Jóhann Þór: Kemur nýr leikmaður í fyrramálið „Ég er í raun fúll með leikinn í heild sinni. Við vorum yfir hálfleik og það voru ljósir punktar. Við vorum mjúkir í fyrri hálfleik en við vorum mýkri en koddi úr Rúmfatalagernum í seinni hálfleik," sagði Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir tapið gegn Keflavík í Dominos-deildinni í kvöld. Körfubolti 18. janúar 2019 22:14
Borche: Tókum þennan leik eins alvarlega og úrslitaleik á HM ÍR valtaði yfir Breiðablik í Domino's deild karla í kvöld. Borche Ilievski, þjálfari ÍR, sagði sína menn hafa tekið leikinn mjög alvarlega. Körfubolti 18. janúar 2019 21:14
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - ÍR 68-99| Breiðhyltingar völtuðu yfir Blika ÍR átti ekki í neinum vandræðum með lið Breiðabliks í Domino's deild karla í kvöld Körfubolti 18. janúar 2019 21:00
Endurkomukvöldið mikla í Domino´s deildinni Þórsarar, Stjörnumenn og Njarðvíkingar unnu öll dramatískan sigur í Domino´s deild karla í gærkvöldi eftir frábærar endurkomur. Endurkoma Þórsara á móti Íslandsmeisturum KR verður verður aftur á móti örugglega sú sem mest verður talað um að kaffistofum landsins í dag. Körfubolti 18. janúar 2019 11:30
Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur - Stjarnan 80-94 | Stjarnan sterkari í seinni hálfleik Skallagrímur leiddi með tuttugu stigum í hálfleik í Borgarnesi en Garðbæingar komu til baka og stálu sigrinum Körfubolti 17. janúar 2019 22:45
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Njarðvík 88-90 | Ljónin komin í vænlega stöðu á toppnum Njarðvíkingar þurftu að hafa fyriir sigrinum gegn Valsmönnum á Hlíðarenda í kvöld. Á sama tíma tapaði Tindastóll svo Njarðvík er með fjögurra stiga forskot á toppnum Körfubolti 17. janúar 2019 22:30
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Tindastóll 73-66 | Loks unnu Haukar leik Eftir fimm tapleiki í röð unnu Haukar loks aftur körfuboltaleik og það gegn engum öðrum en bikarmeisturunum í Tindastól. Körfubolti 17. janúar 2019 22:15
Umfjöllun: Þór Þ. - KR 95-88 | Dramatísk endurkoma Þórsara Þórsarar unnu upp tuttugu stiga mun í fjórða leikhluta gegn fimmföldum Íslandsmeisturum KR Körfubolti 17. janúar 2019 22:00
Hafði Seinfeld áhugi þjálfarans áhrif á komu Kramer? Tveggja metra Austurríkismaður er síðasta púslið í leikmannhóp Stjörnunnar fyrir átökin í Domino´s deild karla í körfubolta eins og kom fram á Vísi. Körfubolti 17. janúar 2019 14:00
Nýi stóri strákurinn hjá Stjörnunni kominn með leikheimild Nýjasti Stjörnumaðurinn í körfuboltanum, Austurríkismaðurinn Filip Kramer, fékk í dag leikheimild hjá KKÍ, og getur því spilað með Stjörnunni á móti Skallagrím í Borgarnesi í kvöld. Körfubolti 17. janúar 2019 13:30
Körfuboltakvöld: Ruðningurinn á Mantas var rangur dómur Það var mjög umdeildur dómur á ögurstundu undir lok leiks KR og Keflavíkur í Domino's deild karla á föstudag. Sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport komust að því að dómurinn væri einfaldlega rangur. Körfubolti 13. janúar 2019 15:00
Körfuboltakvöld: Vanmat Stólanna sem nenntu ekki að spila leikinn Tindastóll tók 51 þriggja stiga skot í sigrinum á Val í Domino's deild karla á fimmtudag. Sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds ræddu þessa miklu þristanotkun í þætti vikunnar. Körfubolti 13. janúar 2019 13:30
Var algjörlega búinn á því, lagðist í gólfið og fékk þrúgusykur frá sjúkraþjálfaranum Kinu Rochford hefur gert það gott með Þór úr Þorlákshöfn í Dominos-deild karla eftir að hann skrifaði undir samning við félagið um miðjan september. Körfubolti 12. janúar 2019 22:45
Umfjöllun og viðtöl: KR - Keflavík 80-76 | Háspennusigur heimamanna Bæði lið eru með 16 stig í fjórða og fimmta sæti deildarinnar. Sigurvegari kvöldsins kemst nær toppliðunum og sest við hlið Stjörnunnar í þriðja sæti. Körfubolti 11. janúar 2019 23:30
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Haukar 92-74 | Mikilvægur sigur ÍR ÍR bætti stöðu sína í 8. sæti Domino's deildar karla með sigri á Haukum í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Körfubolti 11. janúar 2019 21:15
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 82-76 | Njarðvíkingar sluppu með skrekkinn gegn Þór Þ. Njarðvíkingar halda toppsæti sínu eftir sex stiga sigur á Þór Þorlákshöfn í hörkuspennandi leik í Ljónagryfjunni í kvöld. Körfubolti 10. janúar 2019 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Skallagrímur 90-83 | Seiglusigur hjá Grindavík Grindavík vann sjö stiga sigur á Skallagrím, 90-83, í baráttuleik suður með sjó í kvöld. Þeir færa sig því nær liðunum í efstu fjórum sætunum en Skallagrímur er í erfiðri stöðu í fallsæti Dominos-deildarinnar. Körfubolti 10. janúar 2019 22:00
Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Valur 97-94 | Stólarnir höfðu betur í framlengingu Tindastóll er í öðru sæti deildarinnar með 20 stig en Valur er í níunda sæti með 8 stig. Körfubolti 10. janúar 2019 22:00
Einar Árni: Ákveðin fegurð í að vinna leiki þegar hlutirnir detta ekki með manni Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur var ánægður með sigur sinna manna gegn Þórsurum í Ljónagryfjunni í kvöld. Leikurinn í kvöld var langt frá því að vera sá besti hjá þeim grænu í vetur, en sigur er alltaf sigur. Körfubolti 10. janúar 2019 21:45
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 102-73 | Stórsigur Stjörnunnar Stjarnan er í fjórða sæti deildarinnar með 16 stig en Blikarnir eru í basli á botninum með aðeins tvö stig. Körfubolti 10. janúar 2019 21:45
Clinch: Sagði þeim að ég myndi setja næsta skot niður Lewis Clinch hefur líklega oft spilað betur en hann gerði í kvöld en þriggja stiga karfan var gríðarlega mikilvæg þegar Grindavík vann sjö stiga sigur á Skallagrím suður með sjó í kvöld. Körfubolti 10. janúar 2019 21:13
Fella Þórsarar aftur topplið deildarinnar í kvöld? Þórsarar geta annan leikinn í röð unnið efsta liðið í Domino´s deild karla í körfubolta. Körfubolti 10. janúar 2019 17:00
Dugði ekkert minna en Rambo til að fylla skarð Kendall Valsmenn urðu fyrir miklu áfalli þegar Kendall Lamont Anthony fór frá liðinu. Þegar menn lenda í neyð þá hringja þeir auðvitað í Rambo. Körfubolti 10. janúar 2019 11:59
Lewis Clinch segist elska alla dómara á Íslandi: Ekki meðvitaður um að ég gæti fengið bann fyrir þetta Lewis Clinch læsti Twitter síðu sinni en sendi Körfunni og Körfuknattleikssambandinu skilaðboð eftir atburði dagsins. Körfubolti 9. janúar 2019 14:45
Vísa Twitter-færslu Clinch um dómarana í Keflavík-Njarðvík til aganefndar KKÍ Lewis Clinch, leikmaður Grindavíkur í Domino´s deild karla gæti verið í vandræðum vegna þessa sem hann sagði um leik milli tveggja annarra liða í deildinni. Körfubolti 9. janúar 2019 13:00
Framlengingin: Stærsti sigurinn, skínandi Stjörnumenn og stífir Stólar Framlengingin var að sjálfsögðu á sínum stað í Körfuboltakvöldi í gær þegar Kjartan Atli Kjartansson fékk sérfræðinga sína til að fara yfir heitustu málin í körfunni. Körfubolti 8. janúar 2019 12:30
Örugglega einhverjir grátandi Valsmenn fyrir framan sjónvarpið heima Kendall Lamont Anthony, stigahæsti leikmaður Domino´s deildar karla í körfubolta, hefur spilað sinn síðasta leik með Val í vetur eftir að Hlíðarendaliðið seldi hann til franska úrvalsdeildarliðsins BCM Gravelines-Dunkerque. Körfubolti 8. janúar 2019 11:00
Teitur fagnaði hreyfingu Elvars eins og hann hefði skorað mark í fótbolta Ein stjarna skein skærast á gólfinu í Keflavík í gær þegar Njarðvíkingar unnu Reykjanesbæjarslaginn og komust fyrir vikið einir í toppsæti Domino´s deildar karla í körfubolta. Körfubolti 8. janúar 2019 09:30
„Fór úr því að vera manneskja í eitthvað rusl sem mátti brenna“ Bandaríski körfuboltamaðurinn Terrell Vinson ber forráðamönnum körfuknattleiksdeildar Grindavíkur ekki vel söguna og segir þá hafa komið skelfilega fram við sig. Körfubolti 8. janúar 2019 08:00
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 85-88 | Elvar Már frábær þegar Njarðvík lagði nágrannana Njarðvíkingar unnu sætan sigur á nágrönnum sínum í Keflavík í kvöld þegar liðin mættust í Dominos-deildinni. Þeir unnu þriggja stiga sigur, 88-85 og eru með sigrinum einir í toppsæti deildarinnar. Körfubolti 7. janúar 2019 22:00