Fréttir
148 149 150 151 152 153 154 155 156 … 334 ›
Greiða Nike skaðabætur Tveimur kínverskum skóframleiðendum og frönsku verslanakeðjunni Auchan hefur verið skipað að greiða íþróttavöruframleiðandanum Nike jafnvirði 3,1 milljóna króna í skaðabætur en fyrirtælkin framleiddu falsaða skó undir merkjum Nike. Viðskipti erlent 21.8.2007 08:59
Hreyfillinn sprakk Engan sakaði þegar hreyfill Boeing flugvélar tævanska flugfélagsins China Airlines sprakk í loft upp á flugvellinum á Okinawa í morgun. Farþegar komust við illan leik frá borði en vélin varð alelda og brotnaði í tvennt. Erlent 20.8.2007 19:06
Lögum um dóma yfir níðingum breytt Frakkar eru harmi slegnir eftir að dæmdur barnaníðingur beitti fimm ára dreng ofbeldi tæpum mánuði eftir að hann losnaði úr fangelsi. Geðlæknar höfðu varað við því að sleppa manninum. Frakklandsforseti vill breyta lögum þannig að níðingar sleppi ekki eftir afpánun nema að vel athugðu máli. Erlent 20.8.2007 19:04
Bíða eftir flugi frá Júkatan-skaga Tíu Íslendingar bíða milli vonar og ótta um hvort þeir nái flugi frá Júkatan skaga nú þegar fellibylurinn Dean stefnir hraðbyri á Mexíkó. Íslendingarnir fóru frá Cancun í gær þar sem búist er við miklum veðurofsa. Óttast er að bylurinn nái mesta styrk áður en hann skellur á Mexíkó á næstu klukkustundum. Erlent 20.8.2007 18:58
Virðisaukaskatturinn drýgstur Fjögurhundruð tuttugu og tveir milljarðar króna runnu í ríkissjóð á síðasta ári - næstum sama upphæð og árið áður. Virðisaukaskatturinn er drýgstur og gæti einn staðið undir heilbrigðiskerfinu, háskólum og framhaldsskólum. Og meiru til. Innlent 20.8.2007 17:21
Verðmætara að passa fé en börn Það er skelfilegt að þjóðfélagið meti það til hærri launa að passa peninga en börn, segir Beata Tarasuik, sem ákvað nýverið að segja upp, eftir níu ára starf á leikskóla. Hún hefur fengið starf sem gjaldkeri hjá Glitni og snarhækkar við það í launum. Innlent 20.8.2007 17:26
Úrvalsvísitalan yfir 8.000 stig Úrvalsvísitalan hefur hækkað nokkuð í morgun í takt við hækkanir á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og fór yfir 8.000 stig um hádegisbil en vísitalan fór undir 8.000 stig í niðursveiflu á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í síðustu viku. Gengi bréfa í Exista hefur leitt hækkunina í Kauphöllinni það sem af er degi en gengið hefur hækkað um rúm fimm prósent. Viðskipti innlent 20.8.2007 12:52
Exista hækkar mest í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan tók ágætlega við sér við opnun viðskipta í Kauphöllinni í morgun eftir lækkanahrinu í síðustu viku og hækkaði um rétt rúm 2,2 prósent. Þetta er í takti við það hækkanir á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í dag. Gengi bréfa í Exista leiða hækkunina en gengi bréfa í félaginu hefur hækkað um tæp fimm prósent. Viðskipti innlent 20.8.2007 10:04
Nasdaq skoðar sölu á LSE-hlutum Stjórnendur Nasdaq hafa fengið heimild til þess að selja rúmlega þriðjungshlut sinn í bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE). Markaðurinn festi sér hlutinn þegar það reyndi að yfirtaka rekstur LSE á síðasta ári. Nasdaq keppir um þessar mundir við kauphöllina í Dubai um kaup á norrænu kauphallarsamstæðunni OMX, sem meðal annars rekur Kauphöllina hér. Viðskipti erlent 20.8.2007 09:24
Nýnasistar háværir í Danmörku Nýnasistar létu í sér heyra í Kolding í Danmörku í gær þar sem þeir minntust þess að tuttugu ár eru liðin frá nasistaforingjanum Rudolf Hess. Hundrað manns voru handteknir - fæstir af þeim þó nýnasistar. Leiðtogi þeirra var þó færður í járn fyrir að ráðast á laganna verði. Erlent 19.8.2007 18:18
Nakið fólk á jökli Mörg hundruð manns létu kuldann ekki á sig fá og beruðu sig í Svissnesku ölpunum í gær. Var það allt gert fyrir listina en þar var ljósmyndarinn Spencer Tunick mættur til að skapa listaverk með Grænfriðingum. Erlent 19.8.2007 12:26
Göngu nýnasista mótmælt Um hundrað manns voru handteknir þegar mikil ringulreið skapaðist í Kolding í Danmörku í gær. Nýnasistar höfðu safnast saman í miðborginni til að minnsta þess að 20 ár voru frá dauða nasistaforingjans Rudolfs Hess. Erlent 19.8.2007 12:19
Fellibylurinn Dean ógnar ríkjum Karíbahafsins Yfirvöld á Jamaíku búast við hinu versta nú þegar fellibylurinn Dean stefnir hraðbyr á landið. Óttast er að bylurinn valdi miklum skemmdum og jafnvel manntjóni á eyjum á Karíbahafinu. Útgöngubann er nú í gildi á Jamaíku og búið að loka öllum flugvöllum. Erlent 19.8.2007 12:08
Fellibylurinn Dean nær landi á Jamaíku Jamaíkubúar eru viðbúnir því versta nú þegar fellibylurinn Dean hefur náð landi þar. Vindhraði í verstu hviðum er rúmlega 60 metrar á sekúndu og því spáð að úrkoma mælist um 50 sentimetrar. Því er spáð að bylurinn nái mesta styrk þegar hann kemur á Mexíkóflóa. Erlent 19.8.2007 18:11
Líst illa á tilboð í Sainsbury’s Eitt stærsta verkalýðsfélag Bretlandseyja hvetur stjórn bresku verslunarkeðjunnar Sainsbury´s að hafna tilboði í keðjuna sem fjárfestingafélag frá Quatar hefur lagt fram. Það er konungsfjölskylda landsins sem stendur á bak við félagið, Delta Two. Viðskipti erlent 18.8.2007 13:37
Góð byrjun á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hækkaði við opnun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í dag eftir að seðlabanki landsins ákvað að koma til móts við niðursveiflu á mörkuðum með lækkun millibankavaxta. Viðskipti erlent 17.8.2007 13:38
Novator selur BTC fyrir 127 milljarða króna Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur lokið við sölu á 90 prósenta hlut sínum í búlgarska landssímanum, BTC, til bandaríska fjármálafyrirtækisins AIG Global Investment Group. Söluandvirði nemur 1,4 milljörðum evra, jafnvirði 127 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 17.8.2007 13:05
Vísitölur á uppleið eftir vaxtalækkun Gengi hlutabréfa á alþjóðamörkuðum rauk upp skömmu eftir að seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði óvænt millibankavexti til að koma til móts við niðursveiflu á hlutabréfamörkuðum í dag. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 4,14 prósent. Gengi bréfa í Landsbankanum leiddi hækkunina til skamms tíma þegar bréfin ruku upp um 6,7 prósent. Viðskipti innlent 17.8.2007 12:34
Vextir lækkaðir í Bandaríkjunum Seðlabanki Bandaríkjanna kom til móts við niðursveiflu á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag með lækkun millibankavaxta upp á 50 punkta. Við það fara vextirnir úr 6,25 prósentum í 5,75 prósent. Viðskipti erlent 17.8.2007 12:24
Føroya Banki opnar útibú í Danmörku Hinn færeyski Føroya Banki ætlar að setja á laggirnar útibú í Danmörku á fyrsta fjórðungi næsta árs. Hlutabréf í bankanum eru skráð í Kauphöllina hér og í Kaupmannahöfn í Danmörku. Føroya Banki segir aðstæður á dönskum bankamarkaði ríma vel við stefnu bankans. Viðskipti innlent 17.8.2007 11:24
Nasdaq segir tilboð sitt betra Forsvarsmenn bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq hvetja hluthafa í norrænu OMX-kauphallarsamstæðunni til að halda að sér höndum þrátt fyrir að kauphöllin í Dubaí hafi lagt fram hærra yfirtökutilboð í norræna markaðinn í dag. Kauphöllin í Dubai ræður nú þegar yfir 25 prósentum af hlutafé OMX. Viðskipti erlent 17.8.2007 10:39
Vilja hætta við hækkun stýrivaxta Hagfræðingar hafa áhyggjur af því að hagvöxtur muni minnka á heimsvísu í kjölfar samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði sem hefur valdið usla á alþjóðlegum hlutabréfamarkaði. Gangi það eftir mun fjármögnun verða erfiðari en áður. Bloomberg segir að evrópski seðlabankinn verði að falla frá hækkun stýrivaxta í næsta mánuði. Viðskipti erlent 17.8.2007 09:37
Exista leiðir hækkanir í Kauphöllinni Exista leiðir hækkanir í Kauphöllinni í dag eftir talsverðar lækkanir síðustu dags. Úrvalsvísitalan hækkaði um rúm 1,5 prósent við opnun viðskipta í Kauphöll Íslands í dag en þetta er í samræmi þróunina á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag, sem þó hafa sveiflast beggja vegna núllsins. Viðskipti innlent 17.8.2007 10:08
Hækkanir og lækkanir í Evrópu Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa tekið ágætlega við sér í kjölfar minni lækkana á Wall Street í gær en dagana á undan. Taugatitrings gætir hins vegar hjá asískum fjárfestum en Nikkei-vísitalan lækkaði um rúm 5,4 prósent við lokun markaða í Japan í morgun. Vísitalan hefur ekki lækkað jafn mikið á einum degi í sjö ár. Viðskipti erlent 17.8.2007 09:18
Minnst 500 látnir Minnst 500 manns týndu lífi og 1500 slösuðust í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Upptök skjálftans eru í Kyrrahafinu, suð-austur af höfuðborginni Líma. Flestir hinna látnu bjuggu í strandhéraðinu Ica. Erlent 16.8.2007 18:27
Afkoma Icelandic Group undir væntingum Afkoma Icelandic Group dróst nokkuð saman á milli ára. Hagnaðurinn nam 2,2 milljónum evra, jafnvirði rúmar 208 milljónir króna, á fyrri hluta árs. Það tapaði hins vegar 84 þúsund evrum á öðrum ársfjórðungi samanborið við tæplega 1,3 milljóna evra hagnað á sama tíma í fyrra. Björgólfur Jóhannsson forstjóri félagsins, segir afkomuna ekki í samræmi við væntingar. Viðskipti innlent 16.8.2007 17:12
Enn þrengir að bandarískum fasteignamarkaði Samdrátturinn á bandarískum fasteignamarkaði hefur skilað sér í því að nýbyggingum hefur snarfækkað vestra og hafa þær ekki verið með minna móti í áratug. Útgáfa nýrra byggingarleyfa hefur ekki verið með minna móti í ellefu ár. Fjöldi byggingarleyfa þykir ágæt vísbending um komandi tíð, sem er ekki björt, að mati greinenda. Viðskipti erlent 16.8.2007 16:32
Exista lækkaði mest í Kauphöllinni Hlutabréfavísitölur víða um heim hafa lækkað mikið í dag. Þar á meðal féll Úrvalsvísitalan um 3,84 prósent og stendur hún í 7.572 stigum en vísitalan hefur ekki verið jafn lág síðan í byrjun apríl. Gengi Existu lækkaði mest, eða um 8,32 prósent. Fast á hæla félagsins fylgja Teymi, 365 og Icelandair Group. Viðskipti innlent 16.8.2007 15:36
Vísitölur niður í Bandaríkjunum Hlutabréfavísitölur lækkuðu í fyrstu viðskiptum dagsins á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Markaðirnir opnuðu fyrir nokkrum mínútum og virðist sem hrakspár fjárfesta um áframhaldandi niðursveiflu haldi áfram. Viðskipti erlent 16.8.2007 13:35
Fjárfestar reikna með frekari lækkun vestanhafs Fjárfestar í Bandaríkjunum hafa sett sig í stellingar fyrir enn eina dýfuna á hlutabréfamarkaði vestanhafs í dag eftir að forsvarsmenn fjármálafyrirtækisins Countrywide Financial Corporation, einu stærsta fasteignalánafyrirtæki þar í landi, greindu frá því að þeir hefðu þurft að sækja í varasjóði sína vegna lausafjárskorts. Viðskipti erlent 16.8.2007 12:38