Hvað veistu um... Snæfellsnes? Snæfellsnes er langt og fallegt nes á Vesturlandi með Faxaflóa sunnanmegin og Breiðafjarðar fyrir norðan. Meðfram nesinu eru svo fjallgarður og þar yst má finna Snæfellsjökul og þjóðgarðinn þar um kring. Lífið 3.6.2026 20:02
Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Björgunarskip Landsbjargar sinntu tveimur útköllum á sjó í dag. Fyrst vegna elds um borð í fiskibáti en svo um hálftíma eftir að því útkalli lauk barst útkallið frá Öndverðarnesi. Innlent 3.6.2026 19:26
Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Eldur kviknaði í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var á Breiðafirði um hádegisbil í dag. Einn maður var um borð í bátnum. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út. Innlent 3.6.2026 14:45
Stöðugleiki sem viðmið Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga er eðlilegt að rætt sé um breytingar, nýjar áherslur og ólíkar leiðir í stjórn sveitarfélaga. Slík umræða er nauðsynleg. Hún verður þó að byggjast á raunverulegri reynslu af því hvernig mismunandi stjórnarhættir hafa reynst í framkvæmd. Þar getur Snæfellsbær þjónað sem gagnlegt viðmið. Skoðun 23. desember 2025 11:02
Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO Snæfellsnes varð í dag fyrsta svæðið á Íslandi til að vera skilgreint sem vistvangur af Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Björg Ágústsdóttir, formaður stjórnar Svæðisgarðsins og bæjarstjóri í Grundarfirði, segir þetta afrakstur áralangs starfs sem Snæfellingar hafa verið í, í umhverfis- og samfélagsmálum. Innlent 27. september 2025 13:48
Drógu vélarvana togara í land Björgunarskipið Björg á Rifi á Snæfellsnesi var kallað út í morgun vegna togara sem staddur var rétt norður af Snæfellsnesi en hafði misst vélarafl. Fór svo að togarinn var dreginn til hafnar í Grundarfirði og voru skipin komin þangað um þrjúleitið síðdegis. Innlent 19. september 2025 23:16
Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Samgöngur á Vesturlandi hafa orðið útundan undanfarin ár, að mati Samtaka sveitarfélaga á svæðinu. Forsvarsfólk þeirra krafðist úrbóta á fundi með ríkistjórninni á fimmtudag. Þá þurfi að bæta fjarskiptakerfi, fjölga hjúkrunarrýmum og berjast gegn verndartollum á kísiljárn. Innlent 16. ágúst 2025 15:03
Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Alþjóðlegir sem íslenskir tónlistarmenn stíga á stokk á fjögurra daga tónlistar- og fræðihátíð á Hellissandi á Snæfellsnesi eftir slétt ár. Emilíana Torrini, GusGus og Daði Freyr eru á meðal innlendra listamanna. Lífið 12. ágúst 2025 17:47
Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur svarar starfsbróður sínum fullum hálsi og sendir „dylgjur“ til föðurhúsanna um að spá sín um eldgos á Snæfellsnesi innan þriggja ára sé órökstudd. Hann telur að gos geti hafist á Snæfellsnesi með skömmum fyrirvara. Innlent 5. ágúst 2025 11:58
Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur er gagnrýndur af öðrum vísindamanni, Haraldi Sigurðssyni eldfjallafræðingi, fyrir að spá því að ekki sé langt í eldgos í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi. Innlent 4. ágúst 2025 07:27
Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Refafjölskylda í Snæfellsjökulsþjóðgarði hefur slegið í gegn hjá ferðamönnum sem heimsækja svæðið. Læða með sjö yrðlinga lætur sér fátt um finnast þótt ferðamenn séu í nánd, en landverðir passa að refirnir fái að vera í friði. Lífið 31. júlí 2025 23:09
Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað bátaverkstæði í Bolungarvík af kröfum fiskiútgerðarinnar Glifsu, sem tókst ekki að sanna að verkstæðið hafi valdið tjóni í bátsvél útgerðarinnar. Margt annað gæti hafa átt sinn þátt í biluninni, til dæmis að vélin væri sautján ára gömul. Innlent 29. júlí 2025 10:34
Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum „Ég grátbað þá á gjörgæslunni að vekja mig ekki, og bjarga mér ekki. Ég sagði: Getið þið plís gert mér þann greiða að aftengja þessi tæki og leyfa mér að fara. Ég var það kvalinn og áhyggjufullur að nú yrði ég byrði á mig og mína og það yrði ekkert líf framundan. Ég hélt þetta að væri bara búið,“ segir Magnús Sigurjón Guðmundsson mótorhjólakappi. Lífið 18. júlí 2025 23:55
Stór ferðahelgi framundan og bæjarhátíðir víða um land Ein stærsta ferðahelgi ársins er framundan og stórir viðburðir haldnir víða um land. Goslokahátíð í Vestmannaeyjum nær hápunkti á morgun og þá er búist við fjölmenni á Akranesi í tengslum við Írska daga. Innlent 4. júlí 2025 13:01
Mikið viðbragð vegna leka í fiskibáti Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi og áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri voru kallaðar út í dag í kjölfar þess að skipstjóri fiskibáts hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á tólfta tímanum og lýsti yfir neyðarástandi vegna leka um borð í bátnum. Töluverður sjór var þá kominn í vélarrúm bátsins. Innlent 26. júní 2025 13:10
Kona féll í Svöðufoss Björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð til um klukkan 13 í dag til að sækja konu sem hafði fallið ofan í Svöðufoss á Snæfelssnesi. Konan hefur verið flutt á Landspítalann í Fossvogi en hún var með meðvitund þegar viðbragðsaðilar komu að henni. Innlent 23. júní 2025 15:39
Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Aðstandendur Secret Solstice skipuleggja nú í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Immersive Experiences (IMXP) fjögurra daga tónlistar- og menningarhátíð sem fer fram á Hellissandi á næsta ári á sama tíma og almyrkvi á sólu verður sýnilegur á Íslandi. Seldir verða að hámarki fimm þúsund miðar á hátíðina. Lífið 20. júní 2025 11:00
„Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Maður sem lék sér á sjóbretti í gær segist ekki hafa orðið skelkaður þegar hann var skyndilega umkringdur níu háhyrningum. Hann og háhyrningarnir séu orðnir góðir félagar eftir fjölmarga klukkutíma úti á sjó. Lífið 18. júní 2025 21:00
Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Óþekktur maður lék sér á sjóbretti með háhyrningahjörð úti á sjó hjá Hellnum á Snæfellsnesi í kvöld. Einu sinni sást til hans syndandi í sjónum, en vitni sáu ekki hvort hann hafði dottið af brettinu eða stungið sér vitandi vits til sunds. Innlent 17. júní 2025 22:17
Landsliðshetjur elta drauminn til Ólafsvíkur Knattspyrnukempurnar Helena Ólafsdóttir og Guðlaug Jónsdóttir flytja á næstunni vestur til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi. Helena segir að þær hafi langað að prófa búa á landsbyggðinni og það sé hollt að prófa eitthvað nýtt áður en maður verður of gamall. Lífið 20. maí 2025 21:29
Manni bjargað eftir að fiskibátur hans strandaði við grjótgarð Mannbjörg varð þegar lítill fiskibátur strandaði við grjótgarðinn fyrir utan höfnina á Rifi snemma í morgun. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Landsbjörg. Þar segir að um fjögur í nótt hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar borist neyðarkall á rás 16 frá fiskibát sem var á leið á miðin frá Rifi. Innlent 20. maí 2025 07:59
Lítil Björg dró stóra Hildi í land Björgunarskipið Björg var kallað út um hádegisbil í dag vegna vélarvana skips norður af Rifi. Innlent 8. maí 2025 18:46
Missti vélarafl suður af Snæfellsnesi Áhafnir björgunarskipanna Bjargar á Rifi og Jóns Gunnlaugssonar voru kallaðar út klukkan 9:30 í morgun vegna fiskibáts sem misst hafði vélarafl suður af Snæfellsnesi, skammt vestur af Landbrotavík. Báturinn var dreginn til hafnar á Akranesi. Innlent 22. apríl 2025 17:51
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11. mars 2025 23:17