Nýnasistar háværir í Danmörku Guðjón Helgason skrifar 19. ágúst 2007 18:45
Nýnasistar létu í sér heyra í Kolding í Danmörku í gær þar sem þeir minntust þess að tuttugu ár eru liðin frá nasistaforingjanum Rudolf Hess. Hundrað manns voru handteknir - fæstir af þeim þó nýnasistar. Leiðtogi þeirra var þó færður í járn fyrir að ráðast á laganna verði. Hess var næstráðandi á eftir Adolf Hitler í Nasistaflokknum - þriðji í röð þeirra sem stýrðu Þriðja ríkinu. Hann var handtekinn í Skotlandi 1941. Talið er að hann hafði flogið þangað til að reyna að semja um frið við Breta. Hann var fangelsaður í Lundúnaturninum og síðar dæmdur í lífstíðarfangelsi í réttarhöldunum í Nürnberg eftir Seinni heimsstyrjöldina. Hann afplánaði í Spandau-fangelsinu í Berlín en þar lést hann sautjánda ágúst 1987. Nýnasistar víða um heim hafa sýnt honum mikla virðingu hin síðari ár og hafa göngur honum til heiðurs verið farnar víða - meðal annars í Þýskalandi. Sá sem fór fyrir nýnasistum í Kolding í Danmörku í gær var Jonni Hansen, leiðtogi þeirra. Andstæðingar nýnasista mættu þeim og til átaka kom. Þegar lögregla reyndi að skakka leikinn beindu nýnasistar reiði sinni að lögreglumönnum og voru nokkrir þeirra handteknir fyrir að ráðast á lögreglu. Þar á meðal var Hansen sem var í dag úrskurðaður í tíu daga gæsluvarðhald en honum er gefið að sök að hafa barið einn lögreglumann ítrekað í höfuðið. Allt í allt voru hundrað manns handteknir í átökunum í gær - nýnasistar sem og andstæðingar þeirra.
Erlent Fréttir Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira