Fréttir
218 219 220 221 222 223 224 225 226 … 334 ›
Á annan tug dælt úr Muuga Vinnuflokkur frá Olíudreifingu dvaldi um borð í flutningaskipinu Wilson Muuga á strandstað við Reykjanes í nótt og hélt áfram að dæla olíumenguðum sjó úr lestum skipsins upp í plastkör. Þyrla mun svo sækja kerin út í skipið. Á annan tug tonna hefur nú þegar verið dælt úr lestinni. Innlent 21.2.2007 07:10
Tekinn með fjögur kíló af kókaíni Karlmaður um fertugt situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á smygli á fjórum kílóum af Kókaíni til landsins í nóvember síðastliðnum. Að sögn Ríkisútvarpsins var efnið falið í bíl, sem maðurinn flutti til landsins, en leysti ekki úr tolli fyrr en í þessum mánuði, og var hann þá handtekinn. Tveir aðrir hafa verið yfirheyrðir vegna málsins. Þetta mun vera stærsta kókaínsending sem tollverðir hafa fundið til þessa. Innlent 21.2.2007 08:02
Varað við óveðri við Vík í Mýrdal Vegagerðin varar við óveðri við Vík í Mýrdal. Á Austfjörðum er víðast snjóþekja, hálka og skafrenningur á heiðum. Mokstur er hafinn á Breiðdalsheiði en Öxi er ófær. Hálkublettir eru á Noðrurlandi, hálka á heiðum á Vestjörðum og það er hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði. Innlent 21.2.2007 08:11
Brotist inn í Breiðagerðisskóla Brotist var inn í Breiðagerðisskóla í nótt og þaðan stolið skjávarpa. Enn er ekki vitað hvort að þjófurinn hafi haft önnur verðmæti á brott með sér. Þjófurinn spennti upp hurð til að komast inn í skólann. Hann komst síðan óséður út og er enn ófundinn. Innlent 21.2.2007 07:08
Sjö ökuþórar teknir í nótt Sjö ökumenn voru teknir fyrir of hraðann akstur í Reykjavík í nótt, sem er óvenju mikill fjöldi að næturlagi. Sá sem hraðast ók, mældist á 120 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80. Þá voru þrír ölvaðir ökumenn teknir úr umferð, sem líka er óvenju mikið í miðri viku. Innlent 21.2.2007 07:06
Fá betra verð í Noregi Norsk loðnuskip, sem nýverið kláruðu kvóta sinn hér við land, fegnu mun hærra verð fyrir afla sinn í Noregi, en íslensk skip fá fyrir samskonar loðnu hér á landi. Skip.is greinir frá því að meðalverð fyrir tonnið til bræðslu eða frystingar í Noregi hafi verið röskar 25 þúsund krónur, en síðast þegar Fréttastofa Stöðvar tvö kannaði hráefnisverðið hér, greiddu íslenskar verksmiðjur 13 til 14 þúsund krónur fyrir tonnið. Innlent 21.2.2007 07:03
Íranar segja samninga einu leiðina Aðalsamningamaður Írana, Ali Larijani, segir að Íranar hafi ekki áhyggjur af því að vesturlönd eigi eftir að beita hörðu í kjarnorkudeilunni. Eftir fund með Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni í gær sagði Larjani að eina leiðin til þess að leysa deiluna væri samningaleiðin. Frestur sem Sameinuðu þjóðirnar gáfu Írönum til þess að hætta auðgun úrans rennur út eftir nokkrar klukkustundir og búist er við því að refsiaðgerðir hefjist þá þegar. Erlent 21.2.2007 07:17
Bretar og Danir kalla hermenn heim frá Írak Búist er við að Tony Blair forsætisráðherra Bretlands tilkynni í dag að flutningur herliðs Breta frá Írak hefjist innan nokkurra vikna. Samkvæmt áætlun Blairs munu fyrstu 1.500 hermennirnir úr 7.100 manna liði þeirra í Írak snúi heim á næstu vikum. Danir tilkynna líklega eftir hádegið um viðlíka heimkvaðningu danskra hermanna. Erlent 21.2.2007 07:01
Matvöruverð oftast lægst á Íslandi Verð á matvöru á Norðurlöndunum var oftast lægst á Íslandi í nýrri skoðanakönnun félags íslenskra stórkaupmanna. Af tíu vörum sem athugaðar voru í lágvöruverðsverslunum var verðið sjö sinnum lægst á Íslandi. Í stórmarkaðsverslunum var verðið þrisvar sinnum lægst hér á landi. Innlent 21.2.2007 06:58
Ósamræmi í framburði Framburður tveggja forsvarsmanna Baugs um fyrirtæki á Bahama-eyjum eru í algerri andstöðu hvor við annan. Það átti að skrá eignarhald á skemmtibátnum Thee Viking á félagið samkvæmt sækjanda. Innlent 20.2.2007 22:00
Föst undir steinvegg í fjóra klukukutíma Kona á fimmtugsaldri var flutt með sjúkrabifreið frá Húnavatnssýslu til Reykjavíkur í dag eftir að steinveggur brotnaði og féll á hana. Konan lá föst undir veggnum á bóndabæ í Vatnsdal í fjórar klukkustundir þar til hjálp barst. Konan mun hafa verið að reka hross út úr hesthúsi þegar slysið varð, en eitt hrossana sparkaði í vegginn með þessum afleiðingum. Innlent 20.2.2007 23:50
Breskt herlið frá Írak Búist er við að Tony Blair forsætisráðherra Breta tilkynni á morgun að flutningur herliðs Breta frá Írak hefjist innan nokkurra vikna. Þetta kemur fram á BBC og í öðrum breskum fjölmiðlum í dag. Áætlun Blairs er að fyrstu 1.500 hermennirnir úr 7.100 manna liði þeirra í Írak snúi heim á næstu vikum. Erlent 20.2.2007 23:20
Eiturgas umlukti heilan bæ Sex létust og tugir urðu fyrir eituráhrifum þegar tankbíll fullur af klór sprakk við veitingastað í bænum Taji í Írak í dag. Eiturgas umlukti bæinn sem er 20 km norður af höfuðborginni Baghdad. Tölur látinna voru á reiki, fyrstu tölur sögðu fimm látna og 148 sem orðið hefðu fyrir eitrun. Alls létust 20 manns í landinu í dag í nokkrum tilfellum, meðal annars í Baghdad. Erlent 20.2.2007 22:58
Áætlun í jafnréttismálum endurskoðuð Kynbundinn launamunur er eitt af helstu áhersluatriðum í endurskoðaðri áætlun í jafnréttismálum. Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja tillöguna fram til þingsályktunar. Tillagan var unnin í félagsmálaráðuneytinu ásamt skýrslu um stöðu og horfur í jafnréttismálum. Innlent 20.2.2007 22:11
Átak gegn sjálfsvígum í S-Kóreu Heilbrigðisyfirvöld í Suður Kóreu segjast vera að undirbúa herferð sem beinist gegn hárri sjálfsvígstíðni í landinu. Á fimm árum hafa sjálfsmorðstilfelli tvöfaldast. Verið er að skoða ýmsa möguleika eins og að koma upp ráðgjafamiðstöðvum og fjarlægja vefsíður sem sýna leiðir til sjálfsmorða og hvetja jafnvel fólk til að taka líf sitt. Erlent 20.2.2007 21:41
Alræmdi klósettrúlluþjófurinn varaður við Rað-klósettrúlluþjófur í Bretlandi hefur fengið viðvörun frá lögreglu eftir að upp komst að hann hefur stolið klósettrúllum af almenningssalernum. Konan er miðaldra og hefur tekið tíu rúllur á dag í að minnsta kosti þrjár vikur. Hún var gripin glóðvolg af bæjarstarfsmönnum í vestur Bridgford í Nottingham. Erlent 20.2.2007 21:09
Vilja virkja grasrótina Samstaða, baráttusamtök um bætta umferðarmenningu, hvetja alla til að skrá sig í samtökin og vinna að fækkun alvarlegra umferðarslysa. Félagið var stofnað í kjölfar slysaöldu á síðasta ári. Ekkert banaslys hefur orðið í umferðinni það sem af er þessu ári og hefur alvarlegum meiðslum á fólki fækkað. Steinþór Jónsson formaður samtakanna segir í fréttatilkynningu að það sé góð byrjun á löngu verkefni. Innlent 20.2.2007 20:20
Airbus íhugar uppsagnir tíu þúsund manns Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, segir að tíu þúsund starfsmönnum evrópska flugrisans Airbus verði sagt upp þegar fyrirtækið verði endurskipulagt. Illa hefur gengið að selja Airbus A-380 risaþotuna, stærstu farþegaflugvél í heimi, en framleiðsla hennar hefur tafist. Villepin sagði frönsk stjórnvöld andvíg uppsögnum. Þjóðverjar segja ekkert hæft í yfirlýsingum forsætisráðherrans. Erlent 20.2.2007 19:06
Hægt að læra af Sömum Samar í Norður-Noregi hafa fundið fyrir áhrifum loftslagsbreytinga í áratugi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að áhrif þeirra eru áþreifanlegri í loftslagi norðurheimskautsins. Vísindamenn ætla nú að kanna viðbrögð Sama við breytingunum svo hægt verið að læra af þeim. Erlent 20.2.2007 19:19
Segist geta læknað alnæmi Forseti Afríkuríkisins Gambíu telur sig hafa fundið lækningu við alnæmi. Hann segist hafa læknað marga landa sína með jurtameðulum og fyrirbænum. Hátt í fjörutíu milljón manns í heiminum þjást af alnæmi, flestir í Afríku. Erlent 20.2.2007 19:17
Sálfræðingur aðstoðar vitni í Baugsmálinu Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur og fyrrverandi landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur verið vitnum í Baugsmálinu til aðstoðar en ákærðu segja málið hafa reynt mjög á sig. Í dag var dómnum sýndur tölvupóstur frá settum ríkissaksóknara, sem einn af lögmönnum Baugs hafði falsað. Innlent 20.2.2007 18:43
Gæsluvarðhald vegna stærsta kókaínsmygls Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsdóm yfir fertugum karlmanni sem er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa smyglað fjórum kílóum af kókaíni til landsins. Áætlað götuvirði efnanna gæti numið um 50 milljónum króna, en þetta er eitt mesta magn af kókaíni sem lagt hefur verið hald á hér á landi. Innlent 20.2.2007 18:22
Ný heimasíða um íslenska hestinn Ný heimasíða Félags eigenda íslenskra hesta erlendis FEIF var opnuð á ársfundi félagsins sem haldinn var í Glasgow um helgina. Í félaginu eru 56 þúsund meðlimir frá 18 löndum. Á fundinum var ákveðið að færa öllum meðlimunum WorldFeng, upprunabók íslenska hestins. Innlent 20.2.2007 17:46
Besta afkoman í sögu Icelandair Group Icelandic Group skilaði ríflega 2,6 milljarða króna hagnaði á síðasta ári. Félagið skilaði hins vegar 555 milljóna króna tapi á fjórða og síðasta rekstrarfjórðungi síðasta árs. Þetta er besta afkoman í sögu félagsins, sem var skráð í Kauphöll Íslands undir lok síðasta árs. Viðskipti innlent 20.2.2007 16:37
Yfir 100 sýnendur á Tækni og vit 2007 Yfir 100 sýnendur hafa skráð sig til þátttöku á stórsýningunni Tækni og vit 2007 verður haldin í Fífunni í Kópavogi dagana 8.-11. mars næstkomandi. Mikil gróska er í tækni- og þekkingariðnaði og verður sýningin stærsti viðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi á þessu sviði. Viðskipti innlent 20.2.2007 15:33
Icelandic Glacial með víðtæka dreifingu í N-Ameríku Íslenska fyrirtækið Icelandic Water Holdings, sem framleiðir átappað vatn á flöskum undir vörumerkinu Icelandic Glacial í Þorlákshöfn, hefur gert samning við kanadíska fyrirtækið Leading Brands um dreifingu á vatninu í Kanada og í Bandaríkjunum. Fyrirtækið mun meðal annars selja vatnið í verslanakeðjunum Shoppers Drug Mart, Whole Foods Markets og í Wal-Mart auk annarra verslana. Viðskipti innlent 20.2.2007 15:31
Leiðtogar ræða um uppsagnir Airbus Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, funduðu í dag vegna yfirvofandi uppsagna hjá evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus. Airbus hefur festað að greina frá hagræðingu í rekstri félagsins en óttast er að tugþúsundir starfsmanna fyrirtækisins verði sagt upp á næstu þremur árum. Viðskipti erlent 20.2.2007 15:01
Rússar hóta hörðum viðbrögðum Rússneskur hershöfðingi hefur hótað hörðum viðbrögðum ef Bandaríkjamenn setja upp eldflaugavarnarkerfi í Tékklandi og Póllandi. „Ef ríkisstjórnir Tékklands og Póllands segja já þá getum við beint eldflaugum okkar að þessum mannvirkjum.“ sagði hershöfðinginn Nikolai Solovtsov í gær. Erlent 20.2.2007 12:57
Íran: Árásaráætlun sögð tilbúin Bandaríkjamenn eru sagðir hafa gert áætlun um loftárásir á Íran sem beinist að kjarnorkuverum og innviðum íranska hersins. Frestur sá sem Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið Írönum til að hætta auðgun úrans rennur út á morgun. Íransforseti segist tilbúinn til viðræðna en hann gangist ekki undir þau skilyrði sem sett séu. Erlent 20.2.2007 12:15
Friðrik Már Baldursson prófessor með fulltingi Kaupþings Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands hefur ákveðið að dr. Friðrik Már Baldursson, gegni stöðu prófessors með fulltingi Kaupþings. Þetta er í samræmi við sambning sem HÍ og Kaupþing gerðu undir lok síðasta árs um ótímabundna kostun á stöðu prófessors í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Viðskipti innlent 20.2.2007 11:44
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent