Gæti gosið hvenær sem er Um 6.500 jarðskjálftar hafa nú mælst á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis frá því að yfirstandandi hrina hófst. Fimmtán skjálftar voru yfir fjórir að stærð og tugir yfir þremur. 7.7.2023 06:47
Fréttirnar séu „mestmegnis slúður og hrein ósannindi“ Helgi Magnússon, stjórnarformaður Hofgarða og stærsti kröfuhafinn í þrotabú Torgs sem gaf meðal annars út Fréttablaðið, gerir alvarlegar athugasemdir við frétt Mbl.is um skipti í þrotabúinu og segir hana í stórum dráttum ranga og villandi. 6.7.2023 15:08
Ríkisstjórnin hangi saman af ótta við kjósendur Stjórnmálafræðiprófessor segir allt leika á reiðiskjálfi í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Flokkarnir eigi erfitt með að ná saman um einstök mál. Þetta leiði til þess að hver ráðherra vinni í sínu horni. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina hanga saman af ótta við kjósendur. 6.7.2023 13:18
Skiptastjóri skoði að rifta samningi Helga Skiptastjóri þrotabús Torgs, sem gaf út Fréttablaðið, er með það til skoðunar hvort ástæða sé til að rifta samningi félagsins við félag Helga Magnússonar, þegar dv.is og aðrar eignir Torgs voru keyptar af félagi í hans eigu. 6.7.2023 07:36
Vaktin: Skjálfti að stærð 4,2 sá stærsti í dag Það dró heldur úr skjálftavirkni og skjálftastærð á Reykjanesskaga í nótt en alls mældust 750 skjálftar eftir miðnætti. Stærsti skjálfti dagsins var hins vegar 4,2 að stærð og reið yfir klukkan 11:03 í morgun. 6.7.2023 06:31
Bæjarstjórinn sneri úr fríi þegar skjálftahrinan hófst Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur var nýfarinn í sumarfrí þegar skjálftahrinan hófst á Reykjanesskaga og dreif sig aftur heim. Hann segir tímasetninguna óheppilega þar sem margir viðbragðsaðilar séu í sumarfríi og býst við gosi. 5.7.2023 16:56
Bjór á tilboði á tvö þúsund krónur Íbúum Hlíðahverfis brá í brún við að sjá nýjan verðlista hverfisbarsins. Nú kostar bjórinn þar hvorki meira né minna en tvö þúsund og fimmhundruð krónur. Tvö þúsund á tilboði frá klukkan fimm til níu, þá er sælustund (e. happy hour). 5.7.2023 16:44
Býst við skjálftum hátt í 6,3 að stærð Sérfræðingur í jarðskorpuhreyfingum býst við jarðskjálftum hátt í sex að stærð á næstu sólarhringum á Reykjanesskaga. Virknin á svæðinu er mjög sambærileg þeirri sem var í aðdraganda eldgossins á síðasta ári í Meradölum. 5.7.2023 13:43
Ferðamenn á svæðinu mesta áhyggjuefnið „Við ýtum bara á takka sem heitir copy/paste,“ segir Bogi Adolfsson formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í samtali við Vísi um viðbrögð sveitarinnar við jarðhræringum á Reykjanesskaga. Fjöldi ferðamanna hefur verið á svæðinu frá síðasta eldgosi, sem Bogi segir mesta áhyggjuefnið. 5.7.2023 10:36
Vaktin: Beðið eftir eldgosi Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, segir menn nú frekar gera ráð fyrir að gos hefjist en ekki. Fundað var um stöðuna í morgun og óvissustigi hefur verið lýst yfir. 5.7.2023 09:27