþjóðlegar ráðstefnur og samkomur einkennast yfirleitt af ákveðnum virðuleika, ekki síst ef þangað mætir valdamikið fólk sem lætur sér annt um ímynd sína og gætir þess vandlega að gefa ekki of mikið af sér.
Forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins, Eflingar – stéttarfélags og VR hittust þann 9. apríl, í vikunni eftir að skrifað var undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins.
Félagið 365 miðlar, sem er í eigu Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur, er komið með 7,67 prósenta hlut í Skeljungi. Markaðsvirði hlutarins nemur um 1.300 milljónum króna.
Til að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins þarf meira til en orkuskipti og rafbílavæðingu. Draga þarf umtalsvert úr akstri og þörf er á metnaðarfullum aðgerðum til að gera fólki það kleift, segja sérfræðingar.
Á síðasta ári fluttust 6.556 fleiri til Íslands en frá landinu. Það eru nokkuð færri en metárið 2017 þegar aðfluttir umfram brottflutta voru 8.240.
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í máli Bjarna Ármannssonar gegn íslenska ríkinu verður kveðinn upp á þriðjudaginn í næstu viku.
Mastersmótið í golfi hefst á Augusta-vellinum í dag. Rory McIlroy þykir líklegur til að bæta við grænum jakka í verðlaunasafnið og ljúka með því alslemmunni. Tiger Woods er aftur inni í myndinni eftir að hafa unnið sitt fyrsta golfmót í fimm ár síðasta haust
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, kennari í Laugalækjarskóla, er með diplóma í starfstengdri leiðsögn og þýddi jafnframt handbækurnar Viðkvæm álitamál og nemendur (e. Teaching Controversial Issues).
Lilja M. Jónsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur marga fjöruna sopið hvað kennslu og öðruvísi kennsluhætti varðar og hefur tekið þátt í ýmsum þróunarverkefnum ásamt því að hafa sjálf sett nokkur á laggirnar.
Úthlutanir Fjölskylduhjálpar Íslands færast til um einn dag fyrir páska.
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrir Kæru Jelenu í Borgarleikhúsinu. Vill ganga nærri áhorfendum með gríðarlegri nánd við atburðarásina. Færir leikritið til samtímans.
Atkvæðagreiðslur um lífskjarasamninginn sem undirritaður var í síðustu viku eru nú að hefjast. Kosning meðal félagsmanna VR hefst í dag og stendur til hádegis næstkomandi mánudags.
Sigur Benjamíns Netanjahú og ísraelskra íhaldsflokka í þingkosningum veldur Palestínumönnum áhyggjum.
Kannað er hvort myndavélaupptökur geti varpað ljósi á árás í Elliðaárdal. Fórnarlambið segir ókunnuga menn hafa ráðist fyrirvaralaust á sig.