Fréttir
172 173 174 175 176 177 178 179 180 … 334 ›
Tíu ár frá sigri Verkamannaflokksins Líklegt er að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tilkynni um brotthvarf sitt úr stjórnmálum í næstu viku. Tíu ár eru í dag frá því Blair tók við embætti eftir stórsigur Verkamannaflokksins á Íhaldsmönnum. Erlent 1.5.2007 18:24
1. maí fagnað víða um heim Fysta maí var fangað víðar en á Íslandi í dag. Til átaka kom í Macau og Berlín á meðan kröfugöngur í öðrum borgum fór friðsamlega fram. Fídel Kastró lét ekki sjá sig við opinber hátíðarhöld á Kúbu í dag. Erlent 1.5.2007 18:21
10 ár frá valdatöku Blairs Áratugur er í dag frá því að Tony Blair tók við embætti forsætisráðherra í Bretlandi. Hann er þaulsætnasti leiðtogi Verkamannaflokksins breska en á þó langt í land með að slá met þess forsætisráðherra Breta sem lengst hefur setið í Downing-stræti 10. Erlent 1.5.2007 12:18
Brestir komnir í ríkisstjórnarsamstarfið Brestir eru þegar komnir í ríkisstjórn Ísresl eftir að skýrsla rannsóknarnefndar um stríðsreksturinn gegn Hizbollah-liðum í Líbanon í fyrra var birt í gær. Nefndin gagnrýnir Ehud Olmert, forsætisráðherra, og Amir Peretz, varnarmálaráðherra, harðlega og segir þá hafa farið út í stríð að illa ígrunduðu máli og án skýrra markmiða. Olmert ætlar ekki að víkja og einn aðstoðarráðherra sagði af sér í morgun vegna þess. Erlent 1.5.2007 12:14
Margir mótmælendur handteknir í Istanbúl Tyrkneska lögreglan hefur handtekið mörg hundruð mótmælendur eftir að til átaka kom í miðborg Istanbúl í morgun. Vinstrimenn höfuð komið þar saman til að minnast blóðbaðs í borginni þann fyrsta maí fyrir þrjátíu árum. Erlent 1.5.2007 12:10
Landsstjórn Grænlands sprungin Landsstjórnin á Grænlandi sprakk í gær. Deilur um rækjukvóta urðu til þess að vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit klauf sig út úr henni. Jafnaðarmenn í Siumut flokknum og hægrimenn í Atassut, sem einnig sátu í stjórninni, reyna nú að mynda nýja. Erlent 1.5.2007 10:46
Hagnaður Danske bank eykst Danske bank skilaði hagnaði upp á tæpa 5,3 milljarða danskra króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 62,5 milljörðum íslenskra króna á tímabilinu sem er 21 prósenti meiri hagnaður en bankinn skilaði á sama tíma í fyrra. Þá er afkoman nokkuð yfir væntingum greinenda í Danmörku. Viðskipti erlent 1.5.2007 10:15
Leiðtogi al-Kaída í Írak fallinn Abu Ayyub al-Masri, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna í Írak, féll í innbyrgðis átökum andspyrnumanna í smáþorpi norður af Bagdad í morgun. Íraska innanríkisráðuneytið greinir frá þessu. Al-Masri tók við stjórn samtakanna eftir að Abu Musab al-Zarkawi féll í loftárás Bandaríkjahers í júní í fyrra. Erlent 1.5.2007 10:08
Actavis sagt meðal bjóðenda Frestur til að skila inn bindandi tilboðum í samheitalyfjahluta þýska lyfjafyrirtækisins Merck rann út í gær. Erlendar fréttaveitur fullyrða að Actavis sé meðal fjögurra fyrirtækja sem skiluðu inn tilboðum. Forsvarsmenn Actavis kveðast ekki geta tjáð sig um viðræðurnar að svo stöddu. Þeir staðfesta hins vegar að enn sé áhugi fyrir hendi ef rétt verð gefst. Viðskipti innlent 1.5.2007 09:26
Evra aldrei jafnhá gagnvart jeninu Gengi evru er í fyrsta sinn komið í methæðir gagnvart japanska jeninu á helstu fjármálamörkuðum. Gengi evrunnar hækkaði talsvert á markaði í síðustu í kjölfar vangavelta fjárfesta að evrópski seðlabankinn muni hækka stýrivexti á næstu mánuðum og fór hæst í 163,31 jen á móti hverri evru. Viðskipti innlent 1.5.2007 09:15
Tap deCode nemur tæpum 1,5 milljörðum króna deCode skilaði 22,6 milljóna dala taprekstri á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 1.458 milljónum íslenskra króna. Til samanburðar nam tap fyrirtæksins 20,3 milljónum dala, 1.309 milljónum króna, á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 30.4.2007 21:33
Treysta öðrum en íslenskum fyrirtækjum Íslenskir áhrifavaldar bera mest traust til sænskra, þýskra og kanadískra alþjóðafyrirtækja. Íslensk fyrirtæki lenda í fjórða til fimmta sæti yfir þau fyrirtæki sem mesta traustsins njóta. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar rannsóknar Capacent Gallup og AP almannatengsla á trausti íslenskra „áhrifavalda“. Viðskipti innlent 30.4.2007 19:17
Stjórnarandstaðan vill öll draga úr stóriðju Stjórnarandstöðuflokkarnir eru allir sammála um stóriðjuhlé, að minnsta kosti á suðvesturhorninu, til að draga úr þenslu en hvorugur stjórnarflokkanna er tilbúinn að forgangsraða stórframkvæmdum á næsta kjörtímabili. Þetta kemur fram í svörum flokkanna við spurningum fréttastofu um peningapólitík. Innlent 30.4.2007 19:06
Missti félagsíbúð því hún sparaði ekki nóg Mosfellsbær sagði einstæðri móður og þunglyndissjúklingi upp félagslegri íbúð vegna þess að hún hafði ekki, af bótum sínum, lagt nægilega fyrir, að mati bæjarins. Formaður fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar segir reglurnar ekki settar af mannvonsku heldur til að hjálpa fólki. Innlent 30.4.2007 19:00
Herskip mögulega við landið til lengri tíma Yfirmaður norska hersins segir afar mikilvægt að herinn geti stundað æfingar á Íslandi eins og nýtt varnarsamkomulag landanna geri ráð fyrir. Hann segir að til greina komi að hafa herskip við landið til lengri tíma. Formaður varnarmálanefndar norska Stórþingsins segir varnasamstarf við Ísland fela í sér mikla möguleika en gagnrýnir norsk stjórnvöld fyrir að hafi teygt fulllangt í samningum við Ísland. Erlent 30.4.2007 18:54
Sakar Bjarna um lygar Sigurjón Þórðarson þingmaður frjálslyndra vænir félaga sína í allsherjarnefnd um ósannindi í umræðum um veitingu ríkisborgararéttar til tilvonandi tengdadóttur umhverfisráðherra. Formaður nefndarinnar segir fullyrðingar Sigurjóns rakalausar dylgjur. Innlent 30.4.2007 17:58
Lárus tekur við forstjórastóli í Glitni Lárus Welding hefur verið ráðinn forstjóri Glitnis. Hann tekur við starfinu af Bjarna Ármannssyni sem hefur gegnt starfi forstjóra í 10 ár. Lárus Welding hefur verið framkvæmdastjóri Landsbanka Íslands í Lundúnum frá 2003 en hann hóf starfsferil sinn innan bankakerfisins á fyrirtækjasviði Fjárfestingarbanka atvinnulífsins árið 1999. Fjárfestingarbankinn rann saman við Íslandsbanka árið 2000 og heitir nú Glitnir. Viðskipti innlent 30.4.2007 16:36
Tíðindalaust á hluthafafundi Glitnis Tíðindalaust var á þéttsetnum hluthafafundi Glitnis sem lauk um klukkan hálf þrjú dag. Ný stjórn bankans tók við af fráfarandi stjórn og situr hún nú á sínum fyrsta fundi. Viðskipti innlent 30.4.2007 15:38
Ísraelsk stjórnvöld gagnrýnd Búist er við að stuðningsmenn jafnt sem andstæðingar krefjist afsagnar Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, eftir að skýrsla rannsóknarnefndar um stríðsrekstur Ísraela í Líbanon í fyrra verður birt í dag. Olmert og Amir Peretz, varnarmálaráðherra, eru harðlega gagnrýndir fyrir mistök í starfi. Erlent 30.4.2007 12:48
Glitnir spáir 4,3 prósenta verðbólgu Greiningardeild Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs hækki um hálft prósent á milli mánaða í maí. Gangi það eftir mun ársverðbólga lækka úr 5,3 prósentum í 4,3 prósent. Helstu ástæðurnar fyrir verðbólgulækkuninni eru minni verðhækkanir á húsnæði og í apríl auk þess semaðgerðir stjórnvalda á neysluverði hafi skilað sér. Viðskipti innlent 30.4.2007 11:54
Hagnaður Glitnis 7 milljarðar króna Hagnaður Glitnis banka nam sjö milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 2,1 milljarði króna minna en á sama tíma fyrir ári. Þetta er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna sem gerðu ráð fyrir allt frá 6,8 til 7,7 milljarða króna hagnaði á tímabilinu. Viðskipti innlent 30.4.2007 10:51
Fall á tyrkneskum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa í kauphöll Tyrklands féll um 8 prósent við opnun markaða í dag eftir að orðrómur fór á kreik að herinn muni koma í veg fyrir val á nýjum forseta landsins. Líran, gjaldmiðill Tyrklands, hefur sömuleiðis lækkað um 4 prósent í dag. Viðskipti erlent 30.4.2007 09:33
Mjög dregur úr vöruskiptahallanum Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð um 9,1 milljarð króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er umtalsverð breyting frá sama tíma í fyrra en þá nam hallinn á vöruskiptum 36,2 milljörðum króna. Af þessum þremur mánuðum nam halli á vöruskiptum í mars 4,5 milljörðum króna. Til samanburðar voru vöruskiptin óhagstæð um 18,2 milljarða krónur fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 30.4.2007 08:59
Ekki borgað fyrir eldsneyti í heilt ár Norðmaðurinn Stig Breisten hefur ekki borgað fyrir eldsneyti á bílinn sinn í heilt ár. Hann notar jurtaolíu á díselvélina sína og fær hana gefins á knæpu í næsta nágrenni við sig. Erlent 29.4.2007 18:10
Óttast heittrúaðan forseta Mörg hundruð þúsund Tyrkir tóku komu saman í miðborg Istanbúls í dag til að sýna stuðning við veraldlega stjórnarhætti í landinu. Margir Tyrkir óttast að heittrúaður múslimi verði valinn forseti og vilja allt gera til að koma í veg fyrir það. Erlent 29.4.2007 18:07
Brú hrundi í Kaliforníu Hluti umferðarbrúar í Oakland í Kaliforníu hrundi í dag og mikill eldur kviknaði þegar eldsneytisflutningabíll skall á stólpa. Ökumaður flutningabílsins slasaist aðeins lítillega og var hann fluttur á sjúkrahús. Engan annan vegfaranda sakaði. Erlent 29.4.2007 17:53
Vakin athylgi á ástandinu í Darfur-héraði Mótmælafundir voru haldnir í um þrjátíu löndum í dag til að vekja athygli á því ófremdarástandi sem nú sé í Darfur héraði í Afríkuríkinu Súdan. Fjögur ár eru um þessar mundir frá því til átaka kom á svæðinu en þau hafa kostað minnst tvö hundruð þúsund manns lífið auk þess sem tvær milljónir íbúa eru á vergangi. Erlent 29.4.2007 16:55
Grunaður um að hafa ráðist á 101 gamla konu Lögreglan í New York yfirheyrir nú fjörutíu og fjögurra ára mann sem er grunaður um að hafa barið og síðan rænt hundrað og eins árs gamla konu í síðasta mánuði. Árásin náðist á myndband í eftirlitsmyndavél og var sýnd í fréttum. Erlent 29.4.2007 15:59
Kastró kominn aftur Fidel Kastró er aftur tekinn við stjórnartaumunum á Kúbu. Þetta segir Hugo Chavez, forseti Venesúeal og náinn vinur forsetans aldna. Kastró hefur ekki komið fram opinberlega síðan hann veiktist síðasta sumar og afhenti Raul bróður sínum völdin í landinu. Erlent 29.4.2007 15:58
Loftárás á Darfur-hérað Talsmaður uppreisnarmanna í Darfur-héraði í Súdan segir stjórnarherinn hafa staðið að baki loftárás á búðir uppreinsnarmanna í dag. Þar var áætlað að halda viðræður um ástandið í landinu. Fjölmargir særðust í árásinni. Erlent 29.4.2007 15:50